Morgunblaðið - 31.07.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010
Engidalur –
Marardalur
Mánudaginn 2. ágúst
verður farin gönguferð
um Engidal og inn í
Marardal í vestanverðum
Henglinum. Rifjaðar verða upp sögur af útilegumönnum á þessu
svæði. Gangan tekur fjórar til fimm klukkustundir. Mæting í Hellis-
heiðarvirkjun við Kolviðarhól klukkan 13:00. Þátttaka er ókeypis og
allir velkomnir. Leiðsögumaður er Hans Benjamínsson, kynningarfull-
trúi Hellisheiðarvirkjunar.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
07
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Már Guðmundsson, seðla-bankastjóri Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, hefur ekki miklar
áhyggjur af því þó að Moody’s hafi
breytt horfum úr hlutlausum í nei-
kvæðar.
Hann bendir á að vöxtur sé í hag-kerfinu, verðbólgan fari
minnkandi og að vænst sé af-
greiðslu á þriðja
hluta áætlunar
Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins í sept-
ember.
Hann lítureinnig svo á
að Icesave-deilan
hafi óveruleg
áhrif, enda hafi
ekkert nýtt neikvætt komið fram í
málinu að undanförnu.
Allt er þetta ákaflega athygl-isvert, ekki síst þó hve jákvæð-
ur Már er orðinn til þróunar í
efnahagsmálum landsins þrátt fyr-
ir að Icesave-deilan sé enn óleyst.
Þá vekur sérstaka athygli aðhann telji þá deilu hafa óveru-
leg áhrif, því að fyrir nokkrum
mánuðum taldi Seðlabankinn að
himinn og jörð mundu farast ef
forseti Íslands neitaði að undirrita
Icesave-lög ríkisstjórnarinnar sem
varð til þess að þjóðin felldi þau í
atkvæðagreiðslu.
Seðlabankinn hélt því fram þá – ípöntuðu áliti sem samið var
fyrir ríkisstjórnina – að gengið
mundi veikjast, verðbólga vaxa og
vaxtalækkunarferli nema staðar ef
almenningi yrði leyft að fella lög
ríkisstjórnarinnar.
Þróunin síðan hefur verið alvegþveröfug og hrakspárnar
vegna Icesave hafa allar reynst
hreinn og ómengaður hræðslu-
áróður.
Már Guðmundsson
Hræðsluáróðurinn hrakinn
smárétti í afar vistlegu umhverfi.
Segja má að talsverður miðbæj-
arbragur sé kominn á Hvamms-
tanga, með þessari þjónustu, ásamt
selaskoðun, galleríi, verslunarmið-
stöð KVH og annarri afþreyingu.
Utanfarir fólks og fækkun
landsmanna eru nú í umræðu. Einn
húnvetnskur hópur gæti talist þar í
flokki, rúmlega 50 manns. Karlakór-
inn Lóuþrælar hefur á liðnum mán-
uðum búið sig undir krefjandi verk-
efni, sem er ferð kórsins til
Winnipeg í Kanada nú um mán-
aðamótin. Kórinn verður fulltrúi Ís-
lands á tveim þjóðhátíðum, bæði í
Gimli og í Norður-Dakota. Söng-
skráin er með perlum íslenskra
karlakórslaga í bland við léttari lög,
aðallega eftir íslenska höfunda.
Söngstjóri Lóuþræla er Guðmundur
St. Sigurðsson og Elinborg Sig-
urgeirsdóttir er undirleikari á píanó.
Einsöngvari kórsins, Guðmundur
Þorbergsson, mun syngja „Þótt þú
langförull legðir“ fyrir þúsundir
gesta í Gimli.
Innan kórsins er valið lið hljóð-
færaleikara, sem eflaust mun slá inn
í dansstemmingu á viðeigandi stund-
um. Ferðin tekur um tíu daga og
vonast allir til að ná aftur landi, svo
ekki verði um þjóðflutninga að ræða.
Eldur logaði vel
í Húnaþingi
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Vel merkt Gallerí Bardúsa á Hvammstanga þykir afar áhugavert.
ÚR BÆJARLÍFINU
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstangi
Eldur í Húnaþingi – hátíð unga
fólksins í Húnaþingi vestra – var
dagana 22. til 25. júlí. Hópur fólks
skipuleggur og stjórnar dagskrá
þessara daga, og þótti nú takast afar
vel til, í frábæru veðri.
Stóratburðir voru m.a. tón-
leikar Regínu Óskar í Borgarvirki á
föstudagskvöld, mikill mannfjöldi
kom á svæðið og varð nokkurt um-
ferðaröngþveiti. Fjöldi gesta var í
héraðinu og tjaldsvæðið í Kirkju-
hvammi nánast fullt. Ösin í Kaup-
félaginu minnti helst á Þorláks-
messu að vetri. Skipuleggendur
höfðu skipt staðnum og sveitum nið-
ur í svæði, sem merkt skyldu litum á
sem hugvitsamlegastan hátt. Mælt-
ist þetta vel fyrir og Rauða hverfið
vann farandbikar.
Kaffihúsið Hlaðan var opnað í
nýuppgerðri hlöðu Sigurðar Pálma-
sonar kaupmanns, einnig er und-
irlagt fjós og önnur fjölnota rými.
Vertinn, María Sigurðardóttir segist
hafa fengið húsnæðið í afmælisgjöf
frá bónda sínum. Býður hún upp á
heimabakað kaffibrauð, súpur og
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur
yfir sér alþjóðlegan brag en þar býr
fólk af 31 þjóðerni ef heimamenn eru
meðtaldir. Íbúafjöldinn er um 4.200
manns og af þeim eru 176 erlendir
ríkisborgarar skráðir, flestir þeirra
pólskir eða 34. Þjóðverjar eru næst-
fjölmennastir, 18 að tölu, og frá Dan-
mörku koma 14 manns.
Þessar upplýsingar koma fram í
verkefni sem unnið er að í Húsi frí-
tímans. Að sögn Maríu Bjarkar
Ingvadóttur frístundastjóra gengur
verkefnið út á að hafa samband við
alla íbúa með erlent ríkisfang og
kynna þeim tómstundir og afþrey-
ingu sem í boði eru í Skagafirði.
Einnig að kynna fólk frá sama
landi, efla menningu í Skagafirði og
halda vel utan um þá sem þar búa.
Verkefnastjóri er Kinga Biskupska
frá Póllandi.
Svo nefnd séu fleiri þjóðerni þá
búa átta Svíar í Skagafirði, sjö Serb-
er, fjórir Bandaríkjamenn og jafn-
margir frá Úkraínu. bjb@mbl.is
Sveitarfélagið Skagafjörð-
ur með íbúa af 31 þjóðerni
Veður víða um heim 30.7., kl. 18.00
Reykjavík 16 léttskýjað
Bolungarvík 16 skýjað
Akureyri 13 skýjað
Egilsstaðir 16 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 15 skýjað
Nuuk 8 skúrir
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 18 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Helsinki 22 skýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 17 skúrir
Glasgow 17 léttskýjað
London 22 heiðskírt
París 23 heiðskírt
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 18 skýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 18 skýjað
Moskva 28 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 35 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 skýjað
Róm 25 skýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 21 alskýjað
Montreal 17 skýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 22 alskýjað
Orlando 33 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:32 22:37
ÍSAFJÖRÐUR 4:15 23:05
SIGLUFJÖRÐUR 3:57 22:48
DJÚPIVOGUR 3:56 22:12