Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010 Samheitalyf Í sjónvarpinu í gær- kvöldi sagði fulltrúi Ac- tavis að ekki væri hætt að framleiða lyf nema fáir notuðu þau. Þetta er ekki rétt. Mjög margt eldra fólk hefur árum saman notað blóð- þrýstings- og vatnslos- andi lyfið Hydramil. Sjálf hef ég tekið eina töflu á dag af þessu lyfi í 30 ár og það hefur haldið blóðþrýstingi mínum og bjúg full- komlega í lagi. Fram- leiðslu þess var hætt og í staðinn kom samheitalyfið Miloride sem af- greiðslufólk í apótekum fullyrti að væri alveg eins. Þessu lyfi fylgja alveg hræðilegar aukaverkanir. Ég fæ svima, óþolandi höfuðverk og sjóntruflanir af að taka þetta lyf. Ég bað lækninn minn um eitthvað annað, en hann sagði að það væri ekki til. Ég spurði þá hvort ég gæti fengið Hydramil erlendis en hann sagði að það væri framleitt hér á landi. Hydramil hefur gegnum árin verið mjög ódýrt, en hefur þó hækkað nokkrum sinnum. Persónulega skiptir það mig öllu að fá þetta lyf, ekki hvað það kostar. Mig langar að leggja spurningu fyrir Actavis: Fyrst þið þurftuð að hætta að framleiða Hydra- mil, hvers vegna gátuð þið ekki haft samheitalyfið nákvæmlega eins? Hvað get ég gert í þessari stöðu? Með kveðju, Unnur Konráðs. Ást er… … að hvert stefnumót sé jafn spennandi og það fyrsta. Velvakandi Grétar Snær Hjartarson sendiumsjónarmanni kveðju: „Ég hef haft mikla ánægju af „Vísnahorni“ þínu í Morg- unblaðinu og því langar mig til að þakka fyrir mig með því að senda þér nokkrar vísur eftir vin minn Lárus Þórðarson, ef þú skyldir hafa einhverja ánægju af.“ Og bréfið er svohljóðandi, en fleiri vísur Lárusar munu gleðja lesendur á næstunni: „Mosfellingurinn Lárus Þórðarson söng í kirkjukór Lága- fellssóknar. Hann var orðinn leið- ur á að heyra sífellt lesna þessa sömu bæn sem flutt var í messu- lok og samdi aðra: Héðan aftur heim ég fer frá hugarvillu snúinn, drottinn Guð ég þakka þér að þessi messa er búin. Þegar Lárus stóð í húsbygg- ingum á sínum tíma, vantaði hann aðstoð við parketlögn og hringdi í vin sinn og sagði formálalaust: Þar sem ég býð hvorki þurrt né vott og þarf ekki að hugsa um borgun, þá held ég mér þætti nú helvíti gott að hafa þig hérna á morgun. Lárus fór til altaris við helgi- stund á Reykjalundi, en fannst messuvínið naumt skammtað. Hann sneri sér að presti, spennti greipar og sagði: Afar rýr er sérhver sopi svekktir þeir sem fá þetta. Það er varla að detti dropi Drottinn ætti að sjá þetta. Samkennari Lárusar við Álfta- mýrarskóla þótti nokkur þverhaus og var einnig mikill talsmaður þess að kennarar segðu sig úr BSRB. Í kosningum ávallt hann krossar við D og kynlegar skoðanir lætur í T, og nú vill hann ganga úr BSRB, mikill bölvaður þrákálfur held ég hann C.“ Vísnahorn pebl@mbl.is Af Lárusi og messum Að skrifa minningagrein Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina. Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar. Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til birtingar á mánudag og þriðjudag. Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000 tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum, þar sem þær eru öllum opnar. Stórfjölskylda Hér eru samankomnir fimm ættliðir í beinan kvenlegg, en það er ættmóðirin Ásta Ólafsdóttir (lengst til hægri og talið til vinstri), Sigurbjörg Helga Stefánsdóttir, Ásta Jensdóttir, Tara Sif Heimisdóttir, og heldur hún á yngstu konu ættarinnar Ástu Lilju Jónsdóttur. Ættmóðirin Ásta Ólafsdóttir verður níræð í janúar á næsta ári en Ásta Lilja Jónsdóttir verður ársgömul í september á þessu ári. Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞÚ ÞARFT AÐ ÞRÍFA BLETTINA Í LOFTINU EN ÞAÐ ER EKKI MJÖG AUÐVELT ÉG VILDI AÐ ÉG GÆTI GLEYMT ÖLLUM LEIÐINDUNUM HELGA, ÞAÐ ER EKKI SATT... ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI LENGUR! ÉG GERI EKKI ANNAÐ EN AÐ ELDA! ELDA! ELDA! ÞÚ EYÐIR LÍKA DEGINUM Í AÐ ÞRÍFA, ÞVO OG STRAUJA ÉG SÉ AÐ GRÍMUR GENGUR ENNÞÁ MEÐ ELVIS- HÁRKOLLUNA JÁ, ÉG TÓK EFTIR ÞVÍ ÉG HELD SAMT AÐ ÞAÐ SÉ FARIÐ AÐ STÍGA HONUM TIL HÖFUÐS NÚ? HÉRNA... HALTU Á TREFLINUM ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ BÍLLINN OKKAR HAFI VERIÐ DREGINN VIÐ NÁUM BARA Í HANN OG FÖRUM HEIM VIÐ ÞURFUM AÐ KOMAST Í BÍLAGEYMSLU LÖGREGLUNNAR Í AUSTURBÆNUM ÞAÐ LÍTUR EKKI ÚT FYRIR AÐ ÞETTA VERÐI AUÐVELT HVAÐ ERUM VIÐ AÐ BORGA BARNAPÍUNNI? Í AUSTURBÆINN? UM MIÐJA NÓTT? MIG LANGAR AÐ VITA HVERNIG HANN LÍTUR ÚT... UNDIR GRÍMUNNI!KÓNGULÓARMAÐURINN, DASAÐUR EFTIR HÖGGIÐ FRÁ ELECTRO, LIGGUR ÓSÉÐUR Í HÚSASUNDI... EÐA NÆSTUM ÓSÉÐUR... Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.