Morgunblaðið - 29.04.2010, Síða 36
Til að byrja með er rétt aðvara þá við sem bíða end-ursýningar á lokaþætti
Glæpsins í kvöld og vita því ekki
enn hver morðinginn er. Fjallað
verður um endalokin í þessum
pistli, svo haldið ykkur fjarri!
Fyrsta þáttaröð Glæpsins var
að mínu mati ein allra besta
glæpaþáttaröð sem sést hefur í
sjónvarpi. Því miður tókst þeim
hjá DR ekki alveg eins vel upp
með aðra seríu, það liggur núna
ljóst fyrir.
Það er þannig með glæpasögur
að endirinn hefur meira vægi en
öll fléttan fram að honum sam-
anlögð því það kemur ekki í ljós
fyrr en í blálokin hvort sagan var
raunverulega vel skrifuð eða
ekki. Handritshöfundar Glæpsins
II virðast hafa færst of mikið í
fang og það voru reyndar vís-
bendingar um það strax í byrjun
því sagan var flókin.
Fyrsti þátturinn kynnti ótalmargar hliðarsögur semmaður áttaði sig ekki al-
veg á strax hvernig tengdust og í
lokin reyndust endarnir ekki
fléttast nógu þétt saman.
Hvað var til dæmis málið með
Bilal, af hverju í ósköpunum þótti
honum ástæða til að sprengja sig
í loft upp? Og af hverju snappaði
Strange í Afganistan og drap allt
þetta fólk? Hvaða leynilega sendi-
för var þetta sem þingið mátti
ekki vita af? Og er það sannfær-
andi að forsætisráðherrann myndi
ganga svona langt að standa að-
gerðalaus á meðan danskir borg-
arar eru myrtir einn af öðrum
vitandi að hann gæti komið í veg
fyrir það?
Við þekkjum það vissulega hér
heima hversu mikils stjórn-
málamenn meta hagsmuni flokks-
ins umfram annað, en ég á samt
erfitt með að kaupa það að ríkis-
stjórnin eins og hún leggur sig
hafi verið tilbúin að „kóa“ með
forsætisráðherranum og leyfa
morðingjanum að fara áfram
huldu höfði, allt til að forðast
ótímabærar kosningar.
Eftir á að hyggja náði þessiþáttaröð í raun aldrei að
komast með tærnar þar sem sú
fyrsta hafði hælana. Spennan
varð óbærileg nánast frá fyrstu
stundu í Glæpnum I og það var
meðal annars vegna þess að til-
finningarnar sem áhorfendur
fengu að kynnast í þeirri sögu
voru mun sterkari og átakanlegri.
Angistin í augum foreldra Nönnu
Birk Larsen sem var myrt, nísti
hjartað. Annað sem heillaði við
Glæpinn þegar hann byrjaði fyrst
í sjónvarpi var hversu vel hand-
ritshöfundar stýrðu fram hjá
verstu klisjunum í spennuþátta-
gerð.
Það tókst ekki eins vel í þetta
skipti, eða hver var ekki búinn að
sjá fyrir að Lund væri í skotheldu
vesti eftir Hollywood-uppskrift-
inni? Og það eftir að hafa
„blekkt“ Strange til að gefa upp
eitthvað sem hann hefði ekki get-
að vitað um morðið í Minningar-
garðinum, vægast sagt klisju-
kennd lausn.
Hvern fjandann var hún annars
að pæla að draga grunaðan morð-
ingja afsíðis inn í myrkan garð til
að rekja úr honum garnirnar og
stofna lífi Raben í hættu um leið?
Nei, því miður var þessi sögu-
flétta ekki eins pottþétt og ég
hafði vonað en það breytir því þó
ekki að gæði framleiðslunnar eru
mikil að öðru leyti, leikararnir og
öll sviðsmynd frábær. Okkur Ís-
lendingum þykir mikið til danskr-
ar sjónvarpsþáttagerðar koma og
viljum gjarnan feta í þeirra fót-
spor.
Í ljósi þess er forvitnilegt að
lesa umræður um Glæpinn á
dönskum vefsíðum þar sem kem-
ur í ljós að Danir finna sumir
þáttunum allt til foráttu og
barma sér yfir því að dönsk sjón-
varpsþáttagerð sé ekki eins vönd-
uð og töff og sú breska.
Mér finnst Danir hins vegar
enn eiga allt hrós skilið og vona
að þeir haldi áfram á sömu braut,
en hugsi plottið betur til enda
næst.
Endaslepptur danskur Glæpur
AF LISTUM
Una Sighvatsdóttir
» Það er þannig meðglæpasögur að það
kemur ekki í ljós fyrr en
í blálokin hvort sagan
var raunverulega vel
skrifuð eða ekki.
una@mbl.is
Glæpurinn Önnur sería stóð ekki alveg undir væntingum eftir frábæra fyrstu seríu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
Svalasta mynd
ársins er komin!
HHHHH
„Fáránlega skemmtileg,
fullkomlega uppbyggð
og hrikaleg rússíbana-
reið sem sparkar í staði
sem aðrar myndir eiga
erfitt með að teygja
sig í“
- Empire – Chris Hewitt
HHHHH
“Þeir sem missa af
þessari fremja glæp
gegn sjálfum sér.”
– Fbl.-Þ.Þ
HHHHH
– H.G. – Poppland Rás 2
Bráðske
mmtileg
gaman
mynd
í anda A
merican
Pie.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA
SHE'S OUT OF MY LEAGUE kl. 5.40-8-10:20 16 3D-DIGITAL AÐTEMJADREKANNSINN m. ísl. tali kl. 5:503D L
OFURSTRÁKURINN kl. 5:50 VIP-LÚXUS AÐTEMJADREKANNSINN m. ísl. tali kl. 5:50 L
KICK-ASS kl. 5:40-8 -10:30 14 3D-DIGITAL HOTTUBMACHINE kl. 8 - 10:30 12
KICK-ASS kl. 8-10:30 VIP-LÚXUS THE BLIND SIDE kl. 8 10
CLASH OF THE TITANS kl. 8-10:30 12 MENWHOSTAREATGOATS kl. 10:30 12
CLASH OF THE TITANS kl. 5:40 VIP-LÚXUS
KICK-ASS kl. 5:50-8:10D -10:40D 14
OFURSTRÁKURINN m. ísl. tali kl. 6 L
CLASH OF THE TITANS - 3D kl. 8:103D -10:303D 12
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8:10-10:30 12
HOW TO TRAIN YOUR DRAGON - 3D m. ensku tali kl. 63D L
/ KRINGLUNNI
HIN þrýstna söng- og leikkona Jes-
sica Simpson, viðurkenndi í viðtali á
dögunum að tannumhirðu hennar sé
talsvert ábótavant. Hún sagðist í
raun ekki bursta tennurnar nema
þrisvar í viku, en þrátt fyrir það
þyrfti hún ekki að berjast við and-
remmu.
„Tennurnar mínar eru mjög
hvítar og ég vil ekki að þær séu of
sleipar, en ég nota Listerine (gerla-
drepandi munnskol) og tannþráð á
hverjum degi. Annars renna var-
irnar á mér bara út um allt, ég þarf
smá skán. Ég veit að þetta hljómar
ógeðslega en lyktin út úr mér er allt-
af fersk, það er virkilega skrýtið, en
lyktin út úr mér er frábær.“
Jessica hafði áður sagt í öðru við-
tali að stundum þegar hún nennti
ekki að tannbursta sig, þurrkaði hún
bara skánina burtu með peysuerm-
inni. Það er spurning hvað tann-
læknar segja við þessu.
Burstar ekki
tennurnar
Hvítar Fallegar tennur en ...?
SÖNGKONAN Susan Boyle, sem
sló í gegn í Britaińs Got Talent, er
án efa ein vinsælasta söngstjarnan
í dag. Til stendur að Boyle gefi út
jólaplötu í ár, en þó að hún sé
ekki búin að taka upp svo mikið
sem eitt lag, lítur út fyrir að hún
slái öll sölumet. Síðustu tvær vik-
ur hafa um 2 milljónir manna sent
vefversluninni Amazon beiðni um
að fá að panta plötuna fyrirfram.
Talsmaður fyrirtækisins segist
aldrei hafa vitað annað eins, og að
platan setji örugglega met í for-
sölu á netinu.
Susan hefur verið undir miklu
álagi og fékk hálfgert taugaáfall í
fyrra vegna allrar athyglinnar, en
hún segist stefna að því að næsta
plata verði enn betri en sú fyrsta.
Boyle Er enn að slá sölumet.
Eftirsótt