Morgunblaðið - 02.09.2010, Side 14

Morgunblaðið - 02.09.2010, Side 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Varla hefur farið framhjá nokkrum manni að menningarhúsið Hof var formlega tekið í notk- un um síðustu helgi. Fólk kom þúsundum sam- an til þess að skoða herlegheitin.    Fyrsta helgin í Hofi er ógleymanleg. Flestir brostu út að eyrum en einhverjir sneru ósáttir frá síðdegis á laugardaginn þegar þeim var bent á að vígsluathöfnin var aðeins fyrir boðs- gesti. Spurt er hvort ekki hefði verið hægt að hafa fyrirkomulagið annað og gefa öllum sem vildu tækifæri á að upplifa hina sögulegu at- höfn.    Erfitt er að gera svo öllum líki, ekki síst í svona tilfellum. En áhersla er lögð á að húsið sé menningarhús allra – ekki bara einhverrar listaelítu. Sem betur fer. Og sem betur fer kom það ekki í minn hlut að ákveða hvernig staðið yrði að málum og þá hverjum yrði boðið...    Víkingur Heiðar Ólafsson heillaði við- stadda á hátíðartónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands á sunnudaginn. Lék Grieg þannig að unun var á að hlýða. Sumum vöknaði um augu.    Að konsertinum loknum ávarpaði þessi ungi píanósnillingur tónleikagesti og sagði það mikinn heiður að fá að taka þátt í hátíðar- vígslutónleikum „í þessu stórkostlega menn- ingarhúsi“.    Víkingur Heiðar kvaðst hafa dvalið á Ak- ureyri síðan á miðvikudagskvöld „og [ég] hef eiginlega ekki viljað yfirgefa bygginguna, hún hefur einhvern veginn allt, maður þarf ekki einu sinni að fara út til að njóta náttúrunnar“. Píanóleikarinn óskaði svo viðstöddum til ham- ingju með húsið, sem væri stórkostlegt fram- tak og með „þessa frábæru sinfóníuhljómsveit sem þið eigið og við öll“. Aftur vöknaði ein- hverjum um augu.    Athöfn fyrir utan Hof á laugardagskvöldið var stórskemmtileg. Leikarinn Kristján Ingi- marsson var í stóru hlutverki, eins og innan- dyra fyrr um daginn. Flott var hvernig hann fékk fólk í lið með sér ásamt bæjarstjóranum, Eiríki Birni, við að leysa risaslaufu sem komið hafði verið fyrir við suðurinngang hússins.    Jafnan er erfitt að spá af viti um íþrótta- kappleiki. Ég get þó lofað að hart verður barist á Þórsvellinum í kvöld þegar KA-menn koma í heimsókn í 1. deildinni í fótbolta. Þórsarar eiga möguleika á að komast upp í úrvalsdeild en það er næsta víst að gestirnir af Brekkunni vilja ekki aðstoða þá í þeirri baráttu!    Ástæða er til að hlakka til tónleika í Hofi annað kvöld. Þar kemur akureyrska rokk- sveitin Bara-flokkurinn saman í fyrsti skipti í áratug og það verður í fyrsta skipti í 25 ár sem hún spilar í gamla heimabænum. Í þessari norðlensku tónlistarveislu taka líka þátt Hvanndalsbræður, Helgi og hljóðfæraleikar- arnir og Heflarnir, sem er glæný sveit. Morgunblaðið/Skapti Gjöf Slaufan leyst af Hofi á laugardagskvöld. „Hef eiginlega ekki vilj- að yfirgefa bygginguna“ Heilsuhælisfélaginu. „Hann var venjulegur daglaunamaður en verk- efnið höfðaði til flestra Íslendinga, hann styrkti það, og átakið hefur allt- af verið mér kært,“ segir hann um til- urð minnismerkisins, sem er gjöf Oddfellowreglunnar á Íslandi. Í því sambandi bendir hann á að á fé- lagsskírteininu séu myndir af fjórum stöðum á landinu, Gerpi, Dyrhólaey, Rauðanúpi og Látrabjargi, og það sé innrammað með teikningu af keðju. Minnismerkið samanstandi af þrem- ur 240 cm háum stuðlabergssteinum vegna þess að talan þrír sé heilög. Þrjár keðjur umlyki steinana og það sé til merkis um það að samheldin þjóð verði hvorki beygð né brotin. Steinarnir standa fyrir einkunn- arorð Oddfellowreglunnar, vináttu, kærleika og sannleika. Fyrir framan steinana verður minni steinn með áletraðri plötu um stofnun hælisins. Styrkur samtakamáttar Oddfellowreglan hefur alla tíð látið til sín taka í mannúðar- og líkn- armálum. Jón Otti áréttar að stofnun heilsuhælisins sýni vel hvað hún geti gert og vekur jafnframt athygli á því að Geir Zoëga, athafnamaður og stúkubróðir í Ingólfi, hafi m.a. gefið innanstokksmuni í 10 einbýlis- herbergi í hælinu. „Við erum hluti þjóðarinnar og með þessari gjöf vilj- um við undirstrika mikilvægi vináttu, kærleika og sannleika. Sameinuð þjóð getur gert góða hluti og sam- takamátturinn er boðskapur minn- ismerkisins.“ BAKSVIÐ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Minnisvarði um Vífilsstaði verður af- hjúpaður á sunnudag, en þá verða 100 ár frá því Vífilsstaðahælið tók til starfa. Jón Otti Sigurðsson, fulltrúi Oddfellowreglunnar á Íslandi í af- mælisnefndinni, og Þorkell Gunnar Guðmundsson hönnuðu minnisvarð- ann, en Stefán Veturliðason, stórsír Oddfellowreglunnar, og Lárus Helgason læknir afhjúpa minnisvarð- ann. Um miðjan september gefur Ís- landspóstur síðan út frímerki í tilefni tímamótanna. Oddfellow lagði grunninn Fyrsta Oddfellowstúkan á Ís- landi, st. nr. 1, Ingólfur, var stofnuð 1. ágúst 1897, í kjölfar þess að danskir Oddfellowar ákváðu að reisa holds- veikraspítala í Laugarnesi, en hann var vígður 29. júní 1898. Guðmundur Björnsson, sem var settur landlæknir 17. september 1906, var Dönunum innan handar og í stjórn Laugarnes- spítalans frá upphafi. Hann var einn af stofnfélögum Ingólfs og að hans frumkvæði beitti stúkan sér fyrir því að Heilsuhælisfélagið var stofnað 13. nóvember 1906 í þeim tilgangi að reyna að koma á öflugum vörnum gegn berklaveiki. 12 manna skipu- lagsnefnd var kosin og í henni voru sex manns úr stúkunni og sex úr röð- um annarra landsmanna. Félagið safnaði fé um allt land og í Vest- urheimi og hófst bygging heilsuhæl- isins 31. maí 1909. Þetta var eitt stærsta hús landsins og bygging þess er á lista yfir helstu framkvæmdir í tíð heimastjórnar 1904-1918, en heilsuhælið tók til starfa 5. sept- ember 1910. Kostnaður var 275 þús- und krónur og var hælið rekið fyrir reikning Heilsuhælisfélagsins með styrk úr landssjóði til ársbyrjunar 1916, þegar landssjóður tók rekstur- inn að sér. „Með stofnun þess var stórt spor stigið til framfara, nýtt tímabil hafið, ekki aðeins í baráttunni við berklaveiki, heldur gegn sjúk- dómum og vanheilsu yfirleitt. Vífils- staðir voru fyrsta íslenzka sjúkra- húsið, sem nokkuð verulega kvað að,“ sagði Haraldur Guðmundsson heil- brigðismálaráðherra meðal annars í ræðu á 25 ára afmæli hælisins. Keðjan og hlekkirnir Jón Otti Sigurðsson segir að það eina sem hann eigi eftir afa sinn, Jón Sigurðsson, sé félagsskírteini í Baráttan við hvítadauðann  Bygging Vífilsstaðahælisins fyrir 100 árum var árangur þjóðarátaks sem markaði tímamót  Oddfellowreglan á Íslandi gefur minnisvarða  Samheldin þjóð verður hvorki beygð né brotin Morgunblaðið/Eggert Við minnisvarðann Þorkell Gunnar Guðmundsson, Stefán Veturliðason, stórsír Oddfellowreglunnar á Íslandi, og Jón Otti Sigurðsson fylgdust með þegar minnisvarðanum var komið fyrir á svæðinu í gær. Aðalbyggingin Heilsuhælisfélagið safnaði fé um allt land og í Vestur- heimi og tók heilsuhælið til starfa 5. september 1910. Stefán Veturliðason, stórsír Oddfellowreglunnar á Íslandi, segir að Oddfellowreglan hafi notið þess að málsmetandi menn í þjóðfélaginu hafi staðið að stofnun hennar. Guðmundur Björnsson landlæknir og fé- lagar hafi horft á danska Odd- fellowa koma holdsveikraspít- alanum á laggirnar. Þeir hafi ekki viljað láta sitt eftir liggja og því ráðist í stofnun Heilsu- hælisfélagsins og byggingu heilsuhælisins. „Það er okkur hollt að minnast þessara frum- kvöðla og hvernig þeir unnu. Það er okkur Oddfellowum hvatning og gjöf minnisvarð- ans minnir okkur á hlutverk okkar.“ Óskað var eftir aðkomu Odd- fellowreglunnar að hátíðarhöld- unum og er Stefán ánægður með það. Hann segir að reglan sé stolt af byggingu Vífils- staðaspítala og að hafa átt þátt í byggingu hans og útrým- ingu berklaveikinnar. „Minnis- merkið táknar einkunnarorð Oddfellowreglunnar.“ Stefán leggur áherslu á að verkefnið fyrir 100 árum hafi verið að ráða niðurlögum hins hræðilega sjúkdóms sem berkl- ar eru og það hafi skilað ár- angri. Því verkefni sé lokið og húsið hafi þjónað sínum til- gangi. „Það var ráðist í þessa framkvæmd af miklum dugnaði og hún skilaði árangri. Það er okkur öllum mikið ánægjuefni.“ Frum- herjarnir hvatning STEFÁN VETURLIÐASON Afmælishátíðin » Í tilefni 100 ára afmælis Vífilsstaða verður afmælis- hátíð á svæðinu á laugardag og hátíðardagskrá á sunnudag. » Sögusýning verður opnuð í húsnæði spítalans kl. 13.00 á laugardag. Frá kl. 13.00 til kl. 16.00 verður málþing um sögu berklaveikinnar og á sama tíma verður boðið upp á gönguferð um svæðið, siglingu á Vífilsstaðavatni og fleira auk þess sem leiktæki verða á staðnum og grillveisla. » Á sunnudag verður minn- isvarðinn um Vífilsstaði af- hjúpaður kl. 14.00 og að því loknu verða flutt ávörp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.