Morgunblaðið - 29.04.2010, Qupperneq 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
Lights on the Highway
leikur á Dillon í kvöld
Lights on the Highway ætla að
halda órafmagnaða tónleika á Dil-
lon í kvöld. Sveitin er á leið í 7 daga
reisu til London á sunnudaginn og
mun spila á nokkrum tónleikum,
bæði rafmögnuðum og órafmögn-
uðum, í næstu viku. Tónleikarnir á
Dillon verða því nokkurskonar
styrktartónleikar fyrir ferðina.
Tónleikarnir á Dillon í kvöld
hefjast kl. 22. Miðaverð er 500 kr.
og aldurstakmark 20 ár.
Fólk
„ÞETTA átti bara að vera létt grín, svo byrjaði
bara fullt af fólki að hringja í mig,“ segir söng-
konan Elíza Newman sem sló óvænt í gegn á sjón-
varpsstöðinni Al-Jazeera með lagi sínu „Eyjafjalla-
jökull“ og var í kjölfarið boðinn útgáfusamningur
við fyrirtækið Your Favorite Music.
„Ég var ekkert að leita eftir því að verða fræg á
Al-Jazeera, en þetta var svo skrýtið líka að ég varð
að grípa tækifærið, ég er svo mikill vitleysingur að
ég segi alltaf já við öllu,“ segir Elíza, sem hélt fyrst
að verið væri að gera at í henni þegar Al-Jazeera
bað hana um að semja lag til að kenna fólki að bera
fram heiti Eyjafjallajökuls. Fréttin varð ein sú vin-
sælasta á sjónvarpsstöðinni fyrr og síðar og var
auk þess sett á netið þar sem 175.000 hafa horft á
hana.
Upphaflega lagið var aðeins 40 sekúndur en
Elíza varð að gjöra svo vel að drífa sig í stúdíó um
helgina og semja restina fyrir útgáfu.
Hún vonast til að þessi óvænta athygli komi sér
vel í haust þegar til stendur að gefa út plötuna Pie
in the Sky í Bretlandi, en hún kom út hér á landi
fyrir jól. Á meðan hefur hún í nógu að snúast við
tónleikahald úti, m.a. með hinum íslensku Trúbat-
rixum sem munu spila á Troy bar í London þann
13. maí og á The Great Escape tónlistarhátíðinni í
Brighton 13. - 15. maí.
„Já það er mikið að gera, ég sem á að vera að
læra hérna en það er alltaf verið að trufla mig,“
hlær Elíza, sem leggur stund á mastersnám í
kennslufræðum tónlistar í London. „En það er nú
oftast skemmtilegast þegar það gerist eitthvað
svona skrýtið, það gefur lífinu lit.“
Auk Elízu munu fjórar aðrar trúbatrixur troða
upp í Englandi í maí, þær Halla Norðfjörð, Elín
Ey, Nann úr „Of Monsters and Men“ og Myrra
Rós. Þess má geta að þær Trúbatrixur sem eru á
landinu ætla að halda tónleika hér heima til að
fjármagna ferðina, nánar tiltekið á Café Rósen-
berg, þann 29. apríl, auk góðra gesta s.s. Togga,
Sigga Eyþórs úr dúettinum Pikknikk, Johnny
Stronghands og Helga Val. Tónleikarnir byrja
klukkan 21:00 og kostar 1.000 kr. inn.
Trúbatrixa slær óvænt í gegn á Al-Jazeera
Morgunblaðið/Kristinn
Trúba Elíza flytur nýja lagið á tónleikunum úti.
Tónlistarhátíðin Nokia on Ice fer
fram dagana 7. og 8. maí og er
þetta í þriðja sinn sem hátíðin er
haldin. Fer hátíðin fram á skemmti-
staðnum Sódómu og er þessa dag-
ana unnið hörðum höndum við að
setja saman glæsilega dagskrá.
Nú síðast var staðfest að Samúel
Jón Samúelsson kæmi fram á hátíð-
ina ásamt 17 manna hljómsveit. En
áður hafa Mike Sheridan frá Dan-
mörku, Hoffman, Dj Margeir, Who
Knew, Cliff Clavin og Miri svo
nokkrir séu nefndir, staðfest komu
sína. Fleiri hljómsveitir sem munu
koma fram verða svo tilkynntar á
allra næstu dögum.
Tónlistarhátíðin Nokia
on Ice í þriðja sinn
Hljómsveitin Endless Dark lenti
í öðru sæti í Global Battle of the
Bands á þriðjudagskvöldið í Lond-
on. Sveitin er frá Ólafsvík og
Grundarfirði og vann undankeppni
hljómsveitakeppninnar GBOB sem
var haldin hér heima í janúar.
Það voru pönkrokkararnir í Rus-
tic frá Kína sem sigruðu keppnina
og í þriðja sæti varð Explicit Licks
frá Noregi.
Endless Dark lenti í
öðru sæti í GBOB
NÝVERIÐ kom út bókin Michael að eilífu, Sagan af
Michael Jackson, í þýðingu Tryggva Arnars Úlfs-
sonar. Í bókinni, sem er eftir David Hermitte og
upprunalega var gefin út á frönsku, er farið yfir ævi
og feril poppstjörnunnar heitnu og reynt að fylla í
þær eyður sem í henni var að finna.
Það er svo sannarlega óhætt að segja að tónlist-
arferill Jacksons, sem spannaði meira en fjóra ára-
tugi, hafi verið með þeim skrautlegri í bransanum.
Eru ævi konungs poppsins, nánast ár fyrir ár, gerð
mjög góð skil í bókinni. Frá upphafinu með bræðr-
um sínum í Jackson Five, sem voru undir harðri
hendi föður þeirra Joe Jackson, til þeirra stífu æf-
inga sem Jackson lagði á sig undir lok ævi sinnar
fyrir This Is It tónleikaferðalagið, en margir vilja meina
að þessi árátta Jacksons í kringum tónleikana hafi haft
verulega slæm áhrif á heilsu hans.
Tryggvi segir að Hermitte hafi greinilega verið mikill
og einlægur aðdáandi Jacksons og að í bókinni sé hann að
reyna að leiðrétta ýmislegt sem komið hefur fram í fjöl-
miðlum og segja sögu popparans frá öðru sjónarhorni.
En skyldi Tryggi hafa komist að einhverju nýju um
Jackson við þýðinguna á bókinni?
„Ég hafði kannski ekki nægilega skýra mynd af honum
áður fyrr, en hann hefur greinilega verið mjög sérstakur
eins og sést hefur í fjölmiðlum. Það kemur vonandi mann-
eskjulegri Jackson í ljós í bókinni og kannski sést hann í
öðru ljósi en fjölmiðlar sýndu hann í.“
AP
KÓNGURINN Michael Jackson er sýndur í nýju ljósi í nýrri bók.
Fyllt í eyðurnar um
konung poppsins
Ný bók um ævi Michael Jackson í íslenskri þýðingu
UNGLINGARNIR í Pops ætla að
slá upp „bítlaballi“ á Kringlukránni
næstkomandi föstudags- og laugar-
dagskvöld. Þar verður tónlist sjö-
unda áratugarins í forgrunni, en út-
varpsmaðurinn Ólafur Páll
Gunnarsson ætlar að stíga á svið
með þeim og syngja nokkur lög.
„Eftir að þeir komu saman aftur
hafa Pops yfirleitt komið til okkar á
Rás 2 í kringum áramótin til að
spila. Svo var ég einhvern tímann að
fíflast í Óttari (Felix Haukssyni) og
spurði: „Hvenær á ég að koma og
syngja með ykkur? Ég er nú af þess-
ari kynslóð líka, þó það sé aðeins
með öðrum hætti en þið.“ „Nú?“
sagði Óttar og spurði hvernig stæði
á því. Þá sagði ég honum að ég hefði
komið undir verslunarmannahelgina
1968 í Húsafelli. Þannig að ég er af-
kvæmi ’68-kynslóðarinnar og meira
rokk getur það ekki orðið,“ segir Óli
Palli um tildrög samstarfsins. Það
var svo fyrir skömmu að Óttar sendi
honum plakat fyrir tónleikana þar
sem þátttaka hans var auglýst. „Ég
náttúrlega skorast ekki undan því.“
Óli Palli segist hafa alist upp við
tónlist ’68-kynslóðarinnar, þrátt fyr-
ir að Duran Duran hafi ráðið lögum
og lofum á unglingsárum hans. Sjálf-
ur var hann í hljómsveit á Akranesi
fyrir 20 árum sem spilaði svipaða
tónlist og Pops er að spila; „þetta
gamla, góða rokk og ról.“
– En getur hann eitthvað sungið?
„Já, já, ég var í hljómsveitum þeg-
ar ég var yngri. Svo er ég í Fjalla-
bræðrum. Við æfum einu sinni í viku
allan ársins hring og komum fram
svona tvisvar í viku, þannig að ég
treð upp í hverri einustu viku!,“ seg-
ir hann og hlær við. Hann segir
Fjallabræður m.a. ætla að spila á öll-
um elliheimilum Reykjavíkurborgar
á árinu, en um helgina er það bítla-
ballið hjá Óla Palla. „Ég kem nú
bara inn í; ætla að syngja eitthvað
með Stones og Dylan og þannig.
Þetta er náttúrlega mikill heiður
fyrir mig, að fá að stíga á svið með
þessum körlum. Þetta verður bara
gaman – og jú, ég hlakka mikið til.“
Morgunblaðið/Golli
Pops Unglingarnir í Pops eru í fullu fjöri og efna til „bítlaballs“ um helgina. Óli Palli ætlar að taka lagið með þeim og tekur sig bara vel út með strákunum.
Afkvæmi ’68-kynslóðarinnar
Útvarpsmaðurinn Óli Palli ætlar að taka nokkur lög með strákunum í Pops
um helgina Tók Stones og Bítlana fram yfir Duran Duran á unglingsárunum
Hljómsveitin Pops var stofnuð árið
1966 og er því orðin um 44 ára
gömul, þrátt fyrir að hafa tekið sér
20 ára hlé árin 1972-1992. Sveitin
varð strax vinsæl og spilaði meðal
annars inn á tveggja laga plötu
Flosa Ólafssonar leikara.
Unglingahljómsveitin Pops var
síðan endurreist á tíunda áratugn-
um og hefur hljómsveitin starfað
óslitið síðan, þótt mannabreyt-
ingar hafi átt sér stað. Sveitin hef-
ur meðal annars skipt nokkrum
sinnum um söngvara, en þeir hafa
til dæmis verið Pétur Kristjánsson,
sem var einn af stofnendum
bandsins, Rúnar Júlíusson og
Eiríkur Hauksson.
Bandið í dag skipa Birgir Hrafns-
son, Óttar Felix Hauksson, Gunnar
Þórðarson, Jón Ólafsson, Magnús
Kjartansson og Ólafur Sigurðsson.
Fjörtíu og fjögurra ára gamall unglingur