Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Íranar eru reiðubúnir að taka upp viðræður um kjarnorkuáætlun sína við önnur ríki, þ.m.t. Bandaríkin. Þetta kom m.a. fram í viðtali við for- seta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sem sýnt var á ABC sjónvarpstöðinni bandarísku í gær. „Ég held að það séu forsendur til þess að ræða málin,“ sagði Ahmadinejad. Erfiðlega hefur gengið að fá írönsk stjórn- völd til viðræðna um kjarnorkuáætlunina og til- raunir þeirra til þess að auðga úran. Bankakerfið og hagvöxtur Mikill þrýstingur hefur verið á írönsk stjórnvöld vegna kjarnorkuáætlunarinnar en vestræn ríki telja að markmið þeirra sé að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Hafa þau með stuðn- ingi Sameinuðu þjóðanna m.a. farið fram á það að alþjóðlegir aðilar hefðu eftirlit með áætl- uninni en því hafa Íranar til þessa alfarið hafnað. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði í framhaldi af ummælum Ahmad- inejad að ljóst væri að viðskiptaþvinganir sem settar hafa verið á Írana væru að skila árangri. „Íranska stjórnin hefur miklar áhyggjur af áhrifunum á bankakerfi landsins og hagvöxt enda hafa Íranar þegar lent í miklum efnahags- erfiðleikum.“ Reiðubúinn að ræða kjarnorkumál  Forseti Írans segist tilbúinn til viðræðna um kjarnorkuáætlun landsins við fulltrúa annarra ríkja  Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir viðskiptaþvinganir gegn Írönum vera að skila árangri Reuters Kjarnorka Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segist nú reiðubúinn að ræða kjarnorkumál. Kjarnorkuáætlunin » Erfiðlega hefur gengið að fá írönsk stjórnvöld til við- ræðna um kjarnorkuáætlun landsins. » Forseti Írans segist nú reiðubúinn að ræða um áætl- unina við erlend ríki og þ.m.t. Bandaríkjamenn. » Utanríkisráðherra Banda- ríkjanna segir að við- skiptaþvinganir gegn Írönum séu að skila árangri. » Íranskir ráðamenn sagðir hafa sérstakar áhyggjur af áhrifunum á bankakerfi Írans. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Bandalag miðju- og hægriflokka í Svíþjóð náði sögulegum árangri í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær þrátt fyrir að ná ekki meirihluta á sænska þinginu. Rík- isstjórn borgaraflokkanna verður þó áfram við völd en tæp 80 ár eru síðan slík ríkisstjórn hélt völdum eftir kosningar. Mjótt var á mununum samkvæmt skoðanakönnunum allt fram að kosningunum. Munurinn á fylking- unum tveimur var þó mun meiri þeg- ar upp var staðið en flestir stjórn- málaskýrendur höfðu gert ráð fyrir. Hægriflokkurinn sigurvegari Samtals fengu þeir fjórir flokkar sem mynda bandalag miðju- og hægriflokka 49,3% atkvæða og 172 menn kjörna á sænska þingið en þar sitja í heildina 349 þingmenn. Að lágmarki 175 þingmenn þarf til þess að ná meirihluta á þinginu. Rauð- grænt bandalag vinstriflokkanna hlaut hins vegar 43,7% atkvæða og 157 þingmenn samanlagt. Jafnaðar- mannaflokkurinn fékk 31% atkvæða og hefur flokkurinn ekki hlotið verri kosningu síðan árið 1921. Ljóst er að úrslit kosninganna þýða að Fredrik Reinfeldt, leiðtogi bandalags miðju- og hægriflokk- anna, verður áfram forsætisráð- herra Svíþjóðar en flokkur hans, Hægriflokkurinn, var sigurvegari kosninganna með 30% fylgi og bætti við sig 3,9% frá því að kosið var síð- ast fyrir fjórum árum. Náðu mönnum á þing Svíþjóðardemókratarnir fengu 5,7% fylgi og komust því yfir 4% tak- markið sem þarf til þess að ná mönn- um á sænska þingið. Flokkurinn fékk 20 þingmenn en hann hefur einkum beint spjótum sínum að inn- flytjendum í Svíþjóð og talað fyrir því að komið yrði á strangri innflytj- endalöggjöf. Svíþjóðardemókratarn- ir hafa ekki áður náð mönnum inn á þing og fengu aðeins 2,9% fylgi í kosningunum 2006. Aðrir stjórnmálaflokkar í landinu, bæði til vinstri og hægri, höfðu fyrir kosningarnar heitið því að vinna ekki með Svíþjóðardemókrötunum. Þegar búið var að telja nær öll at- kvæði í gærkvöldi sagði Mona Sa- hlin, leiðtogi Jafnaðarmannaflokks- ins og bandalags vinstriflokkanna, að Reinfeldt bæri skylda til þess að stjórna Svíþjóð þannig að tryggt yrði að Svíþjóðardemókratarnir fengju ekki að hafa pólitísk áhrif í landinu. Reinfeldt lýsti því sjálfur yfir, um það leyti sem kosningaúrslitin lágu fyrir í gærkvöldi, að það væri alveg á hreinu að ríkisstjórn hans myndi ekki starfa með Svíþjóðardemókröt- unum. Samstarf við Græningja Til þess að tryggja sér meirihluta á sænska þinginu sagði Reinfeldt þegar úrslitin lágu fyrir að hann ætl- aði að semja við Umhverfisflokkinn um stuðning við ríkisstjórnina, en hann er einn þeirra þriggja flokka sem mynda rauðgræna bandalagið. Flokkurinn fékk 7,2% fylgi í kosn- ingunum. Óvíst er hvort samningar nást við Umhverfisflokkinn um stuðning við stjórnina en ljóst er að Reinfeldt verður á einhvern hátt að tryggja sér meirihluta á sænska þinginu. Mun ólíklegra er að samstarf um slíkt náist við hina vinstriflokkana. Sögulegar kosningar  Ríkisstjórn miðju- og hægriflokka í Svíþjóð hélt velli í þingkosningunum í gær  Fyrsta skipti í tæp 80 ár að borgaraleg ríkisstjórn heldur völdum í kosningum Reuters Kosningar Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, ræðir við fjölmiðla í gær eftir að hafa greitt atkvæði í þingkosningunum. Ljóst er að ríkisstjórn Reinfeldts verður áfram við völd en borgaralegri ríkisstjórn hefur ekki tekist að halda völdum eftir kosningar í tæp 80 ár. Kosningarnar » Ríkisstjórn miðju- og hægri- flokka mun sitja áfram í Sví- þjóð undir forsæti Fredriks Reinfeldt. » Miðju- og hægriflokkunum tókst ekki að ná meirihluta þingsæta á sænska þinginu. » Reinfeldt vill ekki samstarf við Svíþjóðardemókratana sem beint hafa spjótum sínum að innflytjendum. » Þess í stað ætlar Reinfeldt að semja við Umhverfisflokk- inn um stuðning við rík- isstjórnina. Benedikt XVI páfi fór lofsam- legum orðum um andstöðu Breta við þýska nasista í síðari heims- styrjöldinni í ræðu sem hann flutti í gær í bresku borginni Birmingham í tengslum við heimsókn hans til Bretlands sem nú stendur yfir. Sjálfur ólst páfinn upp í Þýska- landi á valdatíma nasista og var sem unglingur undir lok styrjald- arinnar neyddur til þess að ganga til liðs við loftvarnarsveitir þýska flughersins. Sagðist hann af þess- um sökum vera sérstaklega snort- inn vegna þeirra fórna sem breska þjóðin hefði fært í baráttunni við nasismann. Lofaði andstöðu bresku þjóðarinnar við nasista Benedikt XVI páfi Kona hóf skothríð með skamm- byssu í íbúð skammt frá St El- isabeth sjúkrahúsinu í bænum Lör- rach í suðurhluta Þýskalands í gærkvöldi og á spítalanum sjálfum. A.m.k. þrír létu lífið í skotárásinni, og þ. á m. eitt barn, áður en lög- regla skaut konuna til bana. Ekki liggur fyrir hvað konunni gekk til með skotárásinni og er málið í rannsókn. Þrír myrtir í skot- árás í Þýskalandi Bandarískir embættismenn segja að loksins hafi tekist að loka end- anlega fyrir olíulekann í Mexíkó- flóa í kjölfar þess að olíuborpallur breska olíufélagsins BP hrundi 20. apríl sl. eftir að sprenging varð í honum. Leiðslunni var lokað með því að dæla steypu og jarðvegi í hana. Áður hafði tekist að loka leiðslunni til bráðabirgða á dög- unum. Gríðarlegt magn af olíu hefur lekið í flóann úr olíuleiðslunni og valdið einhverju versta umhverfis- slysi í sögu Bandaríkjanna. Segja olíuleiðslunni loksins lokað Olíuborpallurinn eftir sprenginguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.