Morgunblaðið - 15.09.2010, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Athyglisvert er að bera samanorð fyrrum eigenda og stjórn-
enda Baugsfélaga árin fyrir hrun og
þær staðreyndir sem síðar hafa
komið fram.
Þeir snúningarsem teknir voru
hjá FL Group, Fons
og fleiri félögum
vegna Iceland Ex-
press og Sterling
virtust á sínum tíma
fjarstæðukenndir. Stjórnendur og
helstu eigendur töluðu þó um þá op-
inberlega sem „mikið tækifæri“ og
„mikla möguleika“.
Nú er komið í ljós að þeir gættuþess vandlega á sama tíma að
ekki færi fram áreiðanleikakönnun
á viðskiptunum og vissu vel af því að
um mikið ofmat eigna var að ræða.
Snemma árs 2008 héldu forsvars-menn Baugs því fram að félagið
stæði vel og gengu svo langt að
segja að staðan hefði „aldrei verið
sterkari“. Sama saga var sögð fram
eftir ári og jafnvel látið opinberlega
sem félagið hefði stöðu til að kaupa
stórar erlendar verslanakeðjur.
Nú er komið í ljós að allt varþetta gert til að slá ryki í augu
fólks því að staða Baugs var ekki
sterk heldur skuldaði félagið langt
umfram eignir og var því í raun
gjaldþrota.
Eftir hrun halda sömu menn þvífram að þeir eigi litlar sem
engar eignir sem kröfuhafar geti
gengið að. Erlendum dómurum þyk-
ir málflutningurinn með eindæmum
ótrúverðugur.
Þegar horft er til þess hvernigorðin hafa staðist í gegnum tíð-
ina kemur afstaða dómaranna ekki á
óvart.
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Er líklegt að sagt
sé satt nú?
STAKSTEINAR
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Hann heitir Alexander og hún heitir Anna. Þau
bera mjög líklega tvö nöfn, hugsanlega heitir
stúlkan Anna María og drengurinn Alexander
Þór. Í það minnsta voru millinöfnin María og
Þór þau vinsælustu meðal barna sem fengu
nafn á síðasta ári. Alexander tók við sem vin-
sælasta nafngift sveinbarna af Viktori sem féll
alla leið í fimmta sæti vinsældalistans sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Anna hélt stöðu
sinni, var einnig vinsælasta nafnið árið á undan.
Þetta breytir þó engu um það að flestir íslensk-
ir karlar bera nafnið Jón, þá Sigurður og loks
Guðmundur. Flestar konur heita Guðrún að
fyrra nafni, þá Anna og loks Sigríður.
Tískustraumar, sem lengi hafa þekkst að
einhverju leyti í nafngiftum, hafa samkvæmt
þessu enn ekki breytt því að Jón og Gunna eru
hin dæmigerðu, klassísku, íslensku mannanöfn.
Tæplega 5.500 karlar svara nafninu Jón og um
5.000 konur nafninu Guðrún. Þó vinsælla sé að
skíra nýbura Alexander, Daníel, Önnu eða Rak-
el er Jón engu að síður þriðja algengasta eig-
innafnið sem gefið var barni árið 2009 og Guð-
rún það fimmta algengasta. Þau Jón og Gunna,
Siggi, Sigga og Gummi virðast því lítið láta
tískusveiflurnar á sig fá þó vissulega hafi þeim
hlutfallslega fækkað.
Hlutur tvínefna eykst enn
Flestir sem fengu nafn á árinu 2009 fengu
fleiri en eitt nafn. Þór var langvinsælasta annað
nafn meðal sveinbarna, en þar á eftir Freyr og
Ingi. Meðal meybarna voru María og Ósk vin-
sælustu millinöfn. Á eftir þeim kom stúlk-
unafnið Líf, sem tók við af Rós sem þriðja
vinsælasta annað nafn meybarna.
Áberandi er hve hlutur tvínefna hef-
ur vaxið á síðustu áratugum. Á 19. öld
heyrði til undantekninga að íslensk börn
væru skírð tveimur nöfnum en nú ber
meirihluti þjóðarinnar tvö nöfn eða
fleiri. Tvínefni eru munu algengari með-
al barna en fullorðinna og árið 2005 báru
t.d. 82% barna á aldrinum 0–4 ára tvö nöfn
eða fleiri. Hið sama átti einungis við um
19% þeirra sem náð höfðu 85 ára aldri 1.
janúar 2005.
Þrjár vinsælustu samsetningar
nafna hjá körlum í fyrra voru Jón Þór, Gunnar
Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu
tvínefnin árið 2005. Hjá konum voru þrjár vin-
sælustu samsetningarnar Anna María, Anna
Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka al-
gengustu tvínefnin árið 2005. Kvenmannsnafnið
Anna er afar vinsælt sem fyrsta nafn í tvínefn-
um. Anna er fyrri liður í sex tvínefnum af 10 al-
gengustu.
Í ársbyrjun 2010 báru rúmlega 7.600 ein-
staklingar fleiri en 3 nöfn eða nafnliði, eða 2,4%
mannfjöldans.
Saga nafnanna
Á undanförnum áratugum hefur dregið
mjög úr notkun gamalgróinna mannanafna.
Nöfnin Jón og Guðrún voru um aldir lang-
algengustu mannanöfnin á Íslandi og sam-
kvæmt manntalinu 1703 hétu 23,5% allra karla
Jón og 19,7% allra kvenna báru nafnið Guðrún.
Talsvert dró úr tíðni þessara nafna á 18. og 19.
öld og í manntalinu 1901 hétu 9,6% karla Jón og
10,5% kvenna Guðrún. Á 20. öldinni dró áfram
úr vinsældum þessara nafna og 1. janúar 2005
báru 3,8% landsmanna nafnið Jón og 3,6%
kvenna hétu Guðrún.
Litlum Gunnum og Jónum
fækkaði í gegnum árin
Alexander og Anna voru algengustu nöfn sem gefin voru börnum á síðasta ári
Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt
yfir árið, þar sem algengast er að börn
fæðist að sumri til og á hausti. Fæstir
eiga afmæli á vetrarmánuðum frá
nóvember og fram í febrúar. Í upp-
hafi árs 2010 gátu flestir átt von á
því að halda upp á afmælisdaginn
þann 16. júlí 2010 eða 974 ein-
staklingar. Fæstir áttu afmælisdag
á jóladag eða 666 manns og næst-
fæstir á gamlársdag eða 705. Annar
í jólum og aðfangadagur eru einnig
lítt vinsælir til afmælisveislna. Þá
voru 208 einstaklingar án afmælisdags
árið 2010, en þeir halda upp á hann
fjórða hvert ár þann 29. febrúar.
666 manns áttu
afmæli á jóladag
FÆSTIR EIGA AFMÆLI YFIR JÓLIN
Einnefni og fyrsta nafn meybarna
fæddra 2009
Einnefni og fyrsta nafn sveinbarna
fæddra 2009
Fjöldi
1 Alexander 49
2 Daníel 41
3 Jón 40
4 Sigurður 36
5 Viktor/Victor 35
6 Arnar 34
7 Kristján/Kristian/Christian 33
8 Gunnar 31
9 Kristófer 31
10 Stefán/Stefan 30
11 Guðmundur 29
12 Aron 26
13 Gabríel 24
14 Einar 23
15 Matthías/Mattías/Mathías 23
Fjöldi
1 Anna 36
2 Rakel 34
3 Emilía/Emelía 32
4 Katrín 30
5 Kristín 29
6 Viktoría 29
7 Aníta/Anita 28
8 Ísabella/Ísabel/Isabella/Isabel 28
9 Margrét/Margrjet/Margret 27
10 Eva 26
11 Sara 26
12 Elísabet/Elísabeth 25
13 Embla 25
14 Íris 25
15 Guðrún 24
Veður víða um heim 14.9., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 6 alskýjað
Egilsstaðir 9 rigning
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 13 léttskýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 17 skýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 13 skýjað
London 17 skúrir
París 22 heiðskírt
Amsterdam 17 alskýjað
Hamborg 16 súld
Berlín 15 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 17 skýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:51 19:56
ÍSAFJÖRÐUR 6:53 20:03
SIGLUFJÖRÐUR 6:36 19:46
DJÚPIVOGUR 6:20 19:26