Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010
Gallabuxur
frá PAS
Dökkbláar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Str.
36-56
vera • Laugavegi 49
Sími 552 2020
Útsala
Útsala
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
Opið mánudaga – föstudaga
11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Enn meiri
verðlækkun
50% 40%
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
Fyrsta heimsókn á Sólheima í
Grímsnesi getur verið nokkur upp-
lifun. Eftir akstur í tiltölulega flötu
landslagi blasir skyndilega við heilt
samfélag ofan í gróðursælli hvilft.
Listasmiðja, gróðrarstöð og högg-
myndagarður eru meðal þess sem
fyrir augu ber á Sólheimum, sam-
félagi sem fagnar í dag 80 ára af-
mæli sínu.
„Við erum eiginlega búin að vera
að halda upp á afmælið undanfarið
ár,“ segir Guðmundur Ármann Pét-
ursson, framkvæmdastjóri Sól-
heima. „Hátíðarhöldin byrjuðu með
sýningu á leikriti Eddu Björgvins-
dóttur, Þar sem sólin á heima, og
þau náðu svo hápunkti um nýliðna
helgi. Í dag ætlum við því að taka
það rólega.“
Ríflega hundrað manns eru bú-
settir á Sólheimum allt árið um
kring, þar af 43 fatlaðir einstak-
lingar. Hópurinn sem heldur þar
heimili er þó oft mun stærri og
ekki óalgengt að þar dvelji 160-180
manns, m.a. sjálfboðaliðar og
starfsnemar erlendis frá.
Fjöldi þeirra sem þangað gera
sér ferð hefur líka farið sívaxandi á
undanförnum árum samhliða því
sem ástæðum heimsóknanna hefur
fjölgað. „Það eru alltaf fleiri og
fleiri sem eiga erindi til okkar,“
segir Guðmundur Ármann og nefn-
ir aðdráttarafl kaffihúss, dag-
vöruverslunar, listmunasölu, einu
lífrænt vottuðu skógræktarstöðv-
arinnar á Íslandi og högg-
myndagarðsins sem dæmi. Aðrir
leiti svo þangað til að kaupa lífrænt
ræktað grænmeti, sækja tónleika,
messur eða fræðsluerindi í um-
hverfissetrinu í Sesseljuhúsi. „Síðan
eru sumir bara forvitnir um þetta
skrýtna samfélag sem Sólheimar
eru.“
Heimsóknirnar verði svo gjarnan
fleiri en ein. „Það er upplifun fyrir
fólk að koma hingað því við erum
að vinna starf sem er ólíkt öðru
sem þekkist hér á landi og þess
vegna er gott að fólk komi og kynn-
ist samfélagsgerðinni og aðferða-
fræðinni sem við byggjum á,“ segir
Guðmundur og bætir við að áhersla
hafi verið lögð á að auka fjölbreytn-
ina í starfi Sólheima undanfarin ár.
Betri menn eftir meðferð
Meðal nýrra verkefna er sam-
starf við Fangelsismálastofnun, en
Sólheimar hafa lengi átt í samstarfi
við Vinnumálastofnun og líkn-
arfélagið Bergmál. Guðmundur Ár-
mann segir nýja samstarfið hafa
gengið gríðarlega vel.
„Það var vel undirbúið og í góðri
samvinnu við Fangelsis-
málastofnun. Fyrir vikið höfum við
virkilega notið þess og ég tel óhætt
að fullyrða að þeir sem farið hafa í
gegnum þá meðferð hafi orðið betri
menn. Þetta hefur ekki síður haft
góð áhrif á fjölskyldu viðkomandi
og þann mikilvæga þátt meðferð-
arinnar hefur náðst að byggja vel
upp hér,“ segir Guðmundur Ár-
mann.
Samfélag ólíkt öllum öðrum
Ekki óalgengt að 160-180 manns dvelji á Sólheimum í Grímsnesi Gestum
fer sífellt fjölgandi Samstarfið við Fangelsismálastofnun gengur vel
Gestkvæmt Margir sóttu Śólheima
heim að þessu tilefni og var Vigdís
Finnbogadóttir í þeirra hópi.
Gengið fylktu liði Mikið var um hátíðarhöld á Sólheimum nú um helgina er haldið var upp á áttatíu ára afmælið.
Sólheimar hófu starfsemi sem
barnaheimili fyrir heilbrigð börn
sem bjuggu við erfiðar heimilis-
aðstæður 1930. Strax árið eftir
kom fyrsta fatlaða barnið á Sól-
heima og þar með hófst sú
blöndun fatlaðra og ófatlaðra
sem síðan hefur verið við lýði.
Að sögn Guðmundar Ármanns
hafa þeir sem hvað lengst hafa
dvalið á Sólheimum búið þar í yf-
ir 60 ár. Margir búa þar enda ár-
um saman. „Þess vegna er
meðalaldur íbúa líka nokkuð hár
sem sýnir að hér líður fólki vel.“
Nokkuð hár
meðalaldur
ÍBÚAR SÓLHEIMA
Fimm manna rannsóknarnefnd á
vegum Elkem, hins norska móður-
félags járnblendiverksmiðju Elkem á
Íslandi, mun í dag hefja nákvæma
rannsókn á tildrögum banaslyssins
sem varð á þriðjudag. Þá brenndist
starfsmaður illa eftir að sprenging
varð í einum af þremur ofnum verk-
smiðjunnar. Hann lést í kjölfarið. Eft-
ir slysið var allri starfsemi hætt tíma-
bundið.
Að sögn Einars Þorsteinssonar,
forstjóra Elkem á Íslandi, er búið að
staðfesta að það sem fór úrskeiðis var
bundið við þennan eina ofn, og því er
starfsemi hafin á ný í öðrum hlutum
verksmiðjunnar. Hins vegar á eftir að
komast nákvæmlega að því hvernig
slysið varð og hvað orsakaði það. Slys
af nákvæmlega þessum toga er að
sögn Einars ekki þekkt af fyrri dæm-
um hjá Elkem. Ofninn þar sem
sprengingin varð verður því ekki not-
aður fyrr en orsök slyssins liggur fyr-
ir.
„Þeir hefja störf á morgun og
munu verða að alveg þangað til búið
er að komast að því hvað olli slysinu,“
segir Einar um rannsóknarnefndina.
Fjórir sérfræðinganna eru frá Nor-
egi og einn líklega frá Kanada.
Hætta ekki fyrr en orsökin liggur fyrir
Alþjóðlegir sérfræðingar rannsaka
banaslysið í járnblendiverksmiðjunni
Morgunblaðið/Þorkell
Elkem Ofninn verður ekki notaður
fyrr en orsök slysins liggur fyrir.
Hrafnreyður KÓ veiddi hrefnutarf í Faxaflóa í gær og
var það 33. hrefnan sem bátar Hrefnuveiðimanna ehf.
veiða í sumar. Veiðin hefur gengið mjög vel og bátarnir
aldrei farið fýluferð, að sögn Gunnars Bergmanns
Jónssonar framkvæmdastjóra.
Tarfurinn veiddist utan við línuna sem afmarkar
innri mörk veiðisvæðisins. Hrefnuveiðin nú er orðin
töluvert meiri en hún var á sama tíma í fyrra.
„Veiðin hefur gengið mjög vel. Við höfum ekki þurft
að fara neina fýluferð, alltaf náð í dýr,“ segir Gunnar
og kveður Faxaflóann vera krökkfullan af hrefnu.
Hrefnuveiðimenn ehf. keyptu bát til veiðanna í vor
og nefndu hann Hrafnreyði KÓ. Auk Hrafnreyðar KÓ
hafa Dröfn RE og Halldór Sigurðsson ÍS einnig veitt
hrefnur á vegum Hrefnuveiðimanna ehf. Hrafnreyður
KÓ er aflahæsti báturinn og verður aðallega notuð við
veiðarnar út sumarið.
„Það verður veitt alveg grimmt í júlí og eitthvað
fram í ágúst,“ sagði Gunnar. Aflinn fer allur á innan-
landsmarkað og hefur gengið vel að selja afurðirnar.
Gunnar segir að hrefnukjöt fáist nú í langflestum
verslunum. Einnig fjölgar stöðugt veitingastöðum og
hótelum sem bjóða upp á hrefnukjöt og eru veitinga-
staðirnir nú orðnir á annað hundrað talsins.
gudni@mbl.is
Engin fýluferð verið farin í sumar
Hrefnuveiðar í Faxaflóa
hafa gengið mjög vel
Hrefnuveiði Hrafnreyður er aflahæst báta Hrefnuveiði-
manna, sem ætla að halda veiðum áfram fram í ágúst.
Vodafone hefur stefnt Fjar-
skiptasjóði ríkisins og Símanum
vegna samnings þeirra um há-
hraðanettengingar í dreifðum
byggðum landsins. Vodafone telur
samninginn fela í sér ólögmæta
ríkisaðstoð við Símann og verulegar
ívilnanir af almannafé fyrir einn að-
ila á fjarskiptamarkaði sem raski
verulega samkeppni.
Í útboði verksins var Síminn með
lægsta tilboðið sem nam 378 millj-
ónum. Þegar samningurinn var
undirritaður var upphæðin 606 millj-
ónir. Vodafone stefndi því aðilum en
málið var nýlega þingfest fyrir dómi.
Vodafone
í málsókn