Morgunblaðið - 29.04.2010, Page 20
20 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
ÞAÐ var í hádeg-
isfréttum útvarps
mánudaginn 19. apríl
2010 og haft eftir við-
skiptaráðherra að hægt
væri að hefja aftur við-
ræður við Breta og
Hollendinga um Ice-
save. Semja mætti
áfram og upp á nýtt.
Vera í sama gamla
farinu.
Lögfræðilega hefur viðskiptaráð-
herra ekki stjórnarfarslegt umboð til
að gefa slíka yfirlýsingu. Ráðherra er
bundinn af þjóðaratkvæðagreiðslu
sem haldin var nýlega. Getur ekki
farið að semja á svipuðum nótum og
gert var áður um Icesave. Það var
fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu að
semja með þeim hætti. Breyta verður
um stefnu.
Ef viðskiptaráðherra fer að semja
gagnstætt úrslitum í þjóðaratkvæða-
greiðslunni um Icesave ber Forseta
Íslands að víkja viðskiptaráðherra úr
embætti, þar sem hann er að taka sér
stjórnsýsluvald, sem hann hefur ekki
lengur að lögum samkvæmt réttri
lögfræðilegri túlkun á Stjórnarskrá
Íslands. Þetta segir greinarhöfundur
sem hæstaréttarlögmaður í hálfa öld.
Viðskiptaráðherra getur borið þetta
undir Lagadeild Háskóla Íslands til
að fá fram rétta lagatúlkun á áhrifum
þjóðaratkvæðagreiðslunnar sam-
kvæmt Stjórnarskrá Íslands. Ber að
gera þetta, en víkja annars úr emb-
ætti.
En hvað er rétt að gera? Við getum
vísað Icesave til Evr-
ópusambandsins sem
leiddi þessar gölluðu
reglur um innistæðu-
tryggingar í lög upp-
haflega. Var lögleitt af
Evrópusambandinu
sem sendi þessar reglur
um innistæðutrygg-
ingar svo til okkar til
samþykktar og lög-
leiðslu í gegnum EES.
Við samþykktum án
þess að hafa nokkurt vit
á því hvað við vorum að
gera eða taka hugsanlega ábyrgð á.
Athuga átti það af lagadeild HÍ. Af-
leiðingin er Icesave og hundraða
milljarða kröfur á okkur, sem við eig-
um að neita að borga. Þverneita að
borga.
Í dag stendur þetta innistæðu-
tryggingamál þannig innan allrar
Evrópu og Evrópusambandsins, að
þar er viðurkennt opinberlega að nú-
verandi reglur séu gallaðar og í raun
og veru ekki framkvæmanlegar
óbreyttar. Það liggja því fyrir op-
inberlega tillögur um nýjar inni-
stæðutryggingareglur. Þar er gert
ráð fyrir að setja fyrir að Icesave geti
gerst aftur. Það er því opinber við-
urkenning á því af hálfu Evrópusam-
bandsins að Icesave gengur ekki upp
með nokkrum hætti lögfræðilega og
siðferðilega. Er hugsanlega ólögleg
löggjöf sé litið til Stjórnarskrár Evr-
ópusambandsins. Brýtur stjórnarlög
ESB.
Til að setja fyrir núverandi Ice-
save-lögbrot, sem er hugsanlega
stjórnarskrárbrot ESB, þá er í til-
lögum að nýjum reglum um inni-
stæðutryggingar gert ráð fyrir að
endanleg ábyrgð geti ekki fallið á eitt
ríki eins og Icesave getur, heldur falli
tjónið á sameiginlegan sjóð 12-15
Evrópuríkja, sem settur væri á stofn.
Þá munar ekkert um tjón, þar sem
það er jafnað út á 12-15 ríki. Tillaga
er um að rukkað yrði inn sameig-
inlegt 2% ábyrgðargjald, sem í dag er
1% og er ekki greitt með skilum.
Stóru bankarnir í ESB telja að hagn-
aður þeirra myndi minnka um 10%
með þessum nýju reglum. Allt væri í
betra lagi.
Það er hreint lögfræðilegt brjál-
æði, svo sannleikurinn sé sagður
hreint út um þá stefnu stjórnvalda að
byrja aftur upp á nýtt að semja um
Icesave samkvæmt gömlu reglunum.
Þær eru ólöglegar og brot á stjórn-
arskrá ESB og Rómarsáttmálanum.
Við eigum að snúa okkur til Evrópu-
sambandsins og gera þá kröfu mjög
ákveðið að Icesave verði látið bíða en
falli undir þessar nýju reglur ESB
þar sem 12-15 þjóðir ætla að taka
sameiginlega á sig svona tap eins og
Icesave er.
Gefum ekki eftir. Heimtum sið-
ferðilegt réttlæti. Forðumst þjóð-
argjaldþrot.
Lögfræði Icesave
Eftir Lúðvík
Gizurarson
»Er í tillögum að nýj-
um reglum um inni-
stæðutryggingar gert
ráð fyrir að endanleg
ábyrgð geti ekki fallið á
eitt ríki eins og Icesave
getur, heldur falli tjónið
á sameiginlegan sjóð 12-
15 Evrópuríkja …
Lúðvík Gizurarson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
SVIK verkalýðsfor-
ustunnar gagnvart um-
bjóðendum sínum eru
nú að koma betur og
betur í ljós. Lífeyr-
issjóðir eru nú að
skerða bætur lífeyr-
isþega sinna, hver í
kappi við annan. En
tveir lífeyrissjóðir
standa vel að vígi. Það
er Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins,
sem hefur samið vel fyrir sitt fólk.
Hún er undarleg sú tilraun annarra
sjóða og verkalýðsleiðtoga að reyna
alltaf að draga niður og gera lítið úr
LSR, í stað þess að fagna hans góða
samningi og gera kröfu um að fá
sömu samninga fyrir sitt fólk. Nei,
nei dugleysið er merki þeirra og einu
ráðin sem þeir sjá er að draga aðra í
þeirra sömu vanhæfni.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hjá Arion
banka áður Kaupþing (KB banka)
fær verðlaun út um allan heim fyrir
góðan árangur. Hvers vegna stendur
hann sig svona vel, en aðrir lífeyr-
issjóðir ekki? Formaður stjórnar
Frjálsa er fyrrverandi stjórnarmaður
í gamla Kaupþingsbanka.
Fyrrverandi stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs verslunarmanna og for-
maður VR var einnig stjórnarmaður í
Kaupþingi. Hvers vegna fær annar
stjórnarmaður KB banka verðlaun
fyrir góðan árangur, en hinn tapar
milljörðum króna og verður að
skerða lífeyri? Þetta er því und-
arlegra þar sem stjórnarformaður
Frjálsa er einnig í stjórn Bakkavarar,
VÍS, Plastprents og Skeljungs og
fleiri, en Live tapaði tugum milljarða
á Kaupþingi, Existu og Bakkavör.
Stjórnarmenn Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna – svarið þessu og skýrið
hvers vegna þið tapið, en Frjálsi
græðir.
Nú fara forustumenn verkalýðs-
félaganna að draga fram kröfuspjöld-
in, lúðrasveitina og nallann, til að
marsera niður Laugaveginn þann 1.
maí.
Krafan verður e.t.v. áframhaldandi
skerðing á launum og
kaupmætti. Einnig
verður krafist skerð-
ingar á lífeyrissjóðs-
bótum þeirra sem bera
alla ábyrgð á banka-
hruninu og arfavitlaus-
um fjárfestingum
þeirra. Þar ganga verk-
lýðsleiðtogarnir í lið
með ríkisstjórninni ,
sem einnig hefur skert
sama bótahóp vel og
vendilega. Lágmarks-
laun voru hækkuð um
kr. 20.000 á mánuði og
það átti að vera tímamótahækkun, en
allir aðrir fengu meira og verkalýðs-
leiðtogarnir um 100-150.000 króna
hækkun. Það er langt upp í lág-
markslaun í einum bita. Á sama tíma
gaf Jóhanna (S) okkur öryrkjunum
og öðrum lífeyrisþegum frá TR upp-
reiknaðar 20.000 krónur, sem hún
með vaxtabrellum gerði að smáaur-
um í bætur frá TR.
Er ekki kominn tími til að verka-
lýðsforingjarnir, með sinn „Forseta“
ASÍ segi af sér og sleppi bara að láta
sjá sig í kröfugöngunni 1. maí? Að
ganga niður Laugaveginn með bux-
urnar á hælunum ásamt stjórn-
armönnum lifeyrissjóðanna sem
einnig eru með buxurnar á hælunum
verður alls ekki fögur sjón. Allt við
það sama í stjórnum lífeyrissjóðanna
og einnig hjá vanhæfum verkalýðs-
leiðtogunum.
Brandarakosningum hjá VR er
lokið og öllum til undrunar vann
skuggaráðið. Nú er aðalfundurinn
framundan og þar á að koma fram
lagabreytingum. Það á að koma á
nýjum lögum um t.d. kosningar, því
að þeirra mati voru gömlu kosn-
ingalögin ekki góð og því varð að
brjóta þau til að vinna. Koma þá ný
lög til að brjóta og það eftir að ASÍ
hefur samþykkt þau? Já, því lög VR
gilda ekki nema miðstjórn ASÍ sam-
þykki þau. VR og önnur verkalýðs-
félög verða að fara að lögum og
reglum ASÍ, því þau eru æðri lögum
félaganna. Afsal eigin laga, góðir.
Hvað með kæru mína til miðstjórnar
ASÍ á kosningalagabrotunum? Hvers
vegna er henni ekki svarað af ASÍ?
Fyrrverandi formaður VR , sem
var einnig í stjórn Kaupþings sem
fulltrúi lífeyrissjóða segir fyrir rann-
sóknarnefnd Alþingis: „Og það voru
alltaf þessar stöðugu hótanir, óbeinar
og beinar – ja, í rauninni í allar áttir,
ég hef alla vega tvívegis verið kall-
aður á fund úti í bæ og svona sagt: Ef
þið verjið okkur ekki, ef þið þvælist
fyrir okkur þá munið þið hafa verra
af.“ MBL 19. apríl sl.
Þetta er grundvöllur rannsóknar
og staðfestir það að vinnuveitendur
eiga að sjá sóma sinn í því að fara
strax úr stjórnum lífeyrissjóða. Voru
fáránlegar fjárfestingarnar gerðar
með hótunum eða voru þær bara
ákveðnar að vandlega yfirveguðu
ráði? Við þessu þarf svar og síðan
verða stjórnarmenn lífeyrissjóðanna
að segja af sér.
Skattar sem töpuðust við tap sjóð-
anna eru um 200 milljarðar króna og
það gerir það að verkum að það á nú
þegar að skatta inngreiðslur í sjóðina,
því þessum mönnum er ekki treyst-
andi fyrir þeim. Skattpeninginn á rík-
ið síðan að nota til að gera bótaþegum
fært að lífa mannsæmandi lífi. Sjá
þannig til þess að bótaþegar standi
ekki í röð eftir mat og það til sýnis við
eina fjölförnustu götu landsins. Hafa
forkólfar verkalýðsins eða ríkistjórn-
arinnar skorið niður mat eða staðið í
röð eftir matargjöfum? Nei, nei, því
þeirra er valdið og það hafa þeir not-
að fyrir sig og sína.
Svik, lygi og ótti eru vopnin sem
notuð eru á láglaunafólk, atvinnu-
lausa og bótaþega af öllum aðilum t.d.
vinnuveitendum, verkalýðsleiðtogum
og ríkinu. Þetta eru þeir sem eiga
stóran þátt í hruninu og þeim ber að
segja af sér áður en þeir skerða og
níðast á þeim sem ekkert hafa til saka
unnið.
Svik, lygi og ótti
Eftir Guðmund
Inga Kristinsson
» Að ganga niður
Laugaveginn í
kröfugöngu 1. maí
ásamt stjórnarmönnum
lífeyrissjóðanna sem
einnig eru með bux-
urnar á hælunum verð-
ur alls ekki fögur sjón.
Guðmundur Ingi
Kristinsson
Höfundur er öryrki og mótmælandi.
ÉG VERÐ að
minnast á það að ríkið
hefur lagt álögur á
heimilin en ekki létt á
þeim eins og fólkinu í
landinu var lofað í að-
draganda kosninga.
Virðisauki 25,5%
hækkar reikninga fyr-
ir rafmagn og síma
o.s.frv. bæði hjá
heimilum og fyr-
irtækjum, sem fer út í
verðlagið. Olíugjald var sett á og
alls konar álögur hafa verið settar
á innflutning. Eitt dæmi er safar
sem bera núna frá síðustu áramót-
um 16 kr. gjald ofan á hvern lítra.
Tryggingagjaldið hefur hækkað og
það kemur beint við vasa launþega.
Allt þetta fer beint út í verðlagið og
stuðlar að hækkun verðbólgu sem
mældist í síðasta mánuði yfir 8% og
orsakaði það að 20.000.000 kr. lán
hækkaði að meðaltali um 110 til 120
þúsund krónur um mánaðamótin
mars-apríl. Þessi hækkun lagðist
við höfuðstól lána og hækkar
greiðlubyrðina sem er næg fyrir.
Fólkið í landinu er að taka á sig
stórfelldar launalækkanir. Þving-
unaraðgerðir stjórnvalda gagnvart
skuldsettum heimilum þar sem
þeim er sagt bæði með beinum orð-
um og óbeinum að þeim hafi verið
nær að skuldsetja sig og verði því
bara að taka afleiðingum af því.
Heimilum er þröngvað inn í kerfi
sem gætir eingöngu hagsmuna lán-
ardrottna (bankanna) sem stuðluðu
að falli heimilanna og hagkerfisins.
Síðan segir ríkisstjórnin að x-mörg
heimili hafi þegið þessi úrræði sem
er hrein og klár eignaupptaka í
ósátt við eigendur og þarna er mik-
ill munur á. Þessir sömu aðilar sem
tóku stöðu gegn krónunni eru nú
með hreðjatak á fólkinu í landinu í
skjóli þessarar ríkisstjórnar. Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði að
verðbólguhækkunin
væri fyrirtækjunum að
kenna en minntist ekki
einu orði á hvað þessi
stjórnvöld eru að gera.
Samt er þessi maður
ráðinn til að gæta
hagsmuna stórs hluta
þeirra manna og heim-
ila sem eru í vanda.
Hvað er eiginlega í
gangi? Þessi rík-
isstjórn sem situr núna
þarf ekki að vera leng-
ur við stjórn frekar en
fólkið í landinu vill því að fólkið
kaus hana en getur líka rekið hana.
Þegar hún var í kosningabaráttunni
þá lofuðu þessir flokkar því að
vernda heimilin og byggja vel-
ferðabrýr.
Þetta var bláköld lygi og ein-
göngu gert til þess að komast til
valda og það var logið að þjóð sem
var í miklum sárum og óvissu,
þannig komust þessir flokkar til
valda. Nú er sýnt að það á að láta
heimilin taka þessar byrðar á sig
og það er bara sú staðreynd sem
við þjóðinni blasir. Þegar þrælahald
var við lýði og kúganir yfirstétta,
þá þurfti sameiningarafl til að
brjóta það ok af sér og núna vil ég
segja að við þurfum ekki að láta
fara svona með okkur frekar en við
viljum. Þjóðin þarf að sameinast
gegn þessum öflum og koma þeim í
burtu. Sameinuð stöndum vér en
sundruð föllum vér. Þetta eru ekki
góðir húsráðendur.
Skuldasöfnun
heimilanna
Eftir Guðmund
Haraldsson
Guðmundur
Haraldsson
»Heimilum er þröngv-
að inn í kerfi sem
gætir eingöngu hags-
muna lánardrottna, sem
stuðluðu að falli heim-
ilanna og hagkerfisins.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
KÆRU valdhafar Íslands.
Ég skrifa þetta opinbera bréf til
að sýna óánægju mína. Ég er 17 ára
nemandi í fram-
haldsskóla. Ég er
á hraðferðarlínu
fyrir afburða-
námsmenn á
náttúrufræði-
braut. Ég vil
kvarta yfir því, að
vegna lélegra
ákvarðana stjórn-
valda og spillts
fjármála- og
dómskerfis mun
ég ekki geta nýtt mér þær gáfur sem
mér voru gefnar í vöggugjöf. Mig
langar ákaflega til að fara til útlanda
til þess að læra frekari líffræði og líf-
eðlisfræði. En vegna mistaka ykkar,
ekki minna, mun ég þurfa að borga
fyrir ykkur og mun því ekki geta
nýtt peninginn minn í eigin mennt-
un. Einnig er það af völdum krepp-
unnar að ég fæ ekki vinnu í sumar og
ég á hvorki meira né minna en 4000
krónur inni á opinni bankabók vegna
þess að ég hef verið að borga bíl-
prófið mitt. Ég get ekki lagt pening
fyrir vegna þess að ég fæ enga
vinnu. Ég mundi sætta mig við
hvaða vinnu sem er og ég hef sótt
um alls konar vinnu, en atvinnuveit-
endur sýna ekki þá almennu kurteisi
að láta mann vita að maður hefur
verið afþakkaður.
Ég er búin að fá nóg af stjórn-
málamönnum sem sífellt eru að af-
saka sig fram og til baka og taka alls
enga ábyrgð. Þeir sem síðan viður-
kenna að þeir hafi gert mistök biðja
flokkinn sinn fyrirgefningar en ekki
þjóðina alla og láta eins og þetta séu
mistök sem allir geta gert (Þorgerð-
ur Katrín). Ég finn til bullandi reiði í
hvert sinn sem ég hugsa um menn
eins og Jón Ásgeir, sem sitja glott-
andi heima hjá sér og taka enga
ábyrgð og hugsa um feitu reikn-
ingana sem sóla sig á suðurhafs-
eyjum. Ég spyr sjálfa mig hvernig
dómskerfið geti leyft þessu að ger-
ast en ég veit líka að þar er ég alls
ekkert einsdæmi, ég held frekar að
það sé undantekning frá reglunni að
hugsa ekki um það.
Ég er búin að fá nóg af ástandinu
hér á mínu ástkæra ylhýra. Það líður
ekki sá dagur sem ég spyr ekki for-
eldra mína hvort við getum ekki flutt
héðan frá Íslandi til annarra landa.
Því miður getum við það ekki því að
við einfaldlega höfum ekki efni á því.
Þar kemur aftur að því að þið, kæru
íslensku valdhafar, hafið eyðilagt
framtíð efnilegs unglings. Þið hafið
líf mitt á samviskunni. Ég vona að
þessi skrif mín til ykkar hafi haft
áhrif á ykkur sem annars virðist til-
finningalaus gagnvart hag annarra
en ykkar eigin.
LILJA BJÖRG
JÖKULSDÓTTIR,
nemandi.
Opinbert bréf
til valdhafa Íslands
Frá Lilju Björgu Jökulsdóttur
Lilja Björg
Jökulsdóttir
BRÉF TIL BLAÐSINS