Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 20

Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 Það voru víst tann- læknarnir sem tengdu tannskemmdir mataræðinu fyrir meira en 80 árum. Sumar rannsóknanna sem þeir þá gerðu gera okkur kleift að sjá hvað er helst að nútímamataræði. Mataræði þeirra sem búa í þéttbýli í dag er gjörólíkt því mat- aræði sem var fyrir rúmum 100 árum er flestir bjuggu í sveit. Sér- fæðingum flestum hefur orðið of starsýnt á orkuþörfina, líklega vegna hungurvofunnar frá fyrri tíð, en ekki gert sér grein fyrir að maturinn þróaðist í að verða vítamínsnauðari, steinefnasnauð- ari, með minna af lífsnauðsyn- legum fjölómettuðum fitusýrum og svo innihaldandi minna af trefjum. Nokkuð sem veldur hungurtilfinn- ingu hjá okkar og ofáti í dag. Sumir virðast halda að hreyfing sé allra meina bót en án réttrar fæðu gagnar hún lítið. Í Morgunblaðinu 27. ágúst síð- astliðinn var greint frá því að tannskemmdir skólabarna á Ís- landi væru tvöfalt meiri en annars staðar á Norðurlöndunum. Tann- hirða er ekki nóg ein og sér. Við áttum víst Evrópumet í hvítasyk- ursáti, sem var orðið um helm- ingur þeirrar orku sem við eigum að fá úr sykrum (grænmeti) sam- kvæmt manneldisráði. Sætindi og oft kolsýrðir sykurdrykkir eru oft fæða skólabarna í dag auk annars ruslmatar. Ruslmatur er með mik- ið af fitu og/eða sykri. Ég hef stundum sagt frá því hvernig tossabekkurinn varð hæstur á prófi eftir veturinn í Drammen í Noregi bara við það að börnunum var gefinn hollur morgunverður í skólanum í tilraunaskyni allan vet- urinn. En það er orðið langt síðan við fengum lýsi í skólanum sem lyf til að koma í veg fyrir beinkröm vegna einhæfs fæðis. Sé matur í dag borinn saman við mat fyrir 100 árum kemur í ljós að okkur vantar tilfinnanlega vítamín, steinefni, lífs- nauðsynlegar fitusýr- ur og meiri trefjar. Eina steinefnið sem við fáum ríkulega af, eða þrisvar til fjórum sinnum of mikið, er matarsalt og hefur of mikil áhrif á heilsuna til hins verra. Ýmsar vörur til matargerðar má flokka sem vávörur frá næring- arsjónarmiði en það eru t.d. hvíti sykurinn, hvíta hveitið, hert fita eða transfita, verksmiðjuhreins- aðar matarolíur, póleruð (hvít) hrísgrjón og sá matur sem gerður er úr þessu. Í vávörum er yfirleitt búið að fjarlægja flest aukaefnin, vítamín og steinefni sem eru í t.d. hýðinu, til þess að auka geymslu- þolið. Þá eru allar unnar vörur og langtíma geymdar með mun minna af steinefnum og vítamínum en ferskar. Þá er það sjálf mat- seldin en hver hefur séð önnur spendýr sjóða, grilla, baka eða steikja matinn sinn? Þá er mjög auðvelt að skemma vítamínin, fitu og skola burt stein- efnunum í matseldinni. Við þurf- um að borða fæðu sem fullnægir orkuþörfinni og hefur rétt hlutföll vítamína, steinefna og amínósýra, fitusýra og nóg af trefjum til að geta þrifist án þess að fá króníska sjúkdóma vegna skorts á lífs- nauðsynlegum efnum. Það má því skipta matnum í lifandi og dauðan mat. Lifandi eða hrár matur ætti að vera bara 24-36 klst. í gegnum líkamann og meltist afgangurinn af sýrugerlum, en eldaður matur er tvisvar til þrisvar sinnum leng- ur á leiðinni. Skýringin er að dauður matur meltist að miklu leyti í ristlinum af rotnunargerlum sem mynda líka ýmis eiturefni eða óæskileg efni sem fara út í líkam- ann. Líkaminn á erfitt með að losa sig við úrgangsefni eldaðs matar. Ónæmiskerfið, sem lætur niður- brotsefni lifandi matar í friði, eyk- ur margfalt framleiðslu hvítra blóðkorna er við borðum dauðan mat. Hvítu blóðkornin gera óæski- leg efni í blóðinu óskaðleg. Þetta væri í lagi ef ónæmiskerfið yrði ekki smátt og smátt óvirkara vegna álags og smitsjúkdómar og aðrir sjúkdómar ættu ekki þar með auðveldara með að þróast í okkur þess vegna. Þá er með aldr- inum mun minna af lífhvötum í okkur til að brjóta niður hluta dauðs matar en lifandi matur þarf þeirra síður við og notar sína eigin og myndast jafnvel ný gagnleg efni. Þetta þarf orku og getur haft áhrif á starfsemi frumnanna við að viðhalda og gera við skemmdir í líkamanum og kemur fram í þrek- leysi. Það hefur myndast gíf- urlegur matvælaiðnaður á vest- rænum löndum sem stjórnar þróuninni. En auðvitað eru menn meðvitaðir um þetta, því að ógrynni fæðubótarefna er líka á boðstólum sem á að bæta úr van- köntum nútímafæðis eða losa fólk við kvilla þess. En þetta gengur víst misjafnlega eftir hjá fólki flestu og er jafnvel hættulegt og er þá ekki ráðlegast að treysta meira á lifandi mat til að halda góðri heilsu á efri árum? Þetta virðist enn sem komið er ætla að verða eins konar Darwinskenning með öfugum formerkjum þar sem reynslan er látin víkja fyrir órök- studdum eða illa rökstuddum full- yrðingum hagsmunaaðila. Nútímamataræði og vankantar þess Eftir Pálma Stefánsson »Mataræði í dag inni- heldur iðulega of lít- ið af vítamínum, lífs- nauðsynlegum stein- efnum og fjölómett- uðum fitusýrum auk þess sem of lítið er af trefjum. Pálmi Stefánsson Höfundur er verkfræðingur. Mikilvægt er að sem flestir Íslend- ingar geti notið fóst- urjarðarinnar í fram- tíðinni bæði í starfi og leik. Til þess að svo megi verða þarf að stefna að miklum samgöngubótum. Landið er stórt og strjálbýlt en á höf- uðborgarsvæðinu búa næstum 63% þjóð- arinnar, sem af ýmsum ástæðum er of mikið. Vísbendingar eru um að fólk myndi dreifast meira um byggðir og bæi ef störf og þjón- usta yrðu auðsóttari víða. Fækk- un og stækkun sveitarfélaga myndi stuðla að hinu sama. Á síð- ari tímum hefur orðið bylting í vegagerð á landinu þótt fátt sé í gangi um þessar mundir. Ým- islegt er þó á teikniborðinu og mun flest af því tengjast suðvest- urhorninu með fjögurra akreina vegum. Tvöföldun Hvalfjarð- arganga svo og framtíðarvegur að Borgarnesi hljóta síðan að bætast við. Þegar víðar verður farið í endurbyggingu munu þriggja (1+2) akreina vegir væntanlega taka við að mestu og þurfa þeir að vera hannaðir þannig að breikkun verði sem auðveldust, enda er takmarkið að eftir ára- tugi verði kominn fjögurra ak- reina vegur allan hringinn ásamt tengslum við nærliggjandi þétt- býli. Hringvegur um Vestfirði yrði þó varla breikkaður en fleiri jarðgöng myndu skipta sköpum þar. Þrátt fyrir stórbætt vegakerfi er rétt að stuðla að strandsigl- ingum til vöruflutninga fyrir vest- an og norðan eins og talað hefur verið um til að létta viðhald þjóð- veganna og auka öryggi á þeim. Talandi um öryggismál má minna á að vegrið vantar víða í vega- kerfinu. Hálendisvegirnir koma vænt- anlega einnig við sögu. Kjalvegur má ekki yfirfyllast af ferðamönn- um og því er ekki ástæða til að gera leiðina of greiðfæra. Þar tróna Kerlingarfjöll og ekki spill- ir Blöndulónið fyrir. Um Sprengi- sand gildir annað. Bent hefur verið á (Ól. R., Mbl. 20.9. ’09) að þar mætti leggja veg í jarð- vegshæð og þá væntanlega fyrir hófleg farartæki, einkum að sum- arlagi. Þá eru það jarðgöngin. Fyrir Vestfirðinga er grundvallaratriði að ekki dragist lengi að grafa Dýrafjarðargöng. Vaðlaheið- argöngum er ætlað að efla Norð- austurland og þar hefur lengi verið beðið framkvæmda, en gjaldið má ekki vera svo hátt að göngin verði aðeins vinsæl í verstu vetrarveðrum. Er þá kom- ið að stóra kerfinu fyrir austan. Þar er Neskaupstaður efstur á blaði með göng til Eskifjarðar. En þarna er mikið í farvatninu. Á Austurlandi munu vera uppi ráða- gerðir um að allt svæðið frá Djúpavogi til Vopnafjarðar verði eitt sveitarfélag (Mbl. 1.10. ’09). Samkvæmt þessu passar ekki að grafa löng göng undir Fjarðarheiði heldur að samstilla byggðirnar sem mest. Þannig ættu að koma göng milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar og önnur á móti frá Seyðisfirði. Sameiginleg leið yrði síðan um göng undir Miðfjarðarheiði að Eyvindardal sunnan Egilsstaða, enda ber Fagridalur ekki nafn með rentu í þoku og vetrarveðrum og getur því ekki verið aðalleið til frambúðar. Á þessu svæði öllu myndi myndast eins konar borgarmynd með ein- stakri ásýnd og aðkomu, þjóð- félaginu til eflingar og gestum til gleði. En eitt hefur gleymst og það er að minna á umræðurnar um Sundabraut, sem hafa legið niðri að undanförnu. Ekki vegna þess að dregið hafi úr mikilvægi sam- gangna við sjóinn heldur ekki síst vegna kostnaðar við þverun El- liðavogs og erfiðleika við skipulag- ið vestan til. Og þá er að lokum tekið á loft frá nýjum flugvelli. Þjóðin skiptist mjög í afstöðunni til Reykjavík- urflugvallar. Flugvallarsvæðið sker óneitanlega væna sneið af eðlilegri uppbyggingu borg- arinnar, enda eru nú til skipulags- drög sem mun ætlað að nýta svæðið í áföngum. En hvað þá með alla aðstöðuna sem flugið skapar? Ýmist er sagt að Kefla- víkurflugvöllur taki við eða að frá- leitt sé að hann bjargi málum. Lít- ið gerist sjálfsagt í bráð, en lausn er í sjónmáli þótt lítið hafi verið rædd á síðari árum. Bessa- staðanes ásamt Seilunni handan Skerjafjarðar ættu að rúma all- stóran tveggja flugbrauta flugvöll um leið og tekið væri tillit til ná- grannabyggða. En brú þyrfti yfir Skerjafjörð og síðan örstutt göng undir aðra flugbrautina, auk þess sem eitthvað sneiddist af Gálga- hrauni eða Garðahrauni vegna veglagningar. Hvort tveggja þetta myndi reyndar nýtast miklu fleir- um heldur en flugfarþegum. Þann- ig myndi nýja leiðin stytta dag- legan aksturstíma margra í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álfta- nesi og jafnframt minnka umferð- ina hjá mörgum Kópavogsbúum. Lagning nýju flugbrautanna og annað sem þeim mun fylgja ætti að tengjast ákvörðunum um veru- lega uppbyggingu á núverandi flugvallarsvæði. Ekki segja að fuglarnir á Bessastaðanesi séu meira virði en heilsufar og öryggi íbúanna víða um land. Litið til framtíðar Eftir Valdimar Kristinsson Valdimar Kristinsson » Takmarkið er að eftir áratugi verði komin fjögurra akreina vegur allan hringinn. Höfundur er viðsk.- og landfr. Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá les- endum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðs- ins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða sam- taka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Móttaka aðsendra greina Íslendingar lifa nú á miklum umbrotatím- um. Á sama tíma og alltof margir þurfa að súpa seyðið af afleið- ingum efnahagshruns- ins hafa skapast tæki- færi sem felast í auknum áhuga al- mennings á þjóðfélags- málum. Átakalínur stjórnmálanna hafa skerpst og hliðrast og í því umróti er færi á að fá fólk til að hugsa hluti upp á nýtt og tileinka sér nýjan hugsunarhátt. Heimdallur, sem stærsta stjórnmálafélag lands- ins með hátt í sex þús- und félagsmönnum, er í einstakri stöðu til að vera í fararbroddi bar- áttunnar fyrir frelsi einstaklingsins. Framtíðin er for- gangsverkefni Forgangsverkefni stjórnmálamanna núna er að tryggja að sem flest ungt fólk geti skapað sér sem best lífskjör til framtíðar. Alþjóðavæðing og aðild að evrópska efnahagssvæðinu hafa leitt til þess að Ísland er í harðri samkeppni um fólk við önnur lönd. Nú er raunveruleg hætta á atgerv- isflótta, þar sem heil kynslóð af hæfu fólki lætur sig hverfa til annarra landa einkum þegar við völd er rík- isstjórn sem gerir nær allt til að fæla fólk úr landi. Skattahækkanir skerða ekki bara lífskjör almennings með beinum hætti heldur tefja þær fyrir endurreisn atvinnulífsins. Veikt atvinnulíf veldur því að færri tækifæri eru fyrir vinnufúsar hend- ur til að fá viðfang krafta sinna. Látum til okkar taka Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til formennsku í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, til að leggja framangreindum mál- efnum lið. Með mér er fimmtíu manna hópur sem vill taka að sér ábyrgðarstörf fyrir félagið auk hundraða manna sem hafa skráð sig í félagið síðustu mánuði til að veita okkur brautargengi. Ég skora á unga sjálfstæðismenn í Reykjavík að láta til sín taka og mæta á aðalfund Heimdallar í Valhöll klukkan 19 í kvöld og styðja framboð okkar. Ungt fólk á umbrotatímum Eftir Hlyn Jónsson » Forgangsverkefni stjórnmálamanna núna er að tryggja að sem flest ungt fólk geti skapað sér sem best lífs- kjör til framtíðar. Hlynur Jónsson Höfundur er laganemi. Einbýlis- og raðhús í Fossvogi óskast Höfum fjársterka kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum í Fossvogi Allar nánari upplýsingar veita Kjartan Hallgeirsson í síma 824 9093 eða Sverrir Kristinsson í síma 861 8514. Sími 588 9090 Síðumúla 21 • 108 Reykjavík www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasaliReykjavík Sverrir Kristinsson 861 8514 Kjartan Hallgeirsson 824 9093

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.