Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010 www.noatun.is Grillveislur www.noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun Pantaðu veisluna þína á 999VERÐ FRÁ MEÐ MEÐL ÆTIÁ MANN Grillveislur Nóatúns: Grísahnakkasneiðar Lambalærissneiðar Kjúklingabringur Lambafile Ein með öllu Þín samsetning Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Aukinn raforkukostnaður hefur mik- il áhrif á raforkureikning heimila sem hita hús sín með raforku. Raf- orka til slíkra heimila er niðurgreidd en fjárhæð niðurgreiðslunnar hefur hvorki fylgt vísitöluhækkun né auknum raforkukostnaði. Niður- greiðslan vegur þannig ekki lengur upp á móti þeim aukna kostnaði sem felst í að hita hús sitt með rafmagni í stað jarðvarma. Kristinn Jónasson, formaður Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, segir fjörutíu þúsund kíló- vattstundir vera meðalnotkun heim- ilis á ársgrundvelli. „Þetta eru gríð- arlegar hækkanir, sérstaklega í dreifbýli en þar er raforkan einmitt dýrust. Niðurgreiðslan nemur samt um 40-50%, en hún dugir ekki til. Bara í fyrra, árið 2009, hækkaði raf- orkuverðið til þessara aðila um 25%. Þetta er langt umfram allt eðlilegt verðlag,“ segir Kristinn sem kveður mikilvægt að hið opinbera setji fjár- magn í jarðvarmaleit á þessum svæðum. „Þau fyrirtæki sem eru með bora eru nánast verkefnalaus og eru að fara á hausinn, þar er hægt að fá mjög hagstætt verð. Í hvert sinn sem við finnum heitt vatn er það nánast jafn verðmætt fyrir okkur og að finna olíu,“ segir Kristinn. Aukinn raforku- kostnaður hefur mik- il áhrif á „köld svæði“  9% heimila hita hús sín með raforku Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dýrt Ríkið niðurgreiðir raforku til heimila sem hita með raforku. Meðalraforkureikningur » 33% raforkuvinnsla, 17% flutningskostnaður, 28% dreif- ingarkostnaður, 4% smá- sölukostnaður og 18% virðis- aukaskattur. » Niðurgreiðsla ríkissjóðs til notenda RARIK í þéttbýli er 2,84kr./kWst. Hefði nið- urgreiðslan fylgt vísitölu neysluverðs væri hún 3,74kr./ kWst. Ragna Árnadótt- ir, dómsmála- og mannréttinda- ráðherra, heim- sótti í gær Ausch- witz útrýmingar- búðirnar í Oswiecim í Pól- landi. Nasistar reistu þar stærstu fangabúðir sínar í síðari heimsstyrj- öldinni. Ragna sótti fund utanríkis- ráðherra lýðræðisríkja sem haldinn var í Kraká í Póllandi í tilefni af tíu ára afmælisfundi samtaka lýðræðis- ríkja. Ragna var þar fulltrúi ríkis- stjórnar Íslands í forföllum Össurar Skarphéðinssonar utanríkis- ráðherra. Ragna heimsótti Auschwitz Ragna Árnadóttir Í heilbrigðisráðuneytinu stendur nú yfir skoðun á framtíð heimaþjónustu ljósmæðra. Samningur milli Sjúkra- trygginga Íslands og ljósmæðra rann út um mánaðamótin febrúar-mars sl. og hefur verið framlengdur til bráða- birgða síðan þá. Samningurinn er næst laus frá lokum ágúst og sam- kvæmt heimildum stendur til að klára nýjan samning fyrir þann tíma. Að sögn Berglindar Hálfdánsdótt- ur ljósmóður sem situr í fagdeild ljós- mæðrafélagsins um heimaþjónustu eru um hundrað sjálfstætt starfandi ljósmæður sem sinna heimaþjónustu. Hún segist hafa skilning á því að skoða þurfi þennan þátt barneigna- ferlisins innan heilbrigðiskerfisins eins og aðra. „En það er hægt að spara á uppbyggilegan hátt og líka á skaðlegan hátt. Við áttum góða fundi við Sjúkratryggingar í vor og sú vinna var í raun í ágætis farvegi. Nú er ver- ið að skoða þessi mál í ráðuneytinu og við höfum hitt fulltrúa á þeirra veg- um. Mestu máli skiptir að ákvarðanir um framtíð heimaþjónustunnar verði teknar af þeim sem þekkja þjón- ustuna og skilja mikilvægi hennar,“ segir Berglind. Bráðnauðsynleg þjónusta Að sögn Guðlaugar Einarsdóttur formanns Félags ljósmæðra er vart hægt að hugsa sér ódýrara úrræði fyrir sængurkonur en heimaþjón- ustuna. „Vikuþjónusta kostar það sama og sólarhringsþjónusta á stofn- un. Ég hef ekki trú á öðru en að samn- ingurinn verði framlengdur. Þetta er bráðnauðsynleg þjónusta og sú ódýr- asta sem völ er á. eyrun@mbl.is Heimaþjónustan til skoðunar  Vart hægt að hugsa sér ódýrara úrræði, segir formaður Ljósmæðrafélagsins  Bráðabirgðasamningar síðan í mars Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Rauðhóll er eini leikskóli Norðlinga- hverfisins í Reykjavík en þar er pláss fyrir 106 börn. Guðrún Sól- veig, leikskólastjóri á Rauðhól segir mikið af stórum fjölskyldum í hverf- inu. „Rauðhóll var opnaður 1.mars 2007. Í maí sama ár var leikskólinn í raunsprunginn. Síðan þá hafa innrit- unarmál verið vandamál hjá okkur.“ Samkvæmt þriggja ára fjárhags- áætlun leikskólasviðs er nýr leik- skóli í hverfinu, sem á að vera stærri en sá sem fyrir er og byggður á lóð Norðlingaskóla, á áætlun 2012. Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir segir foreldra þreytta á biðinni eftir fleiri leikskólaplássum. Elsta dóttir henn- ar er í Norðlingaskóla, miðdóttirin á Rauðhóli en sú yngsta byrjar í leik- skóla í Seláshverfi í haust. „Við for- eldrarnir í hverfinu erum mjög ósátt við að þurfa að vera með börnin á leik- skóla í öðru hverfi. Það fylgja því mikil óþægindi að keyra á milli staða,“ segir Dagmar og bendir einnig á það óhag- ræði sem skapast sökum þess að leik- skólarnir eru ekki endilega með vetrarfrí og starfs- daga á sama tíma. Fimm starfs- dagar eru á hverjum vetri í leik- skólum borgarinnar, en þeir geta þá orðið tíu hjá foreldrum eins og Dag- mar sem er með börn í tveimur leik- skólum. Sú hugmynd hefur komið upp að nýta lausar skólastofur á lóð Norð- lingaskóla fyrir elsta árgang leik- skólans þegar grunnskólinn flyst í austurálmu nýbyggingar skólans, sem skv. áætlun á að vera í ágúst og september á þessu ári. Þannig gæti leikskólinn bætt við sig um 30 yngri börnum en þau elstu færðust þá í sérstaka deild sem stýrt yrði frá leikskólanum í náinni samvinnu við grunnskólann. Bæði Guðrún Sólveig og Sif Víg- þórsdóttir skólastjóri Norðlinga- skóla hafa tekið vel í þá hugmynd. Samstarf milli leikskólans og skól- ans í hverfinu sé nú þegar mikið og gott og ekkert sé því til fyrirstöðu að útfæra það frekar. Morgunblaðið/Jakob Fannar Aðskildar Dagmar Ýr með dætur sínar Rakel Ýr og Andreu Ýr, en sú yngri kemst ekki að á Rauðhóli. Systurnar fá ekki að vera í sama leikskóla  Eini leikskóli Norðlingaholts verið sprunginn frá 2007 Á fundi leikskólaráðs 26. febrúar 2009 lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram fyrirspurn um samstarf leikskóla og grunnskóla í Norðlingaholti, en þá hafði komið fram hugmynd leikskólasviðs um að elstu börn af Rauð- hóli flyttust yfir í lausa kennslustofu við Norðlingaskóla og þannig væri hægt að búa til 30 leikskólapláss til viðbótar í hverfinu. Svar leikskólasviðs kom á fundi leikskólaráðs 9. mars þar sem m.a. sagði að „ekki [væri] brýn þörf fyrir ný leikskólapláss í Norðlingaholti“. Í svarinu kemur ennfremur fram að rekstrarkostnaður við 30 ný leikskólapláss sé 20 milljónir króna miðað við sex mánuði og að eina lausa kennslustofu þurfi til. Hún sé þó ekki til staðar á þessum tíma og ný stofa kosti 25-28 millj- ónir. „Ekki brýn þörf“ fyrir ný pláss SVAR LEIKSKÓLASVIÐS VIÐ FYRIRSPURN Í MARS 2009 Nú þegar hefur þjónusta við sængurkonur verið skorin niður á spítölum. Á Landspítalanum er unnið samkvæmt því markmiði að frískar konur sem eru ekki að eiga fyrsta barn séu farnar heim 4-24 tímum eftir fæðingu. Al- mennt er miðað við að konur sem eru farnar heim 36 stundum eða minna eftir fæðingu eigi rétt á heimaþjónustu. Heim strax NIÐURSKURÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.