Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.09.2010, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Hjálparstofnanir hafa nú opnað dyr sínar að nýju eftir sumarfrí og ljóst að þörfin er ekki minni en áður. Nöt- urleg merki þess sáust við Fjöl- skylduhjálp á miðvikudag þar sem löng röð myndaðist mörgum klukku- tímum áður en matarúthlutun hófst. Þeir sem biðu í röð úti undir ber- um himni eftir því að fá að borða á miðvikudag máttu þakka fyrir að enn er nokkuð milt haustveður, þótt kaldir vindar hafi blásið, en vænta má þess að biðin verði öllu harð- neskjulegri þegar veturinn skellur á. „Auðvitað vildum við hafa sæti hér og rými svo fólk þurfi ekki að halda á börnum úti í öllum veðrum,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálp- ar. „Fólk kemur svoleiðis blákalt inn, það er alveg hrikalegt að þurfa að horfa upp á þetta vetur eftir vet- ur.“ Ásgerður segir að þörfin sé brýn fyrir stærra húsnæði. Engin salernisaðstaða sé t.d. í húsinu fyrir þá sem bíða og ekki heldur aðgengi fyrir fólk bundið hjólastólum þar sem dyr hússins eru of þröngar. Þá segist Ásgerður gjarnan vilja bjóða upp á leikhorn fyrir börnin því margir hafi ekki kost á öðru en taka þau með sér í biðröðina. Plástursaðgerðir hjálpa engum Fjölskylduhjálp leigir núverandi húsnæði hjá Reykjavíkurborg og gildir samningurinn til áramóta. Ás- gerður segir að sú hugmynd hafi komið upp að byggja skúr við húsið svo fólk gæti beðið inni en ekki hafi fengist heimild fyrir því. Stöðugt sé 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 www.noatun.is FLJÓTLEGT OG GOTT Hafðu það gott með Nóatúni PLOKKFISKUR KR./KG 989 1359 F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI ERSKIR Í FISKI 27% afsláttur Fjölskylduhjálp Íslands fékk úthlutaðar tvær milljónir á fjárlögum rík- issjóðs fyrir árið 2010. Ásgerður segir að það nái ekki upp í vörukaup í einum mánuði, sem nemi 2,7 millj- ónum og meira þegar „munaðarvörur“ eru keyptar. „Það fer upp í 3,7 milljónir þegar við kaupum tannkrem og tannbursta, hreinlætisvörur og kaffi. Þetta getum við ekki leyft okkur nema í mesta lagi tvisvar á ári. En til að þjóna grunnþörfum kaupum við matvæli fyrir 2,7 milljónir á mán- uði.“ ALLT KOSTAR SITT Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Þegar kisan Glingló tekur upp á því að stríða bola snýr hann vörn í sókn og hún lærir dýrmæta lexíu. Um þetta fjallar nýjasta bókin um Grallarana sem kom út á dög- unum, en bókin er einnig gefin út á vefnum í sérstakri táknmálsútgáfu. Þetta er í fyrsta sinn sem ljóð eru gefin út á táknmáli fyrir börn, en bækurnar um grallarana eru bæði í texta- og vísnaformi. Höfundur bókanna um Grall- arana er Selma Hrönn Maríudóttir, en hún fékk Sam- skiptamiðstöð heyrnarlausra í lið með sér við vinnslu bókarinnar. Selma starfar við vefsíðugerð, m.a. fyrir Samskiptamiðstöð. „Ég hef fylgst með þeim í mörg ár og var búin að sjá tilraunir sem þau hafa gert með er- lendar barnabækur. Mér fannst, sem barnabókahöf- undur, að auðvitað ætti maður að huga að því að öll börn gætu nýtt sér efnið.“ Ætlað börnum á aldrinum 2 – 6 ára Kolbrún Völkudóttir er táknmálsþulur í nýju útgáf- unni. „Hún hefur verið viðloðandi mikið af því barna- efni sem hefur verið gert fyrir heyrnarlaus börn og leikur m.a. Tinnu táknmálsálf í Stundinni okkar. Hún kemur þessu mjög vel til skila.“ Selma telur þetta í fyrsta sinn sem íslenskur barna- bókarhöfundur stendur sjálfur að slíkri útgáfu. „Þetta er dálítið dýrt þegar hugað er að fjölda heyrnarlausra barna á þessum aldri,“ segir hún en bækurnar eru fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára. „Við ákváðum því að áskrif- endur að vefnum okkar, grallarar.is, fengju að hlaða þessu frítt niður. Þannig geta fleiri nýtt sér þetta, s.s. þeir sem eru að læra táknmál og aðrir sem gætu haft áhuga.“ Gefur út vísnabók fyrir börn á táknmáli Sveitafjör Kolbrún Völkudóttir segir sögu grallaranna.  Tinna táknmálsálfur túlkar texta og ljóð í sérstakri vef- útgáfu  Höfundurinn vildi að öll börn gætu nýtt sér efnið Sprellað í sveitinni er fjórða bók Selmu um Grallar- ana, kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex, en fígúrurnar eiga sér stoð í raunveruleikanum. „Jújú, núna sitja Gling gló og Dabbi sitthvoru megin við mig en hundurinn Rex er úti í garði,“ segir Selma en gæludýrin hafa fylgt fjölskyldunni í mörg ár. „Þetta er því ekkert plat“ Gæludýrin ekkert plat ALVÖRU SÖGUHETJUR verið að leita að stærra húsnæði en til þessa hafi leigan í öllum tilfellum reynst of há. Björk Vilhelmsdóttir, formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að bregðast verði við vandanum sem blasi við hjálparstofnunum á heildstæðari hátt en með skyndi- lausnum. „Það verður að leysa vanda fátækra á annan hátt en með súpu- eldhúsum og stærra húsnæði svo bið- raðir geti verið enn lengri. Það er ekki hlutverk sveitarfélagsins að bregðast sérstaklega við, það eru all- ir aðilar vinnumarkaðarins, þeir sem semja um atvinnuleysisbætur, um líf- eyri. Plástursaðgerðir eru ekki til hagsbóta fyrir einn eða neinn.“ Í sumar var settur á laggirnar starfshópur um fátækt sem vinnur að kortlagningu fátæktar í borginni. Sr. Bjarni Karlsson leiðir starfið og segir að lagðar verði fram tillögur um úr- bætur í janúar. „Við erum að spyrja okkur dýpri spurninga, hvernig stendur á því að þetta er svona og hvað er hægt að gera í stöðunni þannig að fólk í íslensku sam- félagi þurfi ekki að standa í röðum eftir að þiggja ölmusu, því sá veruleiki fátæktarinnar sem birt- ist í þessari mynd er óþol- andi.“ Morgunblaðið/Ernir Fjölskylduhjálp Löng röð myndaðist mörgum klukkutímum áður en matarúthlutun hófst miðvikudaginn sl. Napurleg bið eftir nauðsynjavörum  Hundruð fjölskyldna þurfa mataraðstoð og bíður fólk langtímum saman í kuldanum  Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að taka verði á heildstætt á vandanum Jón Gnarr er fyrsti borgarstjór- inn sem heimsækir Fjölskyldu- hjálp í sjö ára starfstíð samtak- anna. Hann kynnti sér starfsemina aðeins tveimur vik- um eftir að hann settist í borgar- stjórastólinn og segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, framkvæmda- stjóri Fjölskylduhjálpar, að hann hafi vakið miklar væntingar en þær hafi fljótt dofnað. Ekkert hafi heyrst frá borgarstjóra síð- an. „Þegar Jón kom hugsaði mað- ur með sér að nú væri einmitt að koma maður fólksins, sá sem myndi skilja ástand þeirra sem eiga lítið sem ekkert. Við sýndum honum húsakynnin svo hann á al- veg að vita hver staðan er og því finnst okkur afskaplega dapurt að við höfum enga úrlausn feng- ið. Við erum sárar út í Jón.“ una@mbl.is Sárar yfir aðgerðarleysi borgarstjóra Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn og gisti fangageymslur lögreglunnar á Selfossi eftir að hann skapaði stórhættu á Suður- landsvegi við Kögunarhól aðfara- nótt sunnudags. Maðurinn reyndi að húkka sér far til Reykjavíkur en skapaði hættu með því að stökkva fyrir bíla og láta illa. Á annan tug ökumanna lét lög- reglu vita af athæfi mannsins. Þetta var um eittleytið að nóttu og því svartamyrkur en töluverð umferð. Hann var handtekinn vegna ölv- unar og óspekta og látinn sofa úr sér í fangaklefa. Að lokinni skýrslu- töku var honum sleppt. Ferðinni til Reykjavíkur seinkaði því verulega. Þá var ökumaður um tvítugt tek- inn á 106 kílómetra hraða innan- bæjar á Selfossi um helgina, en þar er leyfður hámarkshraði 50 km/ klst. Maðurinn var sviptur ökurétt- indum og á von á hárri sekt. Stökk fyrir bíla á Suðurlandsvegi Tannkrem er munaðarvara

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.