Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Aukið aðhald í opinberum rekstri evruríkj-
anna mun auka traust fjárfesta og neytenda
og stuðla að hagvexti, að sögn Jeans-Claude
Trichet, seðlabankastjóra Evrópska seðla-
bankans. Trichet ræddi við fréttamenn í
frönsku borginni Aix-en-Provence í gær.
„Traust er hagvexti nauðsynlegt, og sé engin
trú fyrir hendi á sjálfbærni fjármálastefnu
hins opinbera verður enginn hagvöxtur.“
Trichet ítrekaði þá skoðun sína að óviturlegt
væri fyrir ríki Evrópu að auka útgjöld til að
styðja við hagvöxt. Ekki væri svigrúm til frek-
ari skuldasöfnunar.
Seðlabankastjórinn er ekki þeirrar skoð-
hagkerfið væri komið í skjól frá annarri dýfu,
en næstu vikur og mánuðir gætu reynst efna-
hagslega erfiðir.
Gertrude Tumpel-Gugerell, sem á sæti í
bankastjórn Evrópska seðlabankans, sagði í
ræðu sem hún hélt í Kína um liðna helgi, að
niðurskurður í opinberum útgjöldum kynni að
hafa neikvæð áhrif á hagvöxt til skamms tíma,
þó svo að það væri alls ekki öruggt. Í ræðu
Tumpell-Gugerell kom fram að hagfræðingar
Evrópska seðlabankans hefðu komist að
þeirri niðurstöðu að varanleg lækkun opin-
berra skulda niður í 60-90% sem hlutfalls af
landsframleiðslu myndi hafa jákvæð áhrif á
hagvöxt sem næmi á bilinu 0,4 til 2,2%. „Öll
ríki þurfa að sýna ábyrgð, og evrópskar ríkis-
stjórnir þurfa að vinna saman,“ sagði hún.
ársins í Bandaríkjunum gæti dottið niður í
1,5%, en á fyrri hluta ársins er talið að banda-
ríska hagkerfið hafi vaxið um 3%. „Fyrir al-
þjóðahagkerfið er myndin heldur dökk í lok
árs,“ sagði hann. Roubini sagði að alþjóða-
unar að Evrópa horfist nú í augu við nýtt sam-
dráttarskeið. Evrópski seðlabankinn spáir því
að hagvöxtur verði á evrusvæðinu í ár, í kring-
um eitt prósent.
Reiknar með engum vexti á evrusvæði
Hagfræðingurinn Nouriel Roubini, sem
reyndist meðal sannspáustu manna í aðdrag-
anda fjármálakreppunnar sem hófst á haust-
dögum 2007, sagði í gær að hann teldi að hag-
vöxtur á evrusvæðinu yrði enginn á þessu ári.
Roubini sagði að ýmis teikn væru á lofti um
þverrandi væntingar um efnahagsbata á
heimsvísu. Að undanförnu hefðu skuldatrygg-
ingar hækkað í verði, auk þess sem viðskipti á
millibankamarkaði væru höktandi. Jafnframt
benti Roubini á að hagvöxtur á síðari hluta
Niðurskurður er nauðsynlegur
Seðlabankastjóri Evrópska seðlabankans leggur hart að stjórnvöldum evruríkja að minnka útgjöld
Jean-Claude Trichet
seðlabankastjóri.
Nouriel Roubini
hagfræðingur.
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna var haldinn
hátíðlegur í gær, en 234 ár eru liðin síðan landið
lýsti yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Hafnaboltalið-
in Boston Red Sox og Baltimore Orioles mættust
í gær á heimavelli fyrrnefnda liðsins, Fenway
Park. Í tilefni dagsins var þessum stóra fána
komið fyrir á „Græna skrímslinu“, en undir því
nafni gengur þessi sögufræga stúka. Fyrir neð-
an standa bandarískir hermenn. thg@mbl.is
Reuters
234 ár frá sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
David Petraeus tók í gær formlega
við sem nýr yfirhershöfðingi herliðs
NATO í Afganistan. Skipan Petra-
eus kemur í kjölfar brottvikningar
Stanleys McChrystal, sem var leyst-
ur frá störfum fyrir ógætileg um-
mæli í garð æðsta yfirmanns hersins,
Bandaríkjaforseta, í viðtali við tíma-
ritið Rolling Stone. McChrystal
sagði meðal annars að fyrsti fundur
sinn með Barack Obama eftir for-
setakosningarnar 2008 hefði valdið
sér vonbrigðum. Petraeus jós engu
að síður lofi á forvera sinn: „Þann ár-
angur sem náðst hefur á síðustu
mánuðum, andspænis staðföstum
óvini, er að mörgu leyti ekki síst að
þakka hugsjón, krafti og forystu sem
hann [innsk.: McChrystal] veitti,“
sagði Petraeus við athöfn í banda-
ríska sendiráðinu í Kabúl í gær. Öld-
ungadeild bandaríska þingsins kaus
Petraeus samhljóða til að veita her-
afla NATO forystu.
Mannfall í röðum herliðs NATO
hefur aldrei verið meira en þessa
dagana og eykst frá degi til dags.
Júní síðastliðinn var þannig sá blóð-
ugasti fyrir herlið NATO frá upp-
hafi. Talið er að talíbanar hafi ekki
haft sterkari stöðu frá árinu 2001,
þegar stjórn þeirra var hrundið af
herliði Bandaríkjamanna. Í síðasta
mánuði létust 102 úr herliði Banda-
ríkjanna og NATO.
Aukinn þungi í hernaði
Petraeus sagði að nú væri mikil-
vægur tímapunktur í stríðinu í Afg-
anistan. „Við verðum að sanna það
fyrir Afgönum og heiminum öllum,
að al-Qaida og öðrum öfgahópum
þeim tengdum mun ekki takast aftur
að koma sér upp athvörfum í Afgan-
istan, hvaðan þeir geta gert árásir á
Afgana og aðrar frelsiselskandi
þjóðir,“ sagði yfirhershöfðinginn í
gær. Hann ýjaði að því að regluverk-
ið sem hermenn NATO miða sínar
aðgerðir við yrði endurskoðað eða
endurbætt. Eru þar sérstaklega til
skoðunar hömlur á notkun stór-
tækra vopna, af landi eða úr lofti,
þegar líf óbreyttra borgara er talið
vera í hættu. „Til að geta verndað þá,
sem við erum hingað komin til þess
að hjálpa, verður ekki umflúið að
fella, taka til fanga eða snúa upp-
reisnarmönnum á sveif með okkur.
Við munum ekki gefa eftir í þeim
málum,“ sagði Petraeus í minnis-
blaði til allra hermanna sem lúta
hans stjórn nú.
McChrystal setti í sinni tíð strang-
ar reglur um að vernda líf óbreyttra
borgara í öllum hernaðaraðgerðum.
Fram kemur hjá AP-fréttastofunni
að meðal hermanna hafi heyrst
kvartanir vegna þessara reglna. Þeir
eru sagðir telja að þær knýi þá til að
setja líf sitt í óþarfa hættu og veita
þar með talíbönum og bandamönn-
um þeirra forskot.
Petraeus sestur í brúna
David Petraeus er nýr yfirhershöfðingi NATO í Afganistan Mannfall hefur
aldrei verið meira í herliði NATO Ýjar að auknum þunga í hernaði NATO
Reuters
Ávarp Petraeus kynnir sig til leiks.
Konu á sjötugs-
aldri tókst að
komast framhjá
öryggisvörðum
sem gættu
Elísabetar II.
Bretlandsdrottn-
ingar. Drottn-
ingin og eig-
inmaður hennar,
Filippus prins,
höfðu sótt guðs-
þjónustu í kirkju í Toronto í Kan-
ada. Í þann mund sem hin tignu
hjón hugðust taka við blómvöndum
úr höndum ungra stúlkna, sást
rauðklædd kona ganga í átt að
drottningunni. Konan sagði nokkur
orð við drottninguna, áður en hún
rétti henni svartan plastpoka. Að
sögn lögreglunnar innihélt plast-
pokinn diskaþurrku sem skartaði
mynd af kirkjunni, sem drottningin
hafði rétt stigið út úr. Lögreglu-
yfirvöld telja atvikið hafa sýnt fram
á bresti í öryggisgæslu, þó ekki hafi
sérstök hætta þótt hafa stafað af
konunni. thg@mbl.is
Eldri kona sneri á ör-
yggisgæslu hennar
hátignar í Toronto
Drottningin var
keik í Kanada í gær.
Bandaríkjamað-
urinn Joey
Chestnut vann
árlegu pylsuáts-
keppnina Nath-
an’s Hot Dog
Eating Com-
petition sem iðu-
lega er haldinn 4.
júlí. Chestnut
hámaði í sig 54
pylsur á 10 mín-
útum, sem var níu stykkjum meira
en næsti maður kom ofan í sinn
maga. Chestnut, sem er 26 ára
gamall, sigraði í átkeppninni nú
fjórða árið í röð. Sínum besta ár-
angri náði hann þó í fyrra, þegar
hann sló heimsmetið með því að
innbyrða 68 pylsur. Inntur eftir
skýringum á lakari árangri nú,
sagði Chestnut 35° hitann hafa gert
sér erfitt um vik. thg@mbl.is
Chestnut varði
pylsuátstitilinn
Chestnut treður í
sig pylsu númer 30.
Nígerískir sjó-
ræningjar hafa
leyst úr haldi tólf
sjómenn sem þeir
höfðu haldið í
gíslingu í tvo
daga. Sjómenn-
irnir störfuðu á
fraktskipi sem
var skráð í
Þýskalandi, en
ekki er vitað
hvort greitt hafi verið lausnargjald
til sjóræningjanna fyrir gíslana.
Gíslatökur sjóræningja undan
ströndum Nígeríu hafa aukist mik-
ið á síðustu mánuðum. thg@mbl.is
Nígerískir sjóræn-
ingjar sleppa gíslum
Svipast um eftir
sjóræningjum.
Petraeus hefur sagst styðja
áætlun Baracks Obama um að
hefja heimkvaðningu hermanna
í júlí árið 2011. Hann setur þó
fyrirvara um að slíkar ákvarð-
anir verði alltaf að miðast við
ástandið í Afganistan hverju
sinni. Obama hefur sætt gagn-
rýni fyrir að hafa tilkynnt dag-
inn, sem hafið verður að kveðja
hermenn heim, svo snemma.
Öldungadeildarþingmaðurinn
John McCain sagði að skyn-
samlegra væri að tilkynna um
heimkvaðningar eftir að mark-
mið hernaðaráætlana hefði
náðst, en ekki fyrr. McCain
sagði hermenn í Afganistan alls
ekki klára á því hvenær þeir
væru á leiðinni heim, svo mikil
væri óvissan ennþá.
Snemmbúin
yfirlýsing
HEIMKVAÐNINGIN