Morgunblaðið - 02.09.2010, Side 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010
✝ Ágústa Jón-asdóttir Berg-
mann fæddist í
Reykjavík 21. mars
1922. Hún lést á Elli-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund 25. ágúst
2010.
Foreldrar hennar
voru Jónas Þórodds-
son blikksmiður, f.
15.10. 1891 á Hlemmi-
skeiði á Skeiðum, d.
24.12. 1925, og Ingi-
björg Guðmundsdóttir
frá Tjörn í Bisk-
upstungum, f. 10.1. 1898, d. 13.10
1929. Ágústa átti einn bróður, Hauk
Jónasson, f. 2.5. 1924, d. 18.6. 2003.
Hann var kvæntur Helgu Guð-
mundsdóttur sem lifir eiginmann
sinn.
Ágústa giftist 17. júní 1942 Jóni
Guðmundi Bergmann, fyrrv. aðal-
gjaldkera. Hann fæddist á Eyrar-
bakka 31.10. 1920, sonur hjónanna
Andreasar S.J. Bergmann og Guð-
mundu Guðmundsd. Bergmann.
Systkini Jóns eru Guðrún Schneider,
gift George Schneider, bæði látin,
Sigrún Bergmann, gift Stefáni Hall-
grímssyni, og Carl A. Bergmann,
kvæntur Guðrúnu Skúladóttur.
synir eru Hnikarr Örn og Björgvin
Þór. b) Þorbjörg. c) Gísli. 5) Guðrún
Bergmann, gift Gísla Gunnari Svein-
björnssyni. Þeirra börn eru a) Ingi
Örn, maki hans er Sylvía Dögg Hall-
dórsdóttir. Sonur þeirra er Andreas
Halldór. b) Berglind, gift Oscari An-
gel Lopez, þeirra sonur er Romeo
Mar. c) Birgir.
Þegar Ágústa var sjö ára gömul
missti hún föður sinn og móðir henn-
ar lést fjórum árum síðar. Haukur
var þá tekinn í fóstur af Guðrúnu
móðursystur þeirra og manni henn-
ar Gunnari Sigurðssyni gullsmið, en
Ágústa var tekin í fóstur af Guð-
mundi Breiðfjörð blikksmið og Guð-
rúnu konu hans á Laufásvegi 4. Hún
ólst upp við mikið ástríki fósturfor-
eldra sinna og barna þeirra, Agnars
og Dorotheu. Eftir barnaskóla
stundaði Ágústa nám í Versl-
unarskóla Íslands í tvo vetur en vann
síðan verslunarstörf áður en hún
gifti sig, m.a. í versluninni Pfaff. Eft-
ir giftingu var hún heimavinnandi
en þegar yngri börnin stálpuðust
vann hún í Melissu, síðar í Gjafahús-
inu. Um 1980 hóf hún störf á Þjóð-
minjasafni Íslands, lengst af í minja-
gripaverslun safnsins, og vann þar
til starfsloka.
Heimili þeirra Jóns stóð lengst á
Ljósvallagötu, Háagerði 89 og Arat-
úni 42, Garðabæ. Haustið 2007 fluttu
þau á Grund.
Útför Ágústu fer fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 2. sept-
ember 2010, og hefst athöfnin
klukkan 11.
Börn Ágústu og Jóns
eru: 1) Andreas Berg-
mann, kvæntur Guð-
rúnu Gíslad. Berg-
mann. Þeirra synir
eru a) Jón Bragi,
kvæntur Sigrúnu
Helgadóttur. Þeirra
börn eru Andreas,
Unnur og Helgi
Hrafn. b)Óttar Már
kvæntur Björk Sigur-
gísladóttur. Þeirra
börn eru Fannar
Freyr, Hekla María,
Þorri Heiðar og Elvar
Orri. c) Gísli Björn, kvæntur Eddu
Guðrúnu Valdimarsdóttur. Þeirra
dætur eru Hildur Vaka og Guðrún
Nanna. 2) Ingibjörg Bergmann, gift
Þorbergi Halldórssyni. Þeirra börn
eru a) Birna Björk, gift Helga Kjart-
ani Sigurðssyni. Þeirra börn eru
Daði Freyr, Sóley Sif og Silja Dögg.
b) Ágústa Ýr, gift Parker Graves
O’Halloran. c) Halldór Benjamín,
unnusta hans er Guðrún Ása Björns-
dóttir. 3) Jónas Þór Bergmann, d.
30. júní 2008, hann var kvæntur Hel-
en Hönnu Bergmann. 4) Halldór
Bergmann, kvæntur Önnu Láru Kol-
beins. Þeirra börn eru a) Arnar Már,
kvæntur Ýri Hnikarsdóttur. Þeirra
Tengdamóðir mín Ágústa lést hinn
25. ágúst sl. á Elliheimilinu Grund.
Ágústa ólst upp hjá fósturforeldrum á
Laufásvegi 4. Hún hafði misst for-
eldra sína í frumbernsku. Faðir henn-
ar var einkasonur einstæðrar móður
og létust þau með fárra daga millibili
og hlutu sömu gröf. Fjórum árum síð-
ar lést móðirin af völdum krabba-
meins. Hún bar alla ævi með sér sorg-
ina yfir missi þeirra en hún lofaði líka
af einlægni þá gæfu sem henni hlotn-
aðist þegar hún eignaðist ástríka fóst-
urforeldra og stórfjölskyldu. Það seg-
ir nokkuð um samhjálp þeirra tíma að
kynnin við þau voru þannig að faðir
hennar hafði unnið í Breiðfjörð-
sblikksmiðju, sem fósturfaðir hennar
stofnaði. Sögur af heimilisbrag á
Laufásveginum, miðbæjarlífinu, sum-
ardvöl í Auðsholti og því sem á dag-
ana dreif í uppvextinum munu lifa
með okkur sem á hlýddum. Ágústa
átti móðurfjölskyldu sem hélt mikla
tryggð við hana og tvær vinkonur
móður hennar voru miklir fjölskyldu-
vinir. Mörgu af þessu góða fólki
kynntist ég og varð ríkari af. Á Ljós-
vallagötu 24, fjölskylduhúsinu sem
Andreas tengdafaðir hennar byggði,
bjuggu þau tengdaforeldrar mínir um
langt árabil, síðast frá 1971 þar til þau
fóru á Grund haustið 2007. Samfylgd
okkar varaði rúm 46 ár. Í nokkur ár
vann Ágústa fyrir okkur Andreas í
verslun sem við rákum, þar vann hún
af mikilli trúfesti. Svo bjuggum við í
ein fimm ár í nánu sambýli, þegar
þrjár fjölskyldur og fjórir ættliðir
áttu heimili hver á sinni hæðinni á
Ljósvallagötu. Þar stóð afi Andreas
fyrir „kúkkelúri“ á kvöldin og sat þá
stórfjölskyldan og skiptist á skoðun-
um um íþróttir, þjóðmál, nýjar bækur
eða hvaðeina sem þeim sem þátt tóku
lá á hjarta, dýrmætar stundir, líka
fyrir syni okkar sem nutu samvista
við ömmur, afa og föðursystkini.
Aldrei bar skugga á þessi nánu sam-
skipti, er það mér efst í huga nú og
fyllir mig einlægu þakklæti fyrir góða
samfylgd og alla væntumþykju. Það
er mikil gæfa í lífinu að eiga góða að
og þess nutum við sannarlega á Ljósó.
Ágústa tók ekki mikinn þátt í fé-
lagsstarfi, þó var hún virk í starfi
Kvenfélags Karlakórsins á þess
fyrstu árum. Aðaláhugamál hennar
fyrr og síðar var velferð fjölskyldunn-
ar og það að hlúa að henni í einu og
öllu og gera henni stórar veislur á
tyllidögum. Þannig hygg ég að 17.
júní, brúðkaupsdagur þeirra Jóns,
verði fjölskyldunni ekki bara lýðveld-
isdagurinn heldur líka dagur ömmu
og afa. Þá hittist stórfjölskyldan alltaf
á Ljósó í litlu risíbúðinni, og amma
Gústa reiddi fram veislu eins og þær
gerast bestar og afi Jón sá um að nóg
væri til af ís og gosi fyrir smáfólkið.
Þannig var það hvenær sem tilefni
gafst að gera sér glaðan dag, gest-
risnin einstök. Eftir að þau Jón fluttu
á Ljósó 1973 varð hún sannkölluð ætt-
móðir stórfjölskyldunnar. Eftir lát
ömmu Mundu naut afi Andreas ríku-
legrar umhyggju hennar. Fyrir mig,
stelpuna frá Vestfjörðum, voru það
forréttindi, að upplifa sambýlið við
tengdafólkið.
Ég bið Ágústu minni Guðs bless-
unar og þakka allar góðar stundir.
Guð vaki yfir og styrki minn kæra
tengdaföður.
Guðrún G. Bergmann.
Amma okkar bræðranna, Ágústa,
amma Gústa, ættmóðirin á Ljósvalla-
götu 24 skilur eftir góðar minningar
hjá okkur bræðrum og fjölskyldum
okkar. Litla stúlkan sem hafði misst
báða foreldra sína sjö ára gömul og
var svo heppin að vera tekin í fóstur
hjá Guðmundi Breiðfjörð og fjöl-
skyldu varð síðar stoltur höfuðpaur
stórrar Bergmannsættar. Ættar sem
ólst upp á, eða í tengslum við Ljós-
vallagötu 24 sem langafi Andreas
byggði. Amma sinnti heimilinu og
seinni árin vann hún einnig utan þess
langt fram á áttræðisaldur. Þegar við
tveir eldri bjuggum á Ljósvallagötu
sinnti amma fyrst og fremst húsmóð-
urstörfum, hún þreif húsið, bakaði
pönnukökur og gerði það sem ömmur
gerðu á þeim árum. Einhvern tímann
þegar Óttari var tveggja ára gömlum
bannað að ferðast um stigana á
„Ljósó“ á tréklossum vegna húsverk-
anna orðaði hann það á eftirfarandi
hátt: „Amma dútta úna óna díann.“
Þetta útleggst einhvern veginn svona:
„Amma Gústa er búin að bóna stig-
ann.“
Amma var gestgjafi af guðs náð, ef
maður rak nefið inn var hún um leið
byrjuð að bjóða okkur eitthvað í
gogginn, þótt maður væri vel haldinn
slapp maður ekki fyrr en maður hafði
þegið eitthvað. Hún taldi allt það sem
hún átti til og ef maður afþakkaði allt
klykkti hún út með því að segja:
„Nonni, stökktu út í Björnsbakarí og
kauptu þriggja-striga-laga fyrir
strákana“ og þá gafst maður upp og
þáði eitthvað af kræsingunum sem
hún átti alltaf til heima.
Amma naut þess að fá stórfjöl-
skylduna í heimsókn á stórhátíðum.
Þar voru 17. júní, sem var brúðkaups-
dagur ömmu og afa, og jóladagur
stóru dagar ársins. Þá naut hún sín
innan um afkomendur og við sem eftir
erum njótum góðs af því nú að hafa
haldið nánum tengslum og vinskap
ekki minnst fyrir tilstilli ömmu. Þá
eru ótaldar allar aðrar góðar sam-
verustundir með ömmu og afa sl. ára-
tugi. Amma og afi voru lengi ern og
hress. Þau komu t.d. barnapíur til
Noregs til Jóns Braga og fjölskyldu
komin á níræðisaldur, sinntu heim-
ilinu og viðhaldi utanhúss. Ekki
hvarflaði að frændum okkar Norð-
mönnum að þar færu afi og amma
heimilisföðurins, þau hlytu að vera
amma og afi barnanna í „familíunni“.
Nokkrum árum síðar áttu þau einnig
góðar stundir í Iowa með Óttari og
fjölskyldu. Afmælisdagar voru á
hreinu hvar sem í heiminum barna-
börn og barnabarnabörn bjuggu, um-
hyggjan fyrir afkomendum var í
fyrsta, öðru og þriðja sæti.
Við eigum góðar minningar um
hana ömmu okkar.
Núna er „amma dútta úna óna dí-
Ágústa Jónasdóttir
Bergmann
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
SIGURSVEINS GUÐMANNS BJARNASONAR,
Túngötu 13,
Sandgerði.
Erla Sigurbjörg Sigursveinsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson,
Guðlaugur Vignir Sigursveinsson, Rannveig Grétarsdóttir,
Þóra Kristín Sigursveinsdóttir, Heimir Morthens,
Jón Bjarni Sigursveinsson, Júlía Stefánsdóttir,
Heimir Sigursveinsson, Aldís Búadóttir,
Inga Sigursveinsdóttir, Eiríkur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, og langalangamma,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
frá Görðum við Ægissíðu,
er andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt
fimmtudagsins 26. ágúst, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 3. september og hefst
athöfnin kl. 13.00.
Guðrún Guðmundsdóttir, Þorvaldur Thoroddssen,
Kristmundur Guðmundsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Bryndís Guðmundsdóttir, Ottó Tynes,
Hrefna Guðmundsdóttir, Helgi Agnarsson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BIRGIR GUÐMUNDSSON,
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, aðfaranótt
miðvikudagsins 1. september.
Marý Marinósdóttir,
Alma Birgisdóttir, Steingrímur V. Haraldsson,
Marinó Flóvent Birgisson, Jóhanna Sigrún Ingimarsdóttir,
Birgir Már Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést föstudaginn 27. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
3. september kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á dvalarheimilið
Höfða, Akranesi.
Skarphéðinn Árnason,
Sigurbjörn Skarphéðinsson, María Karlsdóttir,
Sigrún Birna Skarphéðinsdóttir, Pétur Örn Jónsson,
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
síðast til heimilis að,
Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést föstudaginn 27. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
3. september kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Dvalarheimilið
Höfða, Akranesi.
Skarphéðinn Árnason,
Sigurbjörn Skarphéðinsson, María Karlsdóttir,
Sigrún Skarphéðinsdóttir, Pétur Jónsson,
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar hjartkæra vinkona og mágkona,
ELSA KARLSDÓTTIR PEDERSEN,
Klapparhlíð 1,
Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn
29. ágúst.
Útförin verður frá Fossvogskapellu föstudaginn
3. september kl. 13.00.
Matthildur Einarsdóttir,
Helga Gísladóttir,
Aðalheiður Erlendsdóttir
og aðrir aðstandendur.