Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 21
Dagbók 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
4 1 8 9
6 5 3 8
8 5 2
9 6
1 6 4 8 9
3 9
6 4 5
1
6 5 4
2 9
3 8 6
7 9
4 2 3
8
6 4 2
9 8 2 6
8 7 3
9 5
1 6
3 5
6
8 2 1
7 9 4
2 6 5
6 2 7
9 8 4
4 6 5 8 9 1 3 2 7
9 8 2 3 7 4 6 5 1
3 1 7 2 5 6 8 4 9
8 7 6 4 3 5 1 9 2
5 3 9 1 2 8 7 6 4
1 2 4 7 6 9 5 8 3
2 9 8 5 1 7 4 3 6
7 4 3 6 8 2 9 1 5
6 5 1 9 4 3 2 7 8
3 9 2 1 6 4 7 8 5
1 8 7 3 5 9 4 2 6
4 6 5 2 7 8 3 1 9
5 4 1 6 9 3 8 7 2
9 3 8 7 1 2 5 6 4
7 2 6 4 8 5 9 3 1
8 5 3 9 2 1 6 4 7
2 7 4 5 3 6 1 9 8
6 1 9 8 4 7 2 5 3
4 8 6 1 5 2 7 3 9
1 3 2 9 7 4 5 8 6
5 7 9 6 3 8 4 1 2
7 6 1 5 2 9 3 4 8
8 2 3 7 4 6 9 5 1
9 4 5 8 1 3 2 6 7
6 1 7 4 9 5 8 2 3
3 5 8 2 6 7 1 9 4
2 9 4 3 8 1 6 7 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 5. júlí, 186. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því,
sem illt er, minn elskaði, heldur eftir
því, sem gott er. Sá sem gott gjörir
heyrir Guði til, en sá sem illt gjörir
hefur ekki séð Guð. (3. Jh 11.)
Til er stór hópur einstaklinga hér álandi sem telur að forgangs-,
þjóðþrifa- og nauðsynjaverk sé að
leggja sem mest af hjólreiðastígum
sem víðast. Sjaldnast eru það hjól-
reiðamennirnir sjálfir sem kalla eftir
lagningu þessara stíga, heldur hinir
og þessir aðilar sem telja aukið hlut-
fall reiðhjóla í samgöngum lands-
manna æskilega þróun. Jafnan er
vísað til landa eins og Danmerkur í
rökstuðningi fyrir fleiri reið-
hjólastígum – þar eru allir síhjólandi
og vart hægt að þverfóta fyrir hjól-
reiðastígum.
x x x
Víkverji neitar því ekki aðhjólreiðatúr á blíðviðrisdegi
getur verið hin besta skemmtun og
dægrastytting. En þar liggur einmitt
hundurinn grafinn. Gott ef hnífurinn
stendur ekki líka í kúnni á svipuðum
slóðum. Veðráttan á Íslandi býður
ekki upp á hjólreiðar nema hluta árs-
ins. Auðvitað kann að vera að þeir
allra hörðustu láti sig hafa það hjóla
allan ársins hring, jafnvel þegar jörð
er hál, hvasst úti og kalt. En þorri Ís-
lendinga mun seint láta sig hafa það
að gera reiðhjólið að aðalsam-
göngutækinu, einmitt vegna ís-
lenskrar veðráttu.
x x x
Efsti tindur hæsta fjalls Dan-merkur er um það bil 150 metra
yfir sjávarmáli. Fellahverfið í Breið-
holti er í um það bil 200 metra hæð
yfir sjávarmáli. Þar er annar regin-
munur á hentugleika íslensks og
dansks landslags til hjólreiða, nefni-
lega allar brekkurnar. Danir þurfa
vart að stíga á pedala reiðhjóla sinna
til að þeytast borgarhlutanna á milli,
á meðan Breiðhyltingurinn eða
Árbæingurinn á fyrir höndum ansi
erfitt ferðalag eigi viðkomandi erindi
í næsta bæjarfélag, eða jafnvel næsta
hverfi. Víkverji getur því ekki komist
að annarri niðurstöðu en að danskt
landslag sé hentugt til hjólreiða, en
íslenskt alls ekki. Það skyldi þó aldrei
vera að allir dönsku hjólreiðastíg-
arnir hafi komið eftir að hjólreiðar
urðu vinsælar hjá danskri alþýðu, en
ekki öfugt? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fátæka, 8 við
góða heilsu, 9 depill, 10
spil, 11 fiskur, 13 híma,
15 dramb,18 ógild, 21
hár, 22 þrautin, 23 ver-
ur, 24 farangur.
Lóðrétt | 2 halda, 3 sjá
eftir, 4 báran, 5 hnugg-
inn, 6 óns, 7 lesta, 12 álít,
14 slöngu, 15 mann, 16
skeldýr, 17 ámu, 18 vilj-
ugt, 19 fóðrunar, 20
grugg.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þröng, 4 skref, 7 torfa, 8 ermar, 9 sár, 11 röng,
13 snúa, 14 efast, 15 last, 17 ólán, 20 aða, 22 göfug, 23
fátíð, 24 sorta, 25 rorra.
Lóðrétt: 1 þotur, 2 ögrun, 3 glas, 4 sver, 5 ræman, 6
fórna, 10 ásauð, 12 get, 13 stó, 15 leggs, 16 sófar, 18
lætur, 19 naðra, 20 agga, 21 afar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. h3 Rbd7 7. g4 h6 8. f4 e5 9.
Rf5 Rc5 10. Bg2 g6 11. Rg3 h5 12. f5 h4
13. Rge2 d5 14. fxg6 d4 15. gxf7+ Kxf7
16. O-O Kg6 17. Rd5 Bg7 18. b4 Rcd7
19. Dd3 Rb6
Staðan kom upp á hinu árlega of-
urskákmóti í Poikovsky í Rússlandi sem
kennt er við Anatoly Karpov, fyrrver-
andi heimsmeistara í skák. Þýski stór-
meistarinn Arkadij Naiditsch (2686)
hafði hvítt gegn ísraelskum kollega sín-
um Emil Sutovsky (2661). 20. Rxd4!
Bd7 svartur hefði tapað fljótlega eftir
20… exd4 21. e5+. 21. Rf5 Bb5 22.
Rde7+ Kf7 23. Dxd8 Hhxd8 24. Hf2
Hd1+ 25. Kh2 Bf8 26. g5 Bxe7 27. Rxe7
Kxe7 28. gxf6+ Kd6 29. f7 Rd7 30. Bf3
He1 31. Bg4 Hf8 32. Bxd7! Kxd7 33.
Bh6 Hxa1 34. Bxf8 Bc6 35. Bh6 Bxe4
36. Hg2! og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sleginn blindu.
Norður
♠ÁG874
♥83
♦--
♣ÁD10962
Vestur Austur
♠KD ♠652
♥96 ♥754
♦ÁKG43 ♦D98762
♣KG73 ♣4
Suður
♠1093
♥ÁKDG102
♦105
♣85
Suður spilar 5♥.
Lítum á enn eitt spilið frá hinum til-
þrifamikla leik Íslands og Þýskalands
á EM. Í opna salnum spilaði Jón Bald-
ursson 4♥ með ♦Á út. Jón trompaði,
tók þrisvar tromp og svínaði ♣D. Lauf-
ið fríaðist ekki, en spaðinn lá vel og Jón
gaf aðeins slag á háspaða og annan á
tígul.
Á hinu borðinu fóru Þjóðverjar
þrepinu hærra. Magnús Magnússon og
Sigurbjörn Haraldsson fórnuðu í 5♦,
en Wladow leist ekki á uppskeruhorf-
urnar þar og reyndi frekar 5♥. Útspil
Bessa var ♠K.
Samgangurinn er ekki upp á marga
fiska, en sagnhafi bjargar þó málunum
auðveldlega með því að dúkka ♠K. Þá
kemur spaðinn allur í hús og þarflaust
verður að trompa tígul. En Wladow
var sleginn blindu og drap strax á ♠Á.
Og þar með var spilið steindautt!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ekki auðvelt að neita þeg-
ar einhver vill að maður sé sammála
honum. Ert þú eigandi dauðra hluta í
kringum þig, eða eiga þeir þig?
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur einstaka einbeitingu og
þegar þú íhugar gerast ótrúlegir hlutir.
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert einstaklega kappsfullur
í dag. Kannski lítur það ekki þannig út
til að byrja með, því ekkert dramatískt
eða yfirdrifið gerist.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er ákaflega þýðingarmikið
að þú sért sveigjanlegur og bregðist
rétt við þeim nýjungum, sem þér eru
kynntar. Niðurstöðurnar eru ósnertan-
legar, eins og allar þær bestu eru.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Óvænt gjöf gleður þig innilega í
dag. Gerðu áætlun. Reyndar er allt sem
tengist prívatlífi og fjölskyldu ánægju-
legt og gefandi um þessar mundir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Varastu að misnota góðvild vinar
þíns þótt þægilegt sé að þurfa ekki að
ganga í málin sjálfur. Leggðu þig fram
og þá nærðu tilskildum árangri.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Haltu þínu striki ótrauður þótt þér
finnist erfitt að starfa undir eftirliti
annarra. Vertu óhræddur. Lykilatriði er
að greiða úr skipulaginu frá degi til
dags.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Útkoman úr því sem gerist í
dag er ekki í samræmi við það sem þú
átt von á, heldur miklu betri. Ekki leita
eftir átökum eða skapa vandræði þar
sem þau eru ekki til staðar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þið ættuð að drífa ykkur út
og hreyfa ykkur svolítið því innisetan er
óholl. Láttu hvatvísina leiða þig eins
langt og hún kemst. Heilsa og góðir vin-
ir stuðla að hamingju.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Árekstrar og valdabarátta
halda þér við efnið í dag. Gerðu ráðstaf-
anir þannig að þú uppskerir síðar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver lofar þér öllu fögru í
dag, taktu því sem sagt er með fyr-
irvara. Ekki útiloka hugmyndina heldur
veltu henni fyrir þér með opnum huga.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það getur verið kúnst að græða
sem mest á samstarfi við aðra. Settu
þér markmið og sæktu að því af dugnaði
og festu.
Stjörnuspá
5. júlí 1851
Þjóðfundurinn var settur í
Lærða skólanum í Reykjavík.
Fundurinn stóð í rúman mán-
uð og var rætt um frumvarp
dönsku stjórnarinnar um rétt-
arstöðu Íslands.
5. júlí 1930
Sólheimar í Grímsnesi, fyrsta
heimili hér á landi fyrir
þroskahefta, tók til starfa.
Sesselja H. Sigmundsdóttir,
sem varð 28 ára þennan dag,
stofnsetti heimilið ásamt þjóð-
kirkjunni og var for-
stöðumaður þess til æviloka,
1974.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Sigurður R.
Guðmundsson,
fyrrverandi
skólastjóri og
íþróttakennari,
verður átt-
ræður á morg-
un, 6. júlí. Í til-
efni dagsins
tekur hann og
eiginkona hans, Laufey Kristjáns-
dóttir, á móti ættingjum og vinum í
Húnabúð kl. 17 á afmælisdaginn.
80 ára
Þorbjörg Ingvarsdóttir og Ka-
milla Brá Brynjarsdóttir héldu tom-
bólu fyrir utan Hlíðarkaup á Sauð-
árkróki og söfnuðu 8.156 kr. sem
þær færðu Rauða krossi Íslands.
Hlutavelta
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari er 45 ára í
dag. Hann ætlar að halda upp á daginn sinn með
því að fara út á land og njóta íslenskrar náttúru.
„Ég ætla bara að hafa það gott með fjölskyldunni
minni í húsi sem mamma mín ólst upp í, vestur í
Dölum. Planið er bara að grilla og hafa það gott
með þeim,“ segir Gunnar. Gunnar stundaði söng
hjá Sigurði Dementz á Íslandi en einnig í Þýska-
landi. Hann sótti auk þess söngtíma hjá Nicolai
Gedda og var meðlimur í National Opera Studio í
London á árunum 1990-91. Aðspurður hvað hann
ætli að gera í sumar segist Gunnar ætla að reyna
að vera sem mest í fríi, njóta þess að slappa af eftir veturinn og hlaða
batteríin fyrir næsta vetur.
„Ég er nú að undirbúa það að fara til Frakklands að syngja þar um
miðjan júlí og verð þar þangað til í ágústbyrjun,“ segir Gunnar en þar
mun hann syngja í óperunni The Turn of the Screw sem er eftir Ben-
jamin Britten. „Síðan er ég með ýmislegt annað í gangi sem of
snemmt er að segja frá,“ segir hann. Gunnar hefur verið að vinna er-
lendis síðustu þrjú sumur og segir að tími sé kominn til að fá sumar til
þess að vera heima hjá sér. gunnthorunn@mbl.is
Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari 45 ára
Afmælisdagur í náttúrunni
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is