Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 18
Á vinningur alls almennings af svo- kölluðu góðæri var óverulegur ef nokkur, en margir úr útrásinni lifa eins og furstar í útlöndum og bera engan kostnað af hruninu sem þeir sjálfir ollu.“ Þessi orð féllu af vörum Gunnars Gunnars- sonar í Speglinum, fréttaskýringa- og stjórn- málaþætti Ríkisútvarpsins, 7. apríl síðastliðinn, ekki löngu áður en rannsóknarskýrsla Alþingis kom út. Þetta viðhorf, þ.e. að ávinningur al- mennings hafi verið „óverulegur ef nokkur“, er sjálfsagt býsna útbreitt fyrst það kemst í Ríkis- útvarpið, en sama dellan engu að síður. Málið er nefnilega að við, almenningur, nut- um öll góðs af góðærinu sem nú hefur snúist upp í hallæri. Þannig streymdi í ríkssjóð fé frá bönkunum sálugu í formi skatta og það fé var meðal annars notað til ýmissa hluta eins og að eyða millj- arði í að skera Ríkisútvarpið úr óreiðusnörunni, byggja menningarhús úti um landið og leggja og lagfæra vegi, svo dæmi séu tekin. Starfsmenn þessara sömu banka fengu líka vel greitt fyrir störf sín og eins starfsmenn fjölmargra fyrirtækja sem þöndust út sem aldrei fyrr, skiluðu met- hagnaði og borguðu metskatta. Svo hirti ríkið skatt af starfsmönnunum og líka skatt af því sem allir þessir starfsmenn keyptu fyrir peningana sína og skapaði við- skipti fyrir fullt af fyrirtækjum og búðum sem borguðu starfsmönnum sínum laun og svo koll af kolli og koll af kolli. Að sama skapi nutu allir góðs af góðærinu sem keyptu sér innflutta vöru, hvort sem það var bíll eða flatskjár eða koníak eða bækur eða niðursoðnar gulrætur eða svört skyrta og ljótt bindi. Það nutu líka allir góðs af sterkri krónu þegar þeir fóru til útlanda, og þeir voru marg- ir, hvort sem þeir fóru út til að fara á fótbolta- leik, eða ná sér í sólarglætu, eða læra læknis- fræði eða klífa fjöll eða kaupa sér snekkju og þjónustu hispurmeyja. Það nutu líka allir góðs af háu atvinnustigi, af því að hér var svo mikið góðæri að arðbært var að vinna óarðbær störf. Flytja þurfti inn þúsundir manna til að vinna láglaunastörf vegna þess það fengust ekki nógu margir Ís- lendingar í þau störf; þeir voru svo uppteknir af því að vinna betur launaða vinnu. Ríkisstarfsmenn nutu líka góðs af góð- ærinu, enda fjölgaði þeim og ríkið þandist út sem aldrei fyrr. Þeir njóta reyndar líka góðs af hallærinu, því störf þeirra eru velferðinni víst svo mikilvæg að okkur er sagt að ekki megi hrófla við þeim. Ég ólst upp við að lesa íslenskar þjóðsögur og hafði sér- staklega mikið dálæti á huldufólkssögum. Huldufólk í ís- lenskum þjóðsögum var alveg eins og annað fólk nema það átti meira af öllu; meiri mat, betri föt og þrifalegri búfénað (og var líka fríðara). Það eina sem skildi á milli var eig- inlega að það var ósýnilegt. Var það semsé bara huldufólk sem naut góðs af góðærinu? Af hverju sér maður það þá út um allt? arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Af huldufólki 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Margt erófagurtlátið falla um Grikki þessa dagana. Látið er eins og ekkert sé gott að segja um þessa þjóð nema það sem fornt er eða fyrnt. Þeir séu úr- ræðalausir, óskipulagðir, spilltir og latir. Því er gjarnan aukið við að landið hafi logið sig inn í samstarfið um evru með bókhaldskúnstum og talnabrellum. Vissulega á Grikkland skínandi sögu. Listir, menning, heimspeki og framúrstefna í stjórnskipun um hríð með lýðræðistilraun- um og sigursælasti herforingi allra tíma eru fátt eitt sem nefna má um tíð er þetta litla land var nafli hins þekkta al- heims. Hið almenna skot- veiðileyfi á Grikki nú á stoð í þeim fjárhagsvandræðum sem landið hefur ratað í. Ekki þarf þó að fara þúsundir ára aftur í tímann til að sjá skín- andi dæmi um að töggur sé í þessari þjóð þegar þarf. Að- dáun vakti er ofurefli Ítalíu fasismans var hrundið í síðari heimsstyrjöldinni af smáþjóð- inni og her Mússólínís hrakt- ist öfugur til baka, nið- urlægður og smáður. Þurfti sameiginlegt afl þeirra Hitl- ers til að brjóta Grikki á bak aftur þá.Vissulega hefur margur pottur verið brotinn í Grikklandi síðustu áratugi og lausung og lakari atriði en hún einkennt stjórnkerfið þar. En landið ber ekki eitt alla sök á því hvernig komið er. Og það sker sig ekki eins mikið úr og nú er látið. Ír- land, sem taldist undraríki fram- fara fyrir fáeinum árum, eng- ist sundur og saman. Atvinnu- leysi á Spáni er komið yfir 20 prósent og hjá fólki undir þrí- tugu um 40 prósent. Það er gósentíð á Íslandi eftir hið mikla hrun ef atvinnustigið er haft til viðmiðunar. Portúgal er óðfluga að tapa sínu láns- trausti og ýmsir óttast um Ítalíu. Skuldasöfnun Bret- lands er ekki fjarri því sem er í Grikklandi. En munurinn er sá að fyrrnefndu löndin eru evrulönd. Myntin þeirra tekur mið af ástandinu í Þýskalandi, en ekki því sem er að gerast hjá þeim sjálfum. Pundið lagar sig hins vegar að bresk- um veikleikum. Því er talið að Bretland muni hjálparlaust komast frá sínum vanda. Upphaf vanda Grikkja má rekja til ákvörðunar Banda- ríkjamanna, sem aðrir kusu að fylgja, um að fjármagn skyldi ekkert kosta og hægt væri að koma húsnæðismark- aði þar á skrið með töfra- brögðum og vafningum. Sök Grikkja, eins og fleiri, var sú að falla í þá freistni sem þessi hagstjórn bauð upp á. Vand- ræði þeirra margfölduðust svo við það að hafa glatað for- ræði yfir gjaldmiðli sínum og einkum bannar sú staðreynd þeim allar bjargir núna. Grikkir hafa misstigið sig, en þeir bera ekki einir alla sök} Bjargir bannaðar Hættan á aðþað sem áður var talið óhugs- andi, að evruríki yrði gjaldþrota, eykst nú með ógn- arhraða.“ Þetta segir hið danska viðskiptablað Börsen í gær. Vaxtakrafa á grísk ríkisskuldabréf var þá komin í 14,7 % og hafði síðustu klukkustundirnar á undan hækkað um 1,56 %. Sérfræðingar sem Börsen vitnar til reikna út frá þessum tölum að markaðurinn telji nú 58% líkur á að Grikkland verði gjaldþrota innan tveggja ára. Ráð ESB í þessum vandræð- um er að skylda ríki evrusvæð- isins til að lána Grikkjum fé með 5% vöxtum. Á slíkum lán- um getur Þýskaland hugs- anlega hagnast en þó eykst andstaðan við slíka fyr- irgreiðslu jafnt og þétt þar. En Portúgal, sem einnig er skyldað til að leggja sitt af mörkum í sam- skotabaukinn fyrir Grikki, er í annarri stöðu en Þýska- land. Portúgal, riðar sjálft efnahagslega og trú fjárfesta á greiðslugetu þess minnkar ört. Það yrði að taka lán með 5,45% vöxtum og lána Grikkjum á 5% vöxtum með von um endurgreiðslu. Sú aðgerð ein og sér mun flýta för Portúgala í hópferðina með Grikkjum í óvissuleiðangur um efnahagslegt öngþveiti. „Þetta er bilun,“ segja frétta- skýrendur. Hið eina sem ekki bilar þessa dagana er heilshugar stuðningur Vinstri grænna við umsókn Samfylkingarinnar um aðild að Evrópusamband- inu, með von um að koma Ís- landi í evruna, í skiptum fyrir nokkra ráðherrastóla. Icesave var „tær snilld“. Efnahagsleg úrræði ESB eru ekki lakari} Það sem ekki bilar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is V egna samdráttar í rekstri Landhelgisgæslunnar hefur dregið úr mögu- leikum hennar til björg- unar, sérstaklega þegar sækja þarf sjúka eða slasaða sjómenn með þyrlu meira en 20 mílur frá landi. Sjómenn hafa af þessu miklar áhyggjur og telja að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær ótímabært dauðsfall ber að höndum vegna þessa. Mönnum er sérstaklega hugsað til sjómanna sem verða við út- hafskarfaveiðar á næstu vikum. „Því er ekki að neita að vegna ár- ferðis hefur Landhelgisgæslan þurft að draga saman í rekstri eins og aðr- ir. Þó hefur okkur tekist með breyttu skipulagi og verklagi að draga mjög mikið úr því tjóni sem annars hefði orðið vegna fjárskorts. Við höfum notið skilnings stjórnvalda en vildum geta gert miklu betur,“ segir Georg Lárusson forstjóri. Yfirleitt ein þyrla til taks Gæslan er með þrjár þyrlur, tvær stórar björgunarþyrlur og eina litla. Til þess að tryggja björgun á sjó þurfa ávallt tvær þyrlur að vera til taks. Til þess að það sé mögulegt þarf fjórar þyrlur og tvær vaktir. Tvær vaktir allan sólarhringinn, allan árs- ins hring, kalla á sex og hálfa áhöfn í rekstri. Georg segir að stofnunin sé nú að- eins með fimm þyrluáhafnir og þær nái að dekka eina vakt og einn þriðja úr annarri. Það þýðir að yfirleitt er aðeins ein björgunarþyrla til taks og ekki hægt að treysta því að mögulegt sé að manna aðra þyrluna þótt hún sé tiltæk að öðru leyti. Sparnaðurinn kemur einnig niður á úthaldi skipa Landhelgisgæsl- unnar. Týr er eina varðskipið sem gert er út í sumar. Það takmarkar einnig björgunargetu Gæslunnar. „Sjómenn vilja að líf þeirra verði metið jafn dýrmætt og annarra þjóð- félagsþegna. Til þess að hægt sé að halda því fram með rökum að svo sé þarf að vera lágmarks viðbúnaður hjá Gæslunni,“ segir Árni Bjarnason, for- seti Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands. Árni segist hafa orðið mjög var við áhyggjur skipstjórnarmanna og ör- yggisleysi, sérstaklega þeirra sem sækja langt. „Þeim hrýs hugur við því að halda út á þetta hafsvæði með það á bakinu að geta lenti í slæmri stöðu þar sem enga þyrlu er að fá,“ segir hann. Hann segir að sjómenn telji að setja þurfi björgunarmálin ofar í for- gangsröðina. Ríkið sé að leggja fé í ýmislegt annað sem megi bíða. Úthafskarfaveiðarnar eru að hefj- ast. Þá verður væntanlega fjöldi ís- lenskra skipa að veiðum langt undan landi. Björgunarþyrlurnar fara helst ekki meira en 20 mílur frá landi nema önnur þyrla sé tiltæk. Georg segir þó að aðstæður séu metnar í hverju til- viki. Það veiti öryggi ef skip eru í leið- inni, sérstaklega björgunarskip, þar sem hægt er að taka eldsneyti. „Við reynum að vera með skip sem mest á karfaslóðinni,“ segir Georg um út- hafskarfaveiðarnar. Hann segir að samvinna sé við aðrar þjóðir og þegar íslenskt varðskip geti ekki verið úti séu þar skip frá öðrum þjóðum. Skipstjórum hrýs hugur við úthafinu Morgunblaðið/Kristinn Á flugi Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru mikilvæg öryggistæki sem íslensk- ir sjómenn treysta mikið á. Dregið hefur verið úr rekstri vegna fjárskorts. Ekki er hægt að sækja slasaða eða veika sjómenn á haf út nema með tveimur þyrlum. Landhelgis- gæslan hefur ekki fjárveitingar til að vera með tvær þyrluáhafnir á vakt allan sólarhringinn. Á 15 ára tímabili var 332 ein- staklingum bjargað af sjó með loftförum Landhelgisgæsl- unnar, samkvæmt upplýsingum sem forstjóri Landhelgisgæsl- unnar kynnti fyrir samtökum sjómanna. Þar af var helmingur fyrir utan 20 mílur frá landi. Á árunum 1994 til 2008 var alls 1344 einstaklingum bjargað með þyrlum og flugvélum Land- helgisgæslunnar, þar af fimmt- ungur af sjó. Af þeim 332 sem bjargað var af sjó var 143 bjarg- að að nóttu til. Auk þyrlna og flugvélar hefur Gæslan yfir að ráða tveimur varðskipum. Ægir verður í verk- efnum fyrir Evrópusambandið fram á haust og er Týr því einn eftir. Forstjóri Landhelgisgæsl- unnar segir að þetta verkefni sé mikilvægt fyrir Landhelgisgæsl- una og geri það að verkum að ekki þurfi að segja upp heilli áhöfn. Nýtt og öflugt björg- unarskip er í smíðum í Chile. Flugvélin TF-SIF hefur sannað gildi sitt við upplýsingaöflun í eldgosunum að undanförnu. Hún verður væntanlega leigð í verkefni fyrir ESB í sumar. 332 bjargað af sjó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.