Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2010 SÉRA Bjarni Karlsson, prestur í Laugarnes- kirkju, brá á leik með börnum úr Laugarnes- skóla í gær. Krakkar úr frístundaheimilinu Laugaseli, í 1. og 2. bekk, sækja fjörlegt nám- skeið í kirkjunni vikulega á miðvikudögum sem nefnist Kirkjuprakkarar. FJÖRUGIR KIRKJUPRAKKARAR Í STÓRFISKALEIK Morgunblaðið/Golli Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is JÓHANNA Vigdís Arnardóttir, söng- og leikkona, verður rödd Rík- isútvarpsins og tekur væntanlega við um helgina af þulunum sem hafa kynnt dagskrárliði frá fyrstu út- sendingu Sjónvarpsins árið 1966. „Þetta leggst mjög vel í mig en ætli ég verði ekki hötuð vegna þess að allir sakni þulanna svo mikið,“ segir Jóhanna Vigdís. Hún var beð- in um að mæta í prufu fyrir páska en segir að þar sem hún hafi ekki heyrt aftur frá Sjónvarpinu hafi hún gefið starfið upp á bátinn. „En svo var bara hringt í mig,“ heldur hún áfram og segist vera mjög kát enda sé þetta ólíkt öðru sem hún hafi gert. „Það er öðruvísi að reyna að vera hlýleg rödd inni í sjónvarpi allra landsmanna.“ Jóhanna segist ekkert hafa kynnt sér hvernig sambærilegt starf fari fram á öðrum sjónvarpsstöðvum, en hún verði ekki í mynd og ætla megi að hún lesi kynningarnar í sam- ræmi við efnið hverju sinni. „Þetta er mjög spennandi,“ segir hún. Ragnheiður Clausen, frænka Jó- hönnu, var þula um árabil en Jó- hanna segir það tilviljun að hún feti í fótspor hennar. „Hún var rosa fín þula en mér hentar betur að vera á bak við tjöldin.“ Jóhanna rödd Sjónvarpsins Þulur hafa kynnt dagskrárliði frá byrjun 1966 Morgunblaðið/Kristinn Röddin Jóhanna Vigdís Arnardóttir fer að sumu leyti í spor frænku. Í HNOTSKURN »Ása Finnsdóttir var fyrstaþula Sjónvarpsins, starfaði sem slík frá því Sjónvarpið var sett á laggirnar 1966 fram til 1970. »Nú skipta sex þulur starf-inu á milli sín en starfi þeirra lýkur væntanlega um helgina. VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Þolinmæði farþega á þrotum 2. Örkin hans Nóa fundin 3. Hakkarar hagnýta eldgosið 4. Hringavitleysa sjóarans »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rithöfundurinn Stefán Máni hefur átt mikilli vel- gengni að fagna í Frakklandi. Skáld- saga hans, Svart- ur á leik, mun brátt koma út þar í landi hjá forlag- inu Gallimard, sem áður hefur gefið út Skipið. Í tilkynningu frá Forlaginu segir að Skipið hafi hlotið mjög góðar við- tökur og til standi að prenta annað upplag skáldsögunnar á næstunni. Stefán Máni er sjálfur nýkominn frá Frakklandi, þar sem hann sótti bók- menntahátíð og hefur honum þegar verið boðið á fleiri slíkar í maí. Enn fremur er brátt von á kvik- mynd byggðri á Svartur á leik, en hún verður í leikstjórn Óskars Þórs Axels- sonar og framleiðendur eru meðal annarra Nicolas Winding Refn, leik- stjóri Pusher, og Chris Briggs, sem framleiddi Hostel-myndirnar. Svartur á leik gefin út í Frakklandi  Útvarpsmaður- inn knái, Ólafur Páll Gunnarsson, ætlar að sýna sannkallaða rokk- takta og taka lag- ið með ungling- unum í Pops um helgina. Félag- arnir í Pops ætla að slá upp bítlaballi á Kringlukránni bæði föstudags- og laugardagskvöld, en sveitina skipa Birgir Hrafnsson, Óttar Felix Hauksson, Gunnar Þórð- arson, Jón Ólafsson, Ólafur Sigurðs- son og Magnús Kjartansson. Hljóm- sveitin var upphaflega stofnuð veturinn 1966-1967, en tók sér 20 ára hlé árið 1972. Óli Palli er ekki með öllu ókunnur söngnum, en hann hefur bæði verið í ýmsum hljómsveitum og syngur í dag með ofur-karlakórnum Fjallabræðr- um. Hann tengist einnig Pops á skemmtilegan hátt og ætlar að m.a. að taka með þeim lagið „Like A Roll- ing Stone“. »32 Pops slær upp bítla- balli, Óli Palli syngur Á föstudag Hæg breytileg átt, skýjað og smáskúrir SV-lands, norðan 3-8 og dálítil él framan af við A-ströndina, en annars hægviðri og bjart. Hiti 1 til 6 stig, vægt frost NA-til. Á laugardag Vestlæg átt, 3-8 m/s og skýjað en úrkomulítið, en léttskýjað fyrir austan. Heldur hlýnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi norðaustanátt og léttir víða til, en líkur á smá vætu sunnanlands. Hiti 2 til 11 stig að deginum, hlýjast á SV-landi. VEÐUR Úrslitin á Íslandsmótinu í körfuknattleik karla ráð- ast í kvöld þegar Keflavík tekur á móti liði Snæfells. Friðrik Stefánsson leik- maður Njarðvíkur og Benedikt Guðmundsson fyrrum þjálfari kvennaliðs KR spá í spilin fyrir oddaleikinn sem hefst kl. 19.15 í kvöld. Búist er við miklu fjölmenni í íþrótta- húsið við Sunnubraut í Keflavík. »4 Spekingar spá í oddaleikinn Ólafur Stefánsson og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen kom- ust upp í þriðja sætið í þýsku 1. deildinni í handbolta í gær. Löwen lagði Íslendingaliðið Lemgo 29:27 og lék Vignir Svavarson vel með Lemgo. Guð- jón Valur Sigurðs- son lék ekki með Löwen og Snorri Steinn Guðjóns- son skoraði ekki. »2 Ólafur Stefánsson og félagar í þriðja sætið Jose Mourinho knattspyrnustjóri ítalska fótboltaliðsins Inter fagnaði gríðarlega þegar ítalska liðið lagði Barcelona 1:0 á Nou Camp á Spáni í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Inter vann samanlagt 3:2 og leikur gegn Bayern München frá Þýskalandi í úrslitaleiknum 22. maí nk. Börsung- ar komust lítt áleiðis gegn sterkri vörn Inter. »2 Mourinho stóð við stóru orðin og Inter fer í úrslit ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.