Morgunblaðið - 15.09.2010, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið/Júlíus
Í gangi Eldurinn var slökktur fljótlega eftir
að fjölmennt slökkvilið kom á vettvang.
Andri Karl
andri@mbl.is
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 53 ára
karlmann, Auðun Þorgrím Þorgrímsson, í
tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju í janúar á síð-
asta ári. Hann játaði sök frá upphafi málsins en
bar við að hafa aðgætt hvort fólk væri í húsinu
áður en hann bar eld að því. Dómurinn hafnaði
þeim framburði hins vegar alfarið. Auðuni var
einnig gert að greiða verjanda sínum 250 þús-
und króna þóknun og tæpar 174 þúsund krónur í
annan sakarkostnað.
Húsið sem Auðunn kveikti í er númer 10 við
Tryggvagötu í Reykjavík. Það var mannlaust
þegar í því kviknaði en sautján ára stúlka mætti
honum í anddyri hússins og varð vitni að því
þegar hann kveikti í. Hún hljóp inn á matstofu í
næsta húsi og lét vita. Vildi svo til að inni á mat-
stofunni voru staddir tveir lögreglumenn sem
gengu beint í málið.
Langt fyllirí að baki ákvörðuninni
Líkt og áður segir játaði Auðunn sök í málinu
en tók fram að hann hafi aðgætt hvort einhver
væri í húsinu. Í því var um að ræða svonefndar
óleyfisíbúðir og bjuggu þar m.a. starfsmenn áð-
urnefndrar matstofu. Þar á meðal var fyrrver-
andi eiginkona Auðuns.
Fyrir dómi sagði Auðunn að eiginkonan fyrr-
verandi hefði verið í tygjum við tvo aðra karl-
menn. Þennan morgun hefði hún hringt í hann
og vakið, en þá hafði Auðunn verið á „nokkurra
daga fylliríi,“ eins og segir í dómnum og haldið
áfram að drekka eftir símtalið. Hann hafi þá í
reiði tekið þá ákvörðun „að loka þessu greni,“
líkt og hann sjálfur orðaði það, með því að
kveikja í því. Fyrir utan íbúðir starfsfólks mat-
stofunnar sagði Auðunn að í húsinu hefði við-
gengist ýmis starfsemi, s.s. vændi, kjötiðnaður
fyrir matstofuna, fíkniefnasala, dreifing stinn-
ingarlyfja og inn- og útflutningsverslun. Auðunn
vissi af bensínbrúsa í húsnæðinu, hellti úr hon-
um og kveikti í með vindlingi.
Varð fyrir framheilaskaða árið 2007
Í niðurstöðukafla dómsins segir að á þeim
skamma tíma sem Auðunn var í húsinu hafi ekki
verið unnt fyrir hann að ganga út skugga um að
húsið væri mannlaust. Framburðurinn sé einnig
í andstöðu við frásögn stúlkunnar sem mætti
honum í anddyrinu. Einnig segir að hann hafi
orðið að gera ráð fyrir að húsið myndi allt
brenna að innan og loks að eldurinn gæti borist
úr því í næstu hús.
Vottorð sérfræðings í heila- og taugalækn-
ingum var á meðal gagna málsins. Í því kemur
fram að Auðunn varð fyrir höggi framan á andlit
og enni í ágúst 2007. Líkur séu á því að hann hafi
orðið fyrir framheilaskaða við það, en einkenni
um slíkan áverka geti verið lélegt innsæi, hvat-
vísi og dómgreindarskerðing. Engu að síður var
Auðunn metinn fyllilega sakhæfur.
Kveikti í til „að loka þessu greni“
Karlmaður á sextugsaldri dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir íkveikju í janúar á síðasta ári
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Vel gekk að fjarlægja kjöt af beina-
grind steypireyðarinnar sem fannst
rekin við eyðibýlið Ásbúð á Skaga í
sumar, að sögn Þorvalds Þórs
Björnssonar, hamskera hjá Nátt-
úrufræðistofnun. Beinin eru nú í
geymslu en stefnt er að því að
hreinsa þau vel, setja beingrindina
upp og hafa hana til sýnis. En það
kostar peninga og finna þarf heppi-
legt húsnæði, beinagrindin verður
nær 24 metrar að lengd. Því gætu
liðið nokkur ár áður en hægt verður
að sýna hana.
„Við erum búnir með fyrsta
áfangann, búnir að skera allt utan af
hvalnum og flytja beinin í öruggt
skjól,“ segir Þorvaldur. „Nú treyst-
um við á að Kristján Loftsson hjá
Hval hf. verði okkar bjargvættur, að
hann hjálpi okkur við að sjóða bein-
in. Það er næsta skrefið og hann
ræður yfir réttu tækjunum.
Bændur og verktakar þarna á
Skaga hjálpuðu mér við þetta og
unnu þarna þrekvirki, notuðu belta-
gröfur, stóra vörubíla og fleiri tæki.
Við þurftum að hluta skepnuna í
sundur og taka af henni allt rengi og
kjöt. Þetta voru m.a. Steinn og Jó-
hann Rögnvaldssynir á Hrauni á
Skaga, einnig Skafti Vignisson í
Höfnum en fleiri komu við sögu. “
Brýnt er að fjarlægja með suðu
vandlega allt hold og fitu af bein-
unum og vökva úr hryggjarsúlunni,
ella er hætt við að lyktin yrði óþægi-
leg á sýningarstað einhvern tíma í
framtíðinni. En þetta er vandaverk
sem getur tekið nokkur ár.
Hvalurinn á Skaga hefur líklega
vegið 70-100 tonn og reyndist vera
nákvæmlega 24.96 metrar að lengd.
Beinagrindin er líklega um 30 senti-
metrum styttri að sögn Þorvalds en
lengd dýrsins var mæld nákvæm-
lega eftir að búið var að draga hræið
um 630 metra vegalengd af strand-
stað þannig að hægt væri að komast
að því til að ná beinagrindinni.
Þorvaldur segir að holdið hafi
verið urðað á svæðinu á stað sem
Umhverfisstofnun hafi samþykkt.
Þess hafi verið gætt vandlega að
fylgja öllum settum reglum. Þar sem
um lífrænt efni er að ræða breytist
úrgangurinn smám saman í mold.
„Við viljum ekki segja frá því
núna hvar nákvæmlega við geymum
beinin sem við urðum að hluta í
sundur vegna flutninganna,“ segir
Þorvaldur. „Ástæðan er að við lent-
um í því að það var stöðugur straum-
ur fólks þegar vitað var um staðsetn-
inguna. Menn fóru yfir tún og annað
og sumarbústaðaeigendur voru
orðnir hræddir við áganginn.
Núna er þetta enn viðkvæmara.
Vonandi verður beinagrindin, sem
verður líklega 10-12 tonn með öllu,
sett upp síðar og maður vill ekki
missa neitt úr þessu, skíði og þess
háttar, vill ekki að neinn komist í
þetta. Hún er komin suður yfir heið-
ar og meira segi ég ekki!
Steypireyður flutt suður
Búið að urða kjöt og rengi hvalsins sem rak á land á Skaga í sumar
Tekið gæti nokkur ár að hreinsa beinin og þá væri hægt að setja grindina upp
Ljósmynd/Valur Þorvaldsson
Sterk bein Beinagrind steypireyðarinnar á Skaga þegar búið var að fjarlægja megnið af holdinu.
Ljósmynd/Valur Þorvaldsson
Mikið af kjöti Sporðurinn á stærstu skepnu jarðar er engin smásmíði, nota þurfti stórvirkar vinnuvélar við að
draga hvalinn úr fjörunni lengra inn á land. Kjötið og rengið vó nokkra tugi tonna og var það urðað.
Óviss framtíð
» Steypireyðurin er stærsta
dýr jarðar en talið er að aðeins
séu nokkur þúsund dýr til í
heiminum. Tegundin er nú alfrið-
uð en minnstu munaði að henni
væri eytt með ofveiði.
» Beinagrindin af hvalnum
verður í fyrstu varðveitt í hlutum
í geymsluhúsnæði í Urriðaholti
þar sem nýtt Náttúrugripasafn
Íslands verður til húsa. Óljóst er
hvar hún verður sett upp.
Aðalmeðferð fór fram í fjórum
meintum vændiskaupamálum fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Upphaflega var um ellefu mál að
ræða en sjö þeirra lauk með sekt-
argreiðslum. Í umræddum fjórum
málum neituðu karlmennirnir sök.
Tvö málanna voru dómtekin í gær
en aðalmeðferð var frestað í tveimur
þeirra sökum þess að verið er að
hafa uppi á vitnum. Dóms er því að
vænta innan fjögurra vikna í tveim-
ur málanna.
Um er að ræða vændiskaup karl-
manna af vændisþjónustu Catalinu
Mikue Ncogo eða konum í hennar
þjónustu á síðasta ári. Hávær um-
ræða var um það í sumar hvers
vegna dómarnir yfir vændiskaup-
endunum væru ekki birtir á vef Hér-
aðsdóms Reykjavíkur líkt og í öðr-
um sakamálum. Birtingaleysið var
þá skýrt með því að málin hefðu ver-
ið útivistarmál en slík mál séu und-
anþegin netbirtingu samkvæmt k-lið
2. gr. tilkynningar dómstólaráðs nr.
2/2009. Útivistarmál eru mál þar
sem sakborningur mætir ekki fyrir
dóm.
Í málunum fjórum sem tekin voru
fyrir í gær er engin slík undanþága
og verða dómarnir birtir á eðlilegan
hátt á netinu. andri@mbl.is
Neituðu að
hafa keypt
vændi
Nýr fiskvegur var opnaður um
miðjan ágúst um svokallaðan Efri-
foss í Selá í Vopnafirði. Í stað
þess að sprengja rás og steypa
þrep eins og gert hefur verið
hingað til var notaður stór meitill
á vinnuvél og þrepin höggvin í
klöppina.
Fyrir fjórum áratugum var
gerður laxastigi í Selárfoss, sem
er um 7 kílómetra frá sjó og opn-
aðist við það um 21 km af nýjum
búsvæðum fyrir lax. Sú aðgerð
margfaldaði stofnstærð laxins í
Selá.
Með tilkomu hins nýja fiskvegar
í Efri-fossi Selár opnast fyrir 15-
20 km ný svæði fyrir göngufisk í
aðalánni og einnig langa kafla í
hliðará Selár sem heitir Selsá, að
því er fram kemur á heimasíðu
Veiðimálastofnunar.
Nýr fiskveg-
ur í Selá
Rangur aldur
Villa slæddist inn í dánarfregn um
Baldur Pálmason í blaðinu í gær.
Baldur var 90 ára þegar hann lést,
en ekki 88 ára. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT