Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 18

Morgunblaðið - 24.07.2010, Side 18
18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Gengisbundin lán á bókum íslenskra fyrirtækja eru tæplega 44% af landsframleiðslu síðasta árs. Sé lán- um eignarhaldsfélaga bætt við sam- svarar sú upphæð hálfri landsfram- leiðslu Íslands. Samkvæmt nýjum tölum um bankakerfið sem Seðla- bankinn birti í gær námu útistand- andi erlend lán alls 883 milljörðum króna í lok maí síðastliðins. Lán til fyrirtækja eru þar langveigamest og nema um 75% heildarupphæðarinn- ar. Eins og við var að búast eru greinar tengdar sjávarútvegi stærstar í þeim lið, en útstandandi erlend lán til fyrirtækja í greinum tengdum sjávarútvegi nema alls 262 milljörðum króna. Þjónustugeirinn fylgir þó skammt á eftir með 234 milljarða útistandandi. Aðeins um 6% í fasteignalánum Erlend fasteignalán til einstak- linga eru samkvæmt tölum Seðla- bankans 53,5 milljarðar króna. Það samsvaraði um 6% allra útistand- andi erlendra lána á bókum banka- kerfisins í lok maí. Erlend lán til ein- staklinga eru í heild um 12,5% af öllum slíkum lánum. Íslandsbanki og Arion banki sendu báðir frá sér tilkynningar fyrir um mánuði, þar sem því var lýst yfir að ef öll lán til einstaklinga væru færð niður, myndu bankarnir samt sem áður standast kröfur um eigið fé. Ekkert var minnst á fyrirtækjalán. Ef Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær, þess efnis að óverðtryggðir vextir Seðlabankans skuli gilda við endurreikning lána, verður höggið á efnahagsreikninga bankanna mun minna en ef notast yrði við samn- ingsvexti. Í þeim samtölum sem Morgunblaðið átti við kröfuhafa gömlu bankanna, sem eru eigendur Íslandsbanka og Arion banka, mátti merkja nokkurn létti vegna þeirra vísbendinga sem úrskurður héraðs- dóms gaf í gær. Erlend lán fyrirtækja veigamest hjá bönkunum  Fasteignalán einstaklinga í erlendri mynt mjög lítill hluti Morgunblaðið/ÞÖK Byggingar Erlend lán til byggingariðnaðar voru 33,2 milljarðar króna í lok maí. Öll erlend húsnæðislán til einstaklinga voru 53,5 milljarðar króna. Erlend lán » Mestu skiptir fyrir fjár- málakerfið að gengistryggingu fyrirtækjalána verði ekki kippt úr sambandi án þess að eitt- hvað komi á móti. » Fasteignalán einstaklinga í erlendri mynt voru um 6% allra slíkra lána í lok maí síð- astliðins. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Eignarhaldsfélagið Vestia, sem er eignaumsýslufélag í eigu Lands- bankans, hefur lokið sölu á 80 pró- senta hlut sínum í Parlogis ehf. Hin 20 prósentin voru í eigu Atorku Group, sem jafnframt selur sinn hlut. Lyfjaþjónustan ehf. kaupir allt hlutaféð í Parlogis og greiðir 250 milljónir króna fyrir fyrirtæk- ið, sem sinnir vörudreifingu til ís- lensks heilbrigðiskerfis. Frá söl- unni var gengið með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þar með er fyrstu sölu Vestia á félagi í sinni eigu lokið. Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, sagði af þessu tilefni að með sölunni hefði tekist að „hámarka endurheimtur við ráðstöfun eigna, lágmarka eignarhaldstíma og gæta jafnræðis og gagnsæis við sölu- ferli.“ Söluverðið lágt? Tekjur Parlogis árið 2009 voru rúmir 8 milljarðar króna. Hagnað- ur fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) var 284 milljónir eða töluvert yfir söluverðinu nú. Fjög- ur óskuldbindandi tilboð bárust í félagið, en sú krafa var gerð að til- vonandi kaupendur sýndu fram á fjárfestingargetu upp á að minnsta kosti 300 milljónir króna, sem er einnig töluvert yfir endanlegu sölu- verði. Það má því draga þá ályktun að verðið hafi verið í lægra lagi. Fleiri sölur í burðarliðnum Önnur fyrirtæki sem Vestia á að miklu eða öllu leyti eru Húsasmiðj- an, Icelandic Group, Plastprent og Teymi, svo einhver séu nefnd. Sölu- ferli þessara fyrirtækja er ekki enn hafið, en til stendur að selja þau öll. Steinþór segir söluna á Parlogis nú gefa Vestia „byr í seglin við und- irbúning frekari eignasölu.“ Vestia og Atorka selja Parlogis  Fyrsta fyrirtækið sem Vestia, eignaumsýslufélag Landsbankans, selur Selt Fjórir aðilar gerðu óskuldbin- andi kauptilboð í Parlogis. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Sjö af þeim 91 banka sem þreyttu álagspróf Samstarfsnefndar evr- ópskra eftirlitsaðila á lánamarkaði féllu á prófinu. Samkvæmt niður- stöðum prófsins þá þurfa þessir bankar um 3,5 milljarða evra í eig- infjárframlag til þess að uppfylla skilyrði um 6% eiginfjárhlutfall, það er að segja ef verstu forsendur álagsprófsins verða að veruleika. Dekksta sviðsmyndin sem sett var fyrir í álagsprófinu var að hag- vöxtur myndi dragast saman um 3% af landsframleiðslu í ríkjum Evr- ópusambandsins á næstu 18 mán- uðum og að samdrættinum myndi fylgja vaxandi titringur á markaðn- um með ríkisskuldabréf aðildarríkja evrusvæðisins á borð við þann sem var uppi í maí vegna skuldakreppu gríska ríkisins. Ekki gert ráð fyrir skulda- kreppu í Evrópu Segja má að þessar forsendur feli í sér að önnur djúp efnahagslægð ríði yfir Evrópu en hinsvegar fól prófið ekki í sér að eitt af verst stöddu evruríkjunum myndi standa frammi fyrir greiðslufalli. Þessi út- færsla hefur verið gagnrýnd en hún fól í sér að bankarnir sem tóku þátt í álagsprófinu þurftu einungis að færa niður tap á eign sinni á evr- ópskum ríkisskuldabréfum undir verstu sviðsmynd í veltubók en ekki fjárfestingabók. Fram kemur í umfjöllun Dow Jones-fréttaveitunnar að samkvæmt úttekt Morgan Stanley færa við- komandi lánastofnanir um 90% af stöðum sínum í grískum ríkis- skuldabréfum í fjárfestingabækur sínar og þar af leiðandi eru aðeins 10% í veltubókum þeirra. Þeirri sviðsmynd að gríska ríkið stæði frammi fyrir greiðslufalli var ekki brugðið upp í prófinu og þar af leið- andi reyndi ekki á þennan þátt. Sem kunnugt er standa ríkisfjár- mál Grikklands úti á ystu nöf og sé horft til markaðarins með skulda- tryggingar á skuldabréf þess sést að fjárfestar telja helmings líkur á greiðslufalli á næstu fimm árum. Vonir evrópskra yfirvalda standa til að prófið og birting niðurstöð- unnar verði til þess að auka tiltrú manna á evrópska bankakerfinu og getu þess til þess að takast á við erf- iðar aðstæður í efnahagslífi álfunar. Ljóst er að niðurstöðurnar munu vekja upp spurningar um trúverð- ugleika prófsins en í því samhengi má nefna að svartsýnustu sérfræð- ingar höfðu spáð að það myndi leiða í ljós að evrópskir bankar þyrftu að sækja sér á bilinu 30 til 90 milljarða evra til þess að geta haldið sjó. Sjö svartir sauðir í evrópskri bankahjörð  Niðurstöður álagsprófsins jákvæðar  Tók ekki tillit til áhrifa skuldakreppu á bankana ● Hagnaður af rekstri Nýherja nam 100 milljónum króna á fyrri árshelm- ingi en á sama tímabili í fyrra var 71 milljónar króna tap á rekstrinum. Samkvæmt uppgjöri var vörusala innanlands á öðrum ársfjórðungi 30% meiri en á sama tíma í fyrra. Þá hafi náðst jafnvægi í rekstri erlendra dótt- urfélaga og séu horfur góðar á síðari árshelmingi. Fram kemur í tilkynningu um afkomuna að stefnt sé að því að samningar við viðskiptabanka félags- ins um fjárhagslega endurskipulagn- ingu liggi fyrir á næstunni og sé gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstunni. Nýherji hagnast á fyrri helmingi ársins ● Matsfyrirtækið Moody’s hefur sett lánshæfismat ungverskra stjórn- valda á neikvæðar horfur. Ákvörð- unin er tekin í kjölfar þess að Viktor Orban, for- sætisráðherra, lýsti því yfir í ræðu á þinginu í vikunni að stjórnvöld þyrftu ekki lengur á aðstoð Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins að halda. Orban sagði meðal annars í ræðu sinni að ung- verska hagkerfið myndi ekki vaxa á ný fyrr en stjórnvöld myndu ná aftur fullum yfirráðum yfir efnahagsstefnu sinni. Samkvæmt Moody’s myndi fyr- irtækið staðfesta núverandi lánshæf- ismat ungverskra stjórnvalda á ný ef stjórnvöld taka af öll tvímæli um að þau ætli sér að ná fram markmiðum efnahagsáætlunar AGS. Vara Ungverja við Viktor Orban ● Lítil velta var á skuldabréfamark- aðnum í gær en veltan nam aðeins 3,6 milljarði króna. Skuldabréfavísitala Gamma fyrir óverðtryggð bréf hækkaði um 0,23% í tæplega 1,9 milljarða við- skiptum. Hinsvegar lækkaði vísitala Gamma fyrir verðtryggð bréf um 0,03% í tæplega 1,8 milljarða við- skiptum. Óverðtryggða vísitalan hækk- aði um 0,3% í vikunni en sú verð- tryggða lækkaði um 0,16%. Lítil velta í vikulok ÞETTA HELST…                                           !"# $% " &'( )* '$* +,+-. +//-+, ++0-+1 ,+-+2. +.-0.3 +2-045 ++2-/. +-5.. +/3-5. +10-00 +,,-+. +//-1/ ++0-3. ,+-,5+ +.-/1, +2-01, ++0-,, +-345+ +/3-.3 +1/-,+ ,+5-+5. +,,-3/ +/.-43 ++0-/5 ,+-,.5 +.-.+ +2-/4+ ++0-11 +-340, +/1-3. +1/-21 Einn grískur og einn þýskur banki auk fimm spænskra sparisjóða féllu á prófinu. Um er að ræða gríska bankann ATE- Bank, sem er í meirihlutaeigu ríkisins og þýska bankann Hypo sem er einnig í ríkiseign. Spænsku sparisjóðirnir fimm eru: Unnim, Diada, Espiga, Banca Civica og Cajasur. Sjö féllu ÁLAGSPRÓFIÐ 880 milljarðar af gengistryggðum lánum eru á bókum íslenskra banka í dag 75% allra gengistryggðra lána eru til fyr- irtækja, eða 659 milljarðar 110 milljarðar af gengistryggðum lánum hvíla á einstaklingum á Íslandi, þ.e.a.s. húsnæðis- og bílalán 6% allra gengistryggðra lána eru vegna fasteignalána til einstaklinga, eða um 53 milljarðar króna 272 gengistryggðir milljarðar hvíldu á íslenskum heimilum við hrunið í októbermánuði 2008. 29% allra gengistryggðra lána eru til fyr- irtækja tengd sjávarútvegi ‹ ERLENDU LÁNIN › »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.