Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Syntu yfir Hvítá í ölæði
2. Dreng bjargað úr kviksyndi
3. Ungt norskt fólk nennir ekki að vinna
4. Jafntefli hjá Keflavík og FH
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Austurríski tónlistarmaðurinn Jak-
ob Kettner starfar hjá RIFF, Reykjavík
International Film Festival. Hann er
tónlistarheiminum þaulkunnugur og
hefur unnið með stórlöxum á borð við
rapparann Game. »25
Morgunblaðið/Ernir
Ungur rappari
starfar hjá RIFF
Tónleikarnir
„Iceland Inspires“
fóru fram í Hljóm-
skálagarðinum
síðastliðinn
fimmtudag. Marg-
ir lögðu leið sína í
garðinn þrátt fyrir
nokkra rigningar-
dropa, enda ekki á
hverjum degi sem heill her innlendra
og erlendra stórstjarna treður upp
undir berum himni hér á landi. »24
Gleði og rigning í
Hljómskálagarðinum
Tónlistarkonan Lovísa Elísabet, eða
Lay Low eins og hún er oft kölluð, sit-
ur ekki auðum höndum um þessar
mundir. Hún kom fram á
Regnbogahátíðinni í
Fríkirkjunni 27. júní
síðastliðinn, steig á
svið á tónleikunum
„Iceland Inspires“
á fimmtudag og
hefur nú sam-
þykkt að leika
á opnunar-
kvöldi
LungA.
Lay Low áberandi í
tónlistarlífinu
Á þriðjudag Austan og norðaustan 3-10 m/s, hvassast norðvestantil. Skýjað með köfl-
um og stöku skúrir og hiti víðast 10 til 18 stig. Hvessir um nóttina.
Á miðvikudag Norðaustan 8-15 m/s og rigning norðan- og austanlands, en skýjað með
köflum og þurrt suðvestanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast suðvestantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir,
en líkur á þokulofti við austurströndina. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast inn til landsins.
VEÐUR
Enn urðu breytingar á toppi
úrvalsdeildar karla í fótbolt-
anum í gær. Keflvíkingar
gerðu jafntefli, 1:1, við FH
og náðu þar með ekki að
halda efsta sætinu í deild-
inni. Það er í höndum Eyja-
manna sem sigruðu Stjörn-
una, 2:0, í Garðabænum í
gær, en Breiðablik gæti náð
því af ÍBV í kvöld. KR þokaði
sér upp um eitt sæti með
því að sigra Grindvíkinga,
1:0. »2, 3, 8
ÍBV hirti topp-
sætið af Keflavík
Hátt í tvö þúsund strákar voru á
fleygiferð á fótboltavöllum KA-
manna á Akureyri frá miðvikudegi til
laugardags. Þá fór fram hið árlega
N1-mót þeirra í 5. flokki drengja og
þangað mættu til leiks 168 lið frá 35
félögum. Morgunblaðið var á
staðnum og fjallar um mót-
ið í máli og mörgum mynd-
um. »7
Fjörugt fótboltamót
5. flokks á Akureyri
Frjálsíþróttakapparnir Þorsteinn
Ingvarsson úr Bárðardal og Björgvin
Víkingsson úr FH náðu um helgina
lágmörkum fyrir Evrópumeistara-
mótið sem fram fer síðar í þessum
mánuði. Þorsteinn hélt áfram að
bæta árangur sinn í langstökkinu,
hann stökk 7,79 metra í Gautaborg
og vonast til þess að slá Íslandsmetið
áður en árið er úti. »1
Þorsteinn ætlar að ná
Íslandsmeti Jóns í ár
ÍÞRÓTTIR 8 SÍÐUR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í rauninni var Geilo eini framhalds-
skólinn sem mér fannst koma til
greina að sækja um nám í. Ég er því
mjög ánægð að komast þarna inn
enda gefur það mér gott tækifæri til
þjálfunar þar sem ég hef það að
markmiði að komast í fremstu röð
skíðakvenna á alþjóðavettvangi og að
taka þátt í vetrarólympíuleikunum í
Rússlandi 2014 og vonandi fleiri. Og
fram að því eru ótalmörg stórmót,“
segir Erla Ásgeirsdóttir skíðakona.
Erla hefur undanfarin ár verið ein
sigursælasta skíðakona landsins og
náð góðum árangri, m.a. í sviggrein-
um. Hún hefur æft hér heima en
einnig í Geilo í Noregi, þeim kunna
skíðamenntaskóla sem er uppi í fjöll-
unum í 800 metra hæð, u.þ.b. miðja
vegu milli Óslóar og Bergen í Nor-
egi.
Eftir að Erla lauk grunnskólanámi
í vor afréð hún í samráði við foreldra
sína að sækja um nám í skíða-
menntaskólanum í Geilo og fékk á
dögunum jákvætt svar við umsókn-
inni. Hafa mál skipast svo að Erla fer
utan nú síðar í mánuðinum og Þóra
Úlfarsdóttir móðir hennar með henni
og ætlar að halda henni heimili og
vera til halds og trausts. Faðir Erlu
og maður Þóru, Ásgeir Magnússon,
verður hins vegar hér heima ásamt
tveimur eldri börnum.
Styðjum við dóttur okkar
„Við viljum styðja dóttur okkar og
ætlum því að halda heimili í tveimur
löndum svo henni sé mögulegt að
komast í þennan skóla. Stefnan er að
vera þarna í þrjá vetur uns stúdents-
prófi er náð,“ segir Þóra sem nú er
að undirbúa flutning þeirra mæðgna
til Noregs.
„Mér skilst að það eigi ekki að
vera neitt mál fyrir Íslendinga að fá
vinnu úti. Ég hef sjálf unnið við bók-
hald og vonast til þess að fá vinnu
þegar við erum komnar út.“
Þrjár íslenskar stúlkur sem allar
hafa getið sér gott orð við skíðaiðkun
eru um þessar mundir við nám í
Geilo: María Guðmundsdóttir, Fann-
ey Guðmundsdóttir og Katrín Vil-
helmsdóttir. Einnig æfir Íris Guð-
mundsdóttir, systir Maríu, með
skólanum en hún hefur lokið prófi
þaðan. Þá stundaði skíðakappinn frá
Ólafsfirði, Kristinn Björnsson, nám
við skólann á sínum tíma.
„Skíðasvæðið í Geilo er vel búið til
snjóframleiðslu og því byrjar skíða-
tímabilið um miðjan nóvember og
lýkur í apríl. Á sumrin og snemma
hausts er svo farið á skíði upp á jökla
eða annars staðar þar sem fannir er
að finna. Æfingarnar eru þrotlausar
og þær skapa meistarann,“ segir
Þóra.
Mamma flytur með dótturinni
Erla Ásgeirsdóttir
í norskan skíða-
menntaskóla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mæðgur Erla og Þóra, móðir hennar, undirbúa nú Noregsför þar sem þær hyggjast vera í þrjú ár á meðan dóttirin
nemur í skíðamenntaskólanum sem þykir vera í fremstu röð og ávísun á mörg tækfæri og jafnvel sæta sigra.
Sveifla Skíðadísin Erla Ásgeirsdóttir í góðri sveiflu í bröttum brekkum.