Morgunblaðið - 02.09.2010, Page 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
✝ Jóhannes K.Steinólfsson
fæddist í Reykjavík
21. mars 1961. Hann
lést á sjúkrahúsinu á
Selfossi hinn 25.
ágúst sl.
Foreldrar hans
voru Steinólfur Jó-
hannesson, f. 27.
september 1914, d.
11. janúar 2008, og
Eygló Bryndal Ósk-
arsdóttir, f. 28. júlí
1940, d. 23. mars
2008. Systkini hans
eru Ástríður Björg, f. 17. júní
1962, og Eysteinn Þór Bryndal, f.
9. febrúar 1974.
Jóhannes ólst upp í Reykjavík.
Flutti til Vestmannaeyja 1982.
Jóhannes kvæntist 16. janúar
1988 Báru Sveinsdóttur, f. 1. maí
1962, d. 4. febrúar 2004. Börn
þeirra eru Þóra Birgit, f. 15. des-
ember 1988, unnusti Guðjón Ingi
Eide, f. 13. september 1984, Stein-
unn Lilja, f. 8.ágúst 1991, unnusti
Bjarnþór, f. 13. janúar 1987, Helga
Rut, f. 23. mars 1993, unnusti Ívar
Örn, f. 2. október 1990, barn
þeirra Theodór, f. 29. apríl 2009.
Fyrir átti Jóhannes dótturina
Hjördísi Ingu, f. 16. apríl 1983,
barn hennar Viktor Örn, f. 1. jan-
úar 2006.
Jóhannes kynntist Hafdísi Rósu,
f. 19. júní 1961, foreldrar hennar
eru Margeir Bragi, f.
17. ágúst 1936, og
Guðrún Jóhanna, f.
25. febrúar 1938, d.
18. desember 1997.
Jóhannes og Hafdís
giftu sig 31. október
2009, börn hennar og
fósturbörn hans eru
Hafsteinn Ómar, f.
12. september 1979,
unnusta Andrea Bó-
el, f. 24. nóvember
1979, börn þeirra eru
Börkur Darri, f. 29.
janúar 2003, og Vikt-
oría Bóel, f. 12. september 2004,
Katrín Dröfn, f. 29. ágúst 1983,
unnusti Ívar, f. 19. júní 1981, börn
þeirra eru Elísabet Ósk, f. 8. októ-
ber 2001, Kamela Rut, f. 24. októ-
ber 2005, og Ísabella Ýr, f. 10. apr-
íl 2010, Særún Ösp, f. 5. apríl
1987, unnusti hennar Þórir Már, f.
22. nóvember 1986, barn hennar
er Aron Ómar, f. 5. apríl 2002,
Einar Kristinn, f. 26. júlí 1991,
unnusta Selma Dögg, f. 26. nóv-
ember 1991.
Jóhannes bjó í Eyjum til ársins
2007, flutti hann þá á Eyrarbakka.
Hann stundaði sjómennsku allt sitt
líf.
Útför Jóhannesar fer fram frá
Eyrarbakkakirkju í dag, 2. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
14. Jarðsett verður í Kotstrandar-
kirkjugarði.
Elskulegur faðir okkar hefur nú
kvatt þennan heim langt fyrir aldur
fram. Við vitum ekki alveg hvar við
eigum að byrja að segja frá yndis-
lega föður okkar. Hann var yfirleitt
góður við okkur, sagði mjög sjaldan
nei. Þegar hann kom í land á fimmtu-
dögum fór hann oftast með okkur í
bíltúr og keypti kók og Prins póló.
Hann eyddi öllum sínum frítíma í að
stjana við okkur á yngri árum, studdi
við bakið á okkur við andlát móður
okkar, og í öllum þeim ákvörðunum
sem við tókum. Við ferðuðumst mik-
ið, vorum mikið á Laugarvatni. Eitt
vetrarkvöld var brjáluð stórhríð í
Eyjum og rafmagnslaust. Þá ákvað
hann að fara með okkur í bíltúr á
jeppanum sem hann átti, sagði við
okkur „stelpur, klæðið ykkur vel, við
erum að fara út“ og drifum við í því.
Þegar út í bíl var komið var lagt af
stað og náðum við að keyra u.þ.b. 10
metra þegar við byrjuðum að fest-
ast; mottóið hjá pabba þetta kvöld
var að finna stærstu skaflana, keyra
í þá og festast! Hann hafði mjög
gaman af því að stríða okkur. Þín
verður sárt saknað, þú átt stóran
stað í hjarta okkar.
Þínar dætur,
Þóra Birgit, Steinunn Lilja og
Helga Rut Jóhannesdætur.
Gott er sjúkum að sofna,
meðan sólin er aftanrjóð,
og mjallhvítir svanir syngja
sorgblíð vögguljóð.
Gott er sjúkum að sofa,
meðan sólin í djúpinu er,
og ef til vill dreymir þá eitthvað,
sem enginn í vöku sér.
(Davíð Stefánsson)
Kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt.
Bragi Guðmundsson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Aðalbjörg Jóhanna Bárudóttir.
Kæri vinur.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Samúðarkveðjur,
Ágústa, Gunnar Árni, Agnes
Berg og Sveinn Gunnþór.
Á einu andartaki breytist allt.
Það var á sólríkum sumardegi að
Jói kvaddi þetta líf eftir stutt en erfið
veikindi. Ég man hvað Dísa var stolt
þegar hún kom og kynnti mig fyrir
Jóa sínum, hún ljómaði af stolti og
hamingju, honum var nú hálfbrugðið
þegar ég bara skellti á hann kossi og
sagði að hann yrði að venjast þessu
því svona væri ég. Strax við okkar
fyrstu kynni sá hvað þú hafðir góða
nærveru, falleg augu og fallegt bros
svo ekki er að undra að Dísa hafi orð-
ið ástfangin af þér, þess vegna er svo
ósanngjarnt að þið fenguð ekki
lengri tíma saman.
Elsku Dísa, það var aðdáunarvert
að fylgjast með hversu vel þú hugs-
aðir um Jóa síðustu mánuði, enda
daginn áður en hann kvaddi tók hann
utan um þig þótt hann hafi verið
langt leiddur, sem segir hversu sterk
bönd voru á milli ykkar.
Að lokum langar mig að við höfum
það að leiðarljósi að enginn á sér
tryggan morgundag, hvorki ungur
né gamall. Í dag kannt þú að sjá í síð-
asta sinn þá sem þú elskar. Því skalt
þú ekki bíða lengur. Breyttu í dag
eins og morgundagurinn renni aldrei
upp, þú munt örugglega harma dag-
inn þann þegar þú gafst þér ekki
tíma fyrir bros og varst of önnum
kafinn til að verða við óskum ann-
arra. Hafðu þá sem þú elskar nærri
þér, segðu þeim í heyranda hljóði
hversu mjög þú þarfnist þeirra, elsk-
aðu þá og komdu vel fram við þá,
taktu þér tíma til að segja: Mér þykir
það leitt, fyrirgefðu mér, þakka þér
fyrir og öll þau kærleikans orð sem
þú þekkir. Sýndu vinum þínum
hversu mikils virði þeir eru þér.
Elsku Jói, þakka þér fyrir góð
kynni og hlýlegt viðmót, þú varst
einstakur maður.
Við kveðjum þig öll með söknuði og sorg
ó, sárt er að vita þig hverfa svo fljótt.
Nú er fækkað þeim ljósum, sem loga
skært
og lýst geta og yljað mannheims börnum.
Þú varst ljós, kæri vinur, við kveðjum þig
klökk.
Kærar þakkir, kærar þakkir fyrir allt sem
er liðið.
(G. Br).
Elsku Dísa, börn og barnabörn og
aðrir aðstandendur, ég og fjölskylda
mín biðjum Guð og góða engla að
vera með ykkur.
Jóna Hafsteinsdóttir.
Farinn ert á friðarströnd
frjáls af lífsins þrautum.
Styrkir Drottins helga hönd
hal á ljóssins brautum.
Englar allir lýsi leið
lúnum ferðalangi.
Hefst nú eilíft æviskeið
ofar sólargangi.
(Jóna Rúna Kvaran)
Votta aðstandendum og vinum Jóa
mína dýpstu samúð.
Lilja Jóhanna Bragadóttir
og fjölskylda.
Jóhannes K.
Steinólfsson
✝ Sigurlaug Ísa-bella Árnadóttir
var fædd í Reykjavík
5. apríl 1979. Hún
varð bráðkvödd á
heimili sínu að
Bleiksárhlíð 17, Eski-
firði, 24. ágúst 2010.
Börn Sigurlaugar
eru Vilhjálmur Árni
Ragnarsson, f. 2.
mars 2004, og Krist-
rún Lilja Ragnars-
dóttir, f. 19. júlí
2006, faðir þeirra er
Ragnar Valgeir Jóns-
son, f. 16. janúar 1977, þau voru
skilin. Foreldrar Sigurlaugar
voru Árni Sævar Gunnlaugsson,
f. 8. des. 1950, og Súsanna Reg-
ína Gunnarsdóttir, f. 30. mars
1954, bæði látin. Foreldrar Árna
Sævars eru Gunnlaugur Árnason,
f. 29. maí 1926, og Bjarnveig
Jóna Gunnlaugsdóttir, f. 7. mars
1920, d. 6. mars 1996. Foreldrar
Súsönnu voru Gunnar Ástvalds-
son, f. 11. sept. 1930, og Sig-
urlaug Ísabella Eyberg, f. 16.
apríl 1926, bæði látin. Uppeld-
isfaðir Súsönnu er Þorgeir Jóns-
son, f. 6. feb. 1932. Albróðir Sig-
urlaugar er Einar Hafsteinn
Árnason, f. 22. ágúst 1975, maki
Karen Hilmarsdóttir og eiga þau
4 börn. Sammæðra bræður Sigur-
laugar eru Þorgeir Kristján Ey-
berg, f. 18. nóv. 1971, maki Þór-
dís María Blomsterberg, f. 12.
nóv. 1969, og eiga þau 4 börn.
Jónas Hannes Ey-
berg, f. 22. júní
1982, maki Ester
Guðjónsdóttir, f. 8.
nóv. 1984, og eiga
þau 1 barn. Sam-
feðra systkin Sig-
urlaugar eru Gunn-
laugur Árnason, f. 6.
nóv. 1971, og á hann
eitt barn, Bjarnveig
Oddný Árnadóttir, f.
6. nóv. 1971. Guðrún
Betsý Árnadóttir, f.
22. ágúst 1983, maki
Stefán Þór Stef-
ánsson, f. 1. ágúst 1979, eiga þau
eitt barn. Eva Björg Árnadóttir, f.
31. maí 1985.
Sigurlaug fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp og í Mosfellsbæ.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar.
Árið 1999 fluttist hún til Eski-
fjarðar þar sem hún settist að
með fyrrverandi eiginmanni sín-
um Ragnari Valgeiri Jónssyni.
Sigurlaug og Ragnar eignuðust
tvö börn, þau Vilhjálm Árna og
Kristrúnu Lilju. Sigurlaug út-
skrifaðist sem sjúkraliði frá Verk-
menntaskóla Austurlands árið
2005. Haustið 2006 hóf hún nám í
hjúkrunarfræði og hefði hún út-
skrifast um næstu áramót.
Útför Sigurlaugar fer fram frá
Bústaðarkirkju í dag, 2. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin kl.
13. Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
Nú kveð ég um sinn
og skil við svo ótalmargt
og mér þykir það leitt
að ég fæ engu breytt.
Og nú er ég fer
ég bið, ei gráttu mig
tak góðu stundirnar
er okkur auðnaðist hér.
Ég vera skal nær
mun geymast í hjarta þér
og hvert sem sál mín fer
þar eflaust frið nú ég finn.
Gráttu ei …
brostu breytt.
Gráttu ei …
ég bið um það eitt
bið fyrir mér,
já, bið fyrir sjálfum þér,
en grát ei örlög mín.
Ég mun sakna þín.
Um annað ég bið
Guð geym þú börnin mín,
og þau muni leita þín
þá hlýt ég eilífan frið.
Nú kveð ég um sinn
og skil við svo ótalmargt,
og mér þykir það leitt
að ég fæ engu breytt.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Elsku Silla okkar, sofðu rótt. Við
biðjum Guð að vernda og varðveita
börnin þín um ókomna tíð.
Þorgeir Kristján Eyberg
(Toggi) og Þórdís María
Blomsterberg (Dísa Maja).
Sigurlaug Ísabella
Árnadóttir
Í örfáum orðum vil
ég minnast svilkonu
minnar, Ástríðar
Sveinsdóttur. Ásta
bjó fyrstu hjúskapar-
ár sín á
Akranesi en varð ung ekkja með
þrjár dætur. Hún flutti seinna til
Reykjavíkur og síðan í Kópavog og
þá til að taka við og halda heimili
fyrir eftirlifandi eiginmann sinn,
Magnús Inga, sem þá var ekkill
með þrjár dætur sem hún reyndist
hin besta móðir.
Ásta var góð kona, myndarleg
og mikil húsmóðir. Henni var eðl-
islægt að heimilið væri ávallt
hreint og fágað. Hún var rausn-
arlegur og glæsilegur gestgjafi.
Síðustu ár hafa verið Ástu erfið
og annaðist Magnús Ingi mágur
Petrea Ástríður
Sveinsdóttir
✝ Petrea ÁstríðurSveinsdóttir
fæddist í Kálfholti,
Ásahreppi, þann 25.
september 1926. Hún
lézt á Landspítala í
Fossvogi þann 6.
ágúst 2010.
Útförin fór fram
frá Dómkirkjunni 18.
ágúst 2010.
minn hana dag og
nótt. Það var von
allra að henni
mætti líða betur
þegar hún fór á
dvalarheimilið
Hrafnistu í Hafnar-
firði nú í vor. Því
miður varð dvölin
endaslepp, aðstand-
endum hennar og
okkur til mikillar
hryggðar.
Við Benedikt og
Ásta, Magnús og
fjölskylda þeirra,
bjuggum í sama
húsi í 17 ár ásamt Sigurði tengda-
föður okkar fyrstu sjö árin. Ég
þakka henni alla elskusemi sem
hún ávallt sýndi mér og umhyggju
þá sem hún bar fyrir tengdaföður
okkar.
Ég sendi Magnúsi, dætrum Ástu
og stjúpdætrum ásamt fjölskyld-
um þeirra allra og eftirlifandi
systrum Ástu og öðrum ættingjum
dýpstu samúð.
„Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Blessuð sé minning góðrar konu.
Ólöf Sif.
Ísafjörður
Haustferð
fyrir eldri borgara
20.-23. september
Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma
898 9776 eða gegnum netfangið emil@flugfelag.is
flugfelag.is
Náttúruparadísin á Vestfjörðum