Fréttablaðið - 14.11.2011, Blaðsíða 18
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
Nýtt námskeið hefst 16 nóvember
Lampar eru mesta þarfaþing á þessum árstíma og
um að gera að bæta þeim í öll horn og skúmaskot til
að skapa notalega birtu á heimilinu. Það getur skipt
sköpum fyrir andlega líðan í svartasta skammdeginu.
Þýski útáfurisinn Taschen gaf í
árslok 2009 út bókina Illustration
Now! Volume 3 þar sem Signýju
Kolbeinsdóttur var skipað í hóp
með áhugaverðustu teiknurum
heims. Nú hefur Taschen gefið út
dagatal sem inniheldur brot af því
besta úr bókinni og í því er meðal
annars að finna teikningar eftir
Signýju.
„Þetta er rosalegur heiður, að
vera valin úr hópi þeirra bestu;
skemmtilegt áframhald á þessu
ævintýri,“ segir Signý ánægð með
að Taschen hafi séð ástæðu til að
birta aftur hluta teikninganna sem
eru teknar úr myndheimi hennar
Tulipop, en
hann samanstendur af litríkum
fígúrum í ævintýralegri umgjörð.
Óhætt er að segja að Signý sé
heldur ekki í amalegum félags-
skap í dagatalinu frá Taschen
því þar er einnig að
finna myndir eftir heimsfræga
listamenn á borð við Söru Antoin-
ette Martin, Gary Baseman og
Blanquet og Brosmind svo fáeinir
séu nefndir til sögunnar.
Dagatalið er enn ein rósin í
hnappagat Tulipop, sem er hönn-
unarfyrirtæki í eigu Signýj-
ar og Helgu Árnadóttur. En ný-
verið bættust YoYa Mart og hinar
þekktu Pylones-verslanir í New
York í hóp söluaðila þess. Þá hefur
Tulipop landað samningi við stóra
dreifingaraðila á Englandi. Fyrir
eru vörur fyrirtækisins seldar í á
fjórða tug verslana á Íslandi, í Sví-
þjóð og Bandaríkjunum.
„Eiginlega er bara allt að ger-
ast hjá okkur um þessar mundir,
þessir samningar sem eru ákveð-
inn gæðastimpill fyrir okkur og
munu opna ýmsar dyr, Taschen-
dagatalið, blaðaumfjallanir og svo
ný vörulína sem er unnin upp úr
myndheimi Tulipop. Fyrstu ein-
tök voru einmitt að koma í hús og
fara í verslanir í byrjun desem-
ber,“ segir Signý. roald@frettabladid.is
Á topplista hjá Taschen
Teikningar eftir listakonuna Signýju Kolbeinsdóttur prýða dagatal útgáfurisans Taschen fyrir komandi ár.
Signý er þar í hópi heimsþekktra listamanna á borð við Söru Antoinette Martin og Gary Baseman.
Ný vörulína frá Tulipop er væntanleg í verslanir í desember.
Línan samanstendur af matarstelli sem unnin er upp úr
litríkum ævintýraheimi Tulipop og þar bregður ýmsum kunnug-
legum persónum fyrir.
Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir
standa að baki fyrirtækinu Tulipop.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.