Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HEFUR ÞIG EINHVERN TÍMANN LANGAÐ Í EITTHVAÐ SEM ÞÚ GAST EKKI FENGIÐ? JÁ EINS OG ÓDAUÐLEIKA? NEIBB FRÆGÐ? ÉG VÆRI TIL Í AÐ GETA SOFIÐ 25 TÍMA Á SÓLARHRING! SUMIR HUNDAR LEIKA SUMIR HUNDAR ERU KJÁNAR SUMIR HUNDAR NÁ Í SPÝTUR SEM MAÐUR KASTAR SUMIR HUNDAR ELTA SPÝTUR OG KOMA MEÐ ÞÆR AFTUR HVERNIG KYNNTUST ÞIÐ HRÓLFUR? HANN RÉÐST Á KASTALA FÖÐUR MÍNS OG BAR MIG Á BROTT! ÞAÐ VAR UPPHAFIÐ! ...AF BAK- VERKJUNUM MÍNUM! HJÓNABANDS- RÁÐGJÖF HÚN KANN AÐ KOMA MÉR ALVEG ÚR KERFI LALLI ER FARINN MEÐ KRAKKANA OG ÉG ÞARF EKKI AÐ MÆTA FYRR EN UM HÁDEGIÐ EN SÁ LÚXUS! ÉG MAN EKKI HVENÆR ÉG GAT SÍÐAST SLAPPAÐ AF EIN MEÐ BLAÐIÐ OG KAFFIBOLLA Æ, NEI EF ÉG BARA VISSI ÞAÐ ÉG GÆTI BJARGAÐ ÞVÍ EFTIR AUGNABLIK ? EF ÞÚ BORGAR MÉR TÍU MILLJARÐA HERRA BORGAR- STJÓRI... BORGAR- BÚAR VILJA VITA HVENÆR RAFMAGNIÐ KEMUR AFTUR Á Liberator Nú fyrir nokkrum dög- um var brotin niður, viðbygging við flug- turninn í Reykjavík. Þarna var stjórnstöð fyrir 14 Liberator- sprengjuflugvélar sveitar 120 í bresku strandgæslunni. Út- gerð flugvélanna var nokkuð frumleg. Í Reykjavík voru þær hlaðnar sprengjum og örlitlu af benzíni, svo var flogið til Keflavíkur og geymarnir fylltir. Keflavíkurflugvöllur var lagður á tíu mánuðum af 2.500 bandarískum unglingum sem voru undir yfirstjórn Bonesteel hershöfð- ingja sem sat í Sogamýri í næsta ná- grenni við Helgu Larsen. Í apríl 1943 lögðu Liberatorarnir upp frá Keflavík og hófu varðflug yf- ir skipalestum undan Hvarfi á Grænlandi, en þar höfðu kafbátar nazista getað herjað óáreittir á svo- litlu svæði. Í maímánuði fór fjöldi kafbáta frá Þýzkalandi til Græn- lands en fáir til baka (sumir segja enginn.) Þetta var nokkurs konar Stalingrad kafbátanna. Hitler froðu- felldi og Dönitz aðmír- áll átti fótum fjör að launa. Með þessum aðgerð- um urðu straumhvörf í styrjöldinni. Birgða- flutningar yfir hafið urðu nokkuð öruggir og undirbúningur fyrir innrás á meginland Evrópu komst á fulla ferð. Nú á bara að steypa viðbygginguna upp aftur, gera hana að jarðskjálftastífingu fyrir flugturninn. Setja þarna upp flug- sögusafn þar sem Li- beratorarnir verða í öndvegi og flugumsjónarsalurinn settur í upprunanlegt horf. Svona safn mun draga að sér fjölda ferða- manna. Hugsanlega væri hægt að markaðssetja svona sem WAR stop- over og þeir sem áhuga hefðu á væru fluttir til Reykjavíkur frá Keflavík með Douglas Dakota sem máluð væri í einkennislitum innrásarinnar. Gestur Gunnarsson tæknifræðingur. Ást er… … hringingin sem þú hefur beðið eftir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út- skurður kl. 13, myndlistar- og prjóna- klúbbur kl. 13, vist kl. 14, Fóst- bræðrasaga kl. 16. Árskógar 4 | Handavinna og smíði/ útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur handa- vinna kl. 9-16, kaffi/dagblöð. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, bæna- stund kl. 9.30. Listamaður mánaðarins. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, spjall kl. 13.30, kaffi. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og kl 13, leiðb. í handavinnu við til hádegis, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 17. Laust á spænskunámsekið, skrán- ing í síma 554-3400. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- línshópur kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Félagsmiðstöðin Boðinn | Opið kl. 9-17, ganga kl. 11, stafganga (Glóðin) kl. 16, hringdans kl. 18. Veitingar. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10 og 10.45 í fim- leikasalnum í Ásgarði, gönguhópur kl. 11, matur, vatnsleikfimi kl. 13. Skráning í spilabingó á Garðaholti 30. sept. fer fram í Jónshúsi. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, m.a. handavinna og tréútskurður. Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 15.30. Háteigskirkja | Félagsvist kl. 13 í Setr- inu, kaffi. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, bænastund kl. 10, matur, myndlist kl. 13. Hraunbær 105 | Skráning er hafin í haustlitaferð 23. sept., verð 3.300, kaffi- hlaðborð innifalið. Uppl. í síma 411-2730 Hraunsel | Rabb kl. 9, ganga kl. 10 frá Haukahúsi, G-kórinn kl. 10.30, gler- bræðsla kl. 13, tréskurður í g- Lækja- skóla, kl. 13, vist og botsía kl. 13.30, vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa opin frá kl. 9, Sig- rún, brids kl. 13, kaffisala kl. 14.30. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið, Stefánsganga. Listasmiðja; útsaumur/ handverk o.fl. kl. 9-16, félagsvist 13.30, skapandi skrif kl. 16, tölvuleiðbeiningar kl. 13.15, aðstoð veitir Sigríður Kristjáns- dóttir og börn frá Breiðagerðisskóla. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30, Boðinn: ganga kl. 16 og hringdansar kl. 18. Sjá www.glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Gengið frá Graf- arvogskirkju kl. 10, skartgripa- og korta- hönnun á Korpúlfsstöðum kl. 13. Sjúkra- leikfimi í Eirborgum Fróðengi kl. 14.30. Sundleikfimi á morgun kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Spjall- hópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa opin kl. 11.30, prjónaklúbbur o.fl. kl. 13, botsía kl. 13.30, veitingar, söngstund kl. 15. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur | Leikfimi á morgun kl. 12. Norðurbrún 1 | Opin Handavinna kl. 9- 12. Samvera með djákna kl. 14. Vesturgata 7 | Handavinna, botsía, leik- fimi kl. 9.15-15.30, matur, kóræfing kl. 13, tölvukennsla kl. 12, kaffi. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók- band, postulín kl. 9. Morgunstund kl. 9.30, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar, botsía kl. 10, framh.sagan kl. 12.30, handavinnustofan opin kl. 13- 16.30, spilað og stóladans kl. 13. Eftir að rökkva tekur á haust-dögum er við því að búast að ýmislegt fari á kreik, sem illa þolir sólarljósið. Það fékk karlinn af Laugaveginum að reyna: Ég fann að eitthvað óhreint var sem ekki við ég bregðast kunni og horfði upp í holtið þar sem helst var von á kerlingunni. Á leið sinni um Mýrarnar vestur í Breiðuvík á slóðir Sigurðar Breið- fjörðs gluggaði karlinn í veiðibæk- urnar: Flugan hefur falleg nöfn og færð í letur en feitur maðkur bragðast betur! Á Ökrum hér á Mýrunum bjó Árni Böðvarsson, mesta rímnaskáld 18. aldar. Hann orti: Ég er að flakka eins og svín út um sveitir víða, góins stakka grundin fín, gef mér að smakka brennivín. Sem óneitanlega minnir á vísu annars rímnaskálds, Lúðvíks Blön- dals, sonar Björns sýslumanns í Hvammi, þegar hann sagði við konu sína: Best er að drekka brennivín, bindindinu fleygja: Heyrirðu ekki, heillin mín, hvað ég er að segja? Teitur Hartmann lét sér ekki segjast: Þó ég fari á fyllirí og fái skelli, stend ég alltaf upp á ný og í mig helli. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af karli og kerlingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.