Fréttablaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 30
4 föstudagur 7. október
Skórnir
sem
talað
er
um!
Hvar, hvenær og hvernig
skal stunda kynlíf
?Ég er með smá áhyggjur sem tengjast kviðverk og kynlífi. Síðast þegar ég fór til kvensjúkdómalæknis var mér sagt að allt væri í lagi, en núna er ég farin
að finna fyrir verkjum í ákveðnum stellingum og finnst best að gera „trúbbann“
því þá finn ég minna til. Nú veit ég ekki hvort þetta er alveg eðlilegt eða hvort
ég ætti að hafa áhyggjur og drífa mig í aðra skoðun?
Svar: Það er erfitt að svara þér án ítarlegri upplýsinga, líkt og hvernig
sársaukinn lýsir sér, en byggt á því sem þú gefur þá hef ég nokkrar tilgátur. Þú
gætir verið með aftursveigt leg eða viðkvæman legháls. Þá eru sumar stelling-
ar þægilegri en aðrar, sérstaklega þær sem þú getur stjórnað dýpt limsins inn
í leggöng. Kvensjúkdómalæknir getur skoðað legu legsins. Ég hvet þig til að
panta annan tíma og ef læknirinn finnur ekki skýringu á þessum verk gæti verið
ráðlagt að panta tíma hjá kynfræðingi.
?Nokkrir hlutir hafa verið mér ofarlega í huga undanfarið og langar mig að vita þína skoðun á þeim málum. Mér hefur oft fundist skrítið hvað
það er sjálfgefið að eftir hjónaband sé ekkert kynlíf. Eins og að um
leið og hringarnir fari á fingurna hverfi tilhugalífið. Konum er sagt
að fá sér titrara og mönnum að njóta strippbúlla. Einnig langar
mig að vita hvaðan höfuðverkurinn mikli kemur. Það er oft fjallað
um það í kvikmyndum að konan neiti kynlífi og beri fyrir sig
höfuðverk, eða þá noti höfnunina sem refsingu. Enn fremur
brandarinn um að ef maður er pirraður eða það gangi ekki
eitthvað hjá honum þá sé konan ekki að „gefa honum nóg“.
Svar: Báðir „brandararnir“ sem þú vísar í eiga sér stoð í
raunveruleikanum og eru í raun tilvísun til þess sem oft ger-
ist í langtímasamböndum. Þegar hiti lostans sem einkennir
upphaf sambandsins kulnar þá fer kynlíf oft í fastari skorður.
Báðir aðilar verða öruggari innan sambandsins og kynlíf fer
að snúast um innileika og tjáningu á honum frekar en hömlu-
lausan losta. Þegar sambandið vex og parið hefur sambúð
og eignast fjölskyldu verður tími oft af skornum skammti, for-
gangsröðunin breytist og kynlífið gleymist. Oftar en ekki hall-
ar á konuna þegar kemur að heimilisverkum og uppeldi og
þreyta kemur fæstum í stuð og það getur því verið ein mögu-
leg skýring á „höfuðverknum“. Ósamræmi í tíðni og vænt-
ingum til kynlífs er eitt af helstu kynlífsvandamálunum sem
pör leita eftir aðstoð við. Sumir kjósa gæði fram yfir tíðni
og aðrir öfugt. Það er gömul mýta að halda að karlar kjósi
tíðni fram yfir gæði eða að þeir neiti konunni ekki um kynlíf.
Pör þurfa að koma sér saman um kynlíf; hvenær, hvar og
hvernig. Það kann að hljóma órómantískt en þau pör sem
ekki ræða þessi mál eru líkleg til að lenda í árekstrum.
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um
umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Hönnuðurinn Marc Jacobs átti heiðurinn að fallegustu sýningu tískuvikunn-ar í París fyrir hönd tískuhússins Luis Vuitton. Sviðið var hvorki meira né
minna en risavaxin hringekja og stigu fyrirsæturnar af hestum sínum hver
á eftir annarri. Kate Moss lauk sýningu Vuitton líkt og í vetur og klæddist
gullfallegum hvítum kjól sem skreyttur var fjöðrum.
Jacobs er orðaður við Dior og gæti þetta því hafa verið hans síðasta sýn-
ing fyrir Vuitton, en hann hefur verið yfirhönnuður hússins síðustu fimmtán
ár. Blaðamaður Fashionista.com segir sýninguna hafa verið stórkostlega og að
hringekjan hafi verið hulin á bak við stórt tjald allt þar til sýningin hófst. Er
tjaldið féll mátti heyra andköf sýningargesta og hrifningaróp. Það má án efa
fullyrða að erfitt verði að leika þetta eftir, enda bera myndirnar þess vitni að
sviðið hafi verið einstakt í alla staði. - sm
Einstök sýning hjá Luis Vuitton:
Andköf og hrifning
hjá Luis Vuitton
Glæsileg
Ofurfyrirsætan
Kate Moss lauk
sýningunni.
Hún klæddist
fallegum, fjaður-
skreyttum kjól.
Einstakt svið Sýning tískuhússins Luis Vuitton þótti
ein sú stórkostlegasta á tískuvikunni í París.
N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
S
/G
E
TTY
Ný sýn á fullkomna húð
Fyrsta háþróaða húðlagfæringin
Hrukkur, húðholur og ójöfnur