Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Félag sjálfstæðismanna
í Árbæ, Selási, Ártúns- og
Norðlingaholti
Opinn fundur
Opinn fundur með Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur oddvita sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur verður í kvöld
mánudaginn 20.
september kl. 20:00 í
félagsheimili sjálfstæðis-
manna í Hraunbæ 102B
(við hliðina á Skalla).
Á fundinum verða borgar-
málefnin rædd af alvöru.
Fundarstjóri verður
Björn Gíslason formaður
Félags sjálfstæðismanna í
Árbæ.
Allir velkomnir!
Stjórnin
MÍMIR 6010092019 Fjhst. I°
I.O.O.F. 3 1919208
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Vantar þig gistingu á Akureyri
í vetur? Mjög góðar orlofsíbúðir
til leigu við miðbæinn. Margar
stærðir, frábær verð. Getum tekið
á móti stórum hópum.
Upplýsingar á
www.gistingakureyri.is og
www.gistingamaro.is
eða í s. 461 2222.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s: 897- 5300. Geymslur
Vetrargeymslur:
,,Geymdu gullin þín í Gónhól”.
Pöntun í s. 771 1936 - gonholl.is
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Eignarlóðir
undir sumarhús til sölu
Í landi Kílhrauns á Skeiðum. 50 mín-
útna akstur frá Reykjavík. Landið er
einkar hentugt til skógræktar og
útivistar. Falleg fjallasýn.
Upplýsingar í símum 824-3040
og 893-4609
Festu þér þinn sælureit í dag.
Málverk
ÚTSALA
Smellurammar
10x15 kr. 100,- 20x25 kr. 250,-
og 40x50 kr. 800
Myndir frá kr. 2500,-
Málverk frá kr. 5000,-
Karton m. glugga
kr. 200 - 600.-
Innrömmun
20% afsláttur
Sérskorinn karton 20% afsláttur
Tré- og álrammar
50-60% afsláttur
Álrammar 21x30 kr. 1200,-
og 59x67 kr. 1800.-
Íslensk grafík
Tolli - Bragi - Jón Reykdal -
Þórður Hall o.fl.
20 - 40% afsláttur
Opið virka daga kl. 9-18
Síðumúla 34, sími 533 3331
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 9.990,-
Klossar. Leður með hælbandi
Litur - Hvítt. Stærðir 35- 42.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstudag
kl. 11.00 - 17.00
www.praxis.is
Þægilegir inniskór úr leðri í
úrvali, skinnfóðraðir
Teg 2178
Stærðir: 36 - 42 Með „ stretch“ efni
í hliðum. Verð: 10.900.-
Teg: 3716
Stærðir: 36 - 4. Með „stretch“ efni í
hliðum. Verð: 10.900.-
Teg: 1410
Stærðir: 36 - 42. Litir: beige, svart,
grænt. Verð: 8.950.-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18.
laugardaga 10 - 14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Veiði
HAGLASKOT - Haglaskot fyrir
leirdúfur, sjófugl, rjúpu, önd og gæs.
Topp gæði - botn verð.
Sportvörugerðin sími 660-8383.
www.sportveidi.is
Bílar
JEEP GRAND CHEROKEE
LIMITED V8
Árgerð 2000, ekinn aðeins 123 þ. km.
Verð 1.380.000. Rnr. 243262.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
Nýr óekinn Nissan Patrol SE
Síðasti bíllinn hjá okkur með tveggja
milljóna afslætti frá núvirði. Frábær
kaup fyrir jeppa í fullri stærð. Þetta
verð á ekki eftir að sjást í komandi
framtíð. Verð aðeins 6.950 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
VW TOUAREG 2
Árgerð 2008, ekinn aðeins 34 þ.
km. Bensín, sjálfskiptur.
Verð 5.990.000. Rnr. 243115.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
MMC PAJERO GLS ANTERA 33"
Árgerð 2003, ekinn aðeins 139 þ.
km. Bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.890.000. Rnr. 242943.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
OPEL ASTRA CARAVAN GL
EXOTEC
Árgerð 2001, ekinn 135 þ. km.
5 gírar. Verð 580.000. Rnr. 280030.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi og fleira í upphituðu rými.
Gott verð. S: 899 7012.
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Húsviðhald
Húsasmíðameistari getur bætt
við sig verkefnum. Alvanur breyt-
ingum og viðhaldi.
Uppl. í s. 897 1961.
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Félagslíf
atvinna
það var mikill missir fyrir hann og
fjölskylduna er hún lést. Hún var
mikil stoð og stytta fyrir þau öll og
ekki síst Gunnlaug. Það er gott að
hafa átt samleið með slíku fólki.
Við Máni vottum sonum þeirra
og fjölskyldum okkar innilegustu
samúð og minnumst þessara heið-
urshjóna með virðingu og þökk.
Guð blessi minningu þeirra.
Kristín Ingibjörg Tómasdóttir.
Gunnlaugur Snædal var ættaður
af Jökuldalnum. Þaðan kom nafnið.
Við sem unnum með honum vissum
að því fylgdi eitthvað kjarngott, í
ætt við heiðarnar og dalinn, sam-
bland af því að vera myndugur á
velli, þýður í lund en þó með
ákveðni og festu þegar þurfti.
Gunnlaugur Snædal var minnis-
stæður maður, vel menntaður for-
ystumaður í fæðinga- og kvensjúk-
dómalækningum á Íslandi í yfir
þrjá áratugi. Framhaldsmenntun
að loknu læknanámi við Háskóla
Íslands sótti hann fyrst til Dan-
merkur, en svo einkum til Svíþjóð-
ar og kom rúmlega þrítugur heim
til starfa, fyrst á handlæknisdeild
Landspítalans en tveimur árum
síðar á Fæðingadeildina. Þar varð
Gunnlaugur virtur læknir og kenn-
ari, farsæll í starfi og vel liðinn af
öllum sem á vegi hans urðu, sam-
starfsfólki jafnt og skjólstæðing-
um. Hann var einn hinna fyrstu
sem luku doktorsprófi í læknis-
fræði við Háskóla Íslands. Það var
merkisviðburður þegar hann varði
ritgerð sína um brjóstakrabbamein
á Íslandi árið 1964. Til þess verks
hefur oft verið vitnað síðan.
Gunnlaugur Snædal markaði
spor í sínu fagi og í íslenskri lækn-
isfræði með margvíslegum hætti.
Með vini sínum Gunnari Biering,
barnalækni, kom hann á fót Rhe-
sus-vörnum á landinu og setti upp
fæðinga-skráningu á Íslandi, þar
sem Berta, eiginkona hans vann
lengi með þeim að söfnun ómet-
anlegra grunnupplýsinga um fæð-
ingar á Íslandi. Hann stóð fyrir
byggingu nýs húsnæðis, stórrar
álmu við hina gömlu Fæðingadeild
Landspítalans, sem þá varð
Kvennadeildin, þar sem miðstöð
faglegrar þjónustu fyrir sérstök
heilsufarsvandamál kvenna byggð-
ist upp. Þá beitti hann sér af krafti
í þágu Krabbameinsfélags Íslands
og leitarstarfsins þar og sýndi sögu
læknisfræðinnar sérstakan áhuga.
Á Norðurlandavettvangi vann hann
í samtökum fæðinga- og kvensjúk-
dómalækna og að sameiginlegum
skráningarmálum, m.a. varðandi
fæðingar. Á öllum þessum sviðum
var Gunnlaugur jafnan valinn í for-
ystusveit. Hann hvatti samverka-
menn sína og nemendur áfram og
taldi réttilega að það myndi
gagnast best í framþróun deildar-
innar, enda var honum ýmis sómi
sýndur á lífsleiðinni hérlendis sem
erlendis með tilvísan til starfa
hans. Við sem vinnum í dag við
mæðravernd og fæðingarhjálp bú-
um að þessu um ókomna tíð.
Gunnlaugur tók við prófessors-
embætti við Háskóla Íslands árið
1987 og gegndi því fram til ársloka
1993. Aðeins tveim árum síðar
missti hann lífsförunaut sinn,
Bertu, og margt breyttist í lífi
hans. Hann kom enn í allmörg ár á
fundi okkar fæðinga- og kvensjúk-
dómalækna, meðan heilsan leyfði.
Við í Félagi íslenskra fæðinga- og
kvensjúkdómalækna og samstarfs-
fólk hans á Kvennadeildinni kveðj-
um Gunnlaug Snædal að leiðarlok-
um með virðingu og þökk fyrir
framlag hans til heilla konum,
börnum og fjölskyldum í landinu,
fyrir góða arfleifð hans, forystu og
vináttu.
Sonum hans, tengdadætrum,
barnabörnum og öðrum fjölskyldu-
meðlimum sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Reynir Tómas Geirsson.
Gunnlaugur Snædal