Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 2
21. október 2011 FÖSTUDAGUR2 ÍS LE N SK A S IA .I S S FG 4 20 40 0 4. 20 08 SPURNING DAGSINS Gunnar, er víða pottur brotinn í skólamötuneytunum? „Já, það er laukrétt.“ Gunnar Bollason, matráður í Rima- skóla, segir mötuneyti grunnskólanna í Reykjavík líkjast þrælabúðum. DÝRAHALD Enn ein hryssan varð fyrir barðinu á níðingi eða níðing- um fyrr í vikunni er hún reyndist vera með djúpan skurð í leggöng- um og annan minni á ytri kyn- færum, þegar ódæðið komst upp. Málið var kært til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Er þetta fjórða níðingsmálið sem kært er til lögreglu á undan- förnum mánuðum. Hryssan er ásamt fleiri hrossum í hesthúsi í nýja hesthúsahverfinu á Kjóavöllum í Kópavogi. Eigendur hesthússins sjá sjálfir um hirðingu hrossanna á kvöldin en fá annan aðila til að sjá um morgungjafir eins og tíðkast. Þegar hryssan var sett út á þriðjudagskvöld og hún fór að hreyfa sig reyndist blóð leka aftur úr henni. Katrín Harðardótt- ir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðidal, var þegar kölluð til og hefur hún annast hryssuna síðan. „Hún var mjög aum og fann auðsjáanlega mikið til,“ segir Katrín um aðkomuna og lýsir áverkunum með ofangreindum hætti. Hún segir allt benda til þess að áverkarnir hafi verið af manna- völdum. Annar dýralæknir hefur einnig staðfest það eftir að hafa skoðað hryssuna. Eigendur hesthússins segja að þeir hafi falið varalykil að hesthús- inu, sem er nýtt og á að vera óað- gengilegt ókunnugum, utandyra. Telja megi fullvíst að sá eða þeir sem stóðu að misþyrmingunum á hryssunni hafi vaktað manna- ferðir í húsið og látið til skarar skríða aðfaranótt þriðjudagsins. Fleiri hross hafi verið í húsinu, þar á meðal einar sjö hryssur en þær séu allar frekar lítið tamdar eða styggar og varist að maðurinn Enn ein hryssan fyrir barðinu á dýraníðingi Skurðir fundust á kynfærum hryssu í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum á þriðju- dag. Allt bendir til að þeir séu af mannavöldum. Málið er hið fjórða af þessu tagi sem kært hefur verið til lögreglu. Talið að níðingurinn hafi vaktað húsið. HROSS INNAN DYRA OG UTAN Eigendur hesthússins sem hryssunni var misþyrmt í vilja brýna fyrir hesteigendum að gæta að hrossum sínum í haga og hesthúsum meðan sá eða þeir sem stunda það að níðast á hrossum eru ófundnir. Hrossin á myndinni tengjast ekki fréttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Tilvikið í hesthúsi á Kjóavöllum sem Fréttablaðið greinir frá í dag er fjórða málið þessa eðlis sem kært er til lögreglu á árinu. Í síðasta mánuði reyndust þrjár hryssur í girðingu í Kjós illa útleiknar eftir að eggvopni hafði verið beitt á kynfæri þeirra. Ein þeirra, gæft barnahross, hafði þó orðið sýnu verst úti. Hún var sárkvalin og blæðandi, þegar að henni var komið. Í byrjun marsmánaðar reyndust hryssur á hrossabúi í Skagafirði vera með áverka á kynfærum sem taldir voru tilkomnir af mannavöldum. Um það bil mánuði áður hafði hestamaður á Austurlandi komið auga á áverka á hryssu sinni. Héraðsdýralæknir Austurlandsumdæmis nyrðra var kallaður til, auk þess sem lögreglu var tilkynnt um málið. Fjórða málið sem fer til lögreglu komist nærri þeim. Sú sem fyrir misþyrmingunum varð er hins vegar spök og þæg í umgengni. Eigendurnir vilja brýna fyrir hesteigendum að læsa vel hest- húsum sínum, skipta um skrá ef lyklar hafa farið á flæking, geyma ekki varalykla utandyra og vera vel á verði verði sjái þeir til grun- samlegra mannaferða í hesthúsa- hverfunum. Þá sýni reynslan að full þörf sé á því fyrir hestamenn að huga að hrossum sínum í haga. jss@frettabladid.is DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm yfir lögreglu- varðstjóra sem ákærður var fyrir að hafa leitað á fimmtán ára stúlku í þvottahúsi á heimili sínu. Fimm dómarar Hæstaréttar telja líkur á að niðurstaða Hér- aðsdóms Norðurlands vestra um sönnunar gildi framburðar sé svo röng að það skipti sköpum um úrslit málsins. Stúlkan kom á heimili lögreglu- mannsins árla morguns til að fá far á hlaupaæfingu sem hinn ákærði stýrði. Þar segir hún að hann hafi strokið fingrum sínum um klof hennar innanklæða, í kjöl- farið stungið þeim upp í sig og sagt henni að hún væri flott. Sýkna fjölskipaðs héraðsdóms var einkum byggð á eindregnum og samhljóða framburði manns- ins og sonar hans, sem er jafnaldri stúlkunnar, þrátt fyrir að héraðs- dómur hafi talið „töluverðar líkur“ á sekt. Héraðsdómur sagði einnig að framburður vitna sem hittu stúlk- una skömmu eftir heimsóknina segði ekkert um hið ætlaða atvik, enda hefði ekkert þeirra séð það eiga sér stað. Hæstiréttur segir þessa ályktun héraðsdóms ekki standast, enda séu frásagnir af andlegu ástandi stúlkunnar óbein sönnunargögn sem styðji frásögn stúlkunnar og til þeirra beri að líta. - sh Hæstiréttur telur héraðsdóm hafa gert mistök í dómi yfir manni sem var sakaður um að leita á 15 ára stúlku: Rétta skal aftur yfir grunuðum lögregluvarðstjóra Samhljóða framburður lögreglumannsins og sonar hans hafði mikið að segja um niðurstöðu héraðsdóms. Maðurinn kvaðst hafa kallað á son sinn og vakið hann um leið og hann hefði séð stúlkuna ganga upp að húsinu. Feðgarnir voru sammála um að tíu sekúndum síðar hefði sonurinn verið kominn í dyragættina að þvottahúsinu og ekkert óeðlilegt séð, enda hefði stúlkan verið rétt nýkomin. Hæstiréttur fellst ekki á það með héraðsdómara að þessi snögga atburða- rás sé trúverðug. „Til þess er einnig að líta að drengurinn var þá á unglings- aldri og klukkan ekki orðin sex að morgni,“ segir í niðurstöðu Hæstaréttar. Hæpið að unglingur hafi rifið sig á fætur SPÁNN, AP ETA, aðskilnaðar- hreyfing Baska, batt í gær enda á vopnaða sjálfstæðisbaráttu sem staðið hefur í 43 ár og kostað 829 mannslíf. ETA lýsti því yfir að samtökin legðu nú endanlega niður vopn, en vopnahlé hefur verið í gildi um nokkra hríð. Þau hafa þó ekki látið af sjálfstæðiskröfum sínum og hafa kallað eftir viðræðum við stjórnvöld í Frakklandi og á Spáni. José Zapatero, forsætisráðherra Spánar, fagnaði yfirlýsingunni og sagði fréttirnar marka sigur fyrir lýðræðið. Hann lét þó ekkert uppi um hvort til stæði að hefja viðræð- ur við ETA. - þj Aðskilnaðarhreyfing Baska: ETA segjast hætt öllu vopnaskaki LEGGJA NIÐUR VOPN Aðskilnaðarhreyf- ing Baska, ETA, hefur látið af vopnaðri baráttu, sem hefur kostað 829 mannslíf á síðustu 43 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í Hæstarétti í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu. Þá var hann dæmdur til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Með þessu staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjaness. Maðurinn og konan höfðu átt í sambandi en því lauk áður en hann framdi kynferðisbrot gegn henni. Maðurinn neitaði sök. Ósam- ræmis gætti í framburði hans annars vegar hjá lögreglu og hins vegar fyrir dómi. Þá þóttu áverk- ar sem fundust á konunni daginn eftir samrýmast framburði henn- ar um að maðurinn hefði beitt ofbeldi til þess að fá vilja sínum framgengt. - jss Greiði þolanda milljón: Þrjú og hálft ár fyrir nauðgun SLYS Tvær íslenskar konur á níræðisaldri létust í umferðar- slysi í nágrenni flugvallarins á Alicante á Spáni í gærdag. Þær voru í litlum sendiferðabíl sem lenti í árekstri við rútu með hóp háskólanema innanborðs. Rútan valt á hliðina og slösuðust 19 sem voru þar um borð, en enginn lífs- hættulega, að því er fram kemur á fréttavefnum informacion.es. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu í gærkvöldi var verið að aðstoða ættingja kvennanna vegna málsins. Nöfn hinna látnu hafa ekki verið gefin upp. - þj Umferðarslys á Spáni: Tvær íslenskar konur létu lífið Úthlutun nýrra lóða í Flatey Skipulagsnefnd Reykhólahrepps hefur lagt til við sveitarstjórnina að undir- búningur verði hafinn að úthlutun nýrra lóða samkvæmt deiliskipulag- stillögu við Tröllenda á vestari hluta Flateyjar. SKIPULAGSMÁL KJARAMÁL Flugfreyjur sömdu við Icelandair í gærkvöldi og hefur fyrirhuguðu verkfalli þeirra því verið aflýst. Samkomulag náðist í kjara- deilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair í gærkvöldi eftir að fundað hafði verið frá því um morguninn. Þetta er þriðji samn- ingurinn sem flugfreyjur skrifa undir en hinir tveir hafa báðir verið felldir í atkvæðagreiðslu. - þeb Yfirvofandi verkfalli aflýst: Flugfreyjur búnar að semja VIÐSKIPTI Fjármálastofnanir gætu þurft að endurútreikna þúsund- ir fjármögnunarsamninga vegna dóms Hæstaréttar í gær. Þar var fjármögnunarleigu- samningur sem Kraftvélaleigan gerði við Glitni árið 2007 úrskurð- aður lánssamningur og því var gengistryggingarákvæði hans ólöglegt með vísun í hæstaréttar- dóminn frá 16. júní í fyrra. Vegna dómsins mun Íslandsbanki nú þurfa að endurreikna um 5.000 samninga sem voru gerðir við 1.100 lögaðila. Ekki er ljóst hver heildar- upphæð samninganna er. Í yfirlýsingu frá Íslandsbanka í gær sagði að varúðarreikning- ur bankans stæði undir nauðsyn- legum aðgerðum vegna dómsins. Hjá Landsbanka Íslands þarf að endurreikna um 2.500 samninga sem gerðir voru við SP fjármögn- un á sínum tíma, að sögn Kristjáns Kristjánssonar, upplýsingafull- trúa bankans. „En þetta mun hafa óveruleg fjárhagsleg áhrif,“ bætir hann við. Þegar blaðið fór í prentun var ekki ljóst hversu margir samningar af þessu tagi höfðu verið gerðir hjá Kaupþingi á sínum tíma, og heyra því undir Arion banka. Þá eru áhrif dómsins á fjár- mögnunarfyrirtækið Lýsingu held- ur ekki kunn. - þj, jhh Hæstaréttardómur um fjármögnunarleigusamninga gæti reynst afdrifaríkur: Kallar á endurreikning þúsunda lána ENDURREIKNA FLEIRI SAMNINGA Dómur Hæstaréttar í gær kallar á endurreikninga á þúsundum lána hjá bönkum og fjármögnunarfélögum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.