Fréttablaðið - 21.10.2011, Side 10
21. október 2011 FÖSTUDAGUR10
ÍSLAND–ÚKRAÍNA
Undankeppni EM 2012
Íslenska kvennalandsliðið
í handknattleik leikur
gríðarlega mikilvægan leik
við Úkraínu í undankeppni EM
2012 í Laugardalshöllinni á
sunnudag. Sigur er íslenska
liðinu mikilvægur í erfiðum
riðli og stelpurnar þurfa á
stuðningi að halda. Fyllum
Höllina, sköpum hina einu
sönnu handboltastemmningu
og tryggjum tvö dýrmæt stig
í baráttunni um farseðilinn til
Hollands á næsta ári.
STELPURNAR OKKAR!
M
ed
ia
G
ro
u
p
eh
f
|
A
u
g
lý
si
n
g
ar
|
H
S
Í
2
0
1
1
Laugardalshöll
Sunnudaginn 23. okt. | Kl. 16.00
Aðgangseyrir 1000 krónur
Miðasala á
STJÓRNSÝSLA Þriggja manna rann-
sóknarnefnd hefur komist að
því að verulegir annmarkar hafi
verið á starfi siðanefndar Háskóla
Íslands þegar hún hafði til með-
ferðar kæru Vantrúar á hendur
guðfræðikennara við skólann.
Rannsóknarnefndin var skip-
uð í vor eftir að málið hafði
velkst í stjórnsýslu háskólans í
rúmt ár og valdið miklum titr-
ingi. Í hana völdust Elín Díanna
Gunnars dóttir, sálfræðidósent
við Háskólann á Akureyri, Sig-
urður Þórðarson, fyrrverandi
ríkisendurskoðandi, og Þórhallur
Vilhjálmsson, aðallögfræðingur
Alþingis.
Forsaga málsins er sú að að Van-
trú kvartaði til siðanefndar yfir
námsefni guðfræðingsins Bjarna
Randvers Sigurvins sonar. Sam-
tökin töldu að í námsefninu væri
ómaklega vegið að þeim.
Bjarni Randver var hins vegar
afskaplega ósáttur við vinnubrögð
nefndarinnar og sakaði formann
hennar um að eiga í nánum sam-
skiptum við fulltrúa Vantrúar um
gang mála á meðan Bjarna hefði
ekki verið haldið upplýstum um
neitt.
Málið vatt í kjölfarið upp á
sig, skipt var um formann í siða-
nefndinni, Bjarni Randver fékk
lögfræðinginn Ragnar Aðalsteins-
son til að annast málið fyrir sig
og að lokum féll Vantrú frá kær-
unni vegna þess að ófriðurinn hefði
hvort eð er eyðilagt málið.
Rannsóknarnefndin gerir í
skýrslu sinni margháttaðar athuga-
semdir við störf siðanefndarinnar
á meðan á öllu þessu stóð.
Í fyrsta lagi sé ekki að sjá að
siðnefndin hafi í upphafi lagt
mat á hvort málatilbúnaður Van-
trúar snerti yfir höfuð siðareglur
Háskóla Íslands.
Í öðru lagi eru gerðar alvarlegar
athugasemdir við það verklag siða-
nefndarinnar að eiga í samskiptum
við málsaðila utan formlegra funda
nefndarinnar. Slíkt formleysi dragi
úr gagnsæi og sé til þess fallið að
veikja traust til nefndarinnar.
Þá sé sú ákvörðun siðanefndar-
innar að ljúka málinu gegn Bjarna
Randver með sátt við guðfræði-
deild án aðkomu Bjarna megin-
orsök þess að málið hafi þróast
með hinum óheppilega hætti.
Nefndin telur óviðunandi fyrir
Háskóla Íslands og málsaðila að
ekki hafi tekist að ljúka því efnis-
lega.
Þá segir enn fremur í niður-
stöðu nefndarinnar að það geti
ekki talist heppileg ráðstöfun að
lög fræðingur háskólans sé látinn
starfa fyrir siðanefndina samhliða
öðrum störfum sínum fyrir skól-
ann. „Með því er hætta á að sjálf-
stæði hinnar miðstýrðu stjórnsýslu
Háskólans í ásýnd og í reynd sé
ekki tryggð í málum sem þessum.“
stigur@frettabladid.is
Rannsóknarnefnd
átelur siðanefnd HÍ
Sérstök rannsóknarnefnd hefur komist að því að siðanefnd Háskóla Íslands
hafi haft í frammi óeðlileg vinnubrögð í máli Vantrúar gegn guðfræðikennara.
Alvarlegar athugasemdir gerðar við samskipti við málsaðila utan formlegra funda.
HÁSKÓLI ÍSLANDS Málið olli miklum titringi innan skólans, sérstaklega á seinni
stigum þess. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti
íslenskra fiskiskipa fyrstu sjö
mánuði ársins nam 83,6 milljörð-
um króna. Á sama tíma í fyrra
nam það 79,8 milljörðum og
hefur aflaverðmætið því aukist
um 3,8 milljarða á milli ára, sem
jafngildir 4,8 prósentum. Þetta
kemur fram í tölum frá Hagstofu
Íslands.
Langmest verðmæti er í botn-
fiskafla, eða 54,7 milljarðar
króna fyrstu sjö mánuði ársins.
Það er þó 3,4 prósentum minna
verðmæti en á sama tíma í fyrra.
Verðmæti þorsks dróst saman um
2 prósent, en ýsu um 29 prósent.
Verðmæti flatfiskafla jókst um
0,8 prósent á tímabilinu, nam 6,4
milljörðum króna. - kóp
Aflaverðmæti meira í ár:
Verðmæti afla
83,6 milljarðar
ÝSAN ÍSUÐ Aflaverðmæti ýsu fyrstu sjö
mánuði ársins er 29 prósentum minna
en á sama tíma í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar í
Kópavogi vilja að alþingismenn
komi þangað til viðræðna fremur
en að bæjarfulltrúarnir séu kall-
aðir niður á Alþingi.
Meirihluti bæjarráðsins
felldi þó tillögu fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks um að mæta ekki
á Alþingi. Meirihlutinn kvaðst
engu að síður telja eðlilegt að
þingmenn kjördæmisins gerðu
sér ferð í sveitarfélögin í kjör-
dæmaviku eins og tíðkast hefði.
Bókaði þá fulltrúi Framsóknar-
flokks að það væri vegna ótta
fulltrúa Vinstri grænna og Sam-
fylkingarinnar við flokksaga.
Sjálfstæðismenn sögðu bæjar-
fulltrúa VG, sem setið hefur á
þingi sem varamaður, virðast
vera „hlýðinn þjónn meirihlutans
á þinginu.“
- gar
Bæjarfulltrúar ósáttir:
Þingmennirnir
komi í Kópavog
Verð á innlendu efni hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði
um 0,1 prósent í október miðað við
mánuðinn á undan. Verð á innlendu
efni hækkaði um 0,1 prósent en á
innfluttu um 0,4 prósent. Verð fyrir
vélar, flutning og orkunotkun hækk-
aði samtals um 2,8 prósent.
BYGGINGARVÍSITALA
TÍSKUVIKA Um þessar mundir fer fram
tískuvika í Tókýó. Þessar fyrirsætur
sýndu fatnað frá Araisara á sýningar-
pallinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP