Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 33

Morgunblaðið - 15.09.2010, Page 33
Öxi. Þá veit ég að mikið af hrein- dýrum hefur sést að undanförnu á svæðinu þar suður af og allt suður að Lóni.“ Gripið í gikkinn Sævar hefur nú í haust og síð- sumars farið með um 70 veiðileyf- ishafa á hreindýraslóðir. Gjarnan eru þá fleiri en einn um sama leyf- ið; vinahópar nokkurra manna sem allir eru áhugasamir um veiðiskap. „Og oft eru þetta sömu menn- irnir og hóparnir sem koma ár eft- ir ár,“ segir Sævar sem bætir við að veiðiferðirnar geti oft verið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjörð Hreindýr sjást um allt Austurland, allt frá Vopnafirði suður á Nesjar. Þessi mynd er tekin í Eiða- þinghá. mikið slark enda þarf að ganga á stundum tugi kílómetra og þá er eftir að koma bráðinni til baka; dýri sem jafnvel vegur á annað hundrað kíló. „Stundum eru menn orðnir svo þreyttir að þegar komið er í færi þarf maður nánast að grípa í gikk- inn fyrir þá. Þetta og svo margt annað staðfestir gildi þess að stað- kunnugir fylgi skyttum eftir og séu þeim til halds og trausts bregði eitthvað út af og einnig til að safna upplýsingum um hrein- dýrastofninn: stærð hans og hegð- an.“ sbs@mbl.is „Veðráttan hefur haft þau áhrif að Fljótsdalsheiðin hefur að nokkru leyti brugðist væntingum manna. Dýrin halda sig ekki þar sem þeirra hefur helst verið að vænta; hjarðirnar eru austar og sunnar, svo sem á Múlunum sem svo eru kallaðir og á Hraunum við Öxi.“ 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 Skotveiði  Allt árið – Svartbakur, sílamávur, silfurmávur, hrafn, refur og minkur.  20. ágúst til 15. mars – Grágæs. Frá 1. september til 15. mars – Fýll, toppönd, stokkönd, duggönd og fleiri.  1. september til 10. maí – Álka, langvía, stutnefja, teista og lundi.  29. október til 5. desem- ber – Rjúpa (þó einungis á föstudögum, laugardögum og sunnudögum). Skotveiði- tímabilin Morgunblaðið/Eggert  Góðar og almennar umgengn- isreglur við skotveiðar, hvort heldur er á gæs eða rjúpu er að geyma byssu og skot á læstum stöðum, aka ekki á veiðistað með byssuna hlaðna og hafa öryggið ávallt á þegar gengið er með byssu. Um rjúpnaveiðar gilda eftirfarandi ferðareglur sem Slysa- varnafélagið Landsbjörg hefur gefið út.  Fylgist með veðurspá  Gerið ferðaáætlun og skiljið hana eftir hjá aðstandendum  Kynnið ykkur vel það svæði sem ferðast á um  Hafið með góðan hlífðarfatnað  Takið með sjúkragögn og neyð- arfæði  Fjarskipti þurfa að vera í lagi, gps, kort, áttaviti og talstöð/sími og kunnátta verður að vera til staðar til að nota þau  Verið viss um að bíllinn sé í góðu ásigkomulagi áður en lagt er af stað  Ferðist ekki einbíla  Takið með grunnviðgerðardót fyrir farartækið og festið allan farangur  Ef ferðast er í bíl spennið beltin og notið hjálma, brynjur og annan hlífð- arfatnað ef farið er um á vélsleða  Betra er að snúa við í tíma heldur en að koma sér í ógöngur Nauðsynjavörur GPS-tæki er meðal þess sem gott er að hafa við höndina. Nokkrar góðar ferðareglur ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 50 81 0 07 /1 0 NÝTT OG BETRA MYNDASAFN Á MBL.IS Vantar þig frábæra hugmynd að gjöf sem hittir í mark eða bara fallega mynd á vegginn? Skoðaðu nýjan, glæsilegan og skilvirkari myndasafnsvef á mbl.is. Þú getur fest kaup á sérvöldum úrvalsljósmyndum og skoðað myndir sem aðrir hafa keypt. En sjón er sögu ríkari. Farðu inn á mbl.is/myndasafn og njóttu þess að virða fyrir þér veröldina með augum margra bestu ljósmyndara landsins. –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.