Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Lýst eftir tólf ára pilti 2. Sigrún Björk segir af sér 3. Andlát: Sigursteinn H. 4. Besti og Samfylking ræða saman »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Síðastliðinn laugardag var frum- sýnt í Þjóðleikhúsinu tónlistar- ævintýrið Herra Pottur og ungfrú Lok. Guðmundur S. Brynjólfsson seg- ir vitleysu að auglýsa sýninguna sem barnasýningu. »36 Frábær kennslu- stund í menningu  Stuttmynd eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur, Children of Eve, verður frumsýnd á Actfestival í Bilbao á Spáni 5. júní. Myndin byggist á einni af þjóðsögum Jóns Árnasonar um hin óhreinu börn Adams og Evu og upp- runa íslenska álfsins. Leikarinn Ólaf- ur Darri er sögumaður myndarinnar en með aðalhlutverk fara Sigríður Soffía og Guðrún Eva Níelsdóttir. Tónlistarmaðurinn Stafrænn Hákon sá um hljóðmyndina. Children of Eve frumsýnd í Bilbao  Söngfuglinn Celine Dion hefur til- kynnt að hún og maðurinn hennar, René Angelil, eigi von á tvíburum. Fyrir eiga Dion, sem er 42 ára, og Angelil, sem er 68 ára, 9 ára gamlan son. Dion varð loks ólétt eftir að hafa far- ið sex sinnum í glasafrjóvgun. Hún er kominn fjórtán vikur á leið og ætlar að fá að vita kyn barnanna í næstu viku. Celine Dion á von á tvíburum Á miðvikudag Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað sunnan- og vest- antil á landinu, en annars skýjað með köflum og sums staðar dálítil súld á N- og A-landi. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast SV-til. Á fimmtudag og föstudag Austlæg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri. Hiti 10 til 18 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 3-10. Súld á Austurlandi, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir, síst NV-til. Hiti yfirleitt 10 til 16 stig að deginum. VEÐUR Valsmenn skoruðu í fyrsta skipti fimm mörk á hinum nýja leikvangi sínum að Hlíðarenda í gærkvöld. Þeir unnu þá stórsigur á Fylki, 5:2, í bráðfjörugum og gal- opnum leik og eru komnir í hóp liða sem eru með átta stig, fimm stigum á eftir toppliði Keflvíkinga. Danni König skoraði tvö marka Vals og er markahæstur í deildinni með fjögur mörk. »8 Valsarar skoruðu fimm gegn Fylki Alfreð Gíslason hefur skráð nafn sitt á spjöld þýsku handknattleikssög- unnar. Hann er fyrsti þjálfarinn sem stýrir tveimur þýskum liðum til sig- urs í Meistaradeild Evrópu. Þjóð- verjar hafa aðeins unnið deildina þrisvar og Alfreð hefur verið að verki í tvígang, með Magdeburg 2002 og Kiel 2010. Ferill Alfreðs er rakinn í Morg- unblaðinu í dag. »2 Alfreð Gíslason sigur- sælastur í Þýskalandi Keflvíkingar eru komnir með fimm stiga forystu í úrvalsdeild karla í knattspyrnu, Pepsideildinni, eftir 2:1 sigur á nýliðunum frá Selfossi í gær- kvöld. Framarar eiga reyndar leik gegn KR-ingum til góða en þeir eru með 8 stig, eins og Breiðablik, ÍBV og Valur. FH vann Grindavík, 2:1, en Stjarnan og Haukar gerðu jafntefli, 2:2. »4-5 Keflvíkingar komnir með fimm stiga forystu ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Mörgum af eldri körlunum í brans- anum fannst þetta skrýtið, þeir voru eitthvað efins og ég þurfti svolítið að sanna mig fyrir þeim, að ég væri komin til að vera,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir bifreiðasmiður. Anna Kristín er fyrsta konan sem þreytir sveinspróf í bifreiðasmíði á Íslandi, frá Borgarholtsskóla í vor. Hún segir að bíladellan hafi alltaf blundað í sér þó hún hafi lengi vel ekki þorað að gera neitt í því. „Svo langaði mig að prófa eitthvað nýtt. Ég kláraði stúdentsprófið úr Fjölbraut í Ármúla og var að spá í hvort ég ætti þá að fara í háskólann, en ég var með svo mikinn bílaáhuga að ég ákvað bara að láta slag standa og drífa mig í þetta, hugsaði að ég myndi ekki tapa neitt á því.“ Þetta reyndist hárrétt ákvörðun hjá Önnu því hún hefur fundið sína hillu í bifreiðasmíðinni og hefur unnið á bílamálunar- og réttingaverkstæði Toyota samhliða náminu. Gefandi að geta lagað hluti „Þegar ég sótti um var ég spurð hvort ég væri að sækja um fyrir bróður minn eða pabba minn. En þetta tókst allt á endanum og er búið að vera mjög skemmtilegt.“ Fyrir utan vinnu og skóla hefur Anna dútlað við það undanfarna mánuði að gera upp skemmdan VW Golf af árgerð 1985. „Kærastinn minn sá hann verða fyrir tjóni svo ég fór á stúfana að leita að þessum bíl. Mér fannst þetta alveg fullkominn bíll í svona og var eitt ár að klára hann. Það þurfti að skipta um allan fram- endann á honum og svo voru ryð- blettir hér og þar, á tímabili fór allur frítíminn í þetta.“ Nú er bíllinn öku- hæfur og Anna því farin að skima eft- ir næsta gæluverkefni. „Það er það skemmtilega við þetta, að geta gert ónýta hluti nýja og flotta aftur. Það er mjög gefandi að sjá útkomuna.“ Í haust stefnir Anna hiklaust á að halda náminu áfram og ljúka meist- araprófi í bifreiðasmíði. Hún vonast til að fleiri stelpur fylgi í kjölfarið og segir að kennararnir í Borgarholts- skóla vonist til þess líka. „Maður skil- ur ekki alveg af hverju stelpurnar eru ekki í þessu, mér finnst það skrýtið því það eru svo margar stelp- ur bifvélavirkjar og bílamálarar.“ Og „gömlu karlarnir í bransanum“ eru að sjálfsögðu löngu búnir að taka Önnu í sátt. „Já, já, við- horfið hefur allt breyst. Það er nú það besta, þeir eru orðnir jákvæðir og sjá að það var engin ástæða til að hræð- ast mig.“ „Þurfti svolítið að sanna mig“  Fyrsta konan sem lýkur prófi í bifreiðasmíði Morgunblaðið/Ómar Vinnan „Við erum fjölhæf og klórum okkur fram úr flestu,“ segir Anna sem hefur gaman af öllum hliðum starfsins. „Maður þarf að vera rosalega þol- inmóður og dálítið smámunasam- ur, þetta tekur mikinn tíma,“ segir Anna Kristín, spurð hvaða eig- inleikum góður bifreiðasmiður þurfi að búa yfir. Bifreiðasmíði er löggilt iðngrein sem kennd er í Borgarholtsskóla og Verkmennta- skólanum á Akureyri. Starfsheitið bifreiðasmiður er arfleifð frá þeim tíma þegar fjöldi manns vann við að byggja yfir hópbíla og jeppa og smíða vöruhús á flutningabíla, skv. upplýsingum frá fræðslusetrinu Iðu. Mjög hefur dregið úr nýsmíði bifreiða af þessum toga en í stað- inn starfa bifreiðasmiðir einkum við endurbyggingu bíla sem hafa skemmst í umferðinni. Tjónabílar eins og nýir MEÐ ÞOLINMÆÐINA AÐ VOPNI Bíll á hvolfi í Kjós- inni í Hvalfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.