Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.07.2010, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010 ✝ GuðmundurKarlsson fæddist 1. desember 1926 á Vatneyri við Patreks- fjörð. Hann lést 14. júlí 2010. Foreldrar hans voru Karl Guðmunds- son, f. 1885 í Arn- kötludal í Stranda- sýslu, d. 1982, lengst af bóndi á Valshamri í Geiradal og Ingibjörg Sumarliðadóttir, f. 1899 á Bakka í Geira- dal í Reykhólasveit, d. 1989, kennari og húsmóðir. Systk- ini Guðmundar voru: Loftur, f. 1926, (tvíburabróðir) dó tveggja daga, Jóhanna Friðrika, f. 1928, Guðbjörg, f. 1929, d. 2005, og Sig- ríður, f. 1934. Eftirlifandi eiginkona Guð- mundar er Erla Sörladóttir, f. 1931 á Gjögri í Árneshreppi í Stranda- sýslu. Þau gengu í hjónaband 30. desember 1950. Erla er dóttir Sörla Hjálmarssonar, f. 1902, d. 1984, og Guðbjargar Pétursdóttur, f. 1905, d. 1987. Dætur Guðmundar og Erlu eru: 1) Guðbjörg Ásta, f. 1950, m. Hjörtur Jóhannesson, f. 1955, d. 1995, þau slitu samvistir. Börn: Iðnskólanum árið 1949 og vorið 1950 útskrifaðist hann sem vélfræð- ingur frá Vélskóla Íslands. Á náms- árum sínum kynntist hann eig- inkonu sinni Erlu og hófu þau búskap haustið 1950 í Karfavogi 21. Sumarlangt 1950 var hann vélstjóri á línuveiðiskipinu Ármanni. Sam- hliða námi vann Guðmundur í Vél- smiðju Kristjáns Gíslasonar og haustið 1950 fór hann aftur þangað til starfa og vann þar í tvö ár. Haustið 1952 réði hann sig til vél- stjórnarstarfa við Laxárvirkjun í Aðaldal og í kjölfarið flutti fjöl- skyldan búferlum norður. Árið 1987 lét Guðmundur af störfum vegna aldurs og fluttu þau hjónin þá aftur til Reykjavíkur. Guð- mundur var hagur til munns og handa. Hann hafið gaman af að tálga úr tré og smíðaði einnig úr málmum. Skeifur sló hann í mörg ár. Guðmundur hafið gaman af tón- list og kveðskap og kunni mikið af vísum og gat sett saman bundið mál. Harmónikku átti hann til margra ára og um tíma rafmagns- orgel og spilað hann á hljóðfærin sér til gamans. Hann hafði áhuga á trjárækt og sinnti henni vel við heimili sitt í Aðaldal. Síðustu ár hrakaði heilsu Guð- mundar og frá apríl í vor dvaldi hann því á hjúkrunarheimilinu Eir. Nokkrum dögum fyrir andlátið veiktist Guðmundur af lungnabólgu og var þar við ofurefli að etja. Guðmundur var jarðsunginn frá Árbæjarkirkju 22. júlí 2010. Guðmundur Vet- urliði, f. 1972, og Brynjar, f. 1977. Syn- ir Brynjars: Óli Freyr, f. 1999, og Andri Snær, f. 1999. 2) Ingibjörg, f. 1955, m. Jerzy Goldberg, f. 1954. Börn: Rebecca Franceska, f. 1984, og Adam Efraim, f. 1986. 3) Sólveig Jóhanna, f. 1956, m. Gunnar Gestsson, f. 1955, d. 2010. Börn: Sigríður Lára, f. 1979, Torfi, f. 1983, og Grímur, f. 1989. Sigríður Lára er gift Lýði Skúla Erlends- syni, f. 1970, og börn þeirra eru Arnbjörg Júlía, f. 2005, og Kolbeinn Valur, f. 2007. 4) Katrín, f. 1961, m. Árni Freyr Sigurlaugsson, f. 1959. Börn: Frigg, f. 1992, Iðunn, f. 1997, og Sigurlaug, f. 2001. 5) Erla Rúna, f. 1969, m. Jens Guðfinnsson. Börn: Ingvar, f. 1999, og Silja, f. 2007, sonur Jens er Birgir, f. 1987. Guð- mundur ólst upp á Valshamri í Geiradal. Árið 1945 hélt hann til Reykjavíkur til náms í vélvirkjun hjá Kristjáni Gíslasyni sem rak vél- smiðju við Nýlendugötu 15. Guð- mundur lauk prófi í vélvirkjun frá Guðmundur Karlsson tengdafað- ir minn er látinn 83 ára að aldri. Líf hans var gott og átti hann góða að sem hugsuðu vel um hann. Fyrst er að nefna perluna hana Erlu Sörladóttur, eiginkonu hans til nærri 60 ára en þau hefðu átt demantsbrúðkaupsafmæli 30. des- ember nk. Það var mikil gæfa fyrir Guðmund að ná í Erlu því betri kona er vandfundin, með fullri virðingu fyrir öðrum konum. Erla reyndist Guðmundi góður félagi og var honum stoð og stytta í lífsins ólgusjó. Guðmundur og Erla voru fljót að ávaxta sitt pund því fyrsta dóttir þeirra af fimm, Guðbjörg, fæddist á fyrsta ári hjúskapar þeirra. Þau hjón studdu vel við bak dætra sinna og aðstoðuðu þau þær eftir bestu getu. Guðmundur átti við lát sitt 12 barnabörn og fjögur barnabarnabörn og það fimmta mun fæðast nú í júlí. Hann var mjög stoltur af þessu ríkidæmi. Þegar barnabörnin komu í heim- sókn gaukaði hann að þeim pen- ingum og sagði: „Setja í bauk.“ Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja og voru dætur þeirra dug- legar að heimsækja þau. Yfirleitt fóru gestir frá þeim vel mettir í mat og drykk. Oftar en ekki sat Guðmundur við stofuborðið þegar gesti bar að og ég minnist þess þegar hann sá Katrínu dóttur sína í dyrunum og sagði: „Ljósið mitt, ljúktu við krossgátuna fyrir mig,“ en hann kallaði Katrínu ljósið sitt. Oft var glatt á hjalla í eldhúsinu í Hraunbænum þegar dæturnar voru í heimsókn og spjölluðu við móður sína. Guðmundur sat þá við stofuborðið og las blöðin eða réð krossgátu og hlustaði með athygli á umræðurnar og sagði „kerlinga- snakk“ og hristi höfuðið en hafði gaman af að hlusta á umræðurnar í eldhúsinu. Guðmundur var einnig mjög lánsamur með systur sínar, Hönnu, Gullu og Siggu. Þær voru honum kærar og voru þau systkini dugleg að halda sambandi, ekki síst eftir að Guðmundur flutti suð- ur árið 1987. Guðmundur hafði áhuga á skáldskap og kunni heil- mikið af vísum og átti það til að fara með stöku þegar tilefni var til. Móðir hans, Ingibjörg, var hagyrð- ingur góður og gáfu börn hennar út ljóðabók með ljóðum hennar ár- ið 1990. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Guðmundi og fengið að taka þátt í lífshlaupi hans og hve góður afi hann var dætrum mínum. Hann er eflaust á góðum stað núna og mig grunar að hann sé að ráða krossgátu og hann má með sönnu horfa yfir jarðvist sína með gleði og stolti með ríkidæmi sitt í börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Ég votta að- standendum samúð mína. Mig langar að enda þessa hugleiðingu á ljóði eftir móður Guðmundar, Ingi- björgu Sumarliðadóttur sem heitir Söknuður: Ég hugsa þig hjá mér sem farinn ert frá mér, og faðminn út breiði, en auðninni kaldri ég atlotin greiði. Með tárum ég kalla, þau titra og falla á tregans vegi. Hvort heyrir þú mig eða heyrir þú eigi? En sorgbitinn huga má harmur ei buga, sú huggun er stærri, að Herrann þig geymir og Hann er mér nærri (Ingibjörg Sumarliðadóttir) Árni Freyr Sigurlaugsson. Mig langar að kveðja minn kæra bróður, Guðmund, með nokkrum orðum. Við, sem sátum hjá honum dag- inn áður en hann lést, vissum að hverju stefndi. Ég vaknaði um nóttina, einmitt á sama tíma og hann lést og heyrði eins og klukknahljóm og í huga minn kom sú hugsun skyldi þetta vera hans andlátsstund. Lína úr ljóði rifjaðist upp fyrir mér: „Frelsari minn, er klukkurnar mig kalla/kveð ég og flyt í bústað minn hjá þér.“ Margar eru minningarnar frá okkar glöðu æskudögum á Vals- hamri „Tilveran var traust og hlý.“ Við krakkarnir vorum látnir hjálpa til en frítímarnir voru nýttir í leiki og ólmagang. Mummi, eins og hann var kallaður, lét okkur syst- urnar finna fyrir aga með ýmsu móti sem eldri bróðir, t.d. með því að leysa svuntuböndin ásamt því að halda nákvæma skrá yfir óhöpp mín þar sem mér hætti til að fram- kvæma fyrst og hugsa síðan. Eitt sinn fékk hann að fara í póstferð með afa, Sumarliða Guð- mundssyni pósti. Hans póstferð var um vesturkjálkann með enda- stöð á Bíldudal. Ég öfundaði Mumma afar mikið, að fá að fara þessa ferð, en öll fengum við okkar skerf af sælgætinu sem ýmsir höfðu gefið honum. Hugur Guðmundar stóð ekki til búskapar og leið hans lá í Iðnskól- ann og síðar í Vélskólann í Reykja- vík. Var ég þá einnig hér syðra í skóla og hittumst við oft hjá Guð- björgu Loftsdóttur frænku og fjöl- skyldu hennar. Enda tók Guð- mundur verklegt nám í Vélsmiðju Kristjáns Gíslasonar en Kristján var kvæntur Ingibjörgu dóttur Guðbjargar. Á þessum árum kynntist Guðmundur sinni ágætu konu Erlu Sörladóttur, ættaðri af Ströndum. Að námi loknu fluttu þau norður að Laxárvirkjun þar sem hann starfaði sem vélstjóri. Þau höfðu góða aðstöðu þar og í því fallega umhverfi ólu þau upp dætur sínar fimm. Ógleymanlegar voru ferðir okkar norður til þeirra og móttökur alltaf frábærar. Stórfjölskyldan hittist líka stundum á Valshamri, meðan foreldrar okkar bjuggu þar og Guðbjörg systir bjó með sinni fjöl- skyldu á næsta bæ. Er hann komst á eftirlaun fluttu þau aftur suður og bjuggu sér fal- legt heimili hér syðra. Eitt mesta tilhlökkunarefni okk- ar systkinanna þegar við vorum lít- il var hin árlega Borgarferð er við fórum að heimsækja ömmu og afa og skyldfólkið á Borg. Þau gátu séð hersinguna koma yfir „Vað- alinn“ og heim að bænum. Allir komu út á móti okkur og það varð fagnaðarfundur. Þannig vil ég trúa að hafi verið núna – að það fólk sem farið er á undan yfir í eilífðina hafi fagnað honum. Guðs orð segir oft „Hann safn- aðist til síns fólks“, „Þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti.“ Fyrir aðeins tveimur mánuðum fylgdu þau hjónin tengdasyni sín- um til grafar og nú er enn sorgar- og saknaðarstund. Ég vil þakka bróður mínum alla hlýjuna, kærleikann og hjálpsem- ina fyrr og síðar. Mæli ég þar einn- ig fyrir munn Sigríðar, systur minnar. Einnig viljum við af alhug þakka okkar kæru mágkonu Erlu sem var honum frábær lífsföru- nautur og studdi hann og hjúkraði jafnvel mikið lengur en heilsa hennar leyfði. Henni, dætrunum og fjölskyldunni allri vottum við inni- lega samúð. Jóhanna Karlsdóttir. Guðmundur Karlsson HINSTA KVEÐJA Afi okkar var mjög góður maður og við söknum hans mik- ið. Hann tók alltaf vel á móti okkur og geymdi sérstaklega fyrir okkur klink uppi á skáp og oftast fylgdu einhverjir seðlar með því hann var mjög örlátur maður. Við elskuðum hann mjög mikið og munum aldrei gleyma honum. Hvíl þú í friði, elsku afi. Frigg, Iðunn og Sigurlaug. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ Elskulegur faðir minn, BJARNI JÓNSSON fyrrv. leigubifreiðarstjóri, Akureyri, lést þriðjudaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Höfðakapellu þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.30. Rósa Bjarnadóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ERLA KRISTBJÖRG GARÐARSDÓTTIR, Sunnuflöt 8, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á líknar- og vinafélagið Bergmál, reikningur 117-26-1616, kt. 490294-2019. Ágúst Karlsson, Kristín Jóhanna Ágústsdóttir, Ásta Karen Ágústsdóttir, Ágúst Karl Ágústsson, Katrín Jónsdóttir, Hekla Karen Pálsdóttir, Elfa Sól Ágústsdóttir, Gabríela Rós Ágústsdóttir. ✝ Bróðir okkar, MIKAEL ÖRLYGUR ÁSBJÖRNSSON, Aðalgötu 1, Suðureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 20. júlí. Útförin fer fram frá Suðureyrarkirkju þriðjudaginn 27. júlí kl. 14.00. Hulda Hafnfjörð, Jónína Ásbjarnardóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, sonur, stjúpsonur, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi, JAKOB SMÁRI prófessor í sálfræði, Safamýri 25, Reykjavík, lést mánudaginn 19. júlí. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 28. júlí kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Guðbjörg Gústafsdóttir, Bergþór Smári, Anna Júlíusdóttir, Örlygur Smári, Svava Gunnarsdóttir, Bergþór Smári, Unnur Jakobsdóttir Smári, Friðrik Magnus, Andri Valur Sigurðsson, Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, Erla Bergþórsdóttir Smári, Thomas Mathiesen, Júlíus Smári, Bryndís Kristjánsdóttir, Malín, Gunnar Berg, Jakob Þór, Heba, Hrönn, Tómas, Davíð, Sara Lind og Bryndís Ýr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.