Fréttablaðið - 06.12.2011, Side 6

Fréttablaðið - 06.12.2011, Side 6
6. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 KJARAMÁL Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir augljóst að ríkis- stjórnin hafi svikið gerða kjara- samninga frá því í vor. Hann segir koma til greina að segja upp samningunum við endurskoðun þeirra í janúar næstkomandi. „Það er ljóst að ríkisstjórnin brýt- ur eitt af meginmarkmiðum þessa samnings, jöfnun lífeyris réttinda, sem við kynntum þessa samninga sérstaklega út á,“ segir Gylfi. Í tilkynningu frá ASÍ segir að áform ríkisstjórnarinnar um að skerða hækkun bóta almanna- trygginga og atvinnuleysis trygginga brjóti gegn samningnunum, sem og álögur á lífeyrissjóðina til að fjár- magna umboðsmann skuldara, sérstakar vaxtabætur og almenna skattlagningu á launakostnað lífeyrissjóðanna. Hækkun bóta tekur samkvæmt fjárlagafrumvarpinu mið af samn- ingum sem ASÍ gerði við milli- og hátekjuhópa um 3,5 prósenta hækk- un en Gylfi segir augljóst að þær ættu að miðast við ellefu þúsunda króna hækkun lágmarkstaxta. „Því er haldið fram að lág- tekjuhóparnir hjá ríkinu, öryrkj- ar og gamalmenni, eigi eitthvað sameiginlegt með hátekjuhópi á vinnumarkaði. Að þeir eigi bara að fá 5.500 krónur af því að hátekju- hóparnir hjá ASÍ fá kannski fimm- tán eða tuttugu þúsund af því að þeir eru á svo háu kaupi. Menn verða bara að fyrirgefa mér en ég skil ekki svona samanburð,“ segir Gylfi. Hann segir að málið geti haft mikil áhrif á framtíðarviðræður ASÍ við stjórnvöld. „Svona trúnaðar- brestur getur auðvitað haft alvarleg áhrif. Ef við getum ekki treyst því að ríkisstjórn standi við það sem hún lofar – hvernig í veröldinni eigum við að geta samið við hana?“ Endurskoðun kjarasamninga þarf að vera lokið fyrir klukkan fjögur hinn 20. janúar og segir Gylfi að fljótlega eftir áramót muni samn- inganefnd ASÍ halda til viðræðna við aðildarfélög um land allt. Hann áréttar að ASÍ sé reiðubúið til viðræðna við stjórnvöld um ein- hvers konar málamiðlun. Slíkur fundur var haldinn á föstudag en var árangurslaus. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hvetur forystu ASÍ til að horfa á heildarmyndina og skoða það sem hafi verið gert í sumar og það sem áður hafi verið gert. „Eins það sem kemur út á hinum endanum í gegnum skattkerfisbreytingar og samspil við velferðarmálin, sem við erum að reyna að hlífa eins og við getum,“ segir Steingrímur. „Ég held að menn ættu að spara stóru orðin í bili og ræða þetta frek- ar. Ekki erum við að slíta neinum samskiptum við þá og erum alltaf opin fyrir viðræðum. Þeir vita vel hvaða aðstæður er við að glíma.” Steingrímur segist hins vegar ekki ætla að hafa áhrif á forystu ASÍ. „Þeir hljóta þá að fara inn í sitt bakland og afla fylgis við það að segja upp kjarasamningum ef það er stefna þeirra. Ég sé ekki ástæðu til þess, ef allrar sanngirni er gætt, en þeir hafa sína afstöðu til hlutanna og geta lagt fram sín rök. En ég get þá spurt á móti sem fjármálaráðherra; ef ASÍ vill 2,5 til 3 milljarða og sveitarfélögin annað eins, eru þeir þá til í að styðja mig í því að afla tekna sem því nemur. Hvað leggja þeir til í þeim efnum? Hækkun á vaski? Það þarf tekur á móti ef ekki á að auka halla ríkis- sjóðs. stigur@frettabladid.is Tónleikar Volodos eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Hörpu Stórviðburður í íslensku tónlistarlífi ARCADI VOLODOS MIÐASALA HEFST Í DAG KL. 12 | HARPA.IS | 528 5050 Einleikstónleikar píanósnillingsins á Listahátíð 20. maí í Hörpu, Eldborg „Stórkostleg tækni – spilamennskan dásemd.“ The Guardian „Volodos er einstakur meðal núlifandi píanista og það er stórviðburður að fá hann á Listahátíð 2012.“ Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari Lækjargata 3 561 2444101 Reykjavík www.listahatid.is GEFÐU LISTAHÁTÍÐ Í JÓLAGJÖF Ég held að menn ættu að spara stóru orðin í bili og ræða þetta frekar. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA Er gæludýr á heimilinu? Já 44,5% Nei 55,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Fylgist þú með gengi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta á heimsmeistaramótinu í Brasilíu? Segðu þína skoðun á visir.is DÓMSMÁL Embætt i R í k is - saksóknara mun skoða hvort til- efni sé til að ákæra Þorvarð Davíð Ólafsson á nýjan leik fyrir að verða föður sínum, tónlistar- manninum Ólafi Þórðarsyni, að bana. Þorvarður hlaut fjórtán ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í apríl en faðir hans náði sér aldrei af áverkunum sem hann hlaut í árásinni og lést nú um helgina. „Við munum skoða þetta og fara yfir hvort það sé réttlætanlegt, og jafnvel yfir höfuð mögulegt, að fara af stað með þetta aftur,“ segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir hjá Ríkissaksóknara. Málið sé í raun fordæmalaust og því blasi ekki við hvaða leið skuli farin. Hún bendir hins vegar á Þorvarður Davíð hafi hlotið fjórtán ára fangelsisdóm, sem eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er þyngsti dómur sem fallið hefur á Íslandi í seinni tíð fyrir annað en manndráp. Atlagan var sérstaklega hrottafengin. Þorvarður lét spörk dynja á höfði Ólafs þar sem það lá uppi við steyptan arin, traðkaði og hoppaði á höfði hans og linnti ekki látum fyrr en hann rann til í blóði. - sh Fordæmalausar aðstæður vekja upp spurningar hjá embætti Ríkissaksóknara: Skoða málið aftur eftir andlát Ólafs LÁTINN Ólafur Þórðarson komst aldrei til meðvitundar eftir árásina og lést nú um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SJÁVARÚTVEGUR Samningalota milli Íslands, Færeyja, Noregs, Rússlands og ESB-ríkjanna um stjórn makrílveiða í Norður- Atlantshafi hefst á Írlandi í dag og stendur fram á föstudag. Fulltrúar ríkjanna höfðu áður fundað í London í september og október. Tómas H. Heiðar, aðal- samningamaður Íslands, segir í samtali við Fréttablaðið að ríkin freisti þess að ná samkomulagi um skiptingu makrílkvóta á næsta ári og komandi. - þj Rætt um makrílveiðar: Viðræður halda áfram á Írlandi Sakar stjórnvöld um svik og hótar riftun Forseti ASÍ segir koma til greina að segja upp kjarasamningum frá því í vor ef ríkisstjórnin hætti ekki við að skerða bótahækkanir. Hann segir trúnaðarbrest geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir samningaviðræður framtíðarinnar. GYLFI OG STEINGRÍMUR „Ég skil ekki svona samanburð,“ segir Gylfi um rök stjórnvalda. „Ég held að menn ættu að spara stóru orðin í bili og ræða þetta frekar,” segir Steingrímur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur að yfirstjórn efnahagsmála eigi að vera sam- ræmd á einum stað í stjórnkerfinu. Of mikil dreifing efnahagsmála hafi fengið áfellisdóm í hruninu. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, spurði Steingrím á þingi í gær hvort eitthvað væri hæft í þeim orðrómi að leggja ætti efnahags- og viðskiptaráðuneytið niður og koma verkefnum þess annars staðar fyrir. Steingrímur vildi ekki tjá sig beint um það og sagði umræðu síðustu daga hafa verið á villigötum og byggða á getgátum. Hann sagði menn þó eiga að draga lærdóm af sögunni. „Það sem var gert í efnahagsmálum var að þau mál voru sameinuð á einn stað en höfðu áður legið hjá þremur ráðuneytum. Það fékk áfellisdóm í þeim skýrslum sem við fengum og hjá þeim ráðgjöfum sem hér störfuðu og ég er sammála því mati. Eitt af því sem fór úrskeiðis var að dreifa efnahags- málunum á þrjú ráðuneyti; forsætisráðuneytið með Seðlabankana, viðskiptaráðuneytið með sína hluti og fjármálaráðuneytið með sína,“ segir Steingrímur. „Hvernig sem þessu verður fundinn staður í stjórnar ráðinu til frambúðar á yfirstjórn efnahags- mála að vera samræmd á einum stað. Svo mikið vil ég segja.“ - kóp Fjármálaráðherra segir dreifingu efnahagsmála hafa fengið áfellisdóm: Stjórn efnahagsmála á einn stað KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.