Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.07.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010 Orð dagsins: Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2. Tím. 3, 15.) Krossgáta Lárétt | 1 grískur bók- stafur, 4 næða, 7 skoðaði vandlega, 8 á spjóti, 9 spil, 11 sleit, 13 óánægjuhljóð, 14 matnum, 15 kostar ekkert, 17 blíð, 20 sár, 22 matreiðslumanns, 23 slitni, 24 gabbi, 25 öskri. Lóðrétt | 1 hreinsar, 2 áhalds, 3 lengdareining, 4 eimur, 5 komu út, 6 sigar, 10 klakinn, 12 hæfur, 13 vindblær, 15 einföld, 16 urg, 18 kon- ungur, 19 digri, 20 tjón, 21 mýrarsund. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tilgreina, 8 smuga, 9 rífur, 10 tíð, 11 ranga, 13 innar, 15 besta, 18 illar, 21 kið, 22 rætur, 23 játað, 24 titringur. Lóðrétt: 2 Iðunn, 3 glata, 4 eirði, 5 nefin, 6 ósar, 7 frúr, 12 get, 14 Níl, 15 borð, 16 sótti, 17 akrar, 18 iðjan, 19 látnu, 20 ræða. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert skýjum ofar því draumar þínir eru við að rætast. Dagurinn er til- valinn til hópvinnu eða fundahalda. Slak- aðu vel á í kvöld. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú heyrir hugsanlega eitthvert slúður um vin í dag. Lokaðu bara eyr- unum. Hamingjan eltir þig á röndum seinni part ársins. Ferðalag er í kort- unum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það getur verið ákaflega gefandi að sinna öðrum þörfum en sínum eigin. Ekki er víst að allir skilji það, en það skiptir engu máli. Þú ferð það sem þú ætlar þér. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Settu það í forgang að hlúa að þín- um nánustu því þá ertu um leið að hlúa að sjálfum þér. Hafðu hljótt um áform þín. Erjur nágranna snerta þig ekki. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þér gengur betur í dag en í gær. Hlutir sem eru spennandi núna þarfnast eftirfylgni og mikillar vinnu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert eitthvað líflaus þessa dag- ana og þarft að hvíla þig betur til að koma þér í gang. Nærvera skapandi fólks hjálpar og tryggir eftirminnilega helgi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér hefur vegnað vel og horfir nú björtum augum fram á veginn. Ef fram- farir stöðvast er ekki til nokkurs að reyna að berjast gegn því í bili. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er margt á döfinni hjá þér, bæði í einkalífi og á vinnustað. Taktu nýjum möguleikum með opnum huga. Vonandi að fólkið í kringum þig sé á sama máli. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú hefur látið aðra ganga fyrir og nú er kominn tími til þess að þú sinnir þér. Loks færðu tækifæri til að sinna verkefnum sem hafa setið á hakanum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Mundu að öll mál hafa tvær hliðar, ef ekki fleiri. Stattu af þér storm- inn og þá munt þú standa uppi sem sig- urvegari. Ekki láta glepjast í verslunum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft fyrr eða síðar að horf- ast í augu við staðreyndir. Afstaða him- intungla fyllir þig orku, ákveðni og fram- takssemi. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Allt fer eins og það á að fara. Var- astu að ofkeyra þig. Hvíldu þig um helgina, ef þú getur. Einhver náinn kem- ur þér virkilega á óvart. Stjörnuspá 31. júlí 1914 Morgunblaðið sagði frá því að fyrri heimsstyrjöldin hefði hafist daginn áður. Fyrirsagn- irnar voru svohljóðandi: „Alls- herjarstyrjöld. Allt komið í bál og brand.“ 31. júlí 1927 Erlingur Pálsson yfirlög- regluþjónn synti úr Drangey til lands á 4 klukkustundum og 25 mínútum. Talið er að Er- lingur hafi verið fyrstur til að synda þessa leið síðan Grettir Ásmundarson gerði það árið 1030. Fjórir aðrir þreyttu Grettissund á tuttugustu öld. 31. júlí 1955 „Lög leikin fyrir ferðafólk“ voru á dagskrá Ríkisútvarps- ins í fyrsta sinn um versl- unarmannahelgina. Í frétta- tilkynningu var sagt að ferðafólk vildi gjarnan „hlusta á fjörlega tónlist til styttingar tímanum meðan það ekur í bif- reiðum víða vegu“. 31. júlí 1999 Mick Jagger birtist óvænt á Ísafirði, ferðaðist á snekkju um Hornstrandir og fór víðar. „Af öllu ótrúlegu þá hefði mér fundist það ótrúlegast að eiga eftir að hitta Mick Jagger á götuhorni á Ísafirði,“ sagði Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður og aðdáandi Roll- ing Stones í 36 ár í viðtali við Morgunblaðið. 31. júlí 2009 Handrit Árna Magnússonar voru skráð á heimslista UNESCO yfir merkustu menn- ingarminjar heims. Þau eru um þrjú þúsund og flest frá miðöldum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… Hafsteinn Steindórsson er sjötíu og fimm ára í dag. Hafsteinn starfaði sem fangavörður og er m.a. fyrrverandi varðstjóri á Litla-Hrauni. Haf- steinn býr á Selfossi. Þegar Morgunblaðið náði tali af Hafsteini var hann við akstur á sænskri hraðbraut með fjöl- skyldu sinni en hann hyggst halda upp á afmælið í Svíþjóð. „Ég fór með konu minni og dóttur en tvær dæt- ur mínar eru hérna úti í Svíþjóð,“ segir Hafsteinn sem vildi eyða afmælisdeginum erlendis. „Þetta var bara ákveðið að vera ekki heima þegar ég varð 75 ára.“ Hafsteinn kveðst hafa upplifað margt á afmælisdögum sínum en þeir hafa gjarnan verið um verslunarmannahelgi. „Jú, ég hef átt af- mæli á þessum degi núna í 75 ár. Ég hef náttúrlega séð margt á af- mælinu,“ segir Hafsteinn. Hann segir eftirminnilegasta afmælisdag sinn vera sextugsafmælisveisluna en þar hafi mikið verið sungið. „Þá komu þeir alls staðar að og sungu. Bræður mínir voru miklir söngmenn, frændur og aðrir. Það verður ekki núna. Núna bara keyr- um við þessar hraðbrautir í Svíþjóð.“ jonasmargeir@mbl.is Hafsteinn Steindórsson 75 ára Þeysist á sænskri hraðbraut Víkverji hefur lagst yfir skrif sínog komist að því að hann er nokkuð hrifgjarn. Í raun er hann mjög hrifgjarn. Til að mynda heldur hann bæði með Liverpool og Man- chester United í ensku deildinni. Ef flett er í tveggja ára gömlum skrif- um Víkverja kemur í ljós að þá hélt hann bæði með Arsenal og Chelsea. x x x Víkverji hefur þá haft mismun-andi skoðanir á ýmsum málum. Fyrir stuttu birtist til dæmis frásögn af knæpuhófi Víkverja og Norð- manna en áður hefur Víkverji látið þá skoðun sína í ljós að hann hefur óbeit á Norðmönnum. Þannig er Víkverji frekar ósamkvæmur orðum sínum og stendur sjaldnast við þau. Hann hefur samt skoðun á flestu. x x x Þeir sem þekkja Víkverja per-sónulega vita að hann er ljúf- asta skinn. Hann er glaðbeittur og ljúfur viðmóts en hvass í skoðunum. Sumir vilja meina að hann nöldri fullmikið en Víkverji stendur með skoðunum sínum þó hann standi ekki sérlega fastur á þeim. Víkverji er þannig dálítið valtur. x x x Víkverji hefur áður lýst því yfir aðþjóðhátíð í Vestmannaeyjum sé ekki hátíð fyrir einstaklinga af hans kalíberi. Nú hins vegar hefur Vík- verji ákveðið að fara til eyja. Vík- verji er það hrifgjarn að þegar tug- þúsundir streyma til eyja getur hann ekki lengur setið og gert ekki neitt. Víkverji kann nefnilega að lifa lífinu en engar áhyggjur, Víkverji fer til eyja með gagnrýnina að vopni. Þess má vænta að Víkverji greini frá þeirri upplifun sinni á næstunni. x x x Víkverji vonar að umferðin farivel fram um helgina. Flestir Ís- lendingar móðgast út í þá sem keyra of hratt en keyra svo sjálfir eins og brjálæðingar. Þeir eru nefnilega flestir eins og Víkverji. Hafa skoðun á flestu en fylgja henni sjaldnast eft- ir í verki. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Sudoku Frumstig 9 4 3 3 4 6 8 1 2 6 1 3 9 4 6 5 1 5 3 9 9 8 2 6 1 8 6 2 1 1 3 6 6 2 3 5 8 7 7 5 3 5 6 8 2 1 7 4 9 1 7 8 6 1 7 2 8 5 7 9 2 3 3 7 8 6 1 9 7 3 1 8 5 9 3 6 5 7 4 2 8 1 5 7 1 8 2 3 4 6 9 8 4 2 1 9 6 3 5 7 7 6 5 2 8 1 9 4 3 2 8 9 4 3 5 7 1 6 3 1 4 7 6 9 5 2 8 4 5 8 9 1 7 6 3 2 1 9 3 6 5 2 8 7 4 6 2 7 3 4 8 1 9 5 4 9 6 7 3 2 1 5 8 7 3 5 1 6 8 9 2 4 1 8 2 5 4 9 6 3 7 3 6 8 2 7 1 4 9 5 2 5 7 4 9 6 3 8 1 9 4 1 3 8 5 2 7 6 8 1 4 9 5 3 7 6 2 5 2 3 6 1 7 8 4 9 6 7 9 8 2 4 5 1 3 4 5 8 9 1 6 3 7 2 3 7 9 5 4 2 6 8 1 2 1 6 3 8 7 4 9 5 5 4 1 8 9 3 2 6 7 7 8 2 4 6 5 1 3 9 6 9 3 7 2 1 8 5 4 9 3 4 2 7 8 5 1 6 8 6 7 1 5 4 9 2 3 1 2 5 6 3 9 7 4 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 31. júlí, 212. dagur ársins 2010 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. f4 d5 2. Rf3 Bf5 3. e3 e6 4. b3 Rf6 5. Bb2 Bd6 6. Be2 O-O 7. O-O Rbd7 8. d3 c6 9. De1 Dc7 10. Rh4 a5 11. Kh1 Db6 12. Bf3 Bc5 13. e4 Bg4 14. e5 Bxf3 15. exf6 Bh5 Staðan kom upp í grísku deildarkeppninni sem lauk fyrir skömmu. Dimitrios Ladopoulos (1872) hafði hvítt gegn Fragkis- kos Tsiros (1736). 16. g4! hvítur vinnur nú mann. 16…Bd4 17. Bxd4 Dxd4 18. c3 Dxd3 19. fxg7 Kxg7 20. gxh5 De4+ 21. Dxe4 dxe4 22. Rd2 f5 23. Rc4 Rc5 24. Had1 Rd3 25. Rf3 Hfd8 26. Rd4 Kf6 27. Hd2 c5 28. Rb5 Hg8 29. Re3 Hg7 30. Rd6 Hd8 31. Rdc4 Hgd7 32. Rxa5 b6 33. Rac4 b5 34. Ra3 Rf2+ 35. Hdxf2 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Tvær alkröfur. Norður ♠10 ♥-- ♦KDG1085 ♣ÁKD654 Vestur Austur ♠G8732 ♠54 ♥G754 ♥10982 ♦942 ♦Á763 ♣7 ♣G109 Suður ♠ÁKD96 ♥ÁKD63 ♦-- ♣832 Suður spilar 7♣ dobluð. Það er umdeilanlegt hvort þrír efstu fimmtu í tveimur litum dugi í alkröfu, en Doug Doub taldi svo vera. Hann seildist í sagnboxið og dró upp miðann með 2♣. Spilið er frá landsliðskeppni Bandaríkja- manna. Adam Wildavsky í norður trúði vart eigin augum, enda sjálfur með alkröfuopnun. Hann lét þó á engu bera og hleraði með 2♦. Doub sagði 2♠ og Wildavsky sýndi tíg- ulinn með 3♦. Doub kom hjartalitn- um á framfæri, en nú var Wil- davsky farið að leiðast þófið og stökk í 7♣. „Dobl!“ Austur ætlaði ekki að missa af neinu og doblaði út á tíg- ulásinn – vildi fá út tígul. Vestur kom út í tígli, eins og um var beðið, en það kom vörninni að litlu haldi: 2330 í N-S. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.