Fréttablaðið - 07.10.2011, Blaðsíða 57
FÖSTUDAGUR 7. október 2011 41
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka
fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Tökum bleikan bíl!
Jónas Björgvinson hefur gefið
út lagið Laufin lifa. Það verður
á nýrri plötu hans sem kemur út
á næsta ári. Jónas ákvað að gefa
út Laufin lifa í tilefni fertugs-
afmælis síns á föstudaginn og
vegna sérstakra aðstæðna. Lagið
er tileinkað minningu Laufeyjar
Ingibjargardóttur frá Akranesi
og er til styrktar baráttunni
gegn krabbameini. Allur ágóði af
netsölu á Tonlist.is og Gogoyoko
rennur til Krabbameinsfélags
Íslands og í styrktarsjóð sona
Laufeyjar. Styrktartónleikar
fyrir drengina verða haldnir
19. október í Gamla bíói.
Lag gegn
krabbameini
Trausti Laufdal og hljómsveit
hans hafa sent frá sér annað
lag af væntanlegri sólóplötu.
Lagið nefnist Stórt er spurt
og samdi Trausti það við ljóð
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi. Kærasta Trausta, Hildur
Þórlindsdóttir, syngur með
honum í laginu. Fyrr í sumar
sendi hann frá sér lagið Einn
koss sem var í tíu vikur á vin-
sældalista Rásar 2. Með sólóverk-
efni sínu leitar Trausti í rætur
blúsins í bland við íslenska dæg-
urtónlist á borð við Hljómsveit
Ingimars Eydal og Hljóma.
Annað lag
frá Trausta
Við frumsýningu myndarinnar
Johnny English Reborn biðu
flestir ljósmyndarar eftirvænt-
ingarfullir eftir aðalleikara
myndarinnar, Rowan Atkinson.
Það var hins vegar sextán ára
dóttir hans, Lily Atkinson, sem
stal senunni frá föður sínum á
rauða dreglinum, en hún mætti á
frumsýninguna í fylgd foreldra
sinna.
Klædd í stuttan svartan kjól
og hlébarðamunstraða hælaskó
heillaði Lily ljósmyndara, sem
létu flössin dynja. Breskir fjöl-
miðlar veltu síðan fyrir sér hvort
stúlkan væri lík föður sínum
eða móður, en komust að þeirri
niðurstöðu að líklega ætti móðir
Lily heiðurinn af glæsilegu útliti
hennar.
Dóttirin
stal senunni
FEÐGIN Rowan Atkinson mætti með
sextán ára dóttur sína, Lily, á frum-
sýningu en hún stal senunni af föður
sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlist ★★★
Stop That Noise
Hellvar
Hell-víti kröftugt
Á fyrstu plötu
sinni döðruðu
Heiða Eiríks-
dóttir og
Elvar Geir
Sævarsson við
elektróníska
tónlist og
notuðust við forritaðan trommu-
heila. Núna er Hellvar orðið
fimm manna band og fyrir vikið
hafa áherslunar breyst og rokkið
orðið meira áberandi þó svo að
rafpælingarnar séu aldrei langt
undan.
Stop That Noise var tekin upp
„live“ á einni helgi og það skilar
sér í fínni, nokkuð hrárri rokkplötu,
þar sem falleg söngrödd Heiðu
nýtur sín vel, hvort sem tungu-
málið er franska eða enska. Lögin
eru flest góð en fyrri helmingurinn
er ívið betri, með pönktryllinum
svala I Should Be Cool og hinu
hljómfagra Morceau de gaieté,
sem ég get vel ímyndað mér að
svínvirki á tónleikum, rétt eins og
Too late, liar þar sem kröftugur
gítarleikurinn og trommurnar ná
þrusuvel saman. Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Fínt rokk með
elektróník í bland sem ætti að
njóta sín til fullnustu á tónleikum.
Ekki hrifin af lýtaaðgerðum
Leikkonan Michelle Pfeiffer
er ekki sérlega hrifin af lýta-
aðgerðum en segir mikilvægt
að fólk sé sátt við útlit sitt.
Pfeiffer segist ekki geta
fundið að því að fólk lagfæri
hitt og þetta en viðurkennir
að sér finnist sorglegt þegar
fólk gengur of langt í þeim
málum. „Þegar fólk hættir
að líta út eins og það sjálft þá
finnst mér það sorglegt. Mér
finnst óþægilegt að sjá þann-
ig fólk, en ef það er sjálft sátt
við útlit sitt þá ætti álit mitt
ekki að skipta máli,“ sagði
leikkonan í viðtali við Elle.
Í sama viðtali minnist hún
þess tíma er hún lék í kvik-
myndinni Scarface ásamt
Al Pacino. „Ég var logandi
hrædd allan tímann. Ég átti
ekkert í þessa stórleikara,
ég var bara lítil, grannvax-
in stúlka sem hafði leikið í
Grease 2.“
LÝTAAÐGERÐIR SORGLEGAR
Michelle Pfeiffer segir sorglegt að
sjá fólk sem hefur farið of oft í
lýtaaðgerðir.
NORDICPHOTOS/GETTY