Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 6

Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 6
Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra segir nokkuð til í því, sem gefið hafi verið í skyn í skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis, að veikleik- arnir í bankakerfinu hafi verið orðnir slíkir þegar árið 2006 að erfitt hafi verið að sjá að síðar hefði átt að vera hægt að afstýra falli þeirra. „En það leysir menn ekki undan skyldunni að reyna og leysir menn ekki undan skyldunni sem snýr að því að reyna að lágmarka skaðann,“ sagði hann í umræðum á Alþingi í gær. Hefði ver- ið horfst í augu við aðstæður allt frá árinu 2005 hefði verið hægt að draga verulega úr tjóni þjóðarbúsins. Einkavæðing bankanna rótin Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra hefur lagt á það þunga áherslu í umræðum síðustu daga að einkavæðing bankanna verði rann- sökuð ofan í kjölinn. Hún segir að rót ófaranna megi rekja til einkavæðing- ar þeirra og þessa óhefta vaxtar sem stjórnvöld og eftirlitsstofnanir hafi látið viðgangast. „Fjármálaeftirlitið og ekki síst Seðlabanki Íslands fá algjöra fallein- kunn í þessu samhengi,“ segir Jó- hanna. Hún segir sér þykja miður að meirihluti nefndarinnar skuli ekki hafa komist að þeirri niðurstöðu að hefja skuli rannsókn. Steingrímur er sammála því að betur þurfi að gera í rannsókn á einkavæðingunni en hingað til hafi verið gert. „Menn seldu reynslulausum bröskurum tvo af þremur stærstu bönkum þjóðar- innar, með skelfilegum og dýrkeypt- um afleiðingum,“ sagði hann. Vinnu- brögð varðandi einkavæðingu hafi verið mjög ámælisverð. Eftirlitsstofnanir brugðust Lagt er til í skýrslu þingmanna- nefndarinnar að gerð verði stjórn- sýsluúttekt á Fjármáleftirlitinu og Seðlabankanum. Steingrímur styður þessa tillögu heils hugar. „Það er al- veg ljóst þegar maður les rannsókn- arskýrsluna stóru, og það er aftur staðfest hér í skýrslu þingmanna- nefndarinnar, að þessar tvær meg- ineftirlitsstofnanir fá algjöra fallein- kunn, því miður, fyrir frammistöðu sína á misserunum í aðdraganda hrunsins,“ segir hann. Steingrímur er þó ekki að öllu leyti sammála forsætisráðherra því hann segir Fjármálaeftirlitið fá miklu harkalegri falleinkunn en Seðlabankinn. „Það verður að segja eins og er að það stendur ekki steinn yfir steini í framgöngu Fjármálaeft- irlitsins hvað varðar árin fyrir hrun- ið. Það er mitt mat og mín niður- staða,“ segir hann og bætir því við að sér finnist Fjármálaeftirlitið, allt fram í september 2008, hafa flutt boðskap þeirra fjármálafyrirtækja sem sem það átti að hafa eftirlit með. Treystir sérstökum saksóknara Jóhanna segir hinar raunverulegu ástæður hrunsins hafa átt sér stað fyrir árið 2007, þegar Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur mynduðu rík- isstjórn. „Meginástæðan fyrir hruninu var auðvitað fyrst og fremst rakin til framferðis og stjórnarhátta stjórnenda og aðaleigenda bankanna sjálfra. Um þau mál fáum við stöðug ný sannindamerki og við hljótum að treysta því að umfangsmiklar rann- sóknir sérstaks saksóknara leiði síð- an allan sannleikann í ljós áður en langt um líður,“ sagði hún.  Oddvitar stjórnarinnar leggja áherslu á einkavæðinguna Morgunblaðið/Árni Sæberg Einbeiting Þingmenn hlýða á umræður um skýrslu þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Áttu að reyna að lágmarka skaðann FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ekki er búist við að þingsálykt- unartillögur þingmannanefndar- innar um málshöfðun gegn fyrrver- andi ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007-2009 verði á dagskrá Alþingis fyrr en á föstudagmorgun, 17. september. Atli Gíslason, formaður nefndar- innar, mun mæla fyrir áliti meiri- hluta nefndarinnar, en meirihlut- ann skipa ásamt Atla þau Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðar- dóttir og Birgitta Jónsdóttir. Þau leggja til að höfðuð verði sakamál fyrir landsdómi gegn fjór- um fyrrverandi ráðherrum, þeim Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, Árna M. Mathie- sen og Björgvini G. Sigurðssyni. Hin tillagan til þingsályktunar um málshöfðun gegn ráðherrum er frá fulltrúum Samfylkingarinnar í nefndinni, þeim Magnúsi Orra Schram og Oddnýju G. Harðar- dóttur, en þau leggja til að þrír ofangreindra ráðherra verði ákærðir af Alþingi, þ.e. allir ofan- greindir ráðherrar nema Björgvin G. Sigurðsson. Sjálfstæðismenn meðmæltir Ekki hefur verið ákveðið hvort þingsályktunartillögunum verður vísað til allsherjarnefndar, en um það mun vera ágreiningur meðal þingmanna. Þannig munu ákveðnir þingmenn Samfylkingarinnar vilja að málið fari til allsherjarnefndar en aðrir vera því andvígir og þing- menn VG munu einnig vera því andvígir. Búast má við því að til- laga komi fram í þinginu um að til- lögurnar fari til allsherjarnefndar og þá verður atkvæðagreiðsla um þá tillögu í þinginu. Búist er við því að allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins muni styðja slíka tillögu, einhverjir þingmenn Framsóknar- flokksins og einhverjir þingmenn Samfylkingar. Í gær var ekki vitað hvenær þinginu lýkur, en í dag átti að vera síðasti þingdagur septemberþings- ins. Ljóst var talið að þinghald myndi a.m.k. dragast eitthvað fram eftir næstu viku. Óvíst hvort málið fer í nefnd  Þingmenn VG og hluti þingflokks Samfylkingarinnar andvígir því að vísa tillögunum til allsherjarnefndar  Algjör óvissa um lok septemberþings Morgunblaðið/Ómar Umræða Atli Gíslason, Helgi Bern- ódusson og Steingrímur J. Sigfússon. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 ódýrt og gott Fiskibollur og fiskborgarar, forsteikt 789kr.kg Ódýrt! „Ég held að það sé ákaflega mikilvægt að við ljúkum ein- hvern tímann þessum endalausu rannsóknum, komumst að niðurstöðu og vitum hvað við ætlum að gera við nið- urstöðurnar því það er ekki hægt, nú tveimur árum eftir hrunið, að halda áfram að tala eingöngu um fortíðina,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, á Alþingi í gær. Sigmundur sagðist ætla að leggja breytingartillögu við þingsályktunar- tillögu þingmannanefndarinnar þess efnis að einkavæð- ing bankanna verði rannsökuð. „Þá vonandi geta menn í framhaldinu farið að ræða um pólitík og hvernig eigi að bæta ástandið í landinu,“ sagði Sigmundur Davíð og bætti við, að hann væri að hugsa um að láta fylgja með tillögu um að kann- aðir verði styrkir frá sparisjóðunum til stjórnmálamanna. einarorn@mbl.is Vill ljúka „endalausum rannsóknum“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að leyfa eigi niðurstöðum rannsóknarnefndar Al- þingis að standa. „Það er ekki hlutverk okkar á þinginu að fara að taka þá niðurstöðu þessara sérfræðinga til sérstakrar endurskoðunar,“ segir hann. Bjarni gagnrýnir fulltrúa Samfylkingarinnar í nefnd- inni, sem hann segir hafa komist að pólitískri niðurstöðu um að „sýkna sinn fyrrverandi ráðherra af þeim ásök- unum sem bornar eru á hann af rannsóknarnefnd Al- þingi.“ Betur hefði farið á því að þau hefðu leyft nið- urstöðu rannsóknarnefndarinnar að standa. „Það var sú niðurstaða sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins komust að og var að mínu áliti skynsamleg,“ sagði Bjarni. einarorn@mbl.is Endurskoðun utan verkahrings þingsins Bjarni Benediktsson Ögmundur Jón- asson, dóms- og mannréttinda- ráðherra, flutti frumvarp árið 2002, þar sem hann lagði til að felldar yrðu nið- ur takmarkanir við því að sá sem hefur verið sak- felldur í opin- beru máli geti áfrýjað niðurstöð- unni til Hæstaréttar. Ögmundur skrifaði grein á heimasíðu sína sama ár, þar sem segir að rökin fyr- ir óheftum áfrýjunarrétti séu öðr- um rökum sterkari. Morgunblaðið hafði samband við Ögmund í gær og leitaði svara við því hvort þetta ætti við um þá fyrr- um ráðherra sem hugsanlega verða dregnir fyrir landsdóm. Ögmundur kvaðst ekki tilbúinn til að tjá sig um efni greinar sinnar að svo stöddu. annalilja@mbl.is Ótakmarkaður áfrýjunarréttur? Ögmundur Jónasson Þau Magnús Orri Schram og Oddný G. Harðardóttir, fulltrúar Samfylk- ingarinnar í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis, hafna því sem fram hefur komið í Morgunblaðinu, að reynt hafi verið að beita þau þrýstingi og hafa áhrif á störf þeirra eða niðurstöður. Engin efn- isleg umfjöllun um störf þeirra í þingmannanefndinni hafi farið fram á þingflokksfundum Samfylk- ingarinnar fyrr en niðurstöðurnar voru kynntar nú á laugardag. Enginn reyndi að hafa áhrif á störfin „Ég tek það skýrt fram fyrir mína hönd, að ég efast ekki um að það fólk sem í hlut á, þessir fjórir ráðherrar, vilja vel og vildu vel. Þetta snýst ekki um það,“ segir Steingrímur. Það þýði hins vegar ekki að mönnum hafi ekki orðið á eða gert mistök, og átt að reyna að gera betur. „Það er um það sem þetta snýst og við verðum einfaldlega að horfast í augu við þá hluti,“ segir hann. Vildu vel ÁBYRGÐ RÁÐHERRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.