Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Drottins orð Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, kom í setningarræðu sinni á Prestastefnu inn á nauðsyn þess að hafa orð Drottins í heiðri í fallvöltum heimi. Og víst er þörf á því að hver og einn horfi inn í sitt hjarta og til þeirra góðu gilda sem kristin trú boðar, þegar heil þjóð stendur frammi fyrir erfiðleikum sem hafa mikil áhrif á líf þegnanna. Kristinn SVEITARFÉLÖG í uppsveitum Árnes- sýslu, og hugsanlega víðar, hafa gjör- breytt fyrirkomulagi sorphirðu. Sumar- húsaeigendur eru bálreiðir enda stríðir þessi einstrengislega ákvörðun væntan- lega gegn lögum og reglugerð. Lands- samband sumarhúsa- eigenda hefur kært málið. Nú fer það eftir staðsetningu sumarbústaðar hvort hentugra er að flytja heimilissorpið úr sum- arhúsinu með sér í bæinn eða skipuleggja heimferð með tilliti til opnunartíma stöðvanna sem taka á móti sorpi á afmörkuðum tímum. Í mörgum tilvikum geng- ur það tæpast upp þegar viðkom- andi þarf að aka fleiri kílómetra í gagnstæða átt til að losa. Brott- farartími úr sumarbústaðnum ákvarðast trúlega í fæstum til- vikum af opnunartíma sorphirðu- stöðvanna og því fer sorpið með heim. Margir láta sér þetta fyr- irkomulag ekki lynda og henda heimilissorpinu fyrir utan hlið móttökunnar. Sjálfboðaliðarnir sem taka á móti eru ekki glaðir og telja þetta mikla afturför frá því sem áður var. Þetta fyrirkomulag demdist yf- ir svæðin seint á síðast ári er gámar voru fjarlægðir þaðan sem þeir hafa verið um áratuga skeið, enda greitt fyrir þá þjónustu samkvæmt ákvörðun sveit- arstjórnar. Til viðbótar við það óhagræði sem þetta skapar hefur nú verið sett gjald á allan annan úrgang, s.s. garð- úrgang, tré, timbur o.fl. Það kemur sum- arhúsaeigendum ekki á óvart að sveit- arstjórnir taki ein- hliða ákvarðanir án nokkurs samráðs við þessa farfugla sem oft hafa fengið orð í eyra þegar málefni þeirra hefur borið á góma. Á því svæði sem um ræðir eru yfir 4000 sumarbú- staðir og tugþúsundir íbúa úr ná- lægum þéttbýliskjörnum sækja þá árið um kring til að njóta um- hverfis og aðbúnaðar. Þeir hafa lagt til sveitarfélaganna mikið fjármagn í formi skatta og greiðslu á þjónustu. Þetta nýja fyrirkomulag á móttöku sorps er gjörsamlega úr takti við það sem við höfum búið við og teljum okk- ur eiga rétt á og er hér með skorað á sveitarstjórnirnar sem hér eiga hlut að máli, að endur- skoða þessa ákvörðun nú þegar og temja sér í framtíðinni tillits- semi í framkomu við sum- arhúsaeigendur. Eftir Ásgeir Guð- mundsson » Þetta nýja fyrir- komulag á móttöku sorps er gjörsamlega úr takti við það sem við höfum búið við og telj- um okkur eiga rétt á ... Ásgeir Guðmundsson Höfundur er fv. forstjóri og er eigandi sumarhúss í Bláskógabyggð. Sorphirða í sumar- húsabyggðum NÚ ER nokkuð liðið frá áramótum, þegar margur reykingamað- urinn lofaði sjálfum sér að hætta að reykja. Fyrstu vikurnar og mánuðirnir hafa verið mörgum þeim sem létu verða af því að hætta erfiðir en vonandi hafa þeir ekki gefist upp. Og þó svo hafi verið er mikilvægt að gefa reykbindindi ekki upp á bátinn og reyna aftur. Og aftur ef þarf. Reyk- ingafólk hefur það forskot miðað við aðra sem kljást við fíkn af ein- hverjum toga að þegar reykingum er hætt hefur líkaminn mjög fljótt viðgerð á því sem hefur skemmst. Árangur erfiðisins kemur því oft fljótt í ljós. Auðvitað er nikótínfíkn oft mjög erfið og stundum þannig að hún leiðir til líkamlegra fráhvarfs- einkenna og mikillar vanlíðunar í upphafi reykbindindis. Þau óþæg- indi líða hjá og mjög fljótlega er hægt að merkja að líkamlegt úthald hefur aukist og á vikunum þar á eftir minnkar hóstinn, lyktar- og bragð- skyn batnar og öndunarfærasýk- ingum fækkar. Þegar árin líða minnkar hætta á hjarta- og æðasjúkdómum og krabbameini. Þeir sem fá líkamleg fráhvarfseinkenni eða mikla reyk- ingafíkn geta reynt þau ýmsu hjálp- artæki sem fyrir hendi eru og auka líkurnar á langtímareykbindindi. Það þarf þó meira til, þ.e. staðfestu, aga og stuðning fjölskyldu og vina og eftir þörfum aðstoð heilbrigð- isstarfsfólks. Hjá öðrum eru reyk- ingarnar meiri vani en fíkn og því mikilvægara að þeir breyti dag- legum venjum, heima, í skólanum eða á vinnustað. Sérstaklega er ár- angursríkt ef vinir, vinnufélagar eða annar hópur tekur sig saman í slíku átaki. Öll höfum við heyrt af reykingafólki sem hefur lifað lengi og ver- ið manna hraustast. Undantekningar sem þessar eru víða. Stað- reyndin er hins vegar sú að langflest reyk- ingafólk líður mikinn heilsubrest vegna reykinga. Að meðaltali deyja vikulega tveir Ís- lendingar bara vegna lungnakrabbameins en einnig margir vegna annarra krabbameina af völdum reykinga eins og krabbameins í höfði og hálsi, efri öndunarfærum, brisi, þvagleið- urum og þvagblöðru. Flest þessara meina hafa það sammerkt að vera mjög illkynja, þ.e.a.s. illviðráðanleg ef þau eru ekki skurðtæk við grein- ingu og ónæm fyrir krabbameins- lyfjum. Aðeins um fjórðungur lungnakrabbameina eru skurðtæk þegar þau greinast og hjá um þriðj- ungi þeirra sem fara í aðgerð kemur sjúkdómurinn upp aftur síðar. Horf- ur sjúklinga með óskurðtækt lungnakrabbamein eru aðeins um 12 mánuðir þrátt fyrir þær lyfja- meðferðir sem nú eru fyrir hendi. Þó miklar framfarir hafi orðið í læknavísindum og krabbameins- lyfja- og geislameðferðir hafi batnað eru þær sjaldnast læknandi. Krabbamein eru þó ekki mikilvæg- asta afleiðing reykinga. Reykingar eru helsta orsök hjarta- og æða- sjúkdóma eins og kransæðastíflu, blóðtappa í heila, blóðþurrðar í fót- leggjum og ýmissa nýrnasjúkdóma. Í hinum vestræna heimi er lungna- þemba nánast eingöngu af völdum reykinga. Fimmtugur reyk- ingamaður hefur um 75% af upp- runalegri lungnastarfsemi og er á þeim tíma að mestu einkennalaus fyrir utan hósta og stöku önd- unarfærasýkingar. Um 10 árum síð- ar er lungnastarfsemin komin niður í um 50% og viðkomandi farinn að finna fyrir mæði við tiltölulega litla áreynslu. Upp frá því er áreynslu- getan, bæði í leik og starfi, takmörk- uð. Það er þó aldrei of seint að hætta en þó augljóslega best að byrja aldr- ei. Reykingar eru ekki einkamál reykingamanna. Inni á heimilum, vinnustöðum og á opinberum vett- vangi eru þær skaðlegar öðrum og þá eru heilsufarsvandamál af völd- um reykinga gríðarleg byrði fyrir heilbrigðiskerfi okkar allra. Tak- markanir á því hvar megi reykja eru því ekki bara réttlætanlegar heldur sjálfsagðar. Forvarnir og neyslu- stýring eru einnig gríðarlega mik- ilvægar. Þær mega þó ekki vera ein- göngu á ábyrgð yfirvalda. Fjölskyldan leikur lykilhlutverk þar sem foreldrar og önnur ættmenni eru ungviðinu mikilvægar fyr- irmyndir. Á unglingsaldri eru það svo félagarnir sem ráða og því er mikilvægt að gera kennara, íþrótta- þjálfara, skóla, íþróttafélög og jafn- vel bæjar- eða sveitarfélög að nokkru ábyrg fyrir tóbaksneyslu hópa ungmenna og skipulagningu tóbaksvarna í skólum, félagsmið- stöðvum og hjá íþróttafélögum á við- komandi svæði. Eftir Helga Hafstein Helgason » Vikulega deyja að meðaltali tveir Ís- lendingar vegna lungna- krabbameins af völdum reykinga en einnig margir vegna hjarta-, æða- og lungnasjúk- dóma. Helgi Hafsteinn Helgason Höfundur er lyf- og krabbameinslæknir. Reykingar örkumla og drepa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.