Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Flugmóti aflýst vegna reglugerðar Svifflugfélag Íslands hefur aflýst Ís- landsmótinu í svifflugi, sem átti að fara fram nú í vikunni, vegna nýinn- leiddrar evrópskrar reglugerðar um fylgiskjöl með svifflugum. Kristján Sveinbjörnsson, formað- ur Svifflugfélags Íslands, segir reglugerðina auka pappírsvinnu og fela í sér auknar kröfur um viðhald. „Þetta varð til þess að degi áður en mótið átti að hefjast voru nánast all- ar svifflugur óflughæfar á Íslandi. Ástæðan er sú að það er mikil vinna sem þarf að ljúka til að uppfylla pappírsskilyrði sem fylgja þessum reglum, þetta er flókið og það er töluverð bið í meðferðinni hjá Flug- málastjórn.“ Kristján segir þetta kosta svif- flugfélagið mikla peninga, en það er áhugamannafélag sem reiðir sig á sjálfboðavinnu. „Við áætlum að þetta muni kosta okkur eina og hálfa milljón, bara árið í ár. Svo vitum við ekkert um framhaldið, það bætist ný reglugerð við seinna. Þetta eru flug- fjandsamlegar reglur.“ jonasmargeir@mbl.is Mótið hefur verið haldið frá 1958. Auknar kröfur um fylgiskjöl svifflugna Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Tæp fimm hundruð mál bíða embætt- is umboðsmanns skuldara, að því er fram kemur í ársskýrslu Ráðgjafar- stofu um fjármál heimilanna en um- boðsmaður skuldara tekur við verk- efnum hennar 1. ágúst. „Þessi fimm hundruð mál skiptast í tvennt. Helmingur er það sem við köllum almenna ráðgjöf vegna greiðsluerfiðleika. Hinn helmingur- inn er vegna umsóknar um greiðslu- aðlögun,“ segir Ásta Sigrún Helga- dóttir, forstöðumaður Ráðgjafar- stofu. Lög um umboðsmann skuldara voru samþykkt 24. júní en þar má finna ákvæði til bráðabirgða þar sem starfsmönnum Ráðgjafarstofu er tryggt starf hjá umboðsmanni. „Það er unnið á fullu að undirbún- ingi embættis umboðsmanns skuld- ara sem hefur störf 1. ágúst. Þar er eðlilega verið að skoða þau mál sem verða enn í gangi 1. ágúst. Þetta er sérstakt því þegar eitthvað nýtt er stofnað þá byrjar það oftast með autt borð en núna þarf að skoða málafjöld- ann,“ segir Ásta sem kveður hlutverk umboðsmanns skuldara vera form- legra en Ráðgjafarstofu. „Núna verð- ur fyrirkomulagið þannig að menn verða að leita til umboðsmanns ef þeir vilja greiðsluaðlögun. Megin- breytingin er sú að Ráðgjafarstofa hefur verið hlutlaus aðili en umboðs- maður er einungis málsvari skuld- ara.“ Sækist eftir embættinu Ásta hefur áhuga á embættinu og hefur sótt um stöðuna. „Mitt starf verður lagt niður. Ég hef því ákveðið að sækja um þá stöðu. Ég mun leggja mína umsókn fram en svo kemur það bara í ljós. Þetta er alveg nýtt og það er mjög eðlilegt að þetta sé auglýst en ég hef mikla reynslu og mikinn áhuga á að vinna áfram að þessum málum.“ Tæp 500 mál færast yfir  Umboðsmaður skuldara tekur við miklum málafjölda Ráðgjafarstofu  Forstöðumaður Ráðgjafarstofu sækist eftir embætti umboðsmanns skuldara Morgunblaðið/Ómar Hverfur Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna verður lögð niður. „Það fyrsta sem ég lét mér detta í hug var bílslys hér í nágrenninu og að flytja ætti slasaða um borð í þyrluna héðan af bæjarhlaðinu. Þetta reyndust hins vegar öllu ánægjulegri tíðindi en ég reiknaði með í fyrstu,“ segir Bjarni Valur Guðmundsson, bóndi í Skipholti í Hrunamannahreppi við Flúðir, í samtali við Morgunblaðið. Í umferðareftirliti lög- reglu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Suður- landi í gærkvöldi kom áhöfn þyrlunnar auga á kú með nýborinn kálf ofan í uppþornuðum skurði skammt frá bænum. Rétt þótti að láta bóndann vita og var því fljótt vitjað um kúna og kvígukálf- inn sem auðvitað fékk nafnið Þyrla. Á myndinni sést Bjarni Valur á rabbi við Sverri Andersen, flugvirkja þyrlunnar, TF-GNÁ. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þyrlumenn fundu kú og kálf „Reynsla okkar er sú að þeir eru að bítast um sömu fiskana. Þetta er þannig svolítil gullgraf- arastemning; fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir Einar Sig- urgeirsson, varðstjóri hjá Land- helgisgæslunni, um strandveiði sem hófst á miðnætti. „Þeir mega vera fjóra daga að veiðum í viku hverri, en verða að vera í landi föstudag, laugardag og sunnu- dag. Þeir mega fara út á mið- nætti og þess vegna erum við við öllu búnir. Fyrirhyggjan minnkar oft. Þeir hafa farið út í upphafi tímabils þegar það hefur verið stormur á miðunum.“ Strandveiðibátar sigldu á miðnætti „Þessi hugmynd hefur verið skoðuð áður, en miðað við stöðuna núna, stendur ekkert til að víkja frá þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið,“ segir Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, sagði í sam- tali við Mbl.is fyrir helgina FÍ tilbúið til að reisa og fjármagna flugstöð á eigin svæði á Reykjavíkurflugvelli. Árni segir gerð flughlaða á nýju svæði kosta 700 millj. kr. í stað þess að nýta hlöð á svæði FÍ. Kristján segir að fyrr á árinu hafi hann átt fundi með fulltrúum flug- félaga og fleiri. Þá hafi menn verið sammála um að fylgja þeirri stefnu sem mörkuð hafi verið að reisa mið- stöðina norðan við Loftleiðahótelið. Reykjavíkurborg sem hefur með skipulagsmálin að gera hafi einnig lagt áherslu á þá staðsetningu. „Það voru vonbrigði að fyrri meirihluta í borgarstjórn tókst ekki ljúka skipu- lagsvinnu vegna samgöngumiðstöðv- arinnar og auglýsa nýja deiliskipu- lagstillögu. Ég vænti þess þó að sú auglýsing birtist á allra næstu dögum og þá er talsverðum áfanga náð,“ seg- ir Kristján L. Möller. sbs@mbl.is Víkjum ekki frá fyrri ákvörðun Kristján L. Möller.  Samgöngumiðstöð rísi við LoftleiðahótelÁtta ára dreng var bjargað úr kviksyndi rétt vestan við Gilsá undir Þórólfsfelli síðdegis í gær. Hann var sokkinn upp fyrir mitti á öðrum fæti og var fastur þegar honum var bjargað og orðinn býsna kaldur. Lögregla og Björg- unarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli komu drengnum til bjargar. Drengurinn var á ferð með systur sinni og tveimur stúlkum þegar hann gekk út í sandbleytuna, skammt frá föstu landi. Hann var fastur í pyttinum í á að giska klukkutíma og var orðinn ansi kaldur þegar björg- unarmenn komu á vettvang. Þetta hélt okkur ekki og þýddi ekkert að ganga þarna út á, sagði Adolf Árnason varðstjóri sem fór á staðinn. Ef ég hefði farið þarna þá hefði ég bara sokkið. Lagt var timburborð yfir sand- bleytuna og lítill timburstigi til að komast að drengnum. Tveir björgunarsveitarmenn fóru út á brúna og mokuðu drenginn upp með skóflum og höndum. Það tók um tíu mínútur að mati Adolfs. Þetta var mjög hugrakkur strákur og tók þessu ótrúlega vel, þótt þetta hafi verið mikil lífsreynsla fyrir níu ára gamalt barn, sagði Adolf. Drengurinn er fæddur árið 2001 og verður 9 ára í haust. Adolf sagði að erfitt geti verið að sjá sandbleytuna því öll spor afmáist fljótlega. Því geti verið hættulegt að ganga á söndunum þar sem bleyta sést. Það eru pyttir þarna út um allt. Drengurinn var fluttur á Heilsugæslustöðina á Hvolsvelli þar sem læknir skoðaði hann til öryggis og út- skrifaði að skoðun lokinni. Strákurinn fékk svo að fara í sturtu á lögreglustöðinni á Hvolsvelli og fór svo heim. Sokkinn upp fyrir mitti í kviksyndi Þórólfsfell Drengurinn gekk út í sandbleytu. Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson  Átta ára drengur var fast- ur í pyttinum í klukkutíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.