Morgunblaðið - 24.07.2010, Qupperneq 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Fagridalur
Sól og blíða er það fyrsta sem
kemur upp í hugann þegar hugsað er
um hvað er helst að gerast í Mýrdaln-
um en júlímánuður hefur það sem af
er verið mjög sólríkur. Flestir bænd-
ur eru búnir með fyrri slátt og stytt-
ist í aðra umferð. Og mikið af þurru
og góðu heyi hefur verið sett í rúllur.
Eftir frekar lélegt vor hvað
varðar ferðamannastraum hefur
ástandið mikið lagast eftir því sem
hefur liðið á sumarið og þó svo að
ferðamenn verði aldrei jafnmargir
þetta sumar og vonast var eftir í
byrjun árs eru flestir ferðaþjón-
ustuaðilar bjartsýnir og telja að gosið
í Eyjafjallajökli hafi ekki varanleg
áhrif á ferðamannastraum til lands-
ins.
Töluverð aukning varð á gisti-
möguleikum í sumar í Mýrdalnum. Á
Reyni í Mýrdal var byggt gistihús
sem hefur gott útsýni í átt að Dyr-
hólaey. Á Suður-Hvoli voru byggð
tvö sumarhús til útleigu, einnig með
útsýni til Dyrhólaeyjar en úr annarri
átt. Hótel Vík var stækkað og hjá
Ferðaþjónustunni í Sólheimahjá-
leigu var byggt nýtt gistihús. Einnig
stækkaði Hótel Dyrhólaey gistingu
sína.
Ný sveitarstjórn tók til starfa
eftir kosningar í vor en hana skipa
eingöngu nýliðar í sveitarstjórn fyrir
utan oddvitann Elínu Einarsdóttur.
Auglýst var eftir sveitarstjóra og var
Ásgeir Magnússon ráðinn í starfið en
hann hefur verið forstöðumaður
skrifstofu Samtaka iðnaðarins á Ak-
ureyri. Gert er ráð fyrir að hann hefji
störf í byrjun ágúst.
Ferðafélag Mýrdælinga stóð
nú í júlí fyrir áheitagöngu til fjáröfl-
unar vegna endurbyggingar Deild-
arárskóla sem stendur nú við Barð í
Höfðabrekkuafrétti. Gengið var frá
þeim stað sem skólinn stóð á á sínum
tíma við Deildarárgil að Barði, alls í
sex og hálfan klukkutíma, tuttugu og
tveir luku göngunni og söfnuðust
242.700 krónur.
Sól og blíða í Mýrdalnum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Náttúra Mikill fjöldi ferðamanna skoðar Dyrhólaey ár hvert.
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Samþykkt var í borgarráði Reykja-
víkur sl. fimmtudag bókun þar sem
fram kemur að ráðið telji rétt að
fallið verði frá fyrirhugaðri bygg-
ingu vélageymslu á starfssvæði
Golfklúbbs Reykjavíkur (GR). Enn-
fremur er farið fram á það að klúbb-
urinn endurgreiði borginni þá fjár-
hæð sem hann fékk úr borgarsjóði
vegna þeirrar framkvæmdar. Bók-
un borgarráðs er byggð á skýrslu
innri endurskoðunar Reykjavíkur-
borgar um samninga borgarinnar
og GR sem lögð var fram á fundi
ráðsins.
Málið teygir sig aftur til ársins
2006 þegar samið var um það á milli
Reykjavíkurborgar og GR að
stækka golfvöllinn í landi Korpúlfs-
staða í Grafarvogi úr 18 holum í 27
og auk þess fjárstyrk frá borginni
til sex tiltekinna verkefna á vegum
klúbbsins. Hljóðaði kostnaðaráætl-
un upp á samtals 267 milljónir
króna samkvæmt þáverandi verð-
lagi. Reykjavíkurborg skyldi leggja
til 210 milljónir króna sem greiddar
yrðu út á fjórum árum en GR brúa
það sem upp á vantaði.
Stuðningi hafnað
Í skýrslu innri endurskoðunar
Reykjavíkurborgar kemur fram að
GR hafi óskað eftir því með bréfum
til borgarstjóra síðari hluta árs 2007
að fá viðbótarfjárstuðning frá borg-
inni til þess m.a. að standa straum
af kostnaði vegna ýmissa fram-
kvæmda á starfssvæði sínu, þ. á m.
vegna byggingar vélageymslu.
Beiðni GR um fjárstuðning til
þessara framkvæmda var rædd í
borgarráði, umsagnar Íþrótta- og
tómstundaráðs (ÍTR) óskað og er-
indinu síðan vísað til fjárhagsáætl-
unargerðar ársins 2009 að því er
fram kemur í skýrslu innri endur-
skoðunar. Niðurstaðan hafi hins
vegar orðið sú að ekki var gert ráð
fyrir fjárstuðningnum í fjárhags-
áætlun árins 2009 sem verði að
túlka sem svo „að erindinu hafi í
raun verið synjað“. Svo virðist hins
vegar sem GR hafi litið á afgreiðslu
borgarráðs sem skuldbindandi lof-
orð um styrk.
Framkvæmdum frestað
Vegna bankahrunsins haustið
2008 ákvað GR m.a. að fresta bygg-
ingu vélageymslunnar í ljósi óviss-
unnar sem skapaðist í kjölfar þess.
Hins vegar mun öðrum fram-
kvæmdum sem Reykjavíkurborg
styrkti nú vera lokið eða að ljúka. Á
heimasíðu GR kemur fram að allt til
ársloka 2008 hafi allar framkvæmd-
ir við golfvöllinn í landi Korpúlfs-
staða verið í fullu samræmi við þá
samninga sem gerðir voru. Hins
vegar hafi klúbburinn litið á það
sem ábyrgðarhluta að fresta ýmsum
stórum framkvæmdum þegar hrun-
ið skall á og að í „ljósi óvissunnar
var talið ráðlegra að greiða frekar
niður lán vegna framkvæmda og
hafa vaðið fyrir neðan sig“.
Skortur á upplýsingum
Á heimasíðunni segir að eitt
stærsta verkið sem samið hafi verið
um sé vélageymsla sem til stóð upp-
haflega að reisa árið 2009 fyrir um
90 milljónir á þáverandi verðlagi.
Staðið hafi til að reisa innflutt stál-
grindarhús en að það hafi tvöfaldast
í verði þegar gengi krónunnar féll.
Því hafi verið leitað annarra leiða og
í sumar hefjist bygging á íslensku
húsi og sú framkvæmd rúmist innan
upphaflegu fjárhagsáætlunarinnar.
Innri endurskoðun Reykjavík-
urborgar gagnrýnir það m.a. í
skýrslu sinni að GR hafi ekki upp-
lýst borgaryfirvöld nægjanlega um
það að til stæði að fresta byggingu
vélageymslunnar. Ennfremur er
ÍTR gagnrýnt fyrir að inna af hendi
greiðslu til GR í byrjun árs 2009 án
þess að kanna áður hvernig staðan
væri í þeim framkvæmdum sem fyr-
irhugaðar hefðu verið.
Fram kemur í skýrslunni að
samkvæmt bréfi frá GR til innri
endurskoðunar Reykjavíkurborgar
hafi klúbburinn lýst því yfir að hann
myndi ljúka framkvæmdum við
vélageymsluna fyrir eigin reikning.
Morgunblaðið / Frikki
Golf Ungir golfarar spreyta sig á golfvellinum í landi Korpúlfsstaða í Grafarvogi.
Vilja styrk til baka
Reykjavíkurborg vill að fallið verði frá byggingu fyrirhug-
aðrar vélageymslu á starfssvæði Golfklúbbs Reykjavíkur
Vélageymslan
» Golfklúbbur Reykjavíkur
óskaði eftir því 2007 að
Reykjavíkurborg styrkti m.a.
byggingu vélageymslu á
starfssvæði klúbbsins.
» GR ákvað í kjölfar banka-
hrunsins að fresta byggingu
vélageymslunnar vegna þeirrar
óvissu sem skapaðist í kjölfar
þess.
» Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti bókun sl. fimmtudag
þar sem kallað er eftir því að
fallið verði frá byggingu véla-
geymslunnar.
Á morgun, sunnudag, verður hinn
árlegi Barnadagur haldinn í Viðey.
Öllum börnum er boðið á hestbak
og alls kyns afþreyingu verður að
finna á leiksvæðinu. Lalli töframað-
ur verður við Viðeyjarstofu og
galdrar fyrir börnin auk þess sem
Gunni og Felix munu skemmta
börnunum með tónlist og spjalli. Þá
munu öll börn sem koma fá ókeypis
íspinna á meðan birgðir endast.
Dagskrá barnadagsins er að finna á
www.videy.com.
Barnadagur í Viðey
Gefið hefur verið út nýtt göngukort
á fjöll í Grímsnesi. Fjöllin eru Búr-
fell, Mosfell og Hestfjall með hinu
sígilda ljóði Tómasar Guðmunds-
sonar, „Fjallganga“. Kortið er sam-
starfsverkefni nemenda og kenn-
ara Ljósuborgar, ferðamálafulltrúa
uppsveita Ánessýslu og handhafa
höfundaréttar Tómasar Guðmunds-
sonar skálds. auk þess kom að verk-
inu Rúnar Gunnarsson hjá Þríbroti
ehf. sem sá um útlit og grafíska
hönnun kortsins.
Efnt var til teiknisamkeppni
meðal nemenda grunnskólans Ljós-
uborgar. allir nemendur skólans
teiknuðu myndir og var erfitt að
velja úr. Vinningsmyndin sem prýð-
ir bakrunninn við ljóðið „Fjall-
ganga“ er teiknuð af Katli Árna
Laufdal Ingólfssyni og fékk hann
ljóðabókina Fögru veröld í við-
urkenningarskyni fyrir myndina.
Göngukortið er hægt að nálgast
á heimasíðu Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps auk þess sem það mun
liggja frammi á helstu ferða-
mannastöðum í hreppnum.
Kortagerð Ingveldur Eiríksdóttir kennari, Irena Sævarsdóttir og
Ketill Árni Laufdal Ingólfsson verðlaunahafar, Guðrún Ásgeirsdóttir og
Ragnar Guðmundsson, barnabarn skáldsins.
Nýtt göngukort komið út ásamt ljóði
Tómasar Guðmundssonar
Umferðarstofu hefur ítrekað bor-
ist kvartanir ökumanna stórra
hópferðabíla og vöruflutningabíla
um að einstaka ökumenn, sem eru
að aka um vegi landsins með stór
hjólhýsi og aðra eftirvagna, víki
ekki nægilega vel út í kant þegar
þeir mæta bílum. Oft séu eft-
irvagnarnir að einhverju leyti inni
á öfugum vegarhelmingi þegar
bílar mætast. Svo virðist sem ein-
staka ökumenn hafi gleymt stærð
og breidd vagnsins og stafar af
þessu athugunarleysi mikil hætta,
segir í tilkynningu frá Umferð-
arstofu.
„Oft er það kostur og í ein-
hverjum tilfellum lífsnauðsynlegt
að gera sér grein fyrir stærð
sinni,“ segir Umferðarstofa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fellihýsi Tjaldsvæðið í Reykjahlíð.
Hversu þungur er
tengivagninn?
Heimdallur, félag ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík, hefur óskað
eftir því að umboðsmaður Alþingis
kanni lögmæti hverfaskiptingar í
framhaldsskóla en samkvæmt nýj-
um reglum ber skólum að taka inn
45% nemenda af svonefndu heima-
svæði skólans. Heimdallur telur að í
því felist að möguleikar ungs fólks
á að komast í þann skóla sem það
óskar eftir séu takmarkaðir og bú-
seta látin ráða meiru en einkunnir.
Réttara væri að einkunnir myndu
ráða, enda ræður ungt, ólögráða
fólk allajafna litlu um búsetu sína.
Fyrir utan hversu vond skilaboð
reglurnar senda má draga verulega
í efa að þær séu lögmætar.
Innritun í skóla