Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.09.2010, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2010 Sudoku Frumstig 2 5 7 3 7 7 3 2 5 4 6 1 6 9 5 4 3 2 9 6 7 6 9 3 4 1 9 2 8 4 7 5 2 6 3 8 9 6 5 8 4 7 4 5 8 4 6 3 2 7 8 6 7 5 6 2 4 2 5 1 8 1 7 3 2 2 5 2 1 9 6 3 7 3 5 9 7 1 2 8 6 4 8 1 7 4 6 3 5 2 9 6 2 4 5 9 8 1 3 7 5 9 3 2 7 6 4 1 8 4 7 2 1 8 9 3 5 6 1 8 6 3 5 4 9 7 2 2 3 1 8 4 7 6 9 5 9 4 5 6 2 1 7 8 3 7 6 8 9 3 5 2 4 1 9 2 6 1 4 7 8 3 5 5 4 3 2 8 9 7 6 1 1 7 8 3 5 6 4 2 9 6 5 7 4 1 3 9 8 2 8 9 2 6 7 5 3 1 4 3 1 4 8 9 2 6 5 7 2 8 9 5 6 4 1 7 3 7 6 5 9 3 1 2 4 8 4 3 1 7 2 8 5 9 6 2 9 6 1 5 8 4 7 3 3 5 7 4 2 6 8 9 1 1 4 8 9 3 7 6 5 2 9 1 4 6 7 2 5 3 8 7 2 5 3 8 1 9 4 6 8 6 3 5 9 4 1 2 7 4 8 2 7 1 5 3 6 9 5 7 9 8 6 3 2 1 4 6 3 1 2 4 9 7 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 15. september, 258. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Í sjónvarpsfréttum var nýlega sagtum stjórnmálamann að hann hefði verið myrkur í máli. Víkverji á því reyndar að venjast að talað sé um að menn séu ómyrkir í máli og þá sé átt við að kveikt sé á flóðljósunum og ekkert dregið undan. Samkvæmt því ættu menn, sem eru myrkir í máli, að tala í gátum og hálfkveðnum vísum. Fréttamaðurinn hafði hins vegar ekkert slíkt í huga, heldur taldi hann að stjórnmálamaðurinn hefði verið svo hreinskilinn og boð- skapurinn ógnvekjandi að allt varð dimmt. x x x Orðið Etappenschwein varð ávegi Víkverja í gær og komst hann að því að það væri notað um hermann, sem ávallt gætti sín á því að vera það langt frá víglínunni að ekkert illt gæti hent hann. Orð þetta notuðu liðsfélagar Adolfs Hitlers í þýska hernum í fyrri heimsstyrjöld til að lýsa honum. Þetta kemur fram í nýrri bók, Hitler’s First War, eftir sagnfræðinginn Thomas Weber, sem starfar við Aberdeen-háskóla á Skotlandi. x x x Samkvæmt áróðri nasista var Hit-ler stríðshetja, sem var í stöð- ugri lífshættu í skotgröfum heims- styrjaldarinnar fyrri, hinn hugrakki hermaður, sem stóð þétt við hlið fé- laga sinna. Weber segir að ofinn hafi verið slunginn vefur lyga um frammistöðu Hitlers í fyrra stríði og sagnfræðingar hafi látið sér nægja lýsingar hans sjálfs og áróðursvélar hans í stað þess að grafa dýpra. Samkvæmt Weber var Hitler fram- takslaus einfari, sem ekki batt trúss sitt við neinn. Aðeins fáir af þeim, sem gegndu herþjónustu með hon- um, fylgdu nasistum að málum, ekki síst vegna þess að margir þeirra voru gyðingar. Samkvæmt gögnum, sem Weber hefur grafið upp, bendir allt til þess að Hitler hafi aðeins ör- sjaldan komið nær víglínunni en fimm til tíu kílómetra. Yfirleitt hafi hann verið í ferðum á milli bæki- stöðva langt að baki víglínunni. Sem sé dæmigert Etappenschwein. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 munaður, 8 lag- hent, 9 guðlega veru, 10 greinir, 11 úrgangs, 13 móka, 15 mas, 18 marklaus, 21 hátíð, 22 sætta sig við, 23 undirstöðu, 24 ringulreið. Lóðrétt | 2 úlfynja, 3 land, 4 er á fótunum, 5 rýr, 6 ókjör, 7 sjóða, 12 blása, 14 snák, 15 alur, 16 hlupu, 17 gnæfir yf- ir umhverfið, 18 gerjunin, 19 voru í vafa, 20 þekkt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tjald, 4 dögun, 7 árans, 8 nætur, 9 and, 11 iðan, 13 grói, 14 elnar, 15 römm, 17 ósar, 20 hak, 22 kjána, 23 rafal, 24 gamla, 25 komma. Lóðrétt: 1 tjáði, 2 afana, 3 dæsa, 4 dund, 5 getur, 6 nærri, 10 nenna, 12 nem, 13 gró, 15 rykug, 16 mjálm, 18 sófum, 19 rulla, 20 haka, 21 krók. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. O-O Rxe4 5. d4 Rd6 6. dxe5 Rxb5 7. a4 Rbd4 8. Rxd4 Rxd4 9. Dxd4 d5 10. exd6 Dxd6 11. De4+ De6 12. Df3 Bd6 13. Bf4 O-O 14. Bxd6 Dxd6 15. Rc3 c6 16. Hfe1 Dg6 17. He7 Dxc2 18. Hae1 Dxb2 19. h4 Db4 20. Dg3 Bf5 21. H1e3 Had8 22. H7e5 Be6 23. Hg5 Dd4 24. Hee5 g6 25. h5 Dd3 26. He3 Dd6 27. hxg6 Dxg3 28. gxh7+ Kh8 29. Hexg3 f6 30. Hg6 Hd7 31. Re4 Hxh7 32. Rxf6 Hh4 33. H3g5 Bf7 34. Hg7 Hh6 Staðan kom upp á franska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Belfort. Hicham Hamdouchi (2600) hafði hvítt gegn Vladislav Tkachiev (2639). 35. Hxf7! Hxf6 36. Hxb7 Hxf2 37. Hh5+ Kg8 38. Hg5+ Kh8 39. Hxa7 H8f7 40. Hxf7 Hxf7 41. Hg3! c5 42. Ha3 og hvítur innbyrti vinninginn skömmu síðar. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Óvægin lega. Norður ♠K ♥Á652 ♦G84 ♣ÁG862 Vestur Austur ♠98754 ♠DG6 ♥DG103 ♥974 ♦ÁD6 ♦97532 ♣4 ♣93 Suður ♠Á1032 ♥K8 ♦K10 ♣KD1075 Suður spilar 6♣. Sögnum er lokið og ♥D vesturs ligg- ur miðju borðinu. Norður afhjúpar dýrðina: fyrst ♠K, svo ásinn fjórða í hjarta, gosann þriðja í tígli og … laufin eru vart fallin þegar sagnhafi er kom- inn á fulla ferð: „Ásinn, takk, “ segir hann við þræl sinn í norður og heldur áfram í skipunartóni: „Spilaðu svo tíg- ulgosa.“ Allt er þetta gert til að setja pressu á austur strax. Suður hefur á örskots- stund reiknað út að slemman velti á tígulhittingi og best sé að koma austri í opna skjöldu. En austur lætur sér hvergi bregða og fylgir hiklaust með smáum tígli. Skýringin á því kemur fljótt í ljós. „Miskunnarlaus lega,“ kvartar sagn- hafi, en makker hans er ekki sammála: „Minni spámenn hefðu verið sáttir við litlu hjónin þriðju í spaða.“ 15. september 1947 Þórunn S. Jóhannsdóttir hélt sína fyrstu píanótónleika hér á landi, en hún var þá aðeins átta ára. Í Morgunblaðinu var sagt: „Þórunn er undrabarn; á því leikur enginn vafi.“ Hún varð síðar eiginkona Vladimir Ashkenazy. 15. september 1961 Innflutningur á nýjum bifreið- um var gefinn frjáls. „Hverfur þannig úr sögunni braskið með leyfin,“ sagði Morgunblaðið „og er hér stórum áfanga náð í þá átt að gefa allan innflutning til landsins frjálsan“. 15. september 1967 Útsendingar sjónvarpsstöðvar Varnarliðsins voru takmark- aðar við Keflavíkurflugvöll og næsta nágrenni hans. Stöðin hafði fengið starfsleyfi í mars 1955. 15. september 1972 Ásgeir Ásgeirsson lést, 78 ára að aldri. Hann var alþing- ismaður í nær þrjá áratugi, ráðherra um skeið, bankastjóri í fjórtán ár og forseti Íslands frá 1952 til 1968. 15. september 2004 Halldór Ásgrímsson tók við embætti forsætisráðherra af Davíð Oddssyni. Hann gegndi því í tæp tvö ár. 15. september 2007 Fyrsta sendiskrifstofa Færeyja var opnuð við Austurstræti í Reykjavík. Flaggað var með færeyska fánanum í tilefni dagsins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Áætlunin var að halda stóra afmælisveislu en svo eiginlega nennti ég því ekki þar sem ég er nýbúin að halda stórveislu,“ segir Katrín Atladóttir forrit- ari hjá tölvuleikjaframleiðandanum CCP en hún fagnar þrítugsafmæli sínu í dag. Stórveislan sem hún vísar til var hvorki meira né minna en brúð- kaup, en hún gekk að eiga Svein Friðrik Eydal Sveinsson í síðasta mánuði. En þó svo afmælisveislan verði ekki stór þetta ár- ið verður ekki af Katrínu tekið að hún er afmæl- isbarn mikið. „Ójá! Þetta er eitthvað það skemmti- legasta sem ég veit.“ Og þegar hún er beðinn um að skýra hvers vegna stendur ekki á svari: „Þetta er dagur sem maður á sjálfur og fær fyrir vikið svo mikla skemmtilega athygli.“ Spurð út í eftirminnilega afmælisdaga minnist Katrín á 27 ára afmæl- ið sem jafnframt var það fyrsta sem hún hélt upp á í sambandi með Sveini. „Þá fór hann með mig í óvissuferð upp á jökul og eldaði fyrir mig pönnukökur á prímus.“ En þó svo ekki komi til rómantík á jökli þykir Katrínu ekki verra þó afmælisdagurinn komi upp á venjulegum vinnudegi, enda segist hún vera í skemmtilegasta starfi í heimi, hún fái að hitta vinnufélaga sína auk þess sem boðið verði upp á súkkulaði. Katrín Atladóttir forritari er þrítug í dag Skemmtilegasta sem ég veit Söfnun Benjamín Pálsson og Valdimar Torfason gengu í hús í Vestur- bænum og söfnuðu 5.327 kr. til styrktar ABC barnahjálp. Flóðogfjara 15. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.58 1,2 11.34 3,2 17.54 1,4 6.51 19.56 Ísafjörður 0.48 1,7 7.02 0,7 13.41 1,8 20.15 0,8 6.53 20.03 Siglufjörður 3.38 1,1 9.22 0,6 15.46 1,2 22.11 0,5 6.36 19.46 Djúpivogur 1.48 0,7 8.22 1,9 14.51 0,9 20.30 1,6 6.20 19.26 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þótt gott sé að setja markið hátt máttu ekki vera svo kröfuhörð/harður að ekkert verði af neinu. Fólk er einstaklega móttækilegt fyrir þér núna. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hefur mikla þörf fyrir að bregða út af vananum. Skelltu þér í spinning eða lærðu júdó – og reyndu að kynnast fólki með aðra sýn á lífið en þú hefur. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Jafnvel mestu íþróttakappar þurfa að hlaða batteríin annað veifið. Bankareikn- ingurinn bólgnar út. Þú séð ekki sólina fyrir einhverjum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Gerðu langtímaáætlanir í fjármálum. Gerðu samt ekki of mikið úr hlutunum því þá verður öll ráðgjöf erfiðari. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hefur góðan byr í seglin en þarft að gæta þess að kollsigla þig ekki. Illu er best af- lokið – svo brettu upp ermarnar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Hljóð vekja tilfinningar og ef þú hlust- ar opnast hjarta þitt. Notaðu tækifærið til að koma sjónarmiðum þínum á framfæri. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það getur reynst mikil kúnst að segja nei, þegar það á við. Gefðu þér því tíma til þess að kynnast lífinu af eigin raun. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nú er rétti tíminn til að huga að ástamálunum. Annað hvort verður þú að leggja meira á þig í vissu sambandi eða hreinlega sleppa því. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Afstaða þín til peningamála þinna getur verið frökk en árangursrík. Samskipti við ástvini, fjölskyldu og börn ganga einnig vel. Best er að gæta þess að lofa ekki upp í ermina á sér. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Himintunglin ýta undir hugsanir um breytingar. Allir vita að fólk sem hegðar sér vel kemst sjaldnast á spjöld sögunnar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ættir að setjast niður og fara yfir sviðið og athuga hvort þú getur ekki fært eitthvað til betri vegar. Hvort börnin hlusta á foreldrana eða ekki kemur fljótlega í ljós. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Einhver er tilbúinn til að aðstoða þig í málefnum er varða ferðalög. Viðskipti dags- ins munu færa þér hagnað og mikla ánægju. Stjörnuspá Árni Jökull opnaði ísbúð í garðinum hjá langömmu sinni á góð- viðrisdegi í júní og færði Rauða kross- inum ágóð- ann af söl- unni, 3.753 krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.