Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010
Frelsið er að svífa um
loftin blá í dauðaþögn
Margir skilja eflaust ekki af hverju menn eru reiðubúnir að láta draga sig upp í
mörg þúsund metra hæð til að treysta svifflugu án vélarafls til að skila sér aftur
niður á jörðina. Engu að síður er starfrækt öflugt svifflugfélag á Sandskeiði þar
sem tugir manna sem deila þessu áhugamáli koma saman þegar vel viðrar til að
stunda svifflug.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Feginn Alsæll að vera kominn á jörðina en hárgreiðslan ruglaðist í loftinu.
PRUFUTÍMI
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Skýjabakkinn læddist drungalega
yfir Vífilfellið í suðaustanáttinni
þegar ég keyrði upp á Sandskeið.
Ég hugsaði með mér að það versta
sem gæti komið fyrir mann í svif-
flugu sé að lenda í skýjum. Þá sér
maður ekkert og getur ekki stólað
á nein blindflugstæki til að redda
manni út.
Ég hafði nú ekki miklar
áhyggjur þegar á staðinn var kom-
ið því á móti mér tók hlýlegur mið-
aldra maður með rauðan hatt sem
var að ljúka við að borða pylsu og
kynnti sig sem Kristján Svein-
björnsson, formann Svifflugfélags
Íslands.
Við áttum knappt og gott
spjall um ástandið í flugheiminum í
dag en stigum svo upp í gamla
gula dráttarbifreið sem keyrði okk-
ur að svifflugunni.
Spenntur í fallhlíf
Svifflugan var tveggja sæta
Duo Discus með tuttugu metra
vænghaf, straumlínulöguð og fag-
urhvít. Hún lá tignarlega á túninu
en mér gafst ekki mikill tími til að
dást að henni því að mér veittust
tveir menn og spenntu á mig fall-
hlíf. Eftir stutta yfirferð um helstu
þætti fallhlífarstökks spurði ég:
„Er fallhlífin mikið notuð?“
– „Nei,nei, en svifflugur geta
brotnað í loftinu, þá opnarðu bara
fluguna og stekkur út.“
Þögn. Skelfing.
– „Fáðu þér nú sæti um borð.“
Ég klöngraðist um borð og
lagðist ofan í vélina. Sætin lágu
Fyrir þá sem hafa áhuga á umhverf-
inu, byggingarlist og hönnun er vef-
síðan archdaily.com síða sem heim-
sækja ætti daglega. Stöðugt birtast
nýjar myndir og upplýsingar af
merkilegum arkitektúr hvaðanæva úr
heiminum. Hvort sem um er að ræða
hæstu turna heims, stílhreinar íbúðir
eða áberandi listaverk gefst not-
endum síðunnar tækifæri til að lesa
sér til um fyrirbærið, skoða myndir af
því frá ótrúlegustu sjónarhornum og
koma með athugasemdir. Allar
færslur síðuhöfunda eru flokkaðar og
því er auðvelt að finna eitthvað við
sitt hæfi þótt viðkomandi hafi ekki
fylgst með frá byrjun. Til dæmis er
hægt að skoða veitingastaði sem
vakið hafa athygli fyrir tilkomumikla
hönnun eða verslanir sem þykja flott-
ari en gengur og gerist. Síðuhaldarar
hafa jafnframt skipt síðunni í nokkra
hluta og til viðbótar við hið daglega
flæði bygginga má einnig finna viðtöl
við arkitekta og hönnuði og tillögur
að bóklestri og hugbúnaði tengdum
áhugamálinu. Síðuhaldarar hafa
meðal annars útbúið undirsíðu með
sérvöldum byggingum og aðra með
klassískum byggingum en þar má
finna verk á borð við Eiffel-turninn í
París og óperuhúsið í Sydney. Við
fyrstu sýn virðist síðan eingöngu ætl-
uð starfandi arkitektum og innan-
hússhönnuðum en hún er einstaklega
skemmtileg fyrir auga áhugamanns-
ins og gerir öllum kleift að skoða
ótrúlegustu mannvirki jarðarinnar.
Vefsíðan www.archdaily.com
Hönnun Eiffel-turninn í París er ein þekktasta bygging heims.
Dagleg hönnun um allan heim
Nú stendur yfir mesta ferðahelgi árs-
ins og fólk flykkist út á land þar sem
margs konar hátíðir eru haldnar.
Gaman er að njóta sín í góðra vina
hópi og hafa það gott en að skemmt-
un lokinni er mikilvægt að muna eftir
náttúrunni. Ekki skilja eftir drasl út
um allt heldur gangið vel frá og hend-
ið rusli. Gott er að taka með sér
ruslapoka að heiman, safna síðan
saman í hann og henda svo þegar úti-
legunni lýkur. Passið líka einnota úti-
grillin, þau verða að vera ofan á
steinum eða á möl ef hægt er, hvort
heldur sem er, til að ekki kvikni í
grasinu.
Endilega...
...munið eftir
náttúrunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ófagurt Þetta er ekki fallegt að sjá.
Sæfari, félag áhugamanna um sjósport við Ísafjarðardjúp,
heldur Bátadaga í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp um versl-
unarmannahelgina. Þar mun félagið bjóða gestum og
gangandi að prófa hinar ýmsu tegundir af sjósporti. Hall-
dór Sveinbjörnsson, frumkvöðull í kajakróðri, og Torfi Ein-
arsson, einn af skútufrömuðum Vestfjarða, eru meðlimir í
Sæfara og eiga veg og vanda af Bátadögunum.
„Sæfari hefur staðið fyrir flottum útilífsnámskeiðum í
sumar þar sem hellingur af krökkum á ýmsum aldri hefur
verið að læra undirstöðuatriðin í siglingum og kajakróðri,
klettaklifur og fleira. Svona vill félagið bara þakka fyrir
sig,“ segir Halldór en fólki gefst kostur á að prófa kajak-
róður og siglingar sér að kostnaðarlausu. „Margur verður
af aurum api,“ segir Halldór og brosir breitt. „Sæfari vill
bara að fólk leiki sér og hafi gaman. Nú er kominn tími til að
krakkarnir taki hina fullorðnu með sér í sportið.“
Leikvöllur frá náttúrunnar hendi
„Seyðisfjörður er nánast umlukinn frá fjórum hliðum því
að eyrin sem gengur út í fjörðinn veitir frábært skjól. Þarna
er gott svæði fyrir krakka til að leika sér og fjörurnar í Fola-
fæti eru einstakar,“ segir Halldór og bætir við að nokkuð sé
um að hvalir komi í fjörðinn, rétt til að heilsa, og stöku sinn-
um fljúgi ernir yfir. Sæfari verður með skútur, gúmbáta, kaj-
aka og annan búnað í Seyðisfirði frá föstudagskvöldi og
fram á miðjan dag á mánudag og verður öllum sem leggja
leið sína um Seyðisfjörð velkomið að spreyta sig í alls konar
sjósporti. ingibjorgrosa@mbl.is
Bátadagar um verslunarmannahelgina
Allir sem vilja fá að spreyta sig í sjósporti
Sjóbusl Kolmari Halldórssyni leiðist ekkert þótt hann blotni stundum við æfingar í kajakróðri.
Það eru fleiri en við mennirnir sem
glíma við offitu en það hefur orðið
sífellt algengara síðastliðin ár að
gæludýr séu of feit. Nýjar rannsóknir
frá Englandi sýna að á milli 30 og
50% gæludýra séu of feit. Það er
vissulega dálítið auðveldara að
passa upp á dýr sem hægt er að fara
út að ganga með, eins og hunda, en
öðrum dýrum verður líka að fylgjast
með. Hamstrar verða yfirleitt ekki of
þungir þar sem þeir hafa ekki til-
hneigingu til að éta yfir sig. Þó er
gott að passa að gefa þeim ekki of
mikið, margir fylla skálina þeirra en
hamstrar þurfa yfirleitt aðeins um
matskeið af þurrfóðri á dag. Varast
skal að gefa þeim nokkuð of sætt
þar sem það getur valdið tannvanda-
málum og sykursýki. Þá er mikilvægt
að hamstrarnir geti hreyft sig að vild
og gott er að í búrinu þeirra séu mis-
munandi hlutir til hreyfingar, bæði
hjól, slár og annað.
Offita algeng meðal dýra
Krútt Hamsturinn þarf að hreyfa sig og borða ekki of mikið.
Passa þarf að gæludýrið fái
rétt fóður og góða hreyfingu
10 Daglegt líf