Fréttablaðið - 21.10.2011, Blaðsíða 26
2 föstudagur 21. október
núna
✽ Vertu meistari
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
Rokkað á
Gauknum
Rokksveitin og eftir-
hermubandið
Stóns held-
ur tónleika
á Gaukn-
um annað
kvöld.
Stóns
sérhæfir
sig í að
leika tónlist hinnar mögnuðu sveit-
ar Rolling Stones og gerir það
listavel. Hljómsveitina skipa valin-
kunnir menn úr íslensku tónlistar-
lífi og eru því engir nýgræðingar
við stjórnvölinn. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 22.00 og kostar 2.000
krónur inn.
Íslenskt, já takk
Kvikmyndin Borgríki er nútíma
glæpasaga í anda Stiegs Larsson.
Myndin er í leikstjórn Ólafs de Fleur
og segir frá serbneskum bif-
vélavirkja sem missir ófætt
barn sitt í árás. Hann
hefnir sín og í leiðinni
tvinnast örlög hans
saman við lögreglu-
konu sem ýtt er út á
ystu nöf, spilltan yfirmann
hennar í fíkniefnadeild
lögreglunnar og
glæpakóng sem er
að missa tökin á
veldi sínu. Borg-
ríki er sögð vera
besta íslenska
spennumyndin til
þessa og fer leikara-
hópurinn á kostum.
Franski fatahönnuðurinn Jean
Paul Gaultier viðurkenndi ný-
verið að honum væri illa við
Önnu Wintour, ritstjóra banda-
ríska Vogue.
„Ég var ekki hrifinn af myndinni
The Devil Wears Prada því Anna
Wintour er meira skrímsli en
myndin gefur í skyn. Hún er ekki
jákvæður karakter, hún er bara
karakter,“ sagði hönnuðurinn. The
Devil Wears Prada skartar þeim
Meryl Streep og Anne Hathaway
í aðalhlutverkum og er persóna
Streep byggð að miklu leyti á
Wintour, sem var mjög ósátt við
gerð myndarinnar á sínum tíma.
Þó að myndin eigi að gerast í
tískuheiminum þorðu fatahönn-
uðir ekki að koma fram sem þeir
sjálfir af ótta við reiði Wintour,
en hún þykir ein sú valdamesta
innan tískuheimsins í dag.
- sm
Jean Paul Gaultier er illa við Önnu Wintour:
Segir Wintour
vera skrímsli
Óttast Wintour Jean Paul Gaultier er
ekki aðdáandi Önnu Wintour, ritstjóra
bandaríska Vogue. NORDICPHOTOS/GETTY
FLOTTAR BUXUR Verslunin Geysir heldur kynn-
ingu á gallabuxnamerkinu Lee 101 í dag frá klukkan 17.
Í tilefni þess verður boðið upp á léttar veitingar og góða
músík auk afsláttar af öllum Lee-vörum.
TÖFF Hönnuðurinn Vivienne
Westwood var flott á opnun nýrrar
verslunar sinnar í Shjanghæ í Kína.
Westwood hefur verið á meðal
fremstu hönnuða heims allt frá upp-
hafi áttunda áratugarins.
NORDICPHOTOS/GETTY
É g er með örlítinn fiðring og hef ákveðið að njóta augnabliksins, sýna auðmýkt og
gera mitt allra besta við að vera landi og þjóð
til sóma á þessu kvöldi,“ segir Sigrún Lilja
Guðjónsdóttir, hönnuður og framkvæmda-
stjóri Gyðju Collection, en hún fær veitt verð-
laun frá The National Academy of Best Sell-
ing Authors í kvöld.
Sigrún Lilja er einn af höfundum bókarinn-
ar The Next Big Thing sem seldist á methraða
á Amazon. Þess vegna heldur
Sigrún Lilja til Hollywood þar
sem hún tekur á móti sérstök-
um Golden Quill-verðlaunum
fyrir framlag sitt til bókar-
innar á The Annual Best Sell-
ing Summit and Awards Gala
sem haldin eru á hinu einstaka
Roosevelt-hóteli í hjarta Holly-
wood.
„Undirbúningur hófst fyrir um
einum og hálfum mánuði þegar
byrjað var að huga að klæðnaði og skart-
inu sem ég klæðist í kvöld,“ segir Sigrún
Lilja sem verður í sérhönnuðum kjól frá
íslenska merkinu Arfleifð frá hönnuðin-
um Ágústu Margrét Arnardóttur.
„Ágústa vinnur mikið úr íslenska roð-
inu sem ég er rosalega hrifin af, enda nota
ég þetta fallega og alíslenska efni mjög
mikið í skóna og fylgihlutina frá Gyðju. Það
ríkti ákveðin leynd yfir kjólnum á meðan
Ágústa saumaði hann og gerði hún nokkrar
útfærslur og liti á mig áður en við ákváðum
að kjóllinn sem ég klæðist í kvöld yrði hvít-
ur og gylltur.“
Sigrún Lilja fékk Jóhannes Ottósson gull-
smið sem er með skartgripahönnunina Nox
til liðs við sig en hann hefur sérhannað
skartgripi fyrir viðburðinn. Jóhannes hefur
áður unnið með Sigrúnu og þykir henni
mikið til hans koma. Sigrún er stödd í Los
Angeles ásamt vinkonu sem hún bauð með
sér á verðlaunin og verður henni til halds og
trausts í kvöld.
„Dagarnir hérna úti eru mjög
vel nýttir og er dagskráin
þéttbókuð, því ásamt því
að taka við þessum verð-
launum er ég að funda
nánast alla daga frá
morgni til kvölds
vegna Gyðju
Collection,
með teyminu
mínu hérna úti,“ segir Sig-
rún Lilja spennt fyrir kvöld-
inu.
alfrun@frettabladid.is
Tekur við verðlaunum í Hollywood
VERÐUR Í ROÐI FRÁ
TOPPI TIL TÁAR
Verðlaun metsöluhöfunda Sig-
rún Lilja Guðjónsdóttir tekur við
verðlaununum í kvöld klædd íslensku fiski-
roði frá toppi til táar. Sigrún hannar skó og fylgi-
hluti undir nafninu Gyðja.