Morgunblaðið - 31.07.2010, Page 27
Messur 27Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2010
AÐVENTSÖFNUÐURINN:| Vegna sum-
armóts í Hlíðardalsskóla verður Reykja-
víkur-, Hafnarfjarðar-, Keflavíkur- og Ár-
nes-söfnuðum lokað.
Samkoma verður haldin í Hlíðardals-
skóla og hefst með biblíufræðslu kl.
11.
Guðsþjónusta kl. 12, Don Schneider
prédikar.
Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl.12.
ÁBÆJARKIRKJA í Austurdal | Hin ár-
vissa sumarmessa að Árbæ verður 1.
ágúst kl. 14. Konur í kirkjukórnum vest-
an vatna syngja forsöng, organisti er
Thomas Higgerson. Oddviti Akrahrepps,
Agnar H. Gunnarsson, prédikar, sr.
Dalla Þórðardóttir prófastur þjónar fyrir
altari.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa í Árbæj-
arkirkju kl. 11, sr. Þór Hauksson prédik-
ar, organisti er Kristina Kalló. Léttar
veitingar á eftir.
BAKKAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 16, prestur sr. Jóhanna I Sigmars-
dóttir.
Um tónlistina sér Þorvaldur Hall-
dórsson.
BORGARPRESTAKALL | Helgistund í
Skallagrímsgarði kl 11. Messa í Borg-
arkirkju kl. 14. Guðsþjónusta á Dval-
arheimili aldraðra kl. 15.30.
BÚSTAÐAKIRKJA | Sunnudaginn 1.
ágúst verður ekki messa í Bústaða-
kirkju. Það hefur verið venja undanfarin
ár að gefa starfsfólki kirkjunnar og kór-
fólki frí þennan eina sunnudag ársins.
Fólki er bent á messur í öðrum kirkjum
prófastsdæmisins.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11,
prestur séra Gunnar Sigurjónsson. Fé-
lagar úr kór Digraneskirkju leiða söng.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr. Þor-
valdur Víðisson prédikar og þjónar fyrir
altari, organisti er Kári Þormar. Hádeg-
isbænir á þriðjudögum, kvöldkirkjan á
fimmtudögum.
EFRA-Núpskirkja Miðfirði | Árleg messa
laugardag, 31. júlí, kl. 14 í þessari fyrr-
verandi sóknarkirkju. Öllum velkomið að
leggja veitingar á borð í samfélaginu eft-
ir messu.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11, prestur sr. Jóhanna I Sigmarsdóttir.
Um létta tónlist sér Þorvaldur Hall-
dórsson, söngvari.
GARÐAKIRKJA | Helgistund versl-
unarmannahelgarinnar kl. 20. Sr. Friðrik
J. Hjartar leiðir stundina, organisti er
Bjartur Logi Guðnason. Rúta fer frá Ví-
dalínskirkju kl. 19.30, frá Jónshúsi kl.
19.35 og frá Hleinum kl. 19.40 og til
baka að lokinni athöfn.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Þorgils Hlynur Þorbergsson
guðfræðikandidat prédikar, sr. Bjarni
Þór Bjarnason þjónar fyrir altari, org-
anisti er Guðlaugur Viktorsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta kl. 14, séra Auður Inga
Einarsdóttir prédikar, söngstjóri er Kjart-
an Ólafsson.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Úti-
messa í skógarlundinum norðan við
Reynisvatn kl. 11. Prestur séra Sigríður
Guðmarsdóttir. Kakó og kleinur eftir
messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og
þjónar fyrir altari, messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja, organisti er Hörður Áskelsson.
Sögustund fyrir börnin. Alþjóðlegt org-
elsumar: Tónleikar laugardag kl. 12 og
sunnudag kl. 17. Steingrímur Þórhalls-
son leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Org-
anisti Douglas A. Brotchie og prestur er
Tómas Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi| Messa kl.
11, sr. Magnús B. Björnsson þjónar,
organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sjá
einnig www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Kveðju-
samkoma sunnudag kl. 20 fyrir major
Harold Reinholdtsen á Hjálpræð-
ishernum Hvannavöllum 10.
HLAÐIR Hvalfirði | Útiguðsþjónusta með
hugvekju kl. 14 í tilefni versl-
unarmannahelgar og fjölskylduhátíðar
SÁÁ. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar og
undirleik annast Gestur Friðjónsson á
harmónikku.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11,
prestur sr. Ursúla Árnadóttir, Kristín Arn-
ardóttir djákni prédikar.
Tónleikar kl. 14, Ingibjörg Guðjónsdóttir
sópran og Hannes Guðrúnarson gít-
arleikari.
KAÞÓLSKA kirkjan |
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11
og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl.
11 og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði| Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30.
Laugardaga er messa á ensku kl.
18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14 (ath.
breyttan messutíma). Samstarf Þjóð-
kirkjusafnaðanna í Kópavogi. Almennur
safnaðarsöngur.
LANGHOLTSKIRKJA | Vegna sumarleyfa
er Langholtskirkja lokuð fram yfir versl-
unarmannahelgi. Messað verður sunnu-
daginn 8. ágúst kl. 11. Skrifstofa kirkj-
unnar opnar á ný þriðjudaginn 3. ágúst.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11, prestur sr. Skírnir Garðarsson, org-
anisti er Arnhildur Valgarðsdóttir, Tinda-
tríó leiðir sönginn.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Helgistund
kl. 14. Sr. Magnús Björn Björnsson
þjónar fyrir altari. Þorgils Hlynur Þor-
bergsson, cand theol, prédikar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, org-
anisti er Kári Allansson. Sr. Örn Bárður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Guðsþjón-
usta kl. 14, tileinkuð hestamennsku og
útivist. Nýr hökull verður tekinn í notk-
un. Prestur er Gunnar Kristjánsson.
Heitt á könnunni í garðinum eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Engin samkoma
um verslunarmannahelgina.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða söng undir
stjórn Jörgs Sondermann, prestur sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Súpa og
brauð eftir messu. Morguntíðir þriðju-
dag til föstudags kl. 10. Mömmu-
morgunn á miðvikudaginn kl. 10.30.
SELTJARNARNESKIRKA | Helgistund kl.
11 í umsjón sr. Sigurðar Grétars Helga-
sonar.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl.
17. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur
annast prestsþjónustuna. Í messunni
verður flutt tónlist frá sumartónleikum
helgarinnar.
STRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta og
fræðslustund um kirkjuna kl. 14. Ingi-
mar Pálsson leiðir almennan safn-
aðarsöng, prestur sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20.30. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir stundina í tali og tónum
ásamt sóknarpresti, Láru G. Odds-
dóttur. Kaffi eftir messu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Helgistund versl-
unarmannahelgarinnar er í Garðakirkju
kl. 20. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl.
19.30, frá Jónshúsi kl. 19.35 og frá
Hleinum kl. 19.40 og til baka að lokinni
athöfn. Sr. Friðrik J. Hjartar leiðir stund-
ina, organisti er Bjartur Logi Guðnason.
ÞINGEYRARKIRKJA Húnavatnsprófasts-
dæmi | Í sumar skiptast prestar héraðs-
ins á að messa í þessari fallegu og
merku kirkju sunnudaga kl. 14. Að
þessu sinni er það sr. Guðni Þór Ólafs-
son á Melstað, organisti er Pálína F.
Skúladóttir sem leiðir almennan söng.
ÞINGVALLAKIRKJA | Útimessa í Skóg-
arkoti kl. 14. Genginn er stígur frá Efri-
völlum merktur Skógarkot, 1,8 km.
Gangan tekur tæpa hálfa klukkustund.
Prestur er Kristján Valur Ingólfsson og
organisti er Guðmundur Vilhjálmsson
sem leikur á básúnu. Verði mikil rigning
færist messan í Þingvallakirkju.
ORÐ DAGSINS:
Um falsspámenn.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Saurbæjarkirkja á Rauðasandi
(Matt.7)
tengdaforeldrar sem buðu mig vel-
komna í fjölskylduna fyrir meira en
20 árum. Alltaf boðinn og búinn að
hjálpa okkur á allan hátt, hvort sem
var við barnapössun, flísa- eða park-
etlögn eða hvað annað. Það voru svo
sannarlega traustir og góðir
tengdaforeldrar sem ég eignaðist
strax.
Brynjar sonur okkar og fyrsta
barnabarnið fékk smá-forskot og
naut góðs af því. Milli hans og afa
ríkti alla tíð alveg einstakt vina-
samband og eyddu þeir miklum
tíma saman í að tefla og veiða. Jón
kenndi honum mannganginn 5 ára
gömlum og fylgdi honum svo á
hvert skákmótið á fætur öðru út um
allt land ásamt því að taka afastrák-
inn með sér á skákæfingar á kvöld-
in. Þegar Brynjar eltist dvínaði
áhuginn á skákinni en þá fundu þeir
sig bara betur í veiðinni saman. Eft-
ir nokkrar æfingar í vötnunum
kringum Reykjavík mætti afinn
með fluguveiðistöng undir arminum
og ekki minnkaði veiðiáhuginn við
það. Til stóð hjá þeim að fara saman
í Brynjudalsá í næstu viku ásamt
hinum veiðiklónum í fjölskyldunni
og verður nú ansi tómlegt hjá þeim
þar án afa.
Ég kveð með söknuði einstaklega
góðan, traustan og hjálpsaman
tengdapabba. Minningin um hann
lifir.
Með kæru þakklæti fyrir allt,
Helga Þórdís.
Jón bróðir, eða Jonni eins og
hann var jafnan kallaður, er látinn
langt um aldur fram. Það er sár og
óumflýjanleg staðreynd. Það togast
á ýmsar tilfinningar þegar ég hugsa
til Jonna. Sterkust er eftirsjáin og
sorgin yfir því að fá ekki að hitta
hann aftur. Minningar, sem ná
meira en þrjá áratugi aftur í tím-
ann, hellast yfir. Við Jonni vorum
sammæðra, en ólumst ekki upp
saman. Hann var tólf árum eldri en
ég. Kynni okkar og samskipti hófust
fyrir alvöru á unglingsárum mínum.
Segja má að skákin hafi fyrst tengt
okkur saman því að við komumst að
því að þar lá sameiginlegur áhugi
okkar. Það kom líka fljótt í ljós að
við áttum mörg önnur sameiginleg
áhugamál og því náðum við fyrr en
varði mjög vel saman. Milli okkar
skapaðist sterk vinátta sem óx og
dafnaði eftir því sem árin liðu.
Jonni var óvenjulega heilsteyptur
og vandaður maður. Hann var mikl-
um gáfum gæddur, víðlesinn og ein-
staklega vel að sér á mörgum svið-
um. Hann var fljótur að greina
aðalatriðin í hverju máli og skilja
hismið frá kjarnanum. Þá var hann
einstaklega ráðagóður og hafði
sterka réttlætiskennd. Ég leitaði
því oft ráða hjá honum í gegnum
tíðina. Þau voru ófá heilræðin sem
ég fékk og sum þeirra höfðu djúp
áhrif á mig og mótuðu jafnvel líf
mitt.
Jonni hafði sterkar og ákveðnar
skoðanir og var fylginn sjálfum sér.
Það gat verið afar erfitt að þoka
honum í rökræðum um landsmál og
pólitík, en við höfðum reyndar oft á
tíðum líkar skoðanir á mörgum mál-
efnum en fátt nærði huga minn bet-
ur en skraf og rökræður við Jonna
um pólitík og breytta heimsmynd.
Mesta gæfa Jonna í lífinu var án
efa að kynnast eiginkonu sinni, Þur-
íði. Það var öllum ljóst að milli
þeirra ríkti einlæg ást og náin vin-
átta. Þau eignuðust þrjú börn og
barnabörnin eru orðin fimm. Hjá
Jonna var fjölskyldan ávallt í for-
gangi og velferð hennar skipti hann
öllu máli. Þurý og börnin þeirra og
barnabörnin viku aldrei úr huga
hans og oft talaði hann um hve lán-
samur hann væri.
Nú á kveðjustund koma upp í
hugann margar góðar minningar.
Ég sé Jonna fyrir mér þar sem
hann situr gegnt mér við taflborðið,
metur stöðuna gaumgæfilega, tekur
ákvörðun og leikur síðan fumlaust.
Mér verður litið á hann og sé þá
hans alkunna kankvíslega bros og
glettnisglampann í augunum og þá
vissi ég að skákin var töpuð; hann
hafði fundið vinningsleikinn eins og
svo oft áður. Við háðum mörg ská-
keinvígin en oftast fór ég halloka,
enda var Jonni sterkur skákmaður.
Fyrir aðeins sex vikum greindist
Jonni með illvígan sjúkdóm og fljót-
lega varð ljóst að ekkert varð við
ráðið. Jonni tók örlögum sínum af
miklu æðruleysi. Þær stundir, sem
fjölskyldan átti með honum síðustu
vikurnar, voru dýrmætar og eiga
eftir að vera ómetanlegar og dýr-
mætar í minningunni. Ég veitti því
athygli að í síðustu skiptin sem við
hittumst var hugstæðasta umræðu-
efni Jonna nánasta fjölskylda hans
og uppruni hennar. Hann naut þess
að hafa sína nánustu fjölskyldu, sem
var honum svo kær, við hlið sér síð-
ustu stundirnar og fá að sofna rór í
faðmi hennar.
Hvíl í friði, elsku bróðir.
Ingi.
Kveðja frá Skákdeild Hauka
Í dag kveðjum við fallinn félaga,
Jón Magnússon. Það var fyrir sjö
árum sem ég kynntist Jóni en þá
kom hann á sína fyrstu þriðjudag-
sæfingu hjá okkur Haukamönnum.
Ástríða Jóns fyrir skákinni var ber-
sýnileg, hann kunni ýmislegt fyrir
sér og baráttuandinn var magnaður.
Síðar fóru synir Jóns, þeir Rögn-
valdur og Arnar, að venja komur
sínar á æfingar. Þá var hart tekist á
og sérstaklega eru baráttuskákir
Jóns og Rögnvaldar eftirminnileg-
ar. Fljótlega bættist svo í hópinn
afabarnið
Brynjar, sonur Arnars, og þá var
gaman að fylgjast með Jóni. Hann
nánast rifnaði af stolti í hvert sinn
sem drengurinn nældi sér í vinning.
Þegar Jón byrjaði að tefla fyrir
Hauka á Íslandsmóti skákfélaga
voru nýstofnaðir Haukar í þriðju
deild af fjórum. Það kom strax í ljós
hve góður félagi Jón var, hann hrós-
aði mönnum fyrir góð verk á reit-
unum 64 og hughreysti ef illa gekk.
Svo fór að liðið vann sig upp í aðra
deild og þá fyrstu árið eftir. Þáttur
Jóns í þessum árangri var mikill.
Eflaust situr Jón nú og reynir
frönsku vörnina sína gegn Capa-
blanca, Fischer og félögum en við
Haukamenn sendum innilegar
samúðarkveðjur til fjölskyldunn-
ar á þessum erfiðu tímum.
Hvíl í friði, Jón Magnússon.
Fyrir hönd Skákdeildar Hauka,
Ingi Tandri
Traustason.
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
Fellihýsi
Vel með farið Coleman Reed-
wood 9ft. árg. 2001
með sólarsellu, aðeins upphækkað.
Verð kr. 950 þús.
Upplýsingar í síma 663 4013.
Sel nánast ónotað 9 feta
Palomino Colt fellihýsi
með fortjaldi og tilheyrandi búnaði.
Nýskráð sumarið 2009 og notað í alls
13 nætur. Verð 1.7 m.kr.
Uppl. í síma 665 6102.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVIÐHALD
Getum bætt við okkur vinnu í
flísalögnum og almennu múrviðhaldi.
Vinsamlega hafið samband í síma
698 6009.Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Listmunir
Karl Kvaran
Mjög gott olíumálverk, 97x81 cm, til
sölu. Tilboð óskast. Nánari
upplýsingar í s. 562 1499.