Morgunblaðið - 24.07.2010, Page 22

Morgunblaðið - 24.07.2010, Page 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 Árið 2004 skipaði Sturla Böðvarsson, þáverandi samgöngu- ráðherra, starfshóp til að fjalla um sam- göngur til Vest- mannaeyja. Í starfs- hópnum, sem skilaði lokaskýrslu í júní 2006, áttu sæti Páll Sigurjónsson verk- fræðingur, formaður hópsins, Bergur Elías Ágústsson, þáverandi bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, Ingi Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, Páll Zóphóníasson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, Jón Eðvald Malm- quist, lögfræðingur í samgöngu- ráðuneytinu og Gunnar Gunnarsson aðstoðarvega- málastjóri. Starfshópurinn átti einkum að líta til þriggja möguleika, þ.e. a) Áframhaldandi siglingar til Þor- lákshafnar með nýrri og hrað- skreiðari ferju, b) Ný ferjuhöfn í Bakkafjöru og c) Jarðgöng til Vestmannaeyja. Í lokaskýrslu sinni lagði starfs- hópurinn til að skoðuð yrði nánar sú lausn að byggja ferjuhöfn í Bakkafjöru. Að þeirri athugun lokinni ákvað þáverandi sam- gönguráðherra, Sturla Böðv- arsson, að leggja til við rík- isstjórn að ráðast í hafnargerð í Bakkafjöru og var það samþykkt. Þessi niðurstaða gaf Árna Johnsen m.a. tilefni til þess að ráðast með hrakyrð- um að Vegagerðinni og undirrituðum í grein í Morg- unblaðinu 26. apríl 2008 undir yfirskrift- inni: „Klúður fv. sam- gönguráðherra og að- stoðarvegamála- stjóra“. Gaf hann í skyn að undirritaður hefði verið handbendi samgöngu- ráðherra og hefði nánast kúgað meðnefndarmenn til þess að skrifa undir tillöguna um höfn í Bakkafjöru, sbr. eftirfarandi til- vitnun í greinina: „Ef nefnd- armenn í úttektarnefndinni komu með tillögur um að skoða ýmsa þætti betur var það slegið út af borðinu með orðum aðstoð- arvegamálastjóra, lögfræðingsins í nefndinni. Hann stjórnaði sem sagt gangi mála og þess vegna varð vinna nefndarinnar varðandi jarðgangamöguleika eða nýjan Herjólf til Þorlákshafnar fúsk eitt.“ Árni barðist hart fyrir jarð- göngum til Vestmannaeyja og miklu fé var varið til rannsókna þar að lútandi. Árna fannst ekki nóg að gert og vildi meiri rann- sóknir sem hefðu kostað tugi milljóna. Sérfræðingar Vegagerð- arinnar töldu að frekari rann- sóknir myndu litlu skila til við- bótar því sem þegar lá fyrir og myndu ekki auka líkurnar á því að ráðlegt væri að ráðast í jarð- gangagerð, hvort sem litið væri til aðstæðna eða kostnaðar. Árni lætur ekki þar við sitja. Í grein í Morgunblaðinu 20. júlí sl. ræðst hann enn að Vegagerðinni með ásakanir um lítið vit og að- dróttanir um andstöðu við fagleg- ar rannsóknir. Staðreyndin er hins vegar sú að afstaða Vega- gerðarinnar kom í veg fyrir að mál varðandi Landeyjahöfn frest- uðust. Þáverandi og núverandi samgönguráðherrar fylgdu mál- inu eftir af einurð. Náðist rétt fyrir „hrun“ að koma verkefninu af stað. Ef svo hefði ekki til tek- ist væri ekki enn byrjað þar á framkvæmdum. Í ljósi framanritaðs var ein- kennilegt að hlusta á Árna John- sen mæra sig og aðra mæra hann og heiðra við opnun Land- eyjahafnar, manninn sem næstum hafði komið í veg fyrir að þetta mannvirki yrði að veruleika. „Klúður“ Árna Johnsen Eftir Gunnar Gunnarsson » Staðreyndin er hins vegar sú að afstaða Vegagerðarinnar kom í veg fyrir að mál varð- andi Landeyjahöfn frestuðust. Gunnar Gunnarsson Höfundur er aðstoðarvegamálastjóri og fyrrverandi nefndarmaður í stýri- hópi sem lagði til að ráðist yrði í gerð Landeyjahafnar. Íbúalýðræði var of- arlega á stefnuskrá meirihlutaflokkanna fyrir síðustu bæj- arstjórnarkosningar. Það var mál til komið að menn áttuðu sig vel á því að það þarf að hlusta á vilja bæj- arbúa og stilla saman strengi, óháð klíku- skap og pólitík. Við er- um þegar allt kemur til alls lítið samfélag sem á alla möguleika á að vera fremst meðal jafninga en til þess þurfum við að nýta þau tæki- færi sem hvarvetna bjóðast og setja til hliðar þröngsýni og skilja nauð- syn samvinnu fyrir heildina. Aug- lýst var eftir bæjarstjóra á Akranesi og fjöldinn allur af hæfileikaríku fólki sóttist eftir stöðunni. Fyrirtækið Capacent Gallup hef- ur þegar skoðað allar umsóknir og, eftir því sem ég best veit, valið þau fimm sem talin eru hæfust til starfs- ins. Í prestskosningum þykir það sjálfsagt að söfnuðurinn sé spurður og nú er rakið tækifæri að leyfa íbúalýðræðinu að blómstra með því að íbúar fái að velja milli þessara fimm aðila. Það er einfalt, það er ódýrt, það er fljótlegt og það er lýð- ræðislegt og með þessu móti gæti umræðan blómstrað um það sem er nauðsynlegt að gera á næstu miss- erum til að efla bæjarfélagið og trú- verðugleika bæj- arstjórnar. Ekki efast ég um ágæti Capacent Gallup í þessu ferli en ég spyr mig í hvaða flokk ráðgjafarstofan hefði sett Jón Gnarr hefði hann sótt um stöðuna. Það væri vissulega forvitnilegt! Er ekki vilji bæj- arbúa á Akranesi að þeir fái að kjósa sinn bæjarstjóra úr fimm af þeim sem taldir eru hæfastir? Það er umræðan sem ég hef heyrt víða í bænum. Nú höfum við tækifæri til að reyna eitthvað nýtt og spennandi sem ekki hefur verið reynt áður á Íslandi, eða er búið að ákveða eitt- hvað fyrirfram? Ég held að svo sé ekki. Eða hvað heldur þú? Er ekki fínt að fá umræðu um málið fyrir opnum tjöldum? Það finnst mér. Ef eitthvað er einfalt að leggja fyrir dóm kjósenda, þá er það mál eins og þetta. Nú er tækifærið – á Akranesi Eftir Ingibjörgu Pálmadóttur Ingibjörg Pálmadóttir »Er ekki vilji bæj- arbúa á Akranesi að þeir fái að kjósa sinn bæjarstjóra úr fimm af þeim sem taldir eru hæfastir? Höfundur er fyrrv. ráðherra. Skúli Á. Sigurðsson, ágætur blaða- maður Morgunblaðsins, ritaði pistil í Morgunblaðið 22. júlí síðastliðinn um hverjum bæri að túlka lögin og hverjum bæri að segja til um Kötlugos. Skúla er vinsamlegast bent á að undirritaður er alinn upp á Suðurlandi og kannast nú yf- irleitt við að bændur á bænum Galtalæk sögðu oftast til um Heklugos hér á árum áður en ekki jarðfræðingar sem reyndar báru mikla virðingu fyrir bændum. Jarðfræðingar eru mikilvægir sem og lögfræðingar í túlkun á lögum og skiptir litlu hvort um landslög er að ræða eða jarðlög. Blaðamanni Morgunblaðsins er bent á að á Íslandi hefur ávallt verið lögð áhersla á að almenn- ingur geti lesið í lögin og regl- urnar en að öðrum kosti væri til lítils að setja lög sem væru alls- kostar ólæsileg. Einnig er bent á að sá sem þetta ritar leggur áherslu að leita ráðleggingar um lögfræðileg efni hjá lögmönnum og birtir greinar sínar eftir að þær hafa verið ritrýndar af góðum og gegnum lögfræðingum sem margir leggja ekki í að andmæla því sem viðgengst nú á Íslandi. Það þurfti ekki lækna hér í Phnom Penh til að segja til um hvort fjöldamorð voru framin hér á sínum tíma. Það var hægt að sjá það með ber- um augum en fá- ir lögðu í að segja til um það og gagnrýna þegar hörmung- arnar gengu yf- ir. Í dag biðja hinir gulklæddu búddamunkar enn um frið eftir hörmungarnar. Ekki verður bók- vitið í askana látið. Það skilja munkarnir hér í Suð-austur-Asíu. Það getur verið að kynslóð Skúla skilji það ekki enn en það kemur að því. Á Íslandi er verið að fara illa með fólk og það er verið að taka marga saklausa einstaklinga fjár- hagslega af lífi. Það er einnig að gerast í Bandaríkjunum og bendir hagfræðiprófessorinn Robert Rus- sell á það í nýlegri skýrslu sinni um það hvernig fjármálastofnanir eru orðnar háðar opinberum styrkjum og fyrirgreiðslum á kostnað skattgreiðenda. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef ís- lenskur fjármálamarkaður á að þiggja búfjárstyrki eins og bændur á Íslandi. Þeir sem standa fjármálafyr- irtækjum næst eru betur settir í að gagnrýna þá er vilja rétta hjálp- arhönd. Það er farið illa með þegna Íslands í dag. Það er ekki auðsótt á Íslandi frekar en í öðrum löndum að fara gegn ríkjandi öflum. Því þurfa íslenskir blaðamenn að sýna kjark og hafa sterk bein. Hér skal áréttað að lög á Íslandi skulu áfram birt almenningi til lestrar enda er markmiðið að þau verði áfram læsileg. Hins vegar eru til illa meinandi menn á Íslandi eins og annars staðar í þessum guðsvolaða heimi. Því er ég sam- mála blaðamanni Morgunblaðsins varðandi það að leita á til fag- manna í fjölmörgum verkum en slíkt á ekki við um gengistryggð lán enda um frekar einfalt málefni að ræða sem verið er að flækja. Það hafa reyndir lögmenn tjáð mér og það er mér einnig ljóst út frá mínum fræðum. Ég vona að blaðamaðurinn sjái sér fært að lesa þennan texta og meðtaka eitthvað af efni hans þrátt fyrir að sá sem þetta skrifar frá Kambódíu hafi aðeins verið frétta- ritari Morgunblaðsins um tíma í Peking en ekki blaðamaður í hinni rósrauðu Reykjavík. SVEINN ÓSKAR SIGURÐSSON, bA í heimspeki og hagfræði, við- skiptafræðingur MBA. Kjaftæðið og kjarkurinn Frá Sveini Óskari Sigurðssyni Sveinn Óskar Sigurðsson BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ of- arlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeild- ar. Móttaka aðsendra greina Til sölumeðferðar u.þ.b. 2,5 ha skógivaxið eignarland með eldra húsi nefnt Lundur í Kollafirði Reykjavík. Nú er tækifæri fyrir þá sem kjósa að búa nálægt borginni og vilja jafnframt njóta kyrrðar náttúrunnar, að eignast land við Esjurætur. Mögulegur byggingaréttur fyrir 2 hús. TILBOÐ ÓSKAST. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM / Fasteignamidstodin.is. 110452 Lundur - Kollafirði Fasteignamiðstöðin er með til sölu vatnsfall og land á Snæfellsnesi þar sem fyrir liggur framkvæmdaleyfi fyrir 655 KW virkjun. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu FM sími 550-3000 Nánari upplýsingar á skrifstofu FM / Fasteignamidstodin.is. 110452 VILTU GERAST ORKUBÓNDI?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.