Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Chihuahua hvolpur til sölu Ættbókarfærður og örmerktur. Blíður hundur með frábært skap. Upplýsingar í síma 892 8778. Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Til sölu Ódýr blekhylki og tónerar í HP, Dell, Brother, Canon og Epson. Send samdægurs beint heim að dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150. Sjá nánar á blekhylki.is Land til sölu Hef til sölu 16,8 hektara land- spildu úr jörðinni Háfshjáleiga, Rangárþingi ytra, Rangárvalla- sýslu, landnúmer 207724. Til- boð óskast. Áhugasamir kaup- endur hafi samband við Jóhann- es Albert Sævarsson hrl. hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur í síma 515 7400 eða johannes@icelaw.is. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Upp. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald Bókhald -Ársreikningar -Framtöl Bókhald, skattaframtöl, stofnun fél., ársreikningar, VSK-uppgjör, erfða- fjársk., leigusamningar o.fl. HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977. framtal@visir.is Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. stundirnar yfir kaffibolla í eldhús- inu á Smáragrundinni, þar sem þér tókst ótrúlega oft að fá mig til að ræða málin og sjá hlutina frá nýju sjónarhorni. Þrautseigjan, – þegar órór hugur minn vildi snúa mér frá tónlistarnáminu, – nei, þá slepptir þú ekki, aðrir hefðu gefist upp, ekki þú. Í dag bý ég að þessu og svo oft hefur mig langað til að deila með þér ánægjunni af því sem þú veittir mér, ekki bara þegar ég hlusta og horfi stolt á börnin mín. Stundirnar ljúfu þegar ég sat með ykkur systrum og hlustaði á ykkur rifja upp bernskuárin í bakaríinu, – allar sögurnar og þrasið um hvern- ig hlutirnir hefðu verið, – þið ung- lingar á ný, þær kalla fram bros. Elsku Eva, takk fyrir allt sem þú gafst mér og börnunum mínum. Kveðja, Ólína I. Björnsdóttir (Ólinga). Þegar ég hugsa um Evu þá heyri ég tónlist. Píanótónlist í bland við lúðrablástur, gítarslátt og þver- flautuspil. Þá skrautlegu sinfóníu sem heyra má á hverjum degi á göngum tónlistarskóla landsins. En auðvitað fyrst og fremst píanótón- list. Ég man eftir mér lítilli með tíkarspena, með píanóbækurnar í fanginu, fyrir utan stofuna þar sem Eva kenndi nemendum sínum. Man eftir mér fullri af tilhlökkun og spenningi yfir því hvort mér tækist að komast klakklaust í gegnum heimaverkefni vikunnar og upp- skera hrós frá kennaranum mínum. Hrósið fólst yfirleitt í velþóknunar- brosi og handskrifuðum einkunn- arorðum við hvert lag: „Gott“ eða „Mjög gott“. Á táningsárum fólst mesta umbunin í því þegar við Eva spiluðum saman fjórhent. Ung- verskir dansar eftir Brahms urðu þá oftast fyrir valinu. Ef ég ætti að nefna eina manneskju, utan fjöl- skyldu minnar, sem helsta áhrifa- vald í lífi mínu þá myndi ég nefna Evu. Ég var í píanótímum hjá henni, einu sinni í viku, í heil tólf ár. Strax frá fyrsta degi bar ég óendanlega virðingu fyrir þessari tígulegu konu, sem leit út eins og kvikmyndastjarna, með sitt kol- svarta hár sem hún tók saman í hnút. Fyrstu árin kenndi hún í Safnahúsi Skagfirðinga, síðustu ár- in í húsnæði skólans við Borgarflöt. Eva átti það einnig til að taka nem- endur í píanótíma á heimili sínu og það var ævintýri út af fyrir sig. Ég man eftir Steinway-flyglinum, dásamlegri áferðinni á píanónótun- um sem einhver tjáði mér að væru úr alvöru fílabeini. Man eftir hlý- legu viðmóti Evu og alúðinni sem hún lagði í kennsluna. Ég á flestar bækurnar ennþá, sumar velktar og snjáðar. Þetta eru dýrgripir með handskrifuðum athugasemdum Evu um túlkun og taktslátt, stíg- andi og styrkleikabreytingar: So- natinen Vorstufe og Sonatinen Al- bum. Schumann, Chopin, Schubert, Mozart og Beethoven. Eva kynnti mig fyrir klassísku tónskáldunum, eins og hún væri að afhenda mér gull og gersemar. Á framhalds- skólaárunum vann ég með námi í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki, við píanókennslu og undirleik í söngdeildinni. Síðasta árið í fjöl- braut var ég í hálfri stöðu sem pí- anókennari við skólann og þá hitt- umst við Eva gjarnan á kaffistofunni. Það voru góðar stundir. Það var ekki síst fyrir hennar hvatningu og áhrif að ég fór svo síðar í píanókennaranám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Við Eva héldum sambandi eftir að ég flutti suður til Reykjavíkur. Ég skrapp í heimsókn ef ég var á Króknum og fékk þá oft lánaðan lykil að tónlistarskólanum svo „ég gæti nú farið og æft mig í friði“. Eva heimsótti mig þegar ég eign- aðist son minn og færði mér sæng- urgjöf. Eftir að hún flutti frá Sauð- árkróki minnkuðu samskiptin okkar á milli, eins og gengur, en alltaf fékk ég jólakort frá henni, svo og kveðjur og falleg orð, bæði á gleði- og sorgarstundum. Fyrir allt þetta er ég þakklát. Ég kveð stór- kostlega konu. Konu sem var vinur, frábær kennari og fyrirmynd, allt í senn. Minning Evu Snæbjarnar- dóttur lifir í hjörtum fjölskyldu, vina og nemenda hennar. Heiðdís Lilja Magnúsdóttir. Elsku Eva frænka er búin að kveðja. Mér fannst það ljúft að heyra að hún hefði sofnað vært er kvöld var komið, enda starfsdag- urinn orðinn býsna langur. Er ég lít til baka byrjar ferðin í tónlist- askólanum þar sem ég prófaði að læra á nánast öll hljóðfæri og Eva með þá von í hjarta að allt gengi það nú vel, já þolinmæði var sko sannarlega einn af hennar helstu kostum. Síðar átti ég svo oft eftir að líta í heimsókn á Smáragrund- ina, alltaf gaf Eva mér tíma, til þess að hlusta eða bara að leyfa mér að vera hjá sér. Sumrin voru líka okkar tími, þá dreif ég mig uppeftir til að gaufast í garðinum á meðan Eva gróðursetti og hreins- aði til í gróðurhúsinu. Og best var að sjálfsögðu að sitja með kaffibolla í eldhúsinu á meðan Eva stóð við vaskinn og reykti út um gluggann og við ræddum saman um ótrúleg- ustu hluti. Í þessum samræðum kom Eva mér oft skemmtilega á óvart, hún hafði sterkar skoðanir á hlutunum, hún var góður hlustandi, dæmdi aldrei en gaf alltaf góð ráð. Oft sat hún líka við eldhúsborðið með olnboganna á borðbrúninni, lófana saman og fléttaði saman fingurna og bara hlustaði. Þegar Eva fluttist svo suður minnkaði sambandið en ég reyndi að líta inn ef ég átti leið í borgina með mína fjölskyldu, ég minnist sérstaklega heimsóknarinnar um síðustu jól þar sem við áttum góðar stundir saman, hlógum og skemmt- um okkur. Ég kveð Evu frænku með sökn- uði en hlýju í hjarta og gleði, því að ég á svo margar góðar og fallegar minningar um hana. Elsku Óli Björn, Andri og fjöl- skyldur, mínar innilegustu samúð- arkveðjur til ykkar, Emma Sif Björnsdóttir. Í lífi okkar flestra eru nokkrar mann- eskjur sem hafa á okkur mótandi og djúpstæð áhrif og skapa að hluta þann einstakling sem við á endanum verðum. Dóra amma mín var ein af þeim manneskjum í mínu lífi og er ég ekki einungis að kveðja ástkæra ömmu mínu heldur einnig einn minn besta vin. Sem lítill Reykjavíkur- gutti fékk ég fyrst að eyða heilu sumri vestur á Ísafirði í rólegheit- unum hjá ömmu og afa. Fátt gat hugsast skemmtilegra fyrir ungan dreng en að eyða sumrunum hjá ömmu og afa og finna á hverjum degi svo áberandi fyrir ást og umhyggju. Þau sumur urðu svo fleiri og á ég margar af mínum bestu barnæsku- minningum frá þeim sumrum. Hún amma mín var af gamla skólanum og hafði farið sem ung kona í Hús- mæðraskólann enda var hún einn besti kokkur sem ég hef kynnst. Það var alltaf ógrynni af kræsingum á boðstólnum hjá ömmu og alltaf end- aði dagurinn á kvöldkaffi þar sem setið var og spjallað um daginn og veginn áður en farið var í háttinn. Þegar fjölskylda mín flutti svo vest- ur á Ísafjörð varð nálægðin meiri og alltaf fann maður fyrir innilegri hlýju og miklu ljósi frá henni ömmu minni. Hún var alltaf tilbúin að spjalla og ávallt þótti mér svo gott að koma til hennar og afa, maður var alltaf svo einstaklega velkominn og alltaf virkilega vel tekið á móti manni. Svo fluttum við fjölskyldan aftur á höfuðborgarsvæðið en amma og afi héldu alltaf til á Hlíðarveg- inum á Ísafirði. Þegar ég var 14 ára reddaði afi mér vinnu í frystihúsinu fyrir vestan og svo fór að ég eyddi næstu sumrum hjá þeim. Á þeim tíma fannst mér samband mitt við bæði ömmu og afa styrkjast afskap- lega mikið enda var alltaf talað við mann sem jafningja og lærði ég mik- ið af þeim varðandi lífið og lífsins gildi. Amma var afskaplega blíð kona og hennar blíða viðmót hafði einstök áhrif á mig sem ungling á þroska- braut og þakka ég ömmu minni að miklu leyti hvaða mann ég hef að geyma í dag. Alltaf var hún boðin og búin að ljá hjálparhönd og á stund- um fannst manni hún aðeins of ósér- hlífin en það fannst henni þó alls ekki. Það var henni mikill metnaður að hugsa um fólkið sitt og vera til staðar þegar á bjátaði. Hún hefur alla tíð verið mjög stór partur af Halldóra Daníelsdóttir ✝ Halldóra Daníels-dóttir fæddist í Súðavík 30. ágúst 1929. Hún andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði að morgni þriðjudagsins 20. apríl 2010. Útför Halldóru fór fram frá Ísafjarð- arkirkju 27. apríl 2010. mínu lífi sem og ann- arra innan fjölskyld- unnar enda héldum við alltaf góðu sam- bandi. Eftir því sem tíminn leið og ég varð uppteknari af eigin lífi og fluttist síðan til útlanda fækkaði sím- tölunum okkar á milli, svona líkt og gengur og gerist í nútíma- samfélagi þar sem all- ir eru svo uppteknir af sínu. En aldrei skipti það máli hversu langur tími leið á milli þess að við spjölluðum saman, alltaf var það eins og við hefðum heyrst daginn áður. Ég kveð þig, elsku amma mín, með miklum söknuði samtímis og ég finn innilegt þakklæti í hjarta mér fyrir að hafa fengið að hafa þig í mínu lífi. Þú kenndir mér svo margt og finnst mér afskaplega erfitt að geta ekki tekið upp símann og hringt í þig. Þín verð- ur sárt saknað enda mun aldrei fyll- ast í það skarð sem eftir stendur. Þú varst einstök manneskja sem verður aðeins hægt að minnast með ást og hlýju. Stefán Eysteinn Sigurðsson. Elsku amma mín. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að þú sért í alvörunni far- in. Þú hefur alltaf verið svo sterk, og ákveðin í því að halda áfram þrátt fyrir veikindin. Seinustu ár sýndir þú svo sann- arlega úr hverju þú ert gerð. Þegar þú varst flutt inná sjúkra- húsið í síðasta skiptið þá var maður alveg viss um að þú myndir koma heim hress og glöð eins og alltaf og það var því mikið áfall að fá að vita að þú myndir ekki gera það. Seinustu dagar hafa farið í að átta sig á þessu og það hefur ekki gengið vel. Þú varst alltaf svo góð og skiln- ingsrík, og það var alltaf jafn gott að koma og tala við þig. Þegar ég var yngri átti ég nú nán- ast heima uppá Hlíðarvegi hjá þér og afa, og ég á alveg óteljandi minning- ar frá þeim tímum. Þá sátum við saman í 2ja sæta sóf- anum meðan Afi svaf í stólnum sín- um, og horfðum á alla gömlu þættina saman. Nú fyrir stuttu var ég í heimsókn hjá þér og var að spyrja þig um æsk- una þína. Þú sagðir mér frá því þeg- ar þú varst í sveit sem vinnukona og að það hefði verið erfiður en lær- dómsríkur tími, og sagðir mér líka margt fleira. Ég er rosalega ánægð- ur að hafa heyrt um alla þína æsku í þessari einu heimsókn og finnst ég hafa kynnst þér mikið meira heldur en ég hef gert öll hin árin. Frá því ég var 11 ára hef ég alltaf fundið tengingu við þig í gegnum ljóð sem ég vil sýna þér. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum) Elsku amma, þú varst alltaf frá- bær manneskja við alla sem þú hittir og færðir gleði í líf margra. Ég elska þig, amma, og sakna þín, en einhvern tímann eigum við eftir að sjást aftur. Ég kveð þig núna í hinsta sinn og vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Stígur Berg Sophusson. Elsku Dóra, nú er þessari baráttu lokið. Ég horfi um öxl og minnist þeirra stunda sem við áttum með ykkur hjónum á Hlíðarvegi og Hornströnd- um. Fyrir 10 árum vorum við hjónin tekin formlega í fjölskylduna á af- mæli Stígs. Þagar farið var að huga að Hornstrandaferð varst þú á kafi í eldhúsinu að baka fyrir ferðalanga dúllukökur, hveitikökur, randalínur, kleinur, svo fátt eitt má nefna. Varð að vera nóg þó svo allir væru vel ne- staðir. Þegar heim var komið stóð Dóra í eldhúsinu með fullan pott af gúllassúpu eða öðrum kræsingum, alltaf að hugsa um gestina sem nutu vel. Í desember fyrir tveimur árum kvaddi ég þig þegar þú varst flutt frá Landspítalanum á sjúkrahúsið á Ísa- firði mikið veik og átti ég ekki von á að sjá þig aftur en fjöllin, hafið og fólkið tók svo vel á móti þér að þú hættir við og fékkst þennan tíma sem þú nýttir með þínum nánustu. Í ágúst síðastliðnum, á afmælinu þínu, tókst þú dansspor inn í Engidal með stæl. Minning þín er í skírnarkjóln- um sem þú saumaðir fyrir mig og hafa fimm barnabörn mín sem komið er fengið að njóta. Hafðu, Jesús, mig í minni, mæðu og dauðans hrelling stytt, börn mín hjá þér forsjón finni, frá þeim öllum vanda hritt, láttu standa’ á lífsbók þinni líka þeirra nafn sem mitt. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku Stígur, megi guð styðja þig og þína um ókomna tíð. Kveðja, Kristín og Sigmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.