Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2010 Við hlökkum til að sjá þig. www.or.is Velkomin í Nesjavallavirkjun í allt sumar Gestamóttaka okkar verður opin frá kl. 9.00 til 18.00 alla daga frá 1. júní til 31. ágúst. Sendið bókanir fyrir hópa á gestir@or.is eða leitið upplýsinga í síma 516 7508. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, kvaddi starfsmenn sína með handabandi áður en þeir héldu utan til Grikklands í gær á flugvél Gæslunnar, TF-SIF. Vélin verður þar við eftirlit á ytri landamær- um Evrópusambandsins, vegna aðildar Íslands að slíku eftirliti gegnum Schengen-samstarfið. Átta manna áhöfn vélarinnar sinnir eftirlitinu næstu vikurnar. Varðskipið Ægir fer einnig utan til svipaðra starfa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Georg kveður Gæslumenn MSjónvarp mbl.is – Landhelgisgæslan í útrás Andri Karl og Helgi Bjarnason Oddvitar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Hafnarfirði ákváðu í gær- kvöldi að hefja formlegar meirihluta- viðræður. Málefnavinna fjögurra flokka í Kópavogi er langt komin og telur oddviti Samfylkingarinnar að vinna við myndun nýs meirihluta fari langt í dag. Fulltrúar Samfylkingarinnar, VG, Lista Kópavogsbúa og Næst besta flokksins hafa rætt saman um mynd- un nýs meirihluta frá því á sunnu- dag. Flokkarnir eru samtals með sex fulltrúa, Samfylkingin þrjá og hinir einn hver. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem áður mynd- uðu meirihluta eru með samtals fimm fulltrúa. Í gær var langur fund- ur viðræðunefndar sem skipuð er tveimur fulltrúum frá hverju fram- boði. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að full- trúarnir séu að ljúka málefnavinnu. Hún segir að oddvitar flokkanna hittist í dag og þá verði jafnframt rætt um verkaskiptingu. Hún telur að vinnan fari langt í dag, jafnvel að það takist að ljúka henni. „Ég er mjög bjartsýn. Það er ótrúlega mik- ill samhljómur á milli þessara hópa,“ segir Guðríður. Ekki rætt um bæjarstjóra Guðmundur Rúnar Árnason, odd- viti Samfylkingar í Hafnarfirði, seg- ist vongóður um að viðræðurnar við VG gangi vel. Í gærkvöldi hafi ýmis málefni verið til umræðu og í dag hefjist viðræður af fullu kappi. „Ég held að það séu allar forsendur fyrir því að þetta gangi vel.“ Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna, tekur í sama streng. Samfylkingin missti meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í kosn- ingunum, tapaði tveimur fulltrúum og er með fimm eins og Sjálfstæð- isflokkurinn. Fulltrúi VG er í odda- aðstöðu. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri var í baráttusætinu og náði ekki kjöri í bæjarstjórn. Guðmundur segir bæj- arstjórastólinn ekki stærsta málið í viðræðum flokkanna. „Það er svo langt frá því að vera stærsta málið að við töluðum ekki um það. Við vorum bara að tala um málefni og hvernig við högum viðræðum okk- ar,“ segir Guðmundur. Málefnavinnan er langt komin  Meirihluti fjögurra flokka að fæðast í Kópavogi  Gæti orðið að veruleika í dag  Formlegar viðræður hafnar hjá Samfylkingunni og VG í Hafnarfirði Morgunblaðið/hag Hafnarfjörður Guðrún Ágústa odd- viti VG leiðir viðræðurnar. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp þar sem lögð er til breyt- ing á núgildandi skipan varðandi það með hvaða hætti hæstaréttardómar- ar skuli standa að samningu hæsta- réttardóma og hvernig staðið skuli að birtingu þeirra. Fyrsti flutnings- maður er Sigurður Kári Kristjáns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að frekari upplýsingar um dómana eigi að koma fram. Samkvæmt núverandi skipan kemur fram í dómum Hæstaréttar hvaða dómarar við réttinn hafa dæmt í málum hverju sinni, hins veg- ar bera dómar það ekki með sér hver þeirra dómara samdi dóminn, að undanskildum sératkvæðum dómara við dómsniðurstöður. Sigurður segir að með frumvarpinu sé bætt úr því ógagnsæi og lagt til að í dómum Hæstaréttar verði birt hvaða dómari við réttinn semur dóm hverju sinni, dómarar staðfesti atkvæði sín skrif- lega og þeim heimilað að gera skrif- legar athugasemdir við dómsfor- sendur telji þeir ástæðu til. Sigurður Kári segir ríka kröfu um það í þjóðfélaginu að dómstörf Hæstaréttar verði gerð gagnsærri. Þetta sé hans viðleitni til að bæta dómstörfin, gera dómana skýrari og skiljanlegri þeim sem standa utan Hæstaréttar og vilja kynna sér dóm- ana. Sigurður bendir á, að með slíkum breytingum verði vinnubrögðin færð nær því sem tíðkast m.a. hjá hæsta- rétti Noregs, hæstarétti Bandaríkj- anna og hjá Mannréttindadómstól Evrópu. andri@mbl.is Vill auka gagnsæi í dóm- störfum við Hæstarétt  Vinnubrögð færð nær því sem tíðkast í Noregi Morgunblaðið/Golli Hæstiréttur Atkvæði allra dómara skulu vera birt, skv. frumvarpinu. Mistur var yfir austurhluta Rangárvallasýslu í gær vegna öskufoks frá Eyjafjallajökli. Mikið svifryk mældist í lofti, meðal annars á Hvolsvelli og voru börnin send heim í gærmorg- un og skólanum lokað. Vegna ryksins var þeim sem vinna úti ráðlagt að vera með ryk- grímur og hlífðargleraugu og eng- in börn fóru út úr skólanum án þess að vera þannig útbúin. Svifrykið berst víðar. Þannig voru loftgæði léleg í Reykjavík í gær. Öskumistur yfir Hvolsvelli Aska Mikið ösku- fok er af heiðunum. Nokkuð annríki hefur verið á Höf- uðborgarstofu vegna frétta um, að Hátíð hafsins á Akranesi hafi verið blásin af þetta árið vegna niður- skurðar. Því er til að svara, að Há- tíð hafsins í Reykjavík verður hald- in í tólfta skipti 5.-6. júní nk. Í fyrra var hátíðin flutt í fyrsta skipti vestur á Granda og þótti sú breyting hafa heppnast svo vel að leikurinn verður endurtekinn í ár. Dagskrá hátíðarinnar má finna á hatidhafsins.is. Hátíð hafsins haldin hátíðleg í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og varaformaður flokksins, seg- ist ekki ætla að segja af sér, í ljósi dræmrar útkomu flokksins í Reykjavík. Spurður hvort hann hafi íhugað stöðu sína, líkt og Karl Th. Birgisson leggur til í pistli á vefnum Herðubreið, seg- ir Dagur: „Ég hef náttúrlega íhugað marga hluti þessa dagana og Samfylkingin. Skilaboðin frá kjósendum eru um breytingar. Ég held að stóra prófið sé að standa undir þeim skilaboðum.“ Íhugað margt DAGUR SEGIR EKKI AF SÉR Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur hafnað kröfu þess efnis að lík- amsleifar skák- meistarans Bobbys Fischer verði grafnar upp til að skera úr um faðerni Jinky Young, stúlku frá Filippseyjum sem segir Fischer vera föður sinn. Þetta stað- festi Þórður Bogason hrl. og lög- maður Jinky Young í samtali við mbl.is en þinghaldið, sem fram fór sl. föstudag, var lokað. Segist hann þegar hafa áfrýjað úrskurði hér- aðsdóms til Hæstaréttar og vonast til þess að niðurstaðan þar geti leg- ið fyrir fyrir réttarhlé í júnímánuði. Kröfu hafnað um að grafa Fischer upp Bobby Fischer Dagur B. Eggertsson Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar síðdegis í gær vegna árásar Ísraela á skipalest á leið til Gaza í fyrrinótt, þar sem um 20 manns létust. Hefur árásin verið fordæmd víða um heim. Skömmu áður en fundur nefndarinnar hófst hafði félagið Ísland-Palestína stað- ið fyrir mótmælastöðu fyrir utan utanríkisráðuneytið. Var skorað á íslensk stjórnvöld að slíta stjórn- málasambandi við Ísraela. Málið verður rætt á Alþingi í dag. »15 Árás Ísraela rædd í utanríkismálanefnd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.