Morgunblaðið - 24.07.2010, Síða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2010
✝ Sveinn Karlssonfæddist í
Reykjavík 31. des-
ember 1944. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu, Skóg-
um 2, Vopnafirði,
mánudaginn 12. júlí
2010.
Foreldrar hans
voru Bergþóra Sig-
marsdóttir frá
Krossavík í Vopna-
firði, f. 6. sept-
ember 1916, d. 1.
ágúst 2007 og Karl
Sveinsson frá Hvílft í Önund-
arfirði, f. 15. maí 1922, d. 24.
júlí 1980. Systkini Sveins eru:
Ásdís, f. 1947, Sigmar, f. 1949
og Sigríður, f. 1957.
Sveinn kvæntist 1968 Auði H.
Jónsdóttur, þau skildu. Börn
þeirra eru: a) Áslaug, f. 11.12.
1966, maki Heimir Helgason.
hann í Hvalstöðinni í Hvalfirði
og starfaði þar að námi loknu.
Faðir hans var skrifstofustjóri
hjá Hvali hf. og dvaldi fjöl-
skyldan þar sumarlangt til 1965.
Sveinn stofnaði og rak ásamt
öðrum bílaverkstæði í Reykjavík
og vann um tveggja ára skeið
hjá Vökli hf. við bílaviðgerðir.
Starfaði á tímabili á þjónustu-
bifreiðum FÍB. Árið 1974 fluttist
hann með fjölskyldu sína til
Vopnafjarðar þar sem hann varð
verkstæðisformaður á Bílaverk-
stæði Kaupfélags Vopnfirðinga.
Hann tók síðar yfir rekstur
verkstæðisins og rak það í nokk-
ur ár. Eftir að hann hætti þeim
rekstri tók hann að sér starf
vélagæslumanns hjá útgerð-
arfélaginu Tanga hf. Árið 2000
gerðist hann starfsmaður Vega-
gerðarinnar og starfaði þar allt
til haustsins 2009 er hann lét af
störfum.
Útför Sveins Karlssonar fer
fram frá Vopnafjarðarkirkju í
dag, 24. júlí 2010, og hefst at-
höfnin kl 11.
Dætur þeirra eru
Hrefna Ösp og
Magnea Petra. b)
Karl, f. 25.5. 1968.
c) Sveinn Auðunn, f.
21.10. 1975, maki
Sara Jenkins. Börn
þeirra: Bergþóra
Marín og Magnús
Örvar. Sonur Sveins
er Daníel Freyr. d)
Guðrún, f. 21.6.
1977, maki Svanur
Trausti Aðal-
geirsson. Börn
þeirra: Karen Ósk,
Bergur Snær og Arney Rósa.
Sveinn ólst upp í Reykjavík,
en tengdist snemma Krossavík í
Vopnafirði, þar sem hann kom
oft í sveit á sumrin til afa síns
og ömmu, Sigmars og Sigríðar.
Hann útskrifaðist sem vélvirki
frá Iðnskólanum í Reykjavík en
verklega hluta námsins lærði
Elsku besti afi okkar.
Við eigum erfitt með að trúa því að
þú sért farinn frá okkur.
Við eigum margar góðar minningar
um þig sem við geymum í hjartanu,
við vonum að Guð passi þig vel fyrir
okkur.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín afabörn,
Karen Ósk, Bergþóra Marín,
Magnús Örvar, Bergur Snær
og Arney Rósa.
Sveinn Karlsson, frændi minn og
vinur, er floginn til fegri landa, fyrr en
tilefni var til. „Allt sem á sér upphaf
hefur einnig endi“ sagði ítalski heim-
spekingurinn Seneca, sem var uppi á
sömu tímum og frelsari mannkynsins.
Þannig er lífshlaupið. Þegar það hefst
vitum við það eitt að á einum stað lýk-
ur því og eilífðin tekur við.
Við Svenni Karls, eins og hann var
oftast nefndur, erum komnir af
Gromsurum í Bolungarvík, sem eru
stór og mikil ætt með sterk persónu-
einkenni, sem hann fór ekki varhluta
af. Þó svo að hann hafi búið á Vopna-
firði allar götur frá 1974 þá hélt hann í
margt af því besta sem Gromsara
klæðir, eins og góðmennsku, hjálp-
semi, dugnað og jákvæða afstöðu til
allra manna. Móðurætt Sveins er frá
Krossavík í Vopnafirði og ungur fór
hann með Bergþóru móður sinni og
systkinum austur á sumrin meðan
pabbi hans, Karl Sveinsson, var skrif-
stofustjóri í Hvalnum í Hvalfirði. Þau
ár mótuðu framtíð hans og ljóst er að
segulmagnið í Vopnafirði dró hann til
sín af fullum þunga. Þar fann Sveinn
sig enda átti hann þar góða að og bjó
um sig til framtíðar.
Í honum bjó sterkur Vopnfirðingur
sem blandaðist vel við Gromsaraeðlið
úr Víkinni vestra. Sveinn var náttúru-
barn og veraldlegir hlutir voru eitt-
hvað sem hann gat verið án. Góð veiði
eða vélsleðaferð á fjöllum á vetrum
var honum dýrmætari en seðlar á
sparisjóðsbók. Hann var ekki fyrir að
láta bera á sér og prjál átti engan veg-
inn við hann. Sveinn var vinur vina
sinna og traustur frændi. Ég á góðar
minningar um stundirnar þegar við
vorum litlir hnokkar og lékum okkur
saman í fjölskylduboðum. Böndin
sem þá sköpuðust héldu alla ævi. Með
honum er genginn góður vinur,
tryggur frændi og traustur drengur.
„Ber er hver að baki nema sér bróður
eigi“ segir í Njálu. Það verða mín
lokaorð um þennan frænda minn.
Við sendum börnum hans, syst-
kinum og fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðar- og frændkveðj-
ur á sorgarstundu.
Áslaug og Jón Hákon
Magnússon.
Sveinn Karlsson
Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 3
Hafnarfirði, Sími: 822 4774
legsteinar@gmail.com
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns,
bróður, mágs og frænda,
VIGGÓS JÓSEFSSONAR,
Laugalæk 1.
Sérstakar þakkir til séra Bjarna Karlssonar,
Ragnheiðar Linnet, Rúnars Geirmundssonar,
starfsfólks Skjóls, 5. hæð, og allra sem hjálpuðu á
einn eða annan hátt.
Guð blessi ykkur öll.
Sigrún Ingunn Þorsteinsdóttir,
Guðjón Jósefsson, Vilborg Sigurðardóttir,
Elín Magnúsdóttir
og systkinabörn hins látna.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýjar kveðjur vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MÖGNU GUNNARSDÓTTUR
húsfreyju,
Egilsstöðum 3.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkra-
hússins á Egilsstöðum fyrir góða umönnun.
Jón Egill Sveinsson,
Sveinn Jónsson, Jóhanna Illugadóttir,
Gunnar Jónsson, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir,
Egill Jónsson, Anna Guðný Eiríksdóttir,
Þröstur Jónsson,
Róbert Jónsson,
Björn Jónsson, Annamaria Cusenza,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, systur, mágkonu,
ömmu og langömmu,
ÁSLAUGAR JÓNSDÓTTUR,
Unnarbraut 26,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11-E á
Landspítalanum og Karitas hjúkrunarþjónustu, fyrir
stuðning og aðhlynningu.
Jón Oddur Magnússon,
Magnús Ingi Magnússon, Aðalheiður Björk Olgudóttir,
Inga Lára Hjaltadóttir, Elías Árnason,
Þórður Jónsson, Björg Kofoed-Hansen,
Margrét Þórunn Jónsdóttir, Björgvin H. Fjeldsted,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞORBJARGAR GEORGSDÓTTUR,
frá Miðhúsum í Breiðuvík,
síðast til heimilis að,
Hólabraut 19,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Drafnarhúss og
Hrafnistuheimilanna fyrir góða umönnun.
Jón Guðmundsson, Áslaug Garðarsdóttir,
Lára Guðmundsdóttir, Guðbjartur Daníelsson,
Jenný Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
ÁSU ÁSTHILDAR HARALDSDÓTTUR,
Fögrukinn 30,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11B á
Landspítala og Karitas hjúkrunarþjónustu.
Jóhann Reynir Björnsson,
Andrés Eyberg Jóhannsson, María Ingibjörg Kjartansdóttir,
Jens Jóhannsson, Guðrún Árný Árnadóttir,
Jón Gunnar Jóhannsson, Katrín Rut Árnadóttir,
Þór Reynir Jóhannsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
RANNVEIG KRISTINSDÓTTIR,
Veiga,
áður til heimilis að,
Yrsufelli 7,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
mánudaginn 26. júlí kl. 13.00.
Sigurbjörn Bjarnason,
Sigríður Erla Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna fráfalls okkar ástkæru eiginkonu,
frænku, ömmu og langömmu,
MJALLAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Ólafur Steinar Björnsson
og fjölskylda.