Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Tíska & förðun Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 15. október MEÐAL EFNIS: Nýjustu förðunarvörurnar. Húðumhirða. Haustförðun. Ilmvötn. Snyrtivörur. Neglur og naglalökk. Hár og hárumhirða. Tískan í vetur. Flottir fylgihlutir. Góð stílráð. Íslensk hönnun. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur S ÉR B LA Ð Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. október Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haustið 2010 í hári, förðun, snyrtingu og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. Niðurstaða rann- sóknarskýrslu Alþingis fól í sér margvíslega gagnrýni á stjórn- arhætti, fjölmiðla sem og hagsmuna- og fræða- samfélagið. Flestir ef ekki allir þingmenn hafa lofað bót og betrun á starfsháttum og sumir auðlegðar- og kúlul- ánaþingmennirnir hafa jafnvel gert það tárvotir og skreytt heit sín svo að loforðaflaumurinn úr barka þeirra er orðinn velgjulegur. Þegar til á að taka eru efndirnar engar sem sást best á aumum verkum Guðbjarts Hannessonar sem stjórnaði svokallaðri sáttanefnd í sjávarútvegi sem ætlað var að innleiða réttlátar breytingar á stjórn fiskveiða. Ekki ætla ég að hafa mörg orð um afurð Guðbjarts, sem er nýbakaður ráð- herra, og félaga hans í meirihluta nefndarinnar en þjóðin hefur hvorki siðferðislega né fjárhagslega efni á að halda áfram með núverandi stjórn- kerfi fiskveiða eins og ekkert hafi ískorist. Það sem Guðbjartur og meirihluti svokallaðrar sáttanefndar flaskaði al- gerlega á var að taka forsendur núverandi fiskveiðistjórnunar- kerfis til endurskoðunar en kvótakerfið skilar einungis á land þriðj- ungnum af þeim þorsk- afla sem veiddist að jafn- aði fyrir daga kerfisins. Af einhverjum óskiljan- legum ástæðum hafði nefndin ekki nokkurt þrek til þess að fara yfir galnar forsendur kerf- isins sem stangast á við viðtekna vistfræði og heilbrigða skyn- semi sem segir að vafasamt sé að ætla að nokkurt vit sé í því að draga það sem má veiðast við Grímsey frá því sem má veiða á Breiðafirði, hvað þá við Vestmannaeyjar. Það liggur í aug- um uppi að ef stjórnvöld ætla sér að festa í sessi aflamarkskerfi ætti að sníða af helstu galla þess, s.s. brott- kast, og fara að sjálfsögðu yfir það hvers vegna kerfið sem byggist á reiknifiskifræði skilar ekki upphaf- legum markmiðum sínum um stöð- ugan aukinn fiskafla. Auðvitað hefði það átt að vera al- gjört forgangsverk fyrir íslensk stjórnvöld að líta til Færeyja þar sem ágæt sátt ríkir um stjórn fiskveiða öf- ugt við hér. Færeyska dagakerfið byggist á því að sókn sé stöðug en afl- inn ræðst þá af því sem lífríkið gefur en ekki hæpinni ráðgjöf reiknifiski- fræðinga. Nú er þorskstofninn á upp- leið við Færeyjar þrátt fyrir að alltaf hafi verið veitt umfram ráðgjöf Al- þjóðahafrannsóknaráðsins síðustu tvo áratugina. Reyndar hljóðaði ráðgjöfin síðustu þrjú árin upp á algert veiði- bann en samt hefur stofninn sveiflast upp og niður og er núna kominn í upp- sveiflu. Þetta segir mér einungis eitt, það að reynslan frá Færeyjum sýnir að ráðgjöf reiknifiskifræðinganna er röng. Það sama ætti algjört árangurs- leysi hér við land að sýna. Borðleggjandi er að þjóð sem glímir við gjaldeyrisskort á að fara gaum- gæfilega yfir öll rök sem hníga að því að hægt sé að sækja í auknum mæli í vannýtta fiskveiðiauðlind. Stjórnmálastéttin í kreppu Eftir Sigurjón Þórðarson » Borðleggjandi er að þjóð sem glímir við gjaldeyrisskort á að fara gaumgæfilega yfir allar leiðir til gjaldeyris- öflunar. Sigurjón Þórðarson Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. Að undanförnu hef- ur umræða um þátt endurskoðenda í or- sökum og afleiðingum hrunsins farið vaxandi í þjóðfélagsumræð- unni. Staðhæfingar eins og „endurskoð- endur brugðust“ og „endurskoðendur verða að svara til saka“ hafa gjarnan komið fram. Segja má, að þessi um- ræða hafi náð nýjum hæðum í hinni svonefndu skýrslu þingmanna- nefndar þar sem dregnar eru álykt- anir og alhæft með þeim hætti, að engan veginn verður við unað. Í allri þessari umræðu er æv- inlega rætt um endurskoðendastétt- ina sem eina heild í þessu samhengi, hvergi er gerð tilraun til að skil- greina stéttina og hversu stór hluti hennar kom nálægt þeim störfum sem helst hefur verið fjallað um í umræðunni og talinn er hafa brugð- ist skyldum sínum. Vitna má orðrétt í skýrslu þingmannanefndarinnar þar sem segir m.a.: „Þá er alvarlegt að endurskoðendur (leturbr. und- irritaðs) virðast ekki hafa rætt or- sakir og afleiðingar hrunsins og að- komu löggiltra endurskoðenda í sínum ranni“. Þessi rakalausa staðhæfing hefur reyndar verið hrakin af stjórn F.L.E. í tilkynningu til fjöl- miðla 16. sept. s.l. þar sem glögglega kemur fram að þessi fullyrðing er beinlínis röng. Það hvort þessi umræða er nógu beinskeytt og ein- örð má eflaust um deila og um það eru skoðanir eflaust skiptar. Löggiltir endurskoð- endur á Íslandi í dag eru vel á fjórða hundrað talsins. Fullyrða má, að langstærstur hluti þeirra er í dag að fást við nánast nákvæmlega hlið- stæð verkefni og á árunum fyrir hrun. Lausleg athugun mín á þessu gefur til kynna, að a.m.k. fjórir af hverjum fimm endurskoðendum hafa ekkert fengist við verkefni sem tengjast þeim ávirðingum sem eru tilefni þessa pistils. Þessi staðreynd hefur hvergi komið fram svo ég viti til þar sem ávirðingar á endurskoð- endastéttina hafa verið á dagskrá. Það er, hreint út sagt, óþolandi fyrir hinn stóra meirihluta endur- skoðenda sem hvergi hafa komið nærri þeim félögum sem beint og óbeint eru öðrum fremur talin ábyrg fyrir hruninu, að vera sífellt atyrtir skilyrðislaust og án nokkurs fyr- irvara fyrir slælega frammistöðu og óvönduð vinnubrögð. Hvað varðar þátt þeirra sem nú sæta sérstökum rannsóknum og dómstólameðferð skal einungis minnt á, að sérhver maður skal saklaust teljast nema sekt sé sönnuð. Áhersla á þessa staðreynd virðist gjarnan í lágmarki hjá þeim sem um endurskoð- endastéttina hafa fjallað að und- anförnu. Þingmannanefndum og öðrum, sem um málefni og frammistöðu endurskoðenda fjalla, væri hollt að hafa í huga orð þjóðskáldsins Stein- gríms Thorsteinssonar (f. 1831 – d. 1913) þar sem hann orti: Lastaranum líkar ei neitt. Lætur hann ganga róginn. Finni hann fölnað laufblað eitt þá fordæmir hann skóginn. Eftir Guðmund Jóelsson Guðmundur Jóelsson »… hvergi er gerð til- raun til að skilgreina stéttina og hversu stór hluti hennar kom ná- lægt þeim störfum sem helst hefur verið fjallað um í umræðunni... Höfundur er löggiltur endurskoðandi. Til varnar endurskoðendum Á vissan hátt var það góð hugmynd hjá kreppuríkisstjórninni að setja umsóknar- viðræður að Evrópu- sambandinu á dag- skrá. Það gaf okkur landakort af vanda þjóðarinnar til að byrja að hugsa eftir. En kannski var það aldrei ætlun stjórn- valda í raun og veru að við gerð- umst áskrifendur að ESB-aðild sem hinum endanlega sannleik. Miklu frekar var það tilraun til að fá okkur til að hugsa út fyrir okk- ar gamla kassa; eða réttara sagt; okkar gamla hring. Því við erum eyjaskeggjar, og sjáum því veröldina út frá okkar eyjahring, umluktum hafi. Þannig virðumst við eðlilega vera nafli heimsins, með okkar fiskveiðar og landskika og ættarsamfélag, og aðalkappsmálið getur virst að árétta þessa sýn með því að leggja út yfir þetta haf sem aðskilur okk- ur frá hinum framandi og vara- sama umheimi, í eins konar vík- ingaútrás þar sem við seljum okkar heimilisiðnað á svo upp- sprengdu verði, að engum getur lengur blandast hugur lengur um að við séum í raun og veru nafli heimsins. (Það má reyndar til gamans geta, að fornleifafræðingar telja nú að þeir hafi fundið hinn upp- runalega nafla heimsins, í Appó- lonshofinu í Delfí á Grikklandi; og reyndist það vera eftirlíking af hlóðareldsöskuhrúgu). En það má lengi notast við hringhugsun, svo fremi sem menn komast út fyrir hringinn að lokum. Það er nefnilega hægt að bæta við hringjum: Til dæmis falla margir í þá gryfju að nálgast pólitísk vandamál með tveimur hringjum; með og á móti. En ef við bætum þriðja hringnum við, fæst kannski önnur sýn: Til dæmis að við ættum frekar að stefna að því að útvíkka EES-samninginn en að ganga í ESB. Og ef við bætum fjórða hringinum við, getum við kannski verið komin út til Bandaríkjanna eða Kína! Við verðum að muna að við er- um borgmenningarsamfélag í ey- ríki, og að í raun erum við bara nýbúar frá Evrópu. Frekar en að við séum upphaf og endir alls, er hægt að hugsa sér framrás borg- menningarsögunnar sem festi af hringjum, með því að nefna borgir sem heimsnafla í gegnum söguna. Festin gæti litið svona út: Sú- mer, Babýlon, Efesus, Aþena, Alexandría, Róm, Konstantínópel, Feneyjar, París, London og New York. Saga heimspekinnar og ljóðlistarinnar í rit- uðu máli nær að minnsta kosti aftur til Efesus um 700 f. Kr. Við hérna á eyjunni okkar erum ennþá að hringla kringum það upphaf með bók- menntum okkar og hugsunar- hætti. Önnur leið til að notfæra okkur hringasafn í hugsun er að hugsa um allar byggðar eyjar heimsins sem festar. Þá tökum við strax eftir að næstu eyjasamfélögin í okkar hring, Færeyjar og Grænland, hafa bæði hafnað inngöngu í ESB. Aðrar eyjar eins og Ródos í Grikklandi hafa látið teyma sig inn í algerri uppgjöf. Það sama má segja um finnsku eyjur Álands. Eyjan Gotland var hins vegar alltaf hluti af Svíþjóð. En Danmörk, sem er eyríki að hálfu, með Sjálandi og Fjóni, og Bretland, sem er einnig eyríki, streitast mjög á móti fullri aðild að meginlandsbákninu ESB. Japan er frægur eyjaklasi fyrir einangrunarstefnu sína fyrrum. Margar eyjar í Karíbahafi eru að reyna að feta meðalveginn vandfundna milli sjálfstæðis síns og sambúð við meginlandsríki. Og sumar eyjarnar eru svo stór- ar að þær líkjast meira fjölþjóð- legum meginlöndum, sem við get- um lítið lært af; svo sem Madagaskar og Srí Lanka. Og loks eru til ríki sem eru samsett úr svo mörgum eyjum að alltaf þurfa einhverjir eyjaskeggj- ar að vera að reyna að segja sig í burtu: Má þar nefna Indónesíu og Filippseyjar. Nú held ég að nóg sé komið af hringjum til að lesendur geti farið að þræða þá saman sjálfir! Hringhugsun eyjaskeggja Eftir Tryggva V. Líndal Tryggvi V Líndal » Til dæmis falla margir í þá gryfju að nálgast pólitísk vanda- mál með tveimur hringj- um; með og á móti. En ef við bætum þriðja hringnum við, fæst kannski önnur sýn. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og skáld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.