Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Hinn 14. september 1950 brotlenti Geysir, flugvél Loftleiða, á Bárð- arbungu á Vatnajökli. Öll áhöfn vél- arinnar komst lífs af og komu björg- unarsveitir henni til bjargar hinn 18. september. Síðastliðinn laugardag voru því sextíu ár frá því að áhöfnin fannst heil á húfi á Vatnajökli. Af því tilefni stóðu Icelandair, Flugfélag Íslands, Þristavinafélagið, Flugbjörgunar- sveit Reykjavíkur og Flugsafn Ís- lands fyrir athöfn á Akureyri til að minnast hins ötula leitarstarfs björgunarsveitarmanna sem björg- uðu áhöfninni og þeirrar miklu mildi að ekki fór verr. Flogið var á DC-3 flugvélinni Páli Sveinsyni, sem margir þekkja sem landgræðsluvélina eða Þristinn, yfir Akureyri og úr henni vörpuðu flugbjörgunarsveitarmenn pökkum í fallhlíf og loks sjálfum sér. Hurð Þristsins var fjarlægð til að gera björgunarsveitinni þetta kleift og tók vélin því á loft með galopinn skrokk. Flugstjórarnir reyndu Björn Thoroddsen og Hallgrímur Jónasson flugu vélinni en flugmenn Geysis, þeir Dagfinnur Stefánsson og Magnús Guðmundsson, fylgdust með af jörðu niðri. Báðir muna þeir vel eftir slys- inu og þeim löngu dögum sem þeir hírðust uppi á jöklinum í miklum kulda. „Þetta var vissulega mikil lífsreynsla,“ segir Dagfinnur Stef- ánsson. Steinrotaðist við höggið Geysir var á leið heim til Ís- lands frá Lúxemborg þegar hann skall á Bárðarbungu. Rannsókn- arnefnd flugslysa komst að þeirri niðurstöðu að orsök slyssins mætti rekja til mikillar þreytu flugmann- anna. Magnús Guðmundsson hefur alla tíð þvertekið fyrir það og sagði í viðtali við Morgunblaðið í sumar að mikil lægð hefði hrakið þá af leið. Dagfinnur kveðst hafa verið á vakt í heilan sólarhring þegar slysið skeði. „Ég veit nú ekki hvort það hafi verið það sem olli því.“ Dagfinnur flaug vélinni frá Lúxemborg að Færeyjum en Magn- ús svaf á meðan. „Þegar við komum yfir Færeyjar sáum við ljós þar og Magnús tók við. Ég lagði mig þá í koju og en var síðan vakinn og heyrði að mótorarnir voru komnir á fullt afl svo ég flýtti mér fram í. Ég var þá rétt sestur í sætið þegar Magnús segir að við verðum að brjóta ísinn af vélinni því hún hélt ekki hæð. Ég hef sennilega verið búinn að spenna beltið en þurfti að losa það til að teygja mig upp í takkann til að setja ísvarnartækin á. Þá gerist slysið. Ég steinrotast þá á stundinni. Ég vissi ekki neitt meira um aðdragandann að þessu,“ segir Dagfinnur. Um borð í vélinni var mikið af fataefnum sem áhöfnin nýtti til að halda á sér hita, „Svo lágum við bara í einni kös til að reyna að halda á okkur hita. Hefðum við ekki haft þessi fataefni um borð í vélinni þá veit ég ekki hvert við hefðum farið, svei mér þá.“ Trúði ekki sendingunni Dagfinnur kveður áhöfnina hafa hugsað um fátt annað en að komast heim. „Mikil ósköp, það eina sem maður hugsaði um var að kom- ast heim til aðstandenda og láta vita að maður væri heill á húfi. Nei, maður gafst nú aldrei upp. Við unn- um hörðum höndum við að reyna að ná í senditækið úr vélinni. Eftir að við náðum í það og veðrið tók að létta til, því það var alltaf skafrenn- ingur, snjókoma og blindbylur bara, gátum við komið upp loftneti og sent skeyti að við værum á jökli og allir á lífi. Það var varðskipið Ægir sem heyrði þetta. Hann var nú staddur úti af Langanesi. Hann ætl- aði nú ekki að trúa því, hann hélt að einhver væri að plata. Það var nú ekki nema von eftir fimm daga,“ segir Dagfinnur sem kveður slysið ekki sitja í sér. „Ég fór strax að hugsa um það bara að komast í flug- ið aftur.“ Sextíu ár liðin frá Geysisslysinu  Björgunarstarfs og Guðs mildi minnst á Akureyri  Flugmenn Geysis fylgdust með athöfninni  Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur varpaði pökkum og sjálfum sér úr Þristinum í fallhlíf Ljósmynd/Eðvarð Sigurgeirsson Heil á húfi Björgunarsveitarmaður ræðir við Ingigerði Karlsdóttur, flugfreyju áhafnar Geysis, við flak flugvélarinnar á Bárðarbungu 18. september 1950. Morgunblaðið/Jónas Margeir Opnar dyr Akureyri skartaði sínu fegursta í haustsólinni á laugardag. Ljósmynd/Hörður Geirsson Hópurinn Flugmenn Geysis ásamt aðstandendum athafnarinnar. Morgunblaðið/Jónas Margeir Hoppað Björgunarsveitarmaður stekkur úr Þristinum yfir Akureyri. Gestur Einar Jónasson, safnstjóri Flugsafns Íslands, sem staðsett er á Akureyri, segir Akureyringa tengjast Geysisslysinu á sérstakan hátt. „Þessi partur var svona tengdur minningunni um það að Akureyringar voru þeir fyrstu sem fóru af stað til þess að leita. Til þess að bjarga þeim voru þeir fyrstir komnir af stað. Á jeppum og skíðum og einhverju slíku eins og þetta var þá,“ seg- ir Gestur sem kveður athöfnina hafa verið táknræna. „Þeir vörpuðu þarna úr Þristinum, það var táknrænt því það var gert líka þegar búið var að finna þau. Þá hentu björgunarsveitarmenn vistum niður til þeirra á jökl- inum,“ segir Gestur sem kveður flugvélar af gerðinni DC-3 hafa átt mikinn þátt í leit að Geysi. Bandarískri DC-3 vél var meðal annars lent á Bárð- arbungu til að bjarga áhöfninni en hún komst ekki á loft aftur. Alfreð Elíasson, einn af stofnendum Loft- leiða, fór í leiðangur síðar til að draga vélina niður af jöklinum. Vélin var því nefnd „Jökull“. Gestur Einar segir athöfnina hafa heppnast vel og gaman að flugmenn Geysis hafi tekið þátt í deginum. „Það var gaman að fá þessa heiðursmenn til okkar. Þeir hafa nú verið hjá okkur áður og það var afskaplega gaman að hitta þá og spjalla við þá. Þetta eru miklar hetjur, öldungar og frumkvöðlar í þessu öllu saman.“ Gestur Einar kveður það mikilvægt að fólk minnist gjörða björgunarsveita. „Mér finnst mjög gaman að menn skuli minnast þessa. Sérstaklega vegna þess að þetta fór miklu betur en á horfðist. Mér finnst það ósköp eðlilegt og fallegt að gera það.“ Akureyringar fyrstir af stað í leit að Geysi SAFNSTJÓRI FLUGSAFNS ÍSLANDS Morgunblaðið/Jónas Margeir Hlusta Björn Thoroddsen flugstjóri Þristins fer yfir flugplanið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.