Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Á haustin skartar þessi yndislega eyja sínu fegursta. Veðurfarið er einstaklega milt og notalegt sem og allt umhverfi, hvort sem dval- ið er við amerísku ströndi- na, á Costa Adeje eða í Los Cristianos. Nú fer hver að verða síðastur að panta sér ferð í október til Tenerife, því það eru einungis örfá sæti laus. - Ekki missa af þessari ferð! Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Tenerife 28. október í 16 nætur Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Tenerife þann 28. október á ótrúlegu sértilboði Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Morgunflugmeð Icelandair Frá kr. 139.540 - Dream Villa Tagoro*** með allt innifalið! Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og „allt innifalið“ þjónusta. Verð kr. 187.980 á mann m.v. tvo í íbúð m/1 svefnherbergi. Innifalið er flug, gisting, skattar og „allt innifalið“ þjónusta. Sértilboð í 16 nætur þann 28. október. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Það getur gert illt verra að „bjarga“ börnum frá Gíneu-Bissá úr svokölluðum kóranskólum í Senegal, sem ýmsir hafa flokkað undir mansalsstarfsemi, vilji hvorki þau né foreldrar þeirra láta bjarga þeim. Þetta er meðal nið- urstaðna íslenskrar rannsóknar á aðstæðum þessara barna, sem Jón- ína Einarsdóttir mannfræðipró- fessor stýrði fyrir UNICEF á Ís- landi. Áætlað er að um 2.400 börn og þá sérstaklega drengir fari árlega frá Gíneu-Bissá til Senegals og Gamb- íu vegna vinnu og trúarlegs náms í svokölluðum kóranskólum. Að sögn Jónínu hefur þetta tíðkast lengi en hefð er fyrir því að börnin betli fyr- ir viðurværinu á meðan á skóla- dvölinni stendur. „Þessi tegund af betli þykir sjálfsögð í Senegal enda betla krakkarnir fyrst og fremst af Senegölum. Þar er litið svo á að með því séu góðir múslimar að styðja ung börn til menntunar.“ Líka notað um eiturlyfjasölu Börnin eru niður í fjögurra ára gömul, en flest sennilega á aldrin- um 10-14 ára. Það var að beiðni UNICEF í Gíneu-Bissá sem Jón- ína og samstarfsmenn hennar réð- ust í rannsókn á aðstæðum þeirra. „Hugtakið mansal, eða „trafico“ eins og það heitir í Gíneu-Bissá, er mjög umdeilt, enda er það líka not- að um sölu á eiturlyfjum. Foreldr- um sem telja sig vera að senda börn sín til mennta finnst því ósvíf- ið að viðleitni þeirra til að mennta börnin sé kölluð „trafico“. Þeim finnst að verið sé að gera þá að glæpamönnum og engar opnar samræður eru um deiluefnið. Það er ekki heppilegt fyrir börnin.“ En er rétt að flokka kóranskól- ana sem mansalsstarfsemi að mati Jónínu? „Það er misjafn sauður í mörgu fé og í hópi kórankennar- anna eru menn sem leggja meira upp úr því að börnin betli og safni fé en að kenna þeim. Í þeim skiln- ingi má segja að þeir stundi man- sal, eða séu sekir um illa meðferð á börnum. Hins vegar eru aðrir sem leggja sig fram um að veita börn- unum þessa menntun.“ Hún segir hluta af vandanum þann að fáir sem engir skólar eru í Gíneu-Bissá en ýmis samtök, sem mörg eru í Dakar í Senegal, fái fjár- stuðning til að senda börnin aftur heim, gegn vilja foreldranna. „For- eldrarnir eru öskureiðir yfir þessu og segja að það væri nær að láta þá fá peningana til að byggja skóla þar sem þeir búa. Þeir eru mjög með- vitaðir um hvað er að gerast og sumir líta jafnvel svo á að með þessu sé verið að koma í veg fyrir að drengirnir fái trúarlega mennt- un sem sé liður í alþjóðlegri baráttu gegn íslam. Þetta er því mjög heitt deiluefni.“ Nýjustu tíðindi eru að í ágúst bönnuðu Senegalar betl í landinu eftir þrýsting frá alþjóðleg- um stofnunum sem hótuðu að draga til baka þróunaraðstoð að öðrum kosti. Vilja samráð við foreldra „Nú er verið að endurskoða að- gerðir gegn mansali í Gíneu-Bissá og ég hef á tilfinningunni að notkun hugtaksins mansals verði tónuð niður,“ segir Jónína. „Við leggjum til að allar aðgerðir til að hjálpa þessum börnum verði ákveðnar í samráði við foreldrana. Þá þarf að rannsaka betur hvað verður um þau börn sem er „bjargað“ en ým- islegt bendir til þess að drengir, sem hefur verið snúið heim aftur, snúi aftur til Senegals en þá ekki til að fara í kóranskóla heldur ein- göngu til að gerast götubörn. Í þeim tilfellum hefur staða þeirra versnað við aðgerðina.“ Á vettvangi Jónína tók viðtöl við fjölda fólks í Afríkuríkinu Gíneu–Bissá vegna rannsóknarinnar, sem gerð var fyrir UNICEF þar í landi. Öskureið yfir afskiptum  Íslensk rannsókn á mansali á börnum í Gíneu-Bissá  Drengir sendir í kór- anskóla og betla fyrir uppihaldi  Börnin send heim gegn vilja foreldranna Sérsveit ríkislög- reglustjóra af- vopnaði og hand- tók karlmann á sextugsaldri sem mætti með skammbyssu á slysadeild Land- spítalans í Foss- vogi gærmorgun. Maðurinn afhenti vopnið án mót- þróa en það reyndist óhlaðið. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu var um að ræða óskráða skamm- byssu. Maðurinn sýndi ekki af sér ógn- andi tilburði en starfsfólki var vit- anlega brugðið þegar hann tók upp byssuna. Hún var þó allan tímann í hulstri. Lögreglumaður kallaði til sérsveit. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Að sögn lögreglu er maðurinn andlega van- heill, og var í gær unnið að því að finna honum viðeigandi aðstoð. Ekki er vitað hvað honum gekk til. Einnig stóð til að kanna hvort maðurinn ætti fleiri skotvopn en það lá ekki fyrir í gærkvöldi. Með skot- vopn á slysadeild Ógnaði engum en starfsfólki brugðið Stríðsdót - Byssur. Starfsmaður HB Granda á Vopna- firði olli skemmdum á tækjabúnaði frystihúss félagsins aðfaranótt laug- ardags þegar hann gekk berserks- gang með sleggju. Lögreglan tók skýrslu af manninum sem var undir áhrifum áfengis. Brunaviðvörunarkerfi fyrirtækis- ins fór af stað klukkan fjögur, og þegar yfirmenn mættu á svæðið mættu þeir starfsmanninum, sem var samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins, hinn rólegasti. Að sögn þeirra sem til þekkja hafði maðurinn setið að drykkju á krá, sem er stað- sett nærri frystihúsinu. Maðurinn olli talsverðu tjóni á tækjabúnaði, en hversu kostn- aðarsamt tjónið verður liggur ekki fyrir. Tæknimenn HB Granda hafa þó lagfært stóran hluta þess sem var skemmt. Manninum, sem er á þrí- tugsaldri, hefur ekki verið sagt upp störfum, heldur var hann sendur í launalaust leyfi. Gekk ber- serksgang með sleggju „Það var ekki við öðru að búast en að þetta yrði útkom- an,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, um þá niðurstöðu nefndar um orku- og auð- lindamál, að formlegum skilyrðum laga hafi verið fullnægt í viðskiptum Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. „Málið var alltaf í réttum farvegi og fór fyrir nefnd um erlenda fjárfestingu sem var búin að afgreiða málið fyrir sitt leyti. Það eina sem hefur gerst í málinu er að ríkisstjórnin hefur tafið og skapað óvissu.“ Hann segir löggjöfina hér á landi byggjast á frelsi til fjárfestinga innan EES. „Við gerum kröfu til þess að sú löggjöf sé túlkuð með sama hætti í öðrum EES-ríkjum og á að túlka hana hér. Í þessu máli sýnist mér ljóst að lögin girða ekki fyrir þá fjárfestingu sem er hér um að ræða. Vilji menn hins vegar setja frekari skilyrði fyrir slíkri fjárfestingu þá þarf að ræða það.“ Skoði lengd leigusamninganna Næstu skref segir Bjarni eiga að vera að skoða lengd leigusamninganna sem um ræðir. „Sá sem á hér í hlut hefur boðist til að stytta leigusamningana, en niðurstað- an af þessari nefndarskipan og öllu klúðrinu um hæfi manna til að sitja í henni er engin. Ríkisstjórninni hefur tekist að halda þessu máli í óvissu í tvo til þrjá mánuði og þessi niðurstaða hjálpar okkur ekki neitt.“ Niðurstaðan í Magma– málinu fyrirsjáanleg  Ríkisstjórnin hefur haldið málinu í óvissu, segir Bjarni Ben Morgunblaðið/Ómar HS Orka Hart hefur verið deilt um Magma–málið. „Það er aukin tilhneiging í Vestur- Afríku að flokka ýmsa siði sem mansal, eins og t.d. að senda börn í fóstur eða í vist, sem er mjög al- gengt, og sömuleiðis þessa kóran- skóla,“ segir Jónína. „Þegar ég fór að vinna í þessu varð mér hugsað til þess siðar á Íslandi að senda börn í sveit og núna er meistara- nemi hjá mér að skoða þá hefð hérlendis með hliðsjón af al- þjóðlegri löggjöf um mansal barna. Það er ákveðinn sam- hljómur þar á milli þótt auðvitað megi deila um hvort það sé mansal. Þessi nemi hefur tek- ið viðtöl við fjölda fólks, bæði sem var sent í sveit og tók á móti börn- um í sveit. Og það eru ljótar sögur sem hún hefur heyrt frá sumum sem voru sendir í sveit, en líka hið gagnstæða.“ Samhljómur við mansalslög SKOÐAR ÞANN ÍSLENSKA SIÐ AÐ SENDA BÖRN Í SVEIT Jónína Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.