Fréttablaðið - 06.12.2011, Side 28
6. desember 2011 ÞRIÐJUDAGUR20
folk@frettabladid.is
* Gildir á meðan birgðir endast.
Jólaandinn er hjá Vodafone
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Frábær tilboð á snjöllum símum
Samsung Galaxy Y
24.990 kr. staðgreitt
eða 2.083 kr. á mánuði í 12 mánuði
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
Nokia 700
59.990 kr. staðgreitt
eða 4.999 kr. á mánuði í 12 mánuði
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff var smart og elegant þegar
skautasvellið í Somerset-menningarmiðstöðinni í London
var opnað fyrir skemmstu. Meðal annarra gesta voru
Pippa Middleton, systir Kate Middleton, og Judi Dench,
sem hefur leikið M í síðustu James Bond-myndum.
DORRIT Á DJAMMI
MEÐ PIPPU
Pippa Middleton er í sérstöku uppáhaldi hjá
bresku pressunni eftir að hún stal óvænt
senunni í brúðkaupi systur sinnar, Kate
Middleton. Ljósmyndarar fylgja henni við hvert
fótmál. NORDICPHOTOS/GETTY
Judi Dench og David Mills voru meðal gesta, en Dench
leikur yfirmann bresku leyniþjónustunnar í James Bond-
myndunum. Næsta mynd, Skyfall, verður þriðja myndin
þar sem Dench leikur á móti Daniel Craig, núverandi
Bond.
Fyrirsætan Suki Waterhouse mætti
á opnunina. Hún er ein eftirsóttasta
fyrirsætan í bransanum í dag og
er meðal annars andlit Marks &
Spencer.
Þessi skautadansari
sýndi listir sínar fyrir
Pippu og Dorrit í
Somerset-menningar-
miðstöðinni þegar
skautasvellið þar var
opnað.
Forsetafrúin var
í essinu sínu
þegar skautasvell
í miðborg Lund-
úna var opnað.
Gulu gallabux-
urnar vöktu mikla
athygli og ljóst
að forsetafrúin
íslenska er með
á nótunum
þegar horft er til
nýjustu strauma í
fatatísku.
PLATA SÖNGKONUNNAR ADELE, 21, hefur
selst í 3,4 milljónum eintaka í Bretlandi. Hún er þar með
orðin söluhæsta plata aldarinnar þar í landi, á undan Back
to Black með Amy Winehouse.
3,4
Jónsi fær góða dóma á bandarísku
tónlistarsíðunni Pitchfork fyrir
tónlist sína við kvikmyndina We
Bought a Zoo. Platan fær sjö í
einkunn af tíu mögulegum. Gagn-
rýnandinn segir Jónsa vera undir
áhrifum frá sólóplötu sinni Go og
að strengja- og lúðraútsetningar
Nico Muhly séu smekklegar. Einnig
segir hann melódíuna í einu laginu
líkjast hinu sígilda jólalagi White
Christmas. We Bought a Zoo í
leikstjórn Camerons Crowe
verður frumsýnd vestan-
hafs 23. desember og
fara Matt
Damon
og
Scarlett
Johansson
með aðalhlut-
verkin. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI