Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 33
Menning 33FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010  Í tilefni af góðviðri og hlýjum straumum mun Nýhil höfunda- forlag efna til götusölu á útgáfu- verkum sínum í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Útsendarar rithöf- undaforlagsins munu sitja fyrir góðborgurum á hverju götuhorni og pranga inn á þá bókverkum sín- um, segir á facebook-síðu götusöl- unnar. Götusala Nýhil í mið- borginni um helgina Fólk Fyrri hluti tónlistarhátíðarinnar Pönk á Patró fór fram í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í lok júní og fer annar hluti hennar fer fram laugar- daginn 7. ágúst næstkomandi. Hátíðin gengur út á virka þátttöku barna og unglinga sem gefst kostur á að eyða laugardegi með hljómsveit dagsins. Það var hljómsveitin Pollapönk sem reið á vaðið með tónlistarsmiðju fyrir yngri kyn- slóðina og tónleikum á fyrri hluta hátíðarinnar og vakti mikla lukku gesta á öllum aldri. Jóhann Ágúst Jóhannsson, skipuleggjandi Pönks á Patró, segir að fyrri hlutinn hafi heppn- ast ótrúlega vel. „Ég er mjög ánægður með að hafa gert þetta. Það var svo gaman að sjá ungu kynslóðina upp- lifa tónlist á sínum forsendum. Strákarnir í Pollapönkinu stóðu sig líka frábærlega. Sömdu t.d. lag með krökkunum sem fjallaði um sjóræn- ingja sem var vel við hæfi í Sjóræningjahúsinu.“ Um næstu helgi er það hjómsveitin Amiina sem kemur fram ásamt tónlistarmanninum 7oi. Amiina mun flytja frumsamda tónlist við sígildar hreyfiklippimyndir Lotte Reiniger um þau Þyrnirós, Öskubusku og Aladdín. Frítt er inn á dagskrá og tónleika dagsins en inn á kvöld- tónleikana kostar 1000 krónur fyrir fullorðna. Boðið verður upp á pössun fyrir foreldrana í Skjaldborgarbíóinu á meðan krakkarnir pönkast í tónlistarsmiðjunni. Að þessu sinni er það mynd- in Heima um tónleikaferð hljómsveitarinnar Sig- ur Rós um Ísland árið 2006 sem verður sýnd. matthiasarni@mbl.is Aftur boðið upp á pössun fyrir foreldrana á Patró Ljósmynd/MÁI Amiina Spilar undir myndum Lotte Reiniger.  Innipúkinn í Reykjavík og Sum- argleði Kimi records, sem verður á Ísafirði um helgina ætla að sama- eina krafta sína og samnýta nokkra listamenn sem ferðast munu á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Loftbrú hefur verið byggð á milli og munu Snorri Helgason og Nolo fara frá Ísafirði og spila á Innipúkanum á laugardag og á sama tíma kemur hljómsveitin Æla vestur á Sum- argleðina. Retro Stefson mun síðan fljúga til Reykjavíkur á sunnudags- morgun og taka þátt í Innipúk- anum. Á Ísafirði á laugardagskvöld mun síðan Stjörnuryk bætast í hóp- inn ásamt rapparanum Sesari A. Innipúkinn og Sumar- gleðin byggja loftbrú  Ball-hljómsveitin Mono gaf á dögunum út sína fyrstu breiðskífu. Platan inniheldur þekkta ball- og partíslagara og koma margir þjóð- kunnir einstaklingar fram sem gestasöngvarar, þar á meðal Magni, Matti Idol, Árni Johnsen og Sjonni Brink. Platan er frí til nið- urhals á vefslóðinni monotonlist.is. Ný plata frá ball- hljómsveitinni Mono  Kvikmyndahúsið Regnboginn er ekki enn búið að gefa upp öndina og nú vinna félgasamtökin Regn- boginn kvikmyndasetur að því að safna húsgögnum sem nýst gætu kvikmyndahúsinu fræga. Þeir sem hafa áhuga á að gefa húsgögn geta sent mynd af þeim í tölvupóst á netfangið regnbog- inn.kvikmyndasetur@gmail.com. Safna húsgögnum í Regnbogann „Tónlistin sem við spilum á rætur að rekja til hefðbundnari þjóðlagatónlistar í Gíneu-Bissau en við höfum átta tungumál með mismunandi hefðir og tónlistin kemur þannig úr suðupottinum sem menningin á svæðinu er.“ Endurvakin í Reykjavík Hljómsveitin hafði sem áður segir lagt upp laup- ana árið 1996 en það var í Reykjavík sem hug- myndin kviknaði að endurvakningu. „Íslenskir vin- ir okkar hjálpuðu okkur að finna fjármögnun og við slógum til og allir voru mjög spenntir,“ segir Zé og hlær góðlátlega en auðheyranlegt er að þeir í hljómsveitinni eru spenntir fyrir ýmsu hér á landi. „Ísland er mjög áhugavert, við ætlum að ferðast um landið og skoða ýmsa staði sem Geir fer með okkur á. Mig langar til þess að sjá eldfjallið,“ segir Zé og hlær sem fyrr en ekki er að furða vingjarn- legt viðmót Afríkumannsins frá vingjarnlega land- inu ef marka má orð heimamanna sem allir bera því vel söguna. Gekk kátur út í sumarnóttina Hljómsveitin kynnir okkur fyrir skemmtilegum hljóðfærum og ætlar sér að halda líflega tónleika. Stærstu tónleikar hennar verða á Nasa og er þeirri dagskrá lýst sem afrískri tónlistar- og dansveislu. Ef eitthvað má marka umsagnir um fyrri tónleika sveitarinnar hér á landi, árið 2008, þá ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum. Jóhann Ágúst Jóhanns- son skrifaði m.a. í Morgunblaðið það árið: „Sum- arleg tónlistin var fljót að ná til viðstaddra ... engin leið var að standa kyrr“ og þegar öllu er lokið finn- ur fólk sig kannski í sömu sporum og Jóhann þar sem hann „gekk kátur út í sumarnóttina, kóf- sveittur og með bros á vör.“ Afrískir hljómar til landsins, Super Mama Djombo  Afrísk tónlistar- og dansveisla verður haldin á NASA að hætti hitabeltisins Super Mama Djombo Frá vinstri Atchutchi, Miguelinho, Zé, Ivan, Fernando, Tino, að aftan og lengst til hægri Armando. Hljómsveitin Super Mama Djombo tók upp geisladiskinn ar purro hér á landi árið 2007 og spilaði ári síðar við góðar undirtektir. Nú ætlar hljómsveitin að halda tónleikaferðalag um landið en hún verður hér frá 29. júlí til 10. ágúst næstkomandi.  Þriðjudaginn 3. ágúst kl. 21 - Kaffi Rósenberg, Klapparstíg  Miðvikudaginn 4. ágúst kl. 20 - Slippfélagssalurinn, Mýrargötu 2, Inngangur Nema forum (órafmagnað)  Föstudaginn 6. ágúst kl. 22 - Nasa við Austurvöll. Afrísk tónlist- ar- og dansveisla.  Laugardaginn 7. ágúst kl. 22 - Græna hattinum, Akureyri  Sunnudaginn 8. ágúst kl. 21.30 - Landnámssetrinu, Borgarnesi (óraf- magnað) Spila mismunandi tónleika hérlendis AFRÍSK TÓNLISTAR- OG DANSVEISLA FRÁ GÍNEU-BISSAU Guðmundur Egill Árnason gea@mbl.is Hljómsveitin Super Mama Djombo frá Gíneu- Bissau á vesturströnd Afríku heldur fjöldatónleika víðs vegar um landið á næstunni, frá 3. ágúst til 8. ágúst. Hljómsveitin kom fyrst til landsins í nóv- ember árið 2007 að áeggjan íslenskra vina en hún hafði lagt upp laupana árið 1996. Þá tók hljóm- sveitin upp plötuna ar puro og kom svo á listahátíð árið 2008 og spilaði. Hrifnir af landi og þjóð „Þetta var upphafið að því að þessi hljómsveit hefur tekið til hendinni í Bissau og hefur núna verið að spila á ýmsum tónleikum. Þannig var þeim svo boðið að fara til Portúgal núna í ár og þegar þangað var komið fannst þeim þeir vera komnir hálfa leið- ina til Íslands og ákváðu að koma hingað aftur. Þeir eru mjög hrifnir af landi og þjóð og aðstandendur hljómsveitarinnar hérlendis hafa hjálpað henni að láta þetta rætast,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir en hann hefur starfað í Gíneu- Bissau sem læknir og kynntist þar m.a. Zé Manel, einum forsprakka sveit- arinnar sem lagði áherslu á hve vænt þeim þætti um Ísland. „Við komum til Íslands vegna vina sem við eigum hérna, t.d. Geirs, en með okkur tókst öllum góð vinátta. Okkur finnst frábært að vera hérna og allir eru svo opnir og skemmtilegir. Okkur líður eins og heima,“ segir trymbill sveitarinnar, Zé Manel, en landið hans er eins frábrugð- ið Íslandi og tónlistin sem spratt þaðan. Zé Manel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.